Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sveitarstjórn Austur-Héraðs eignast Eiðastað
Kaupa 100 manna
heimavistarskóla og
sex jarðir á 27 m.kr.
SVEITARSTJÓRN Austur-Héraðs
hefur ákveðið að festa kaup á Eiða-
stað fyrir 27 milljónir króna og
hyggst með því m.a. tryggja Óperu-
stúdíói Austurlands varanlega
starfsaðstöðu. I kaupunum fylgja
byggingar Alþýðuskólans á Eiðum,
sem var heimavistarskóli fyrir á ann-
að hundrað nemendur, nokkur íbúð-
arhús, og sex jarðir, tvær þeirra í
ábúð.
Bjöm Hafþór Guðmundsson, bæj-
arstjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að sveitarstjómin hefði haft
eignimar á leigu í tvö ár og hefði
ákveðið að nýta sér kaupréttar-
ákvæði í leigusamningnum, sem
rennur út um næstu áramót. Bæjar-
stjórinn sagði að eignir Alþýðuskól-
ans fyrrverandi væm í mjög mis-
munandi ásigkomulagi. Þar er nú
rekið sumarhótel á vegum Flugleiða-
hótela, samkvæmt leigusamningi til
tveggja ára.
Eignirnar sem tilheyra Alþýðu-
skólanum era skóla- og heimavistar-
byggingamar Útgarður, Miðgarður
og Mikligarður, fjögur íbúðarhús og
fleira. Auk heimavistar fyrir á annað
hundrað nemendur og húsnæðis fyr-
ir starfsfólk er þama að finna mötu-
neyti, gamla sundlaug, sem ekki er í
notkun, gamalt og lítið íþróttahús,
kennslustofur og hátíðarsalinn, sem
hýst hefur Óperastúdíó Austur-
lands. Þá fylgja í kaupunum sex jarð-
ir; Eiðajörð, Ormsstaðir, Gröf, Hóll,
Hólshjáleiga og Þuríðarstaðir, svo
og veiðihlunnindi í Gilsá og Selfljóti.
Tvær jarðanna era í ábúð.
Aðspurður sagði bæjarstjórinn að
grannflötur húseignanna, sem
keyptar væra, væri um 3.000 fer-
metrar en hluti þeirra er á tveimur
eða þremur hæðum.
Tryggja mannlíf
Bæjarstjórinn sagði að ríkið hefði
viljað losa sig við eignimar og kaup-
verðið væri talið hagstætt. Sveitarfé-
lagið hefði ákveðið að kaupa eignim-
ar til að tryggja mannlíf á Eiðum,
þar sem Eiðahreppur hafði byggt
upp þjónustu, grannskóla, leikskóla,
félagslegar íbúðir og fleira, sem
grandvelli hefði verið kippt undan
þegar Alþýðuskólinn var lagður nið-
ur. Eignirnar væra vannýttar, og
kyndingarkostnaður hár en Bjöm
Haíþór sagði að það kostaði tugi eða
hundrað milljóna króna að koma
sumum eignunum í gott lag.
Spurður um áform um nýtingu
eignanna sagði hann ákveðið að
bjóða ábúendum jarðanna tveggja
þær til kaups. Hluti eignanna væri
bundinn af leigusamningum, t.d. við
BSRB um sumarbústaði við Eiða-
vatn, sem skapi líf á svæðinu á sumr-
in. „Fljótlega verður svo farið að
leita leiða til að selja hluta af þessum
eignum," sagði Björn Hafþór.
Aðstaða fyrir Óperustúdíö
og leikfélag
Hann sagði að skólahúsunum
þremur, Útgarði, Miðgarði og Mikla-
garði, ásamt Þórarinshúsi, yrði hins
vegar haldið aðskildum til að byrja
með. Stefnt væri að því að leita leiða
til að nýta þær í þágu Óperastúdíós
Austurlands og Leikfélags Fljóts-
dalshéraðs, auk þess sem stuðlað
yrði að því að glæða mannlíf og
atvinnulíf á eignunum og stuðla að
auknum tekjum sveitarfélagsins
með fasteignagjöldum og útsvari af
nýrri starfsemi.
