Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.07.2000, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 52 styrkir til endurgerða eða viðgerða veittir úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur Morgunblaðið/Arni Sæberg Húsið við Tjamargötu 18 hlaut 400.000 króna styrk til end- urbóta á gluggum. Morgunblaðið/Ami Sæberg Húsið við Veltusund 3b fékk hæsta styrkinn að þessu sinni, 600.000 krónur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Húsið við Laufásveg 43 hlaut 500.000 króna styrk til end- urbóta á gluggum. Gömul hús varðveitt og endurbætt Reykjavík Morgunblaðið/Jón Svavarsson Ingibjörg Sólrún Gisladóttir borgarstjóri, ávarpaði þau sem styrki hlutu í Höfða í gær. INGIBJÖRG Sólrún Gísla- dóttir borgarsljóri, afhenti í gær 52 styrki úr Húsvernd- arsjóði Reykjavíkur. Hlut- verk Húsverndarsjóðsins er að veita styrki til endur- gerða eða viðgerða á hús- næði eða öðrum mannvirkj- um í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningar- sögulegum ástæðum. Gert er ráð fyrir að framkvæmd- ir séu í samræmi við upp- runalegan stfl hússins og í samræmi við sjónarmið minjavörslu. Upphæð styrkja á bilinu 100.000 til 600.000 kr. Húsaverndarsjóður var stofnaður árið 1987 og var honum þá ætlað að veita lán til endurbygginga og við- halds á gömlum húsum sem talin voru hafa mikið varð- veislugildi. Árið 1997 var sjóðnum hins vegar breytt í styrktarsjóð. Eftirlit hefur verið með því hvernig lánin og síðar styrkirnir hafa nýst við endurgerð þeirra húsa sem fengið hafa fé úr sjóðn- um og þykja lánin og síðar styrkirnir hafa nýst vel til að gera húsin upp í sam- ræmi við umsóknirnar. Heildarupphæð styrkj- anna sem veittir voru í gær er 15 milljónir króna, en upphæð einstakra styrkja er á bilinu 100.000 til 600.000 krónur. Alls bárust 73 um- sóknir, samtals að upphæð 200 milljónir króna. Við afhendingu styrkj- anna sagði borgarstjóri meðal annars að verndun húsa í Reykjavík ætti ekki eingöngu að miðast við allra elstu húsin. Hún sagðist telja mikilvægt að huga einnig að húsum sem nær stæðu okkur í tíma og gæta þess að þau fengju að varð- veitast í upprunalegu horfí. Yngri hús væru ekki síður dýrmæt en þau eldri og minnti hún á að þau yrðu enn dýrmætari fyrir kom- andi kynslóðir. Flestir styrkjanna veittir til viðgerða á gluggum Flestir styrkjanna voru veittir til viðgerða á glugg- um þannig að þeim verði komið í upprunalegt horf, einnig voru veittir styrkir til endurbóta á hurðum, þak- köntum, skorsteinum og til annarra endurbóta. Hæsti styrkurinn í þetta sinn, 600.000 krónur, var veittur til endurbóta á gluggum hússins við Veltu- sund 3b, en það hús var byggt árið 1887. Tveir styrkir að upphæð 500.000 krónur voru veittir, annar til endurbóta á gluggum hússins við Laufásveg 43 og hinn til endurbóta á glugg- um hússins við Laugaveg 58. Tólf styrkir að upphæð 400.000 krónur voru veittir. Þeir fara til endurbóta á gluggum húsanna við Berg- staðastræti 21, Laufásveg 54, Lækjargötu 6b, Mið- stræti 6, Miðstræti 8a, Mið- stræti 8b, Mjóstræti 2, Stýri- mannastíg 10 og Tjarnar- götu 18, til endurbóta á gluggum og hurðum hússins við Vesturgötu 4, til að ljúka við endurbyggingu hússins við Vesturgötu 3 og til al- mennra endurbóta hússins við Austurstræti 20. Stefnt að mikilli upp- byggingu skíðasvæða Styrktarfélag vangefínna Rekstri Leik- skólans Lækjar hætt í haust Bústaðahverfi STYRKTARFÉ LAG vangef- inna hefur ákveðið að hætta rekstri á leikskólanum Læk við Stjömugróf í október en ákvörðun um þetta var tekin af stjórn félagsins í lok maí. Við- ræður standa nú yfir við einka- aðila um yfirtöku rekstrarins. Kristján Sigurmundsson, framkvæmdastjóri félagsins, segir að þetta hafi verið erfið ákvörðun en ekki sé réttlætan- legt miðað við aðstæður í dag að félagið standi fyrir slíkum rekstri. „Við höfum verið afar stolt af því að geta boðið upp á góðan og mannvænan leik- skóla en við eigum í baráttu við yfirvöld um að fá fé í þjónustu okkar við þroskahefta og því er erfitt að réttlæta að ár hvert sé talsverðum fjárhæðum var- ið í að borga með þessum rekstri," segir Kristján. Unnið að því að fá pláss fyrir bömin Kristján segir að 16 böm hafí verið á Læk en unnið sé að því að fá leikskólapláss annars staðar fyrir þau böm sem þess þurfi og hann vonist til þess að mál allra verði leyst sem fyrst með farsælum hætti. Hann segir að leikskólinn hafí í upphafí einungis vistað böm starfsmanna félagsins. „ Þetta vora ákveðin hlunnindi fyrir starfsfólk þar sem mjög erfitt var að fá leikskólapláss á þessum tíma. Því miður hafa ekld allir starfsmenn félagsins getað fengið pláss fyrir böm sín á Læk og því hefur þarna verið um takmörkuð