Morgunblaðið - 07.07.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 07.07.2000, Síða 50
Jjto FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐItí HESTAR Hin litfagra Hekla frá Þóreyjarnúpi heillaði bæði hal og sprund í brekkunni enda hryssan vel til höfð af Halldóri Gísla. Gullgóðir töltarar fara heiðurshring í breiðfylkingu að lokum B-úrslitum. Sigurbjörn og Oddur lengst til vinstri. Sigurvegararnir Seigt í gömlu brýnunum FYRSTA verðlaunaafhending landsmótsins fór fram í gær að af- loknum B-úrslitum í töltkeppni mótsins þegar gömlu garparnir margreyndu Sigurbjöm Bárðarson Oddur frá Blönduósi tryggðu sér rétt til þáttöku í A-úrslitum á laugardagskvöldið. Voru þeir félagar efstir eftir hægatöltið og hraðabreytingar og sigldu svo yfírvegað í gegnum yfir- ferðina og gulltryggðu úrslitasæt- ið. Brekkan var þéttsetin þegar tölt- úrslitin hófust og stemmningin góð enda fíma góð hross sem þarna öttu kappi. Sérstaklega voru hæga- töltið og hraðabreytingar góðar hjá öllum hrossunum en aðeins voru þeir farnir að narta í hæla sér á yf- irferðinni eða grípa á sig sem kall- að er. En þetta voru B-hestamir og er óhætt að fara að láta sig hlakka til A-úrslitanna. En röðin varð sú að Sigurbjörn og Oddur urðu hlutskarpastir. Næst komu Sævar Haraldsson og Glóð frá Hömluholti, Halldór Gísli Guðnason og Hekla frá Þóreyjar- núpi, Jóhann R. Skúlason og Oliver frá Vestri-Garðsauka og Eysteinn Leifsson og Hugur frá Mosfellsbæ. MorgunblaðiðValdiraar Kristins Þótt aldrei rigndi verulega mikið kom regnfatnaður í góðar þarfir í gær og fór því vel um flesta í brekkunni. •'Misjafnt gengi kynbótahrossa GENGIÐ er nokkuð misjafnt hjá kynbótahrossunum á landsmótinu og eru býsna mörg þeirra að lækka í einkunn fyrir hæfileika. Bringa frá Feti er til dæmis að lækka úr 9,01 í 8,84 sem er all nokkuð. Hún var efst af sex vetra hryssum inn á mótið en heldur eigi að síður fyrsta sætinu þrátt fyrir þetta og er með 8,56 í aðaleinkunn í stað 8,66 áður. Gyðja frá Lækjarbotnum er hins- vegar á uppleið hækkar úr 8,33 í 8,50 fyrir hæfileika og 8,38 í aðaleinkunn. Gyðja skýtur Pyttlu frá Flekkudal aftur fyrir sig en hún lækkaði úr 8,58 í 8,43 og kemur út í aðaleinkunn með 8,35 í stað 8,44. Flauta frá Dalbæ er á uppleið hlýtur 8,59 fyrir hæfileika og 8,33 í aðaleinkunn. I fimmta sæti er svo Oddrún frá Halakoti sem heldur sinni einkunn 8,59 fýrir hæfi- leika og 8,28 í aðaleinkunn. Þula frá Hólum er efst sjö vetra hryssna. Hún lækkaði þó frá því á vorsýningu úr 8,42 í 8,37 fyrir hæfileika og er því með 8,53 í aðaleinkunn í stað 8,62. í öðru sæti er Þruma frá Þóreyjarnúpi með 8,33 í aðaleinkunn en hún lækk- aði einnig, úr 8,55 í 8,48 fyrir hæfi- leika. Spurning frá Kirkjubæ hækk- aði aftur á móti umtalsvert, fór úr 8,10 í 8,31 og fær því 8,30 í aðaleink- unn og er í þriðja sæti. I fjórða sæti er Þilja frá Hólum með 8,30 og í fimmta sæti er Játning frá Stein- dórsstöðum sem hækkaði lítillega og er með 8,29 í aðaleinkunn. Útkoman er einnig með ýmsu móti meðal stóðhesta þar sem þeir bæði hækka og lækka. Það sem helst bar til tíðinda er að Ýmir frá Holtsmúla er að því er næst verður komist kom- inn yfir hálfbróðir sinn Nagla frá Þúfu sem kom efstur inn á mótið en litlu munar, aðeins einni kommu. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Mikil stemmning var þegar keppendur í B-úrslitum í ungmennaflokki riðu heiðurshringinn. Hörkukeppni í B-úrslitum í ungmennaflokki AUÐUR Ástvaldsdóttir, Freyfaxa, á g^juld frá Víðivöllum fremri var efst eftir hörkuspennandi keppni í B-úr- slitum í ungmennaflokki á landsmóti hestamanna. Hún fékk 8,624 í eink- unn og vann sér þar með rétt til að taka þátt í A-úrslitum. Fast á hæla Auðar kom stalla hennar úr Frey- faxa, Hafdís Amardóttir á Heldi frá Kollaleiru með 8,620. Röð annarra keppenda er þannig: 3. Guðmundur Oskar Unnarsson, Mána, á Mósa frá Múlakoti með 8,560. 4. Ingunn B. Ingólfsdóttir, And- vara, á Sprengju frá Kálfholti með 8,552. 5. Hinrik Þór Sigurðsson, Sörla, á Garra frá Grund með 8,496. 6. Kristín Ósk Þórðardóttir, Sörla, á Síak frá Þúfu með 8,380. 7. Hrefna María Ómarsdóttir, Fáki, á Hrafnari frá Álfhólum með 8,352. 8. Sigríður Þorsteinsdóttir, Gusti, á Yddu frá Kirkjulandi með 8,264. Keppnin í B-úrslitum var mjög skemmtileg og áhorfendur fögnuðu vel þegar þessi glæsilegu ungmenni á sínum góðu hestum riðu í breið- fylkingu eftir verðlaunaafhendingu. En A-úrslitin eru eftir með átta efstu knöpum og hestum úr undankeppn- inni og gefur árangur úr B-úrslitum fyrirheit um spennandi keppni á laugardagskvöldið. Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Góður skeiðsprettur hjá Ormi og Atla lagði grunninn að góðri einkunn. Ormur stóðst allar atlögurnar ORMUR frá Dallandi og Atli Guð- mundsson, Fáki, tróna á toppnum að lokinni forkeppni A-flokksgæðinga með 8,83 sem er heldur lægri eink- unn en búist hafði verið við. Klakkur frá Búlandi og Vignir Jónasson,Fáki, koma næstir með 8,66 en Vignir vann það ágæta afrek að koma þrem- ur hestum í úrslit í A-flokki. Ljósvaki frá Akureyri og Baldvin Ari Guðlaugsson, Létti, eru í þriðja sæti með 8,58 og er það frekar óvænt frammistaða því nöfn þeirra hefur lítið borið á góma í getgátum manna um hugsanlega röð alhliða gæðinga. Röð tólf næstu hesta er annars sem hér segir: 4. Lilja frá Litla Kambi og Vignir Jónasson, Fáki, 8,55. 5. Skafl frá Norðurhvammi og Sig- urður Sigurðarson, Mána, 8,53. 6. Óður frá Brún og Auðunn Krist- jánsson, Fáki, 8,50. 7. Kolskeggur frá Garði og Atli Guðmundsson, Sörla, 8,50. 8. Stjarni frá Dalsmynni og Ragn- ar Hinriksson, Fáki, 8,48. 9. Ómur frá Brún og Baldvin Ari Guðlaugsson, Funa, 8,47. 10. Súla frá Bjarnanesi og Hugrún Jóhannsdóttir, Gusti, 8,47. 11. Randver frá Nýjabæ og Vignir Jónasson, Sleipni, 8,47. 12. Þytur frá Kálfhóli og Elsa Magnúsdóttir, Sörla, 8,47. 13. Geysir frá Gerðum og Reynir Aðalsteinsson, Ljúfi, 8,46. 14. Kjamveig frá Kjarnholtum og Tómas Ragnarsson, Fáki, 8,46. 15. Fjöður frá Ási I og Will Co- vert, Gusti, 8,44. Þessi fimmtán hross mæta í úrslit. Sjö efstu keppendur fara beint í A- úrslit á sunnudag klukkan 17:15. Hinir átta keppa sín á milli um eitt sæti í A-úrslitum á föstudag klukkan 20. ------HH--------- Framtíð og Gunnur fyrst- ar í mark FRAMTÍÐ frá Runnum er með besta tímann, 22,07 sek. eftir undan- rásir í 250 m skeiði. Knapi er Sveinn Ragnarsson. Með næst besta tímann, 22,88 sek., er Vaskur frá Vöglum, knapi Baldvin Ari Guðlaugsson og þriðji er Óðinn frá Efstadal sem skeiðaði á 22,96 sek. Gunnur frá Þóroddsstöðum og Bjarni Bjamason em með besta tím- ann í 150 m skeiði, 14,21, Gígjar frá Stangarholti og Auðunn Kristjáns- son em næstir með 14,37 sek.og þriðju em Neisti frá Miðey og Sigur- björn Bárðarson með 14,38. Mikil þátttaka var í skeiðinu, 6 riðlar í 250 m og 12 í 150 m skeiði. Milliriðlar í þessum greinum verða í kvöld kl. 21 en úrslitasprett- irnir verða á laugardagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.