Flugleiðahótel reka sumarhótel í
eignunum í sumar og hafa samning
um sams konar rekstur næsta sum-
ar. I samtalinu við bæjarstjórann
kom fram að menn sæju fyrir sér að
eignimar nýttust framvegis til
ferðaþjónustu meðan á þeirri vertíð
stendur en legðu jafnframt áherslu á
að yfir vetrarmánuðina nýttust þær
til frambúðar til menningarstarf-
semi í héraðinu, enda enginn staður
talinn henta betur til slíks. Ópera-
stúdíóið hefur nýlega hleypt miklu
lífi í menningarlífið eystra.
Morgunblaðið/Ómar
Hnúfubakur í Faxaflóa
HNÚFUBAKAR fara í sumarfrí við Suðurhöfum. Þessi sást lyfta sér í
íslandsstrendur en eyða vetrinum í Faxaflóanum fyrir stuttu.
Islendingur siglir meðfram austurströnd Grænlands
Gunnar Marel Eggertsson, skipstjóri íslendings og Stefán Geir, skip-
veiji, eru með um borð tvær útskornar víkingastyttur sem áhöfninni
voru gefnar fyrir brottför frá Reykjavík.
Einn enn á
gjörgæslu
EINN þeirra fimm sem slösuðust í
hörðum árekstri við Hellu á miðviku-
dag er enn á gjörgæsludeild Land-
spítala - háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi.
Þrír vðra taldir í lífshættu eftir
áreksturinn. Annar var útskrifaður
af gjörgæsludeild og sendur á al-
menna deild í gær, að sögn læknis á
gjörgæsludeild, og sá þriðji liggur á
Landspítalanum.
Að sögn lögreglu á Hvolsvelli era
tildrög slyssins enn ekki ljós en það
varð með þeim hætti að tveir bílar
sem komu út gagnstæðum áttum
skullu saman.
I öðram bílnum vora þrír breskir
ferðamenn, auk íslensks ökumanns,
og slösuðust allir farþegamir alvar-
lega. í hinum bflnum var stúlka um
tvítugt, sem einnig var flutt á sjúkra-
hús.
------HH-------
Brenndist
illa á fótum
VINNUSLYS varð við Brekkuhvarf
17 í Kópavogi um ellefuleytið í gær-
morgun þar sem verktakar voru að
störfum. Heitavatnsæð hafði farið í
sundur og vinnuvélstjóri sem steig
út úr vél sinni brenndist illa á fótum.
Maðurinn var fluttur á slysadeild.
Einnig varð vinnuslys við Smára-
lind laust fyrir tvö í gærdag en þar
standa nú yfir framkvæmdir.
Timburhlaði féll og lenti á fæti
manns. Hann var fluttur á slysa-
deild þar sem hugað var að meiðsl-
um hans.
------M-«------
Ekið á lamb og á
EKIÐ var á lamb og á við Bjarnar-
dalsá í Bröttubrekku síðdegis í gær.
Að sögn lögreglu drápust báðar
kindurnar, en ökumann bifreiðarinn-
ar sakaði ekki. Bifreiðin, sem er
jeppi af Musso-gerð, skemmdist
töluvert og er óökufær.
s
I nálægð
við hafís
og hvali
í GÆRDAG sigldi víkingaskipið fs-
lendingur í suðvestur meðfram
austurströnd Grænlands á um fimm
til sjö hnúta hraða. Skipið var um
75 sjómflur úti fyrir Kap Skjold í
suðvestan golu og þoku.
Þokan þykir gefa til kynna að ís-
lendingur sé ekki langt frá ísrönd-
inni sem er að öllum Iikindum í um
30 mflna fjarlægð á stjórnborða, að
því er kemur fram í tilkynningu
sem blaðinu barst, frá Ellen Ingvars-
dóttur, skipverja Islendings.