forrétt- indi að ræða en það er stefna okkar í starfsmannamálum að veita öllum jafna þjónustu," segir Kristján. Reyþjavíkurborg sýndi ekki áhuga á kaupum Kristján segir að það hafi komið smám saman í Ijós hversu óhagstæð rekstrarein- ing skólinn er og þegar félagið hafi boðið Reykjavíkurborg að taka við rekstrinum hafi hún ekki haft áhuga á því. „Þeir sáu það í hendi sér að rekstur- inn gengi ekki upp,“ segir Kristján. Aðspurður segir Kristján að ákvörðun um lokunina hafi ef til vill verið tekin of seint, það er að segja eftir að leikskólar bæjarfélaga voru hættir að taka inn böm fyrir haustið. „Við vitum að þetta hefur verið afskaplega góður og farsæll leikskóli og vildum síst af öllu loka honum þótt á daginn kæmi að það yrði ekki umflúið. Þess vegna hefur það kannski dregist úr hömlu að taka þessa ákvörðun," segir Kristján. Skíðasvæðin STEFNT er að því að hefja talsverða uppbyggingu á skíðasvæðunum í Bláfjöllum, Skálafelli og á Hengilssvæð- inu, en vinnuhópur sem skip- aður var af Bláfjallanefnd til að móta framtíðarstefnu fyrir skíðasvæðin hefur skilað skýrslu þar sem fram koma hugmyndir að stefnumótun fyrir svæðin fram til ársins 2008. Lagt er til að nýjar lyftur verði settar upp og aðrar færðar til, með það að mark- miði að auka flutningsgetu og hagkvæmni lyftubúnaðar. Einnig er lagt til að aðstaða fyrir starfsmenn tæki og bún- að verði bætt. Hugmyndir um að fjöllin verði byggð upp sem heilsárs skemmti- og útivistarsvæði fyrir fjölskylduna, eru settar fram í skýrslunni. Mælt er með því að aðstaða fyrir börn og byrjendur verði bætt, að þeir sem era á snjóbrettum fái sérstaka aðstöðu og að aukin áhersla verði lögð á gerð og merkingar gönguleiða. Samgöngur, þjónusta og öryggsmál bætt Einnig er lagt til að sam- göngur, öryggismál og þjón- usta verði bætt. Það yrði til dæmis gert með því að ljúka við að leggja varanlegt slitlag að svæðunum og efla almenn- ingssamgöngur, móta örygg- isreglur og bæta öryggis- merkingar, og bæta aðgöngu- miðakerfi, gera opnunartíma sveigjanlegri, bæta húsakost þann sem gestum er boðið upp á og eíla miðlun upplýsinga. Vinnuhópinn skipuðu Ingi Þór Hermannsson, Hildur Jónsdóttir og Ingvar Sverris- son formaður Bláfjallanefnd- ar, og auk þess var Sævar Kristinsson ráðgjafi hjá Iðn- tæknistofnun ráðinn til starfa við verkefnið. Hópurinn ráð- færði sig við fulltrúa íþrótta- félaga, starfsmanna og ann- arra sem hafa starfað að útivistarmálum á höfuðborg- arsvæðinu. í skýrslunni er meðal ann- ars lagt til að rekstur skíða- svæðanna verði sameinaður undir Bláfjallanefnd, en að henni standa 13 sveitarfélög. Sveitarfélögin og Bláfjalla- nefnd myndu gera með sér þjónustusamning um upp- byggingu og rekstur svæð- anna og einnig yrðu kannaðir möguleikar á því að fyrirtæki tækju þátt í einstökum þátt- um rekstrarins. Reynt að semja við sveit- arfélögin um framlög Ingvar Sverrisson formað- ur Bláfjallanefndar segir að búið sé að senda bréf til bæj- arstjórna þeirra 13 sveitarfé- laga sem að nefndinni standa þar sem óskað er eftir því að gerður verði þjónustusamn- ingur til sex ára um rekstur skíðasvæðanna. Frjálsari hendur í rekstrinum „Það er von okkar að með þessu rekstrarformi muni Bjáfjallanefnd fá frjálsari hendur í rekstrinum. Með svona samningi vitum við ná- kvæmlega hvað við fáum mik- ið fjármagn næstu sex árin og eigum því mun auðveldara með að gera langtímaáætlan- ir,“ segir Ingvar. Ekki er búið að taka ákvörðun um hversu miklu fjármagni sveitarfélögin munu verja til uppbyggingar skíðasvæðanna en sveitarfé- lögin veita fé til þeirra í hlut- falli við íbúafjölda. Ingvar segir að Bláfjallanefnd muni reyna að semja við sveitarfé- lögin um talsvert aukin fjár- framlög. „Þegar við setjumst að samningaborði munum við gera kröfu um ákveðna upp- hæð því það er Ijóst að það þarf að verja talsverðu fé í uppbyggingu. Á móti kemur svo að viðætlum okkur að ná upp þjónustustiginu og auka aðsókn þannig að svæðin skili mun meiri tekjum,“ segir Ingvar. Knattspyrnuhús rís við Víkurveg Framkvæmdir hefjast í haust Grafarvogur AKVEÐIÐ hefur verið að seinka skilafresti á tilboð- um vegna knattspyrnuhúss sem mun rísa við Víkurveg í Borgarholtshverfi á næsta ári. Fyrirtækin sem taka þátt í lokuðu útboði era 5 og ber þeim að skila tilboðum sínum inn fyrir 15. ágúst. Niðurstaða ætti að fást fyrir miðjan sept- ember að sögn Kristins J. Gíslasonar, verkefnisstjóra yfir íþrótta- og tómstunda- málum hjá Borgarverk- fræðingi. Kristinn segist búast við því að fram- kvæmdir við húsið hefjist strax í haust en miðað sé við að húsið verði tekið í notkun í byrjun október á næsta ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.