Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
OR vill tryggja fólki bestu
kjör í ýmsum viðskipt-
um og miðla greiðslum
STJÓRN Orkuveitu Reykjavíkur
hefur samþykkt einróma að fela
forstjóra fyrirtækisins að kanna
möguleika á að afla viðskiptavinum
Orkuveitunnar bestu kjara á marg-
víslegri vöru og þjónustu.
í tillögunni felst að athugað
verði hvort unnt sé að ná samning-
um við fyrirtæki um sértilboð til
viðskiptavina Orkuveitunnar gegn
því að vörur séu kynntar í reglu-
legum útsendingum fyrirtækisins
til viðskiptamanna sinna og
greiðslan innheimt í gegnum inn-
heimtukerfí þess. Ennfremur hvort
í sama tilgangi megi beita útboðum
til að ná hagkvæmustu kjörum á
vöru og þjónustu við viðskiptavini
Orkuveitunnar, svo sem á sviði
fjarskipta, og nýta þannig
markaðsstöðu og innheimtukerfi
fyrirtækisins til að auðvelda nýjum
og smærri fyrirtækjum aðgang að
markaðnum og örva með því
frjálsa samkeppni.
Símtöl, netþjónusta,
fjölmiðlar og fleira
Fyrir stjórnarfund Orkuveitunn-
ar var lögð greinargerð Guðmund-
ar Þóroddssonar forstjóra um
hugsanlega útfærslu. Þar kemur
fram að hugsa megi sér að Orku-
veitan leiti tilboða hjá einhverjum
smásöluaðila um sérkjör fyrir sína
viðskiptavini, væntanlega helst hjá
þeim sem selja vöru eða þjónustu í
einhvers konar áskrift. Jafnframt
sjái OR um innheimtu og tryggi
greiðslu til smásöluaðilans. „Þar
sem smásöluaðilinn losnar við [...]
greiðsluseðla, póstburðargjöld,
millibankagjöld og innheimtu-
kostnað og fær auk þess tryggingu
fyrir greiðslu getur verið um veru-
legan afslátt að ræða til OR,“ segir
í greinargerðinni og að dæmigerðir
aðilar til að þjónusta væru netþjón-
ustuaðilar, símafyrirtæki, langlínu-
söluaðilar, sjónvarpsfyrirtæki,
dagblöð, tímarit, klúbbar, húsfélög
og aðrir með reglulegar innheimt-
ur og með viðskiptavini í áskrift
þar sem um tiltölulega litlar upp-
hæðir væri að ræða.
Forstjórinn færir rök að því að
tekjuauki fyrirtækisins gæti numið
200 m.kr. á ári. „Einhver kostnað-
arauki verður vegna yfirfærslu
gagna og þess háttar en hann verð-
ur væntanlega í mesta lagi um
fjórðungur af þessari upphæð,“
segir í greinargerðinni.
Júlíus Vífill Ingvarsson, fulltrúi
sjálfstæðismanna í stjórn Orku-
veitunnar, lagði fram bókun þar
sem segir að tillagan geri ráð fyrir
því að Orkuveitan, sem sé einokun-
arfyrirtæki í eigu Reykjavíkur-
borgar, fari inn á svið þar sem í
dag ríki frjáls samkeppni.
Sjálfstæðismenn vilja kanna
forsendur og samkeppnisáhrif
„Eðlilegt er að OR leiti allra
leiða til að auka tekjur sínar og
þjónustu við viðskiptavini. Hér
verður þó að stíga varlega til jarð-
ar. Nauðsynlegt er að kanna sér-
staklega afstöðu Samkeppnisstofn-
unar til þessa og lagalegar
forsendur almennt. Það ber að
gæta vel að því að OR raski ekki
starfsemi einkafyrirtækja sem eru
starfandi á þessu sviði,“ segir í
bókun Júlíusar Vífils.
Júlíus Vífill sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri ekki
hægt að nota almannafé til að fara
í samkeppni gegn öðrum fyrirtækj-
um og því vildu sjálfstæðismenn
láta skoða lagalegar forsendur
vandlega og jafnframt hvaða áhrif
starfsemi af þessu tagi á vegum
Orkuveitunnar gæti haft á þau fyr-
irtæki sem áður hafahaslað sér völl
í starfsemi á borð við póstdreif-
ingu. Júlíus Vífill sagði að sjálf-
stæðismenn hefðu hins vegar ekk-
ert á móti því að forstjóra
fyrirtækisins væri falið að kanna
þessa þætti nánar enda ætti málið
eftir að koma aftur til stjórnarinn-
ar til ákvörðunar. Hins vegar teldu
sjálfstæðismenn brýnt að kanna
jafnframt áhrif af þessu á sam-
keppni á frjálsum markaði. Hann
kvaðst sjá fyrir sér að Orkuveitan
yrði einkavædd í framtíðinni og
færi þá í samkeppni í orkusölu
enda skylt samkvæmt tilskipun frá
ESB að skipta fyrirtækinu upp í
ákveðin samkeppnissvið. Júlíus
Vífill kvaðst geta séð fyrir sér að
hugmynd á borð við þá sem tillag-
an gerir ráð fyrir gæti fallið vel að
rekstri ákveðins hluta orkuveit-
unnar.
