Morgunblaðið - 08.07.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 08.07.2000, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Tívolí opnað við höfnina Tívolíið við höfnina var opnað gestum í gærkvöldi, en allan dag- inn hafði verið unnið baki brotnu að uppsetningu þess. Ferðast hef- ur verið með tívolíið um landið og meðal áfangastaða þess má nefna Akureyri, Selfoss og Hafn- arfjörð. Við höfnina er að fmna fjölda tívolítækja, skotbakka og annarra leiktækja. ---------------- Landlæknir um berklatilfelli Astæða er til að veraá verði SIGURÐUR Guðmundsson land- læknir segir fulla ástæðu til að fylgj- ast með þróun mála varðandi fjölgun berklatilfella í nágrannalöndunum, en fréttir hafa að undanfömu borist frá Norðurlöndunum, nú síðast Noregi, um mikinn fjölda nýrra berklatilfella. Segir Sigurður tvær meginástæður vera fyrir því að áhyggjur manna vegna berkla fara vaxandi á Vestur- löndum. Önnur ástæðan tengist al- næmi en að sögn Sigurðar eru berkl- ar ein af þekktum fylgisýkingum alnæmis og hefur þessa t.a.m. orðið vart í Bandaríkjunum og Frakklandi sem og í Suðaustur- og Austur-Asíu. í þessum hópi hefur einnig orðið vart við það sem menn hafa einna mestar áhyggjur af en það er lyfjaónæmi meðal berklasýkilsins. Hin ástæðan, sem Sigurður nefnir, er sú að með vaxandi fjölda innflytjenda frá Suð- austur- og Austur-Asíu og Afríku hafi berklasýkingum fjölgað þar sem berklar eru algengari sjúkdómur í þessum heimshlutum en á Vestur- löndum. Ekki markverð fjölgnn „Berklatíðni hér á landi og í ná- grannalöndunum hefur verið mjög lág,“ segir Sigurður. „Þetta hefur breyst í löndunum í kringum okkur og hefur það að miklu leyti verið rakið til innfluttra berklasýkinga." Segir Sigurður að vissulega hafi orðið vart við berklasýldngar í innflytjendum hér á landi en hvortd sé hægt að kalla þau tilfelli markverða fjölgun né ógn- un við heilbrigði íslendinga. Hins vegar segir Sigurður íslenska heilbrigðiskerfið vera vel á varðbergi gagnvart berklum og svo hafi verið um nokkra hríð. „Við gerum berkla- próf á fólki sem hingað flytur og með- höndlum þau tilfelli sem við finnum. Það er hins vegar alveg ljóst að það eru sömu líkur á því að tíðni sjúk- dómsins geti stigið hér á landi eins og gerst hefur í Noregi. Ennþá höfum við ekki séð það gerast þannig að marktækt sé, en við þurfum að gæta okkar og það gerum við eins og við getum,“ segir landlæknir. Byggðastofnun til Sauðárkróks VALGERÐUR Sverrisdóttir ákvað í gær að flytja höfuðstöðvar Byggða- stofnunar frá Reykjavík til Sauðár- króks. I fréttatilkynningu frá ráðuneyt- inu kemur fram að talið sé að 10 m.kr. geti sparast í árlegum rekstrarkostn- aði stofnunarinnar við flutninginn. Þá myndist 70 m.kr., jákvæður mismun- ur“ vegna sölu á skrifstofu stofnunar- innar í Reykjavík og húsnæðiskaupa á Sauðárkróki. Flutningamir kosti hins vegar um 10 m.kr. í framkvæmd. Fyrrgreindar tölur byggjast á hag- kvæmnikönnun sem PriceWater- houseCoopers gerði fyrir ráðherra. Þróunarsvið Byggðastofnunar hef; ur verið á Sauðárkróki frá 1998. í fréttatilkynningu ráðuneytisins segir að ákvörðun um flutninginn sé í sam- ræmi við tillögu sem stjóm Byggða- stofnunar lagði fyrir ráðherra í byij- un júní. Ráðherra leggi áherslu á að stjóm stofnunarinnar vandi vel und- irbúning og framkvæmd flutningsins þannig að sem minnst röskun verði á starfsemi stofnunarinnar. Jafnframt verði hagsmunir núver- andi starfsfólks í Reykjavík tryggðir eins og hægt er og lög standa til en ráðherra átti fund með stjórnarfor- manni, forstjóra og starfsmönnum stofnunarinnar áður en ákvörðun var tekin. Ráðherra leggur til að stjórn Byggðastofnunar beiti sér fyrir því að öllum starfsmönnum stofnunar- innar verði boðið að halda áfram störfum hjá Byggðastofnun eftir flutninginn og reynt verði eftir fremsta megni að aðstoða starfsfólk í leit að húsnæði og atvinnu fyrir maka. Jafnframt vinni stofnunin að því í samvinnu við ráðuneytið að útvega þeim starfsmönnum atvinnu, sem ekki geta þegið boð um að vinna áfram við stofnunina á Sauðárkróki, og kanna möguleika á þátttöku í kostnaði við endurmenntun þeirra sem þess óska. Hundabúið fær ekki starfsleyfi HEILBRIGÐISEFTIRLIT Reykjavíkur leggst gegn því að hundabúinu í Dalmynni á Kjalarnesi verði veitt leyfi til dýrahalds í at- vinnuskyni. Það er lögreglustjórinn í Reykjavík sem formlega veitir leyfið en engar líkur eru á að hann veiti það að óbreyttum forsendum. Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur tek- ur undir afstöðu Heilbrigðiseftirlits- ins. Hrannar Björn Amarsson, for- maður nefndarinnar, segir að það sé mat Heilbrigðiseftirlitsins að gera þurfi úrbætur í frárennslismálum og fleiru áður en hægt sé að veita leyfíð. Hann segir að ekki ætti að vera mikið mál að gera nauðsynlegar úrbætur, en þær hafi tafist úr hófi. Starfsemi er á hundabúinu í Dals- mynni í dag og segist Hrannar vænta þess að búið geri ráðstafanir til að uppfylla kröfur Heilbrigðiseftirlits- ins þegar í stað ella geti komið til þess að starfsemi búsins verði stöðvuð. Áætlun lögð fram um umhverfísmat vegna álvers í Reyðarfírði Skipulagsstofnun felli úrskurð í apríl 2001 REYÐARÁL hf. hefur lagt fram til- lögu að matsáætlun fyrir álver í Reyðarfirði. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að endanleg skýrsla um mat á umhverfisáhrifum álversins verði lögð fram og auglýst í janúar 2001 og að Skipulagsstofn- un felli úrskurð í apríl sama ár. Stefnt er að því að framkvæmdir við álverið hefjist í ársbyrjun 2003. Rannsóknir verða stundaðar á líf- ríki í Reyðarfirði í sumar. Matsáætlunin er unnin í sam- ræmi við ný lög um mat á umhverf- isáhrifum, en samkvæmt eldri lög- um var slík áætlun ekki lögð fram heldur eingöngu sjálf matsskýrsl- an. Sem kunnugt er áformaði Reyð- arál að reisa álver með 120 þúsund tonna ársframleiðslu í fyrsta áfanga, sem yrði hugsanlega stækk- að upp í 480 þúsund tonn. Lögð var fram ítarleg skýrsla um mat á um- hverfisáhrifum þessarar fram- kvæmdar. Eigendur Reyðaráls ákváðu hins vegar að endurskoða allt verkefnið og láta kanna hag- kvæmni þess að byggja stærra ál- ver í fyrsta áfanga eða 240-280 þús- und tonn. Þetta þýðir að vinna verður umhverfismatið upp á nýtt. Við gerð nýs mats verður byggt á eldri gögnum, en um algerlega nýja og sjálfstæða skýrslu verður að ræða. Miklar rannsóknir í sumar Meðal þeirra rannsókna sem gerðar verða í sumar má nefna að Veðurstofa Islands mun gera frek- ari veðurmælingar. M.a. verða sett- ir upp vindmælar sem skrá vindátt og vindhraða á 10 mínútna fresti. Gerðir verða nýir líkindareikningar á loftdreifingu sem byggjast á nýj- um veðurgögnum ásamt endurskoð- uðum útblásturstölum. Ennfremur verða gerðar frekari rannsóknir á lífríki sjávar, m.a. verður gerð rannsókn á plöntusvifi, dýrasvifi og botndýrum. Þá fara fram í sumar mælingar á straum- og hitastigi sjávar í Reyðarfirði. f framhaldi af þvi verða gerðir ítarlegir útreikn- ingar á straumum í Reyðarfirði þar sem tekið verður tillit til hugsan- legrar lagskiptingar sjávar. Vegna hugsanlegra áhrifa frá útblæstri frá fyrirhuguðu álveri og vegna fyrir- hugaðrar efnistöku verða gerðar rannsóknir í sumar á lífríki Sléttuár og Norðurár þar með taldar rann- sóknir á uppeldisskilyrðum bleikju og seiðabúskap. Ennfremur verða gerðar rennslismælingar í sex vatnsföllum á svæðinu. í matsskýrslunni verða fjölmarg- ir aðrir þættir skoðaðir, m.a. áhrif álversins á byggð og byggðaþróun. Ennfremur verður reynt að leggja mat á hvaða áhrif það hefði ef ekk- ert yrði af byggingu fyrirhugaðs ál- vers í Reyðarfirði. Matsáætlun hefur verið send um- sagnaraðilum sem bæði eru opin- berir aðilar og frjáls félagasamtök. Á næstu vikum verður lögð fram matsáætlun vegna umhverfismats vegna fyrirhugaðrar Kárahnjúka- virkjunar. Sérblöð í dag 20SIÐUR LLaDun ÁLAUGARDÖGUM Valur, KR, Breiðablik og ÍBV áfram í bikarkeppni kvenna /B2 Hagnaður af HM í íshokkí sem fram fór á íslandi /B4 4 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.