Morgunblaðið - 08.07.2000, Side 1

Morgunblaðið - 08.07.2000, Side 1
154. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Olíuverð lækkar enn Statoil lækkar bensínverð í Danmörku OLÍUVERÐ lækkaði nokkuð í Lon- don og New York í gær og virðist því almennt treyst, að Saudi-Arabar muni standa við yfírlýsingar sínar um að auka framleiðsluna. I Dan- mörku hefur bensínverð veríð lækk- að tvisvar í þessari viku vegna lægra heimsmarkaðsverðs. Brent-olía var seld í London í gær á 29,35 dollara fatið en var í 30,55 dollurum fyrir viku. Pá var olíuverð- ið í New York 29,99 dollarar á móti 32,72 dollurum viku áður. Lækkunin stafar af þeim yfirlýsingum Saudi- Araba sl. mánudag, að þeir muni auka framleiðsluna um 500.000 föt daglega dugi ekki annað til að lækka verðið en þeir hafa áður lýst yfir, að þeir telji 25 dollara fyrir fatið vera hæfilegt verð. Um þetta er að vísu ekki eining innan OPEC, Samtaka olíuútflutningsríkja, en markaðs- sérfræðingar segjast ekki efast um, að Saudi-Arabar muni standa við orð sín. Statoil lækkaði bensínverð í Dan- mörku í gær um 1,47 kr. ísl. á lítra og sl. þriðjudag var það lækkað um 1,67 kr. Kostar nú lítrinn af 95 oktana bensíni tæplega 87 kr. ísl. Segja tals- menn fyrirtækisins, að ástæðan sé sú lækkun sem orðið hefur á heimsmarkaði í þessari viku. Búist var við, að önnur olíufélög lækkuðu einnig sitt verð. ■ Samráð/22 Sofía Spánardrottning huggar ættingja unglinga sem létu lífið í rútuslysi á Norður-Spáni í fyrradag. Fórnarlamba rútu- slyssins á Spáni minnst SPÁNVERJAR vottuðu minningu þeirra, sem létu lífið í mannskæðu rútuslysi á Spáni í fyrradag, virð- ingu sína í gær. Minningarathöfn um fórnar- lömbin fór fram á knattspyrnuvelli í bænum Soria og var henni sjón- varpað beint. Sofia Spánardrottn- ing var viðstödd athöfnina og faðmaði og huggaði ættingja þeirra sem týndu lífi. 28 manns biðu bana í slysinu, þar af 23 ung- lingar sem voru á leið frá Barce- lona í sumarbúðir á vegum tveggja skóla nálægt borginni. Tólf til viðbótar slösuðust, þar af sjö alvarlega. Slysið varð þegar flutningabíll, sem flutti búfénað, fór á ranga ak- rein í beygju á þjóðveginum nálægt Soria, um 110 km norðaustan við Madrid. Bfllinn skall þá á rútunni sem kom úr gagnstæðri átt og valt niður hlaðinn kant á veginum eftir áreksturinn. Tveir tvítugir Pólverjar, báðir bflstjórarnir og kennari frá Barce- lona létust í slysinu auk ung- linganna sem voru á aldrinum 13- 18 ára. Mest um- ferðar- öryggi í Svíþjóð UMFERÐARÖRYGGI er mest í Svíþjóð en minnst í Portúgal innan Evrópu- sambandsins, samkvæmt upp- lýsingum frá Eurostat, hag- stofu ESB, um banaslys í umferðinni árið 1998. í Svíþjóð létust 60 manns á hverja milljón íbúa í umferð- arslysum árið 1998 og 61 á hverja milljón í Bretlandi. Umferðaröryggið var hins vegar minnst í sunnanverðri álfunni. í Portúgal létust 243 á hverja milljón íbúa, í Grikk- landi 212, Frakklandi 152 og á Spáni 151. Slysunum fækkaði mest í Austurríki Grikkland er eina ESB- landið þar sem banaslysum í umferðinni fjölgaði á árunum 1990-98 en þar fjölgaði þeim um 5%. Á þessu tímabili fækkaði banaslysunum um 26% að meðaltali í öllum ESB- löndunum fímmtán. Slysunum fækkaði mest í Austurríki, um 41%. Banaslysunum fækkaði um 33% í Svíþjóð á þessum átta árum en samkvæmt tölum sænska umferðarráðsins fjölgaði þeim þó á síðasta ári. A Islandi létust 27 manns