Morgunblaðið - 07.07.2000, Side 60

Morgunblaðið - 07.07.2000, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLKí FRÉTTUM Söngvari The Verve aleinn! SÖNGVARI hijómsveitar- innar sálugu The Verve fór beint í efsta sæti breska plötusölulistans meö fyrstu sólóbreið- skífu sína „Alone With Everybody". Það má því með sanni segja að það sé einmanalegt á toppn- um. Þaðervonandiað pilturinn geti nú keypt sér eitthvað í svanginn fyrir aukaskildinginn en hann er ekki þekktur fýrir að vera sá sverasti í tónlistarbransanum. Isiendingar eru hinsvegar ekki eins fljótir að breiða út arma sína fyrir Richard Ashcroft því platan hans eyðir sinni fyrstu viku í 26. sæti tónlistans. Fyrsta smáskífulag kappans, „Song For Lovers'h hefur þó fengið ágætis móttökurhjá dagskrágerðarmönnum útvarps- stöðvanna auk þess sem all sérstætt mynd- band við lagiö hefur vakið athygli áhorfenda tónlistarsjónvarpsstöðvanna. Pottþétt á toppnum! ÞAÐ AÐ kaupa séralit- af eintak af nýjustu safnplötunni í PotL þéttröðinni erorðið eins sjálfsagt og að kaupa sér reglulega nýtt par af sokkum. Á plötunum erávallt safnað saman þeim lögum sem eru hvað vin- sælust f útvarpi á útgáfudegi platnanna og er sú tuttugasta í röðinni engin undantekning. Þar má meðal annarsfinna Eurovisionsmell okkar íslendinga þetta árið. nýjasta slagarann frá Moloko. „You Can Do lt" með lce Cube, hin náttúruiega blús frá Moby, lagaflækjurnar í Ðestiny's Child o.fl. i 3.! 7.. | 6 I | Marshall Mathers IP ;Eminem j Universol | 3. 4.1 3. j 5 í ! Ultimate Collection | Borry Whife • Universel ■ 4. 5. ! 6. j 12 ! ; Play jMoby ;tóute | 5. 6. ; 5.; 16 ; ; Hoorey For Boobies • Bloodhound Gang ; Universal j 6. 7. ■ 4.; 7 | ; Oops I Ðid It Again ; Britney Spears ÍEtól ; 7. 8. ; ; 1 ; N ; Íslandslög 5- í kirkjum landsins; Ýmsir i Skífon i 8.* 9. i 9. i 6 i i Mission Impossible 2 itmsir i Hollyw. Rec.i 9. 10. i 10. i 5 i i Bellman iBubbi iSkífan : 10. 11.1 8. i 4 i Í Eurovision Song Contest jÝmsir j BMG j 11. 12. : 30.: 57 : Ö j Ágætis byrjun jSigur Rós j Smekkleysoj 12. 13. ; 14.j 10 j j Skull & Bones JCypressHill jSony j 13. 14. j 11.j 24 j jBestOf jCesarioEvora iBMG i 14. 15. | 12.j 6 ; i Greatest Hits jWbitney Houston ÍBtóG j 15. 16. ; 20. j 46 j i Significant Other : Limp Bizkit ; Universal : 16. 17.1 - i 1 i i SigurihirHosason jSolmorlífsins itóóIogmennjl7.*- 18.1 18.i 7 i i Era 2 jEra j Universal j 18. 19. j 44. j 3 j j Don't Give Me Names jGuanoApes j BtóG j 19. 20. j 13. j 6 j j Hagnesta Hill ________j Kent j BtóG j 20. 21.; 16.; 37; j 12 Ágúst 1999 j Sólín Hans Jórts Míns i Spor • 21. 22. j 32.; 31 j j Supernatural i Santana iBtóG ■ 22. 23.; 52. i 2 ;H j Mort Anthony i Marc Anthony i Sony i 23. 24.; 28. i 33 ; i S&M itóetollica i Universol ; 24. 25. i - i 1 i i Trans Nation ! Min'istry of Sound ! M. crf Sound :25. —«6.: -; i i Alone with Everybody 1 Richord Ashcroft ÍEtói ! 26. 27.; - ! 1 i i Riding With 1 Eric Clapton+B.B.Kinq! Warner j 27. 28.: 22.1 5 ; 1 Vöqquvísur fyrir skuqqc prins 1200.000 noglbítar j Sproti j 28. 29.: 57.: 21 j • Glanni glæpur • Ýmsir j Latibær ehf * 29. 