Auðvelda aðgang
að markaði
Helgi Hjörvar, flutningsmaður
tillögunnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að grunnhugsunin í
tillögunni væri að kanna hvort
Orkuveitan geti auðveldað nýjum
og smærri fyrirækjum aðgang að
markaðnum og örvað með því
frjálsa samkeppni í viðskiptum.
Helgi sagði að Orkuveitan hefði
með stofnun Línu.Nets stuðlað að
samkeppni og lægra vöruverði á
öðrum sviðum en orku en hún hefði
jafnframt hagsmuni af því að veita
Reykvíkingum eins góða þjónustu
og kostur væri. „Innan fárra ára
verður orðin samkeppni í raforku-
sölu í Reykjavík og þá getur ýmis-
konar aukaþjónusta styrkt mark-
aðsstöðu fyrirtækisins til
framtíðar,11 sagði Helgi.
Um það hvort Orkuveitan mundi
ekki íþyngja viðskiptavinum sínum
með sendingum óumbeðins auglýs-
ingapósts í tengslum við markaðs-
starf vegna þessarar greiðslumiðl-
unar sagði Helgi að slíkar
útsendingar yrðu að fara fram hóf-
samlega.
Morgunblaðið/Golli
Bensínstöðvum í Reykhólahreppi
hefur fækkað síðustu misseri
„Fólk í sveitinni
er Qúkandi reitt“
BENSÍNSTÖÐVUM í Reykhóla-
hreppi við Breiðafjörð hefur fækk-
að heldur síðustu misseri og eru
íbúar í sveitinni uggandi út af
ástandinu, en á þessu ári hafa tvær
bensínstöðvar hætt starfsemi.
Þetta kom fram í samtali Morgun-
blaðsins við Svein Guðmundsson, í
Miðhúsum í Reykhólahreppi, en
hann sagði að auk þessa væri hætt
að selja bensín á bænum Bæ og því
hefðu þrjár bensínstöðvar hætt
starfsemi á svæðinu á stuttum
tíma.
„Fólk í sveitinni er fjúkandi
reitt,“ sagði Sveinn. „Það veit ekk-
ert hvert það á að snúa sér og síð-
an bitnar þetta náttúrlega líka á
ferðamönnunum."
Sveinn sagði að á Reykhólum
hefðu verið tvær bensínstöðvar en
að fyrr á þessu ári hefði Olís hætt
starfsemi og því væri aðeins hægt
að kaupa bensín í Essó-stöðinni í
Kaupfélaginu.
„Málið er hinsvegar það að
Essó-stöðin er bara opin á verslun-
artíma og er hún t.d. lokuð allar
helgar. Fólk getur því ekki keypt
bensín á Reykhólum um helgar.“
Sveinn. sagði að Essó-stöðin í
ökálanesi í Gufudalssveit hefði
einnig hætt starfsemi á þessu ári
og því þyrfti fólk í sveitinni að fara
í Bjarkarlund hygðist það kaupa
bensín. Hann sagði að bensínstöðin
í Bjarkarlundi væri hinsvegar
aðeins rekin á sumrin, þegar sum-
arhótelið væri starfandi og því
væri ljóst að næsta vetur myndu
íbúar í Gufudalssveit þurfa að
sækja bensín til Reykhóla á versl-
unartíma eða í Kaupfélagið á
Króksfjarðarnesi.
I leit að
leiðsögn
FERÐAMENN eru tíðir gestir í
bókabúðinni í Austurstræti í
Reykjavík þar sem alls kyns korta-
bækur og bæklinga um landið er að
finna. Þangað sækja þeir væntan-
lega gagnlega leiðsögn og fróðleik
um landið.
Ný þjón-
ustumið-
stöð í
Súðavík
HAFIST hefur verið handa
við að reisa 790 fermetra
þjónustumiðstöð í Súðavík.
Agúst Kristinn Björnsson,
sveitarstjóri Súðavíkur-
hrepps, segir þetta lokaskref-
ið í flutningi byggðarinnar úr
gömlu byggðinni á nýtt og ör-
uggt svæði.
Þjónustumiðstöðin mun
hýsa verslun, veitingasölu,
bensínafgreiðslu, banka, póst-
hús, heilsugæslu og starfsemi
hreppsins að sögn Agústs.
Arið 1995 var tekin ákvörð-
un um að flytja byggðina
vegna snjóflóðahættu. Ofan-
ílóðasjóður studdi flutning
byggðarinnar, en hann kost-
aði þó aðeins uppkaup og
flutning á íbúðarhúsnæði en
kom ekki að atvinnu- og þjón-
ustuhúsnæði.