í umferðinni árið 1998 eða um hundrað á hverja milljón en 21 á síðasta ári, um 77 á hverja milljón. Heimsókn Khatamis mótmælt FÉLAGAR í hreyfingu, sem berst gegn klerkastjórninni f Iran, standa hér við Brandenborgarhliðið í Ber- lín og mótmæla Þýskalandsheim- sókn Mohammads Khatamis, for- seta írans, sem á að hefjast á mánudag. Þýskir embættismenn gerðu í gær lítið úr fréttum um að Khatami kynni að aflýsa heimsókn- inni á síðustu stundu þar sem hann hefði áhyggjur af því að efnt yrði til fjölmennra mótmæla. Svartfellingar hafna stjórnarskrárbreytingum júgóslavneska þingsins Sagðar breyta Júgó- slavíu í Stór-Serbíu Podgorica. Reuters, AFP. STJÓRN Svartfjallalands hafnaði í gær breytingum á júgóslavnesku stjórnarskránni sem geta aukið völd Slobodans Milosevic Júgósla- víuforseta í Svartfjallalandi og gera honum kleift að gegna embættinu í átta ár til viðbótar. Filip Vujanovic, forsætisráðherra Svartfjallalands, fordæmdi breytingarnar á auka- fundi á þingi landsins í gærkvöld og lýsti þeim sem „hrottalegri til- raun“ til að svipta landið réttindum sínum sem ríki í Júgóslavíu, ríkja- sambandi Serbíu og Svartfjalla- lands. Vujanovic sagði að markmiðið með breytingunum væri að „breyta Júgóslavíu í Stór-Serbíu“. „Þessar breytingar eyðileggja Júgóslavíu sem samband tveggja jafnrétt- hárra ríkja.“ Þing Júgóslavíu samþykkti stjórnarskrárbreytingarnar í fyrra- dag en stjórn Svartfjallalands lagði í gær drög að ályktun um að hafna breyting- unum og búist er við að þingið samþykki hana. I ályktuninni er her Júgó- slavíu hvattur til að láta ekki stjórnmálamenn í Belgrad mis- nota sig. Enn fremur er því lýst yf- ir að lög Júgóslavíuþings verði ekki virt í Svartfjallalandi nema þing landsins fái að tilnefna helming þingmanna í efri deild júgó- slavneska þingsins eins og kveðið var á um í stjórnarskrá Júgóslavíu frá 1992. Samkvæmt stjórnarskrár- breytingunum í fyrradag verður efri deildin þjóðkjörin. í Svart- fjallalandi eru aðeins 600.000 íbúar en í Serbíu 10 milljónir, þannig að Filip Viijanovic áhrif Svartfellinga minnka veru- lega í Júgóslavíu verði allt þingið kjörið í almennum kosningum. Samskiptin milli Serbíu og Svartfjallalands hafa síversnað frá því að stuðningsmenn Milosevic biðu ósigur fyrir núverandi vald- höfum í Svartfjallalandi í kosning- um á árunum 1997 og 1998. Júgó- slavneska þingið meinaði nýjum fulltrúum Svartfjallalands að taka sæti í efri deildinni fyrir tveimur árum og síðan hafa Svartfellingar ekki viðurkennt þingið. Hvatt til friðsamlegrar lausnar Stjórn Svartfjallalands hefur þegar hótað að efna til þjóðar- atkvæðagreiðslu um sjálfstæði og aðskilnað frá Júgóslavíu nema Mi- losevic fallist á að landið fái meiri völd í laustengdu ríkjasambandi við Serbíu. í ályktuninni er enn fremur hvatt til þess að stjórnmálaflokkar Svartfjallalands, lýðræðisöflin í Serbíu og þjóðir heims taki hönd- um saman til að stuðla að friðsam- legri lausn á deilunni. Mikill spenna hefur verið milli lögreglu Svartfjallalands og júgó- slavneska hersins í nokkra mánuði. Svartfellska stjórnin sakaði Milo- sevic í vikunni sem leið um að nota júgóslavneskar hersveitir til að valda ólgu og undirbúa valdarán í landinu. Stjórnarandstaðan í Ser- bíu hefur varað ráðamennina í Belgrad við því að deilan geti leitt til átaka. MORGUNBLAÐH) 8. JÚLÍ 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.