30- i 27 = j Binaural iPearlJam : Sony j 30. Á Tónlistonum eru plötur yngri en tveggia óra og era í veröflokknum „fullt verÖ". Tónlistinn er unninn af FricewaterhouseCoopers fyrir Somband hljómplöfuíraroleiðoiida og Morgunblaðið i somvinnu við eftirloldorvwslanir: Bókvol Akoreyri, Bónus, Hogkoup, Joprs Brouforholfi, Jopís Kringfunnijopís Lougorvegi, Mósík og Myndir tetwstræt), Músik og tóyndi/ tójédíf,Somfónlis» Kringlunni, Skffan Kringlunni, Skifon lougorvegi 26. Saxófónn í Hallgrímskirkju! SIGURÐUR FLOSA SON saxófónleikari er islenskum djassáltugamönn- um vel kunnugur enda er hann í hópi þeirra bestu hér á landi. Hann eransi iöinn við plötuút- gátu því nú þegar það eru rétt rúmlega sex mán- uðir liðnir frá því hann gaf út plötuna „Himna- stiginn", ásamt þeim Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara og Lennart Ginman kontrabassa- leikara, gefur hann út plötuna „Sálmar lífsins". Platan kemur sér snyrtilega fyrir í 17. sæti list- ans eftirfyrst viku sína í hillum plötubúðanna. í þetta sinn er það organistinn Gunnar Gunnars- son sem leikur með honum 14 sálmalög frá ýmsum tímum. Lögin eru útsett af þeim félög- um oger áhersla lögð á spuna af ýmsum gerð- um. Margir sálmanna tengjast stórhátíðum kirkjuársins og ýmsum kírkjulegum athöfnum. Faðirvorið á topp tíu! FERSKASTA unglambið á listanum þessa vikuna er sú fimmta í íslandslaga út- gáfuröðinni, en piatan þer nafnið „I kirkjum landsins". Að þessu sinni er horfttil himins í tilefni kristnitöku- hátíöarinnar og sungin eru nokkur trúarleg dægurlög sem fyigt hafa íslendingum í gegnum súrt og sætt. Sem fyrr er það Björgvin Halldórsson sem var umsjónarmaður verkefnisins en á plötunni syngur hann m.a. bænina „Faöirvor". Björgvin hefur enn og aftur smalað saman mörgum af rótgrónustu söngvurum þjóðarinnar því á meóal flytjanda eru Egili Ólafsson, Bubþi, Diddú, Sigga Beinteins, Helgi Björns og Páll Rósinkrans. TONLIST Geisladiskurinn B e II ni a n VÍSNATÓNLIST Bubbi Morthens og Guðmundur Pétursson. Skífan 2000 BUBBI Morthens er nokkuð fjölhæfur tónlistarmaður, hann er maður margra „tón-lista.“ Um sama leyti og Bubbi rifjar upp sokkabandsár einnar hressilegustu rokksveitar íslenskrar tónlistar- sögu, Utangarðsmanna, og býr sig undir óvæginn pönkhristing með þeim í sumar syngur hann blíðlega vísur sænska söngvaskáldsins Carl Michael Bellmans. Þar skilur Bubbi groddalegt gúanórokkið eftir heima og rær þess í stað með Guð- mundi Péturssyni gítarleikara í öllu hæglátari bátsferð undir volg- um sólargeislum Bellmans. Það er líklega ekki til sá íslend- ingur sem ekki hefur myndað sér skoðun á Bubba og hans tónlist og er ég þar engin undantekning. Þess vegna þótti mér dálítið spenn- andi að ímynda mér að ég hefði aldrei heyrt um þennan Bubba og hlusta á hann flytja söngva Bell- mans án þess að hugsa neitt um fyrri verk, dyggðir og syndir og gleyma því að það væri Kóngurinn sem syngi. Ég lokaði augunum, setti tónlistina í gang og myndaði mér skoðun á því alveg upp á nýtt að Bubbi Morthens hefur gullfall- ega rödd sem fer afskaplega vel að syngja Fredmans-pistla Bellmans. - Þeir Bubbi og Bellman eiga víst heilmikið sameiginlegt þótt ríflega 200 ár skilji þá að í aldri. Báðum þótti þeim til dæmis ljúft að fá sér svolítið í glas á yngri árum. Kannski er það meðal annars þess vegna sem Bubbi lifir sig jafn inni- lega inn í drykkjuvísurnar. Vísurn- ar sem valdar voru á plötuna