Agúst segir hins vegar ekki
hægt að skilja þessa nauðsyn-
legu þjónustu eftir í tveggja
kílómetra fjarlægð frá íbúum
Súðavíkur. Því var ákveðið að
byggja þjónustumiðstöðina og
flytja þessa mikilvægu þjón-
ustu saman á einn stað. Húsið
er fjármagnað með framlög-
um frá yfii'völdum og fyrir-
tækjum hreppsins.
Áætlað er að miðstöðin
komist í notkun á haustmán-
uðum 2001.
Árekstur
áein-
breiðri brú
ÁREKSTUR varð á einbreiðu
brúnni yfir Laxá á Skagaströnd
í gær. Kona var flutt til læknis
til skoðunar, en hún marðist
undan öryggisbelti. Að sögn
lögreglu var konan í jeppa sem
var kominn vel út á brúna þeg-
ar bíll með erlendum ferða-
mönnum ók út á hana. Þeir
sluppu ómeiddir úr árekstrin-
um. Slys hafa áður orðið á þess-
ari sömu brú.
Herdís varði
doktors-
ritgerð
• Herdís Sveinsdóttir, foimaður Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
var'ði doktorsritgerð sína við Umeá
háskólann í Svíþjóð 31. maí sl. And-
mælandi við doktorsvörnina var Dr.
Aila Collins, sálíræðingurvið
taugavísinda-
stofnun Karó-
línska sjúkrahúss-
ins í Stokkhólmi,
enritgerðinbygg-
ist á þremur rann-
sóknum og fjallar
um breytingar á
líðan heilbrigðra
íslenski'a kvemra
fyrir blæðingar. I
íyrstu rannsókn-
inni voru þátttakendur beðnii’ um að
fylla út spm-ningalista þar sem þær
lýstu líðan sinni fyrir blæðingar síð-
asta hálfa árið. í annarri rannsókn-
inni skráðu þátttakendur heilsudag-
bók daglega allt upp í sex tíðahringi.
Jafnframt var tekið ítarlegt hálfstaðl-
að viðtal við konumar. Þriðja rann-
sóknin var viðtalsrannsókn þar sem
leitað var eftir hugmyndum kvenn-
anna um fyrirbærið fyrirtíðaspennu.
Niðurstöður rannsóknanna hafa ver-
ið birtar í innlendum og erlendum
vísindatímaritum.
Helstu niðurstöður eru þær að
þátttakendur greina frá miklum
breytingum á líðan sinni fyiir blæð-
ingar. Flestum þátttakenda leið bet-
ur að einhverju leyti og ver að ein-
hveiju leyti fyrir þlæðingar í sama
tíðahring. Sama konan fann sjaldan
fyrir breytingum í sama einkenni
samfellt yfir tvo eða fleiri tíðahringi.
Líkamleg líðan breyttist helst fyrii’
blæðingar. Andleg líðan eða tilfinn-
ingar breyttust í litlum mæli.
Leiðbeinendur Herdísar við rann-
sóknina vora Dr. Astrid Norberg,
prófessor í hjúkrun við háskólann í
Umeá og Dr. Torbjörn Báckström,
prófessor í fæðinga- og kvensjúk-
dómafræðum við sama skóla.
Herdís er gift Rolfí Hanssyni,
tannholdssérfræðingi og eiga þau
fjögur börn á aldrinum 5-22 ára. Auk
þess að vera formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga er Herdís
dósent við hjúkrunarfræðideild Há-
skóla fslands
------------------
Tíu íslenskir
hönnuðir
kynntir
TÍU íslenskir tískuhönnuðir verða
kynntir á tískusýningu sem haldin
verður í Bláa lóninu dagana 11.-13.
ágúst á vegum Eskimó-models.
Að sögn Þóreyjar Vilhjálmsdóttur
framkvæmdastjóra er von á erlend-
um gestum á sýninguna auk þess
sem þekktir, erlendfr fjölmiðlar og
tískublöð hafa sýnt áhuga á að senda
hingað fulltrúa sína.
„Þetta er alþjóðlegur tískuvið-
burður að mínu mati,“ sagði Þórey.
„Þama verða fjórar einkasýningar
og ein sýning með þátttöku sex
hönnuða og er markmiðið að koma
íslenskri fatahönnun á framfæri.
Þarna verða líka tveir frægir, er-
lendir hönnuðir þeir Jeremy Scott,
sem sýnir venjulega í París, og mun
Björk semja tónlistina fyrir sýningu
hans og Boudicca, sem Emiliana
Torrini mun líklega semja tónlist
fyrir. Þetta verður því tísku- og tón-
listaiveisla."
íslensku hönnuðimir, sem verða
með einkasýningu, eru Linda Björg
Árnadóttir, Hrafnhildur og Bára
Hólmgeirsdætur, Ragna Fróða og
Sæunn Huld Þórðardóttir. Þær sem
taka þátt í samsýningunni eru
Brynja Emilsdóttir, Bergþóra
Magnúsdóttir, Hugrún Dögg Árna-
dóttir, María Ólafsdóttir og Ragn-
heiður Guðmundsdóttir.
Herdís
Sveinsdóttir