Morgunblaðið - 07.07.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 11
FRÉTTIR
að þessu hefðu reglulega nýtt sér
þjónustu fyrirtækisins, hefðu nú van-
ið sig á annan ferðamáta og myndu
haida honum áfram að verkfalli loknu.
Hann sagði að það væru mikil von-
brigði að verkfaliið skyldi ekki leysast
í þessari samningalotu. Hann hefði
talið allgóðar líkur á að það tækist.
Útlendir ferðamenn
kvarta mikið
Kristján Jónsson, framkvæmda-
stjóri Kynnisferða, sem sjá m.a. um
akstur í Leifsstöð, sagði einnig að það
væru sér mikil vonbrigði að ekki
skyldi takast að ijúka samningum í
fyrrinótt. Hann hefði talið að líkur á
samningum færu vaxandi.
„Við fáum mjög miklar kvartanir til
okkar, einkum erlendis frá. Þetta er
mikið frá fólki sem er að koma til Is-
lands til skemmri dvalar, sem er okk-
ar helstu viðskiptamenn. Þeir telja
sig með réttu vera mjög sárt leikna og
að þeir séu nánast leiksoppar dag-
prísa,“ sagði Kristján, en þar átti
hann við verð á akstri leigubíla milli
Keílavíkur og Reykjavíkur. Hann
sagði að leigubílar, sem aka á þessari
leið, hefðu hækkað gjald fyrir akstur
þegar verkfallið hófst. Kristján sagð-
ist hafa heyrt að fólk þyrfti að borga
um 8.000 kr. fyrir ferðina og að leigu-
bílar sem tækju marga farþega hefðu
selt sætið á 2.000 kr. Að auki hefðu
einhverjir farþegar þurft að horfa
upp á átök milli leigubílstjóra úr
Reykjavík og Keflavík, sem væri að
sjálfsögðu ekki skemmtilegt fyrir þá.
„Það er ljóst að þetta verkfall mun
skaða álit landsins og ferðaþjónust-
unnar út á við. Ferðaþjónustan hefur
orðið fyrir mjög þungu höggi,“ sagði
Kristján
Samkvæmt upplýsingum verkfalls-
nefndar Sleipnis hafa verkfallsverðir
haft afskipti af 2-3 rútum á dag að
undanfömu. í gær stöðvuðu verk-
fallsverðir þrjár rútur frá Austurleið
á Höfn í Homafirði. Eigendur fyrir-
tækisins komu austur og luku ferð-
inni.
Alþjóðlega ráðstefnan um samræður vísinda og trúarbragða
Tilgangur mannlífs
meðal umræðuefna
Morgunblaðið/Porkell
Nokkrir ráðstefnugesta. Talið frá vinstri: Frú Vigdís Finnbogadúttir, José Ramos-Horta frá Austur-Tímor,
Juan Federer frá Portúgal, sr. Halldór Reynisson og loks Hossain B. Danesh frá Sviss. Fulltrúar 20 þjóðlanda
sitja hina alþjóðlegu ráðstefnu um samræður trúarbragða og vísinda.
ALÞJÓÐLEGA ráðstefnan um sam-
ræður vísinda og trúarbragða á nýrri
öld, „Faith in the Future", sem sett
vai- í Viðey í fyrrakvöld hófst í gær-
morgun í Háskólabíói með því að
sönghópurinn Aróra kom syngjandi
inn í Sal 3, þar sem ráðstefnan fór
fram. Hópurinn flutti síðan nokkm'
lög, íslensk og erlend.
Dagskrá ráðstefnunnar er byggð
upp í kringum fimm meginþemu og
vom tvö þeirra tekin fyrir í gær. Ann-
að nefndist „Tækifæri og takmörk
vísinda og trúar“og hitt „Eðli og til-
gangur mannlífs“.
Fyrsti ræðumaður vai' bandaríska
konan Nancey Murphy, en hún er
doktor í guðfræði og heimspeki. Yfir-
skrift fyrirlesturs hennar var „End-
urmat á rykugum uppruna okkar: hið
góða líf til handa mannkyninu á nýrri
tugöld". Annai' ræðumaður var
Yechiel Becker frá Israel og fjallaði
hann um sköpunargleði í lífvísindum
og hvað þar bæri að varast. Þriðji í
röðinni var svo José Ramos-Horta frá
Austur-Tímor, handhafi friðarverð-
launa Nóbels 1996, sem m.a. fjallaði
um möguleika og hættur framundan í
samskiptum þjóða og varð tíðrætt um
fátækt og afleiðingar hennar. Eftir að
hann hafði lokið máli sínu risu menn
úr sætum og klöppuðu vel og lengi.
Fjórði ræðumaður var Hossain B.
Danesh, geðlæknir og rektor Land-
egg háskólans í Sviss, og kallaði hann
erindi sitt „Þar sem vísindi og trúar-
brögð mætast“. Nýlega kom út eftir
hann bók um sálfræði andlegs lífs, þar
sem hann tekur með athyglisverðum
hætti á eðli mannsins og hafnar þeirri
tvíhyggju að halda algjörlega að-
skildu líkamlegu og andlegu eðh.