eru, eins og áður sagði, pistlar Fred- mans en sá var úrsmiður og ein aðalhetjan í safni Bellmans af glað- værum drykkju- bræðrum. Bræður þessir voru víst saman í eins kon- ar drykkjuklúbbi, Bacchi Wapen, og dýrkuðu þar drykkjuguðinn Bakkus. Vínið er þó ekki eina yrk- isefni Bellmans. Hann kemur einn- ig við hjá ljúfum börmum, lokkandi skautum og Dauð- anum sjálfum auk þess að staldra við vögguna. Lög- in sjálf fékk Bellman flest að láni frá ónefndum höfundum frá Frakklandi og meginlandinu þótt talið sé að hann hafi eitthvað sam- ið sjálfur. Keyrir ekki kassabíl Nokkrir eðal- tónlistarmenn koma að plötunni með Bubba. Fyrstan ber að nefna Guðmund Pétursson sem annast allan gítarleik á diskinum. Hann fer mjúkum höndum um hljóðfærið, eins og við á. Best þykir mér honum takast til í lögum eins og „Lagður hjá' rúmi Casju Lísu síðla kvöld eitt“ og „Ulla mín, Ulla“ þar sem hljómarnir brotna ljúflega Morgunblaðið/Asdís Bubbi Morthens og Guðmundur Pétursson. á ströndum raddarinnar. Guð- mundur á reyndar stíl fyrir hverja stemmningu eins og þann einfalda og dýnamíska í laginu „Öldungnum hnignar“ og þann hressilega í „Fyrst ég annars hjarta hræri“ við útilegustemmninguna. Lagið „Sofðu Kalli“ (vögguvísa) þykir mér bera af hvað útsetningu snert- ir. Þar trítla lítil ásláttarhljóð úr smiðju Matthíasar MD Hemstock á tánum í kringum vögguna á sér- staklega smekklegan hátt og alltaf á réttu augnablikunum. „Sofðu Kalli, sofðu rótt / Þú seinna færð Undir volgri sól að vaka / Líta marga myrka nótt / Og mein sem okkur þjaka“ syngur Bubbi og klingir þá í litlu þríhorni eins og úr spiladósinni hins sofandi Kalla sem átti eitt slag eftir þangað til þurfti að trekkja hana upp aftur. Einnig var 30. pistill, „Flýt þér, drekk út“, nokkuð skemmtilega út- settur. Þar leikur Eyþór Gunnarsson á bassatrommu og kii-kjuorgel. Reyndar andar ekki alveg nógu vel um það síðarnefnda, það er svo lágt í hljóðblönduninni að vart heyrist. Hins vegar naut bassatromman sín vel í félagskap gítars og söngs. Þekktasta lag disksins er vafa- laust Gamli Nói, sem keyrir reynd- ar ekki kassabíi hér heldur drekk- ur vín og mikið af því og er glaður. Engu er bætt við alla þá Gömlu Nóa sem hljómað hafa í Nóavönum eyrunum í gegnum tíðina, enda svo sem ekki við því að búast. Þar hefði verið spennandi að heyra til dæmis meira slagverk og jafnvel hærri og groddalegri kontrabassa. Bubbi og félagar taka því hins vegar leikandi létt á siglingunni með Nóa eins og við þekkjum hann best og ekkert við það að athuga sem slíkt. Úr því ég er farin að hugsa um kontra- bassa, þá hefði reyndar verið gam- an að heyra hann hljóma í fleiri lögum. Þótt rödd og gítar hafi oft og tíð- um verið sjálfum sér alveg nóg held ég að bassinn hefði gefið lög- unum meiri vídd og kraft. Diskur Bubba og Bellmans hefur að geyma hlýleg lög og sögur af tegundinni sem ég heyri mjög vel fyrir mér í litlum, vinalegum fjöl- skylduboðum. Eða sem undirleikur ömmu við prjónaskapinn á meðan barnabörnin leika sér á stofugólf- inu. Hann er kannski dálítið ein- hæfur á köflum. Gítar, rödd og munnharpa eiga það til að verða einmana á stundum og hefði þá ekki verið úr vegi að máta fleiri hljóðfæri við. Kristín Björk Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.