Fimmti og síðasti ræðumaður var
svo Anantanand Rambachan frá
Trinidad, en hann er trúarbragða- og
heimspekiprófessor í Northfield í
Minnesota í Bandaríkjunum. Fjallaði
hann um eðh alheimsins og tilgang
lífsins út frá sjónarhóh hindúa.
Síðdegis fengu þátttakendur það
verkefni að fjalla um erindin sem flutt
höfðu verið fyrr um morguninn og
síðan hófst önnur fyrirlestraröð. Þar
fluttu þrír bandarískir fræðimenn,
Joel Primack, Albert H. Teich og
Nancey Murphy, inngang að þremm'
nýjum erindum, sem þeir höfðu lagt
fram, og fjölluðu um samspil vísinda
og trúar.
Að því loknu flutti bandaríska kon-
an Sunita Gandhi fyrirlestur um gildi
menntunar og nauðsyn þess að leggja
rækt við hin andlegu verðmæti í lífi
hverdagsins. Fyrsta degi ráðstefn-
unnar lauk svo í Neskirkju í gærkvöld
með erindi séra P. B. Martins frá
Indlandi, þar sem hann gerði að um-
talsefni bamaþrælkun á Indlandi.
Ráðstefnan heldur áfram í dag í Há-
skólabíói, og þá eru til umfjöllunar tvö
meginefni: „Framtíðarhlutverk vís-
inda og trúar í samfélagi manna“ og
„Umhyggja fyrir framtíð jarðar“. A
morgun, laugardag, er fimmta og síð-
asta efnið á dagskrá, sem er „Fram-
tíðin og gæði lífsins“.
Morgunblaðið/Golli
Þátttakendur í sumamámskeiði fyrir norræna kennara báru saman bækur sínar í vinnuhópi.
Námskeið fyrir norræna kennara á Laugarvatni
Fjallað um þróun kenn-
arastarfsins á nýrri öld
SUMARNÁMSKEIÐ fyrir kenn-
ara á Norðurlöndunum undir yfir-
skriftinni „Kennarar á nýrri öld“
stendur nú yfir á Laugarvatni og
er þar fjallað um framtíðarstöðu og
hlutverk kennara og þróun kenn-
arastarfsins, sérstaklega með tilliti
til þróunar upplýsinga- og sam-
skiptatækni í skólastarfi allt frá
leikskóla til háskóla.
Eiríkur Jónssou, formaður
Kennarasambands Islands, sem
skipuleggur námstefnuna hér á
landi, sagði í gær að milli 135 og
140 kennarar væru á námskeiðinu,
þar af 14 íslendingar. Námskeiðið
er haldið undir merkjum Sam-
bands kennarasamtaka á Norður-
löndum (NLS), sem var stofnað í
núverandi mynd árið 1995 og er
sameiginlegur vettvangur 23 kenn-
arasamtaka í Danmörku, Finn-
landi, Færeyjum, Grænlandi, ís-
landi, Noregi og Svíþjóð.
Eiríkur sagði að markmið með
þessu námskeiði, sem haldið væri á
tveggja ára fresti, væri að styrkja
félögin í hverju landi og efla sam-
starf kennara á Norðurlöndum.
Hann sagði að þau mál, sem
væru til umræðu á námskeiðinu,
hefðu verið rædd í stjórn NLS og
nú væri verið að koma þefrri um-
ræðu af stað í félögunum.
Fimm fyrirlesarar eru á nám-
skeiðinu. Nemendum er síðan skipt
í 12 hópa, sem hver um sig fær
verkefni, sem tengist efni fyrir-
lestranna. í lok námskeiðsins, sem
stendur frá 5. til 11. júlí, kynna
hóparnir niðurstöður og eru um-
ræður í kjölfarið.
Vinningar í Sumarhappdrætti
Sjálfsbjargar
Dregið var 30. júní 2000
Fólksbifreið Toyota Yaris Verso Luna
kr. 1.559.000
9072 13625
Ferðavinningur með Úrval Útsýn að
verðmæti kr. 130.000
1504 16988 25122 46880 58648 63309
4411 17756 32236 48834 59134 63449
5966 22244 36495 53150 59663 65378
6286 22524 40367 53702 61518 65808
11178 22886 44352 55935 63186 66129
Vöruúttekt að eigin vali frá Kringlunni
kr. 30.000
301 13697 23588 36371 44587 54299
314 14488 25035 36743 44724 54723
1077 15091 25886 37252 45458 55002
1626 15157 26245 37479 45697 55361
2250 17040 27410 38522 46074 56086
2619 17162 28257 40094 46858 57238
2847 17906 29035 40355 48043 57658
2983 18655 29438 41449 49182 59628
4976 19307 29759 41494 49797 59976
5295 19678 30052 41704 49807 60267
5605 19769 30066 42064 49948 60624
6042 21001 31118 42311 50830 61603
7009 22589 31353 42951 51099 62153
9391 22820 31740 43206 51114 63404
9763 23165 34120 43281 51873 63524
11746 23219 34359 44555 52167 66258
12224 23426 34978 44567 52700 66788
Þökkum fyrir veittan stuðning
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
Hátúni 12, Reykjavfk, sími 5529133