Fjöldi fugla og sjávarspendýra
hefur heilsað upp á áhöfnina. Þar
má nefna forvitna seli sem hafa synt
upp að skipinu í næturkyrrðinni,
stórhveli og fugla eins og hettu-
skrofu, gráskrofu, máva og lunda.
Fuglarnir hringsóla í kringum
mastrið og syngja fyrir áhöfnina.
Áhöfnin telur þetta skýr merki þess
að íslendingur nálgist senn land.
Hitinn hefur lækkað og þokan
NORSKU konungshjónin, Haraldur
og Sonja, munu koma hingað til
lands í þriggja daga einkaheimsókn
í boði forseta íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, 28. júlí nk.
Heimsókn konungshjónanna
stendur til 30. júlí og munu þau
meðal annars heimsækja Reykholt
og verða viðstödd vígslu Snorra-
stofu á Reykholtshátíð, en Norð-
þést, segir í fréttaskeytinu. „Áhöfn-
inni líður vel þótt það verði að
viðurkennast að það getur verið
erfitt að koma sér upp úr hlýjum
menn hafa gefið talsvert fé til upp-
byggingar stofunnar.
Þá munu þau sækja Vestmanna-
eyjar heim og verða þar við form-
lega vígslu stafkirkju sem reist hef-
ur verið fyrir miðjum syðri
hafnargarðinum í Heimaey. Kirkjan
er þjóðargjöf Norðmanna til íslend-
inga í tengslum við 1000 ára kristni-
tökuafmælið hér á landi en íslenska
svefnpokanum eftir að kólnaði í
veðri. Það eru hins vegar smámunir
sem rauðnefjaðir nútfmavíkingar
leggja glaðir á sig,“
ríkisstjómin leggur til stofnframlag
til að kirkjan fái umgjörð við hæfi á
Heimaey.
Fyrirtækið Stokk og Stein í Lom í
Noregi hefur unnið að smíði
kirkjunnar og nánast byggði hana
upp innan dyra þar ytra. I aprfl sl.
var kirkjan síðan flutt í einingum til
íslands og hefur fullnaðarsmíði
hennar staðið yfir síðan.
Sleipnisdeilan
Ekki verið
boðað til
nýs fundar
EKKI hefur verið boðað til nýs fund-
ar í kjaradeilu Sleipnis, en Þórir Ein-
arsson, rfldssáttasemjari segist munu
hafa samband við deiluaðila í upphafi
næstu viku og kanna hjá þeim hvort
grandvöllur sé fyrir nýjum fundi.
í dag er mánuður liðinn frá því að
verkfall Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis hófst. Síðastliðinn fimmtu-
dag slitnaði upp úr viðræðum deilu-
aðila.
Á almennum félagsfundi Bifreiða-
sljórafélagsins Sleipnis sem haldinn
var í gær var samþykkt ályktun svo
hljóðandi: „Fundurinn lýsir yfir ein-
dregnu trausti og stuðningi við stjórn
og samninganefnd félagsins. Jafn-
framt hvetur fundurinn samninga-
nefnd til að standa fast á kröfum fé-
lagsins í samningum við þá aðila sem
enn er ósamið við.“
----------------
Þjóðkirkjan
Ursögnum
fjölgar
495 LANDSMENN sögðu sig úr
þjóðkirkjunni á fyrri hluta þessa árs,
eða 0,2% þeirra sem tilheyrðu henni
um áramótin. Sambærileg tala árið
1999 var 382 og 431 1998.
Af þessum 495 kusu 144 að vera
utan trúfélaga, 101 lét skrá sig í
Fríkirkjuna í Reykjavík, 67 í Ása-
trúarfélagið, 63 í Öháða söfnuðinn og
42 í Fríkirkjuna í Hafnarfirði.
106 vora hins vegar skráðir í
þjóðkirkjuna á fyrri hluta ársins,
sem þýðir að brottskráðir umfram
nýskráða vora 389 talsins, saman-
borið við 382 á sama tímabili 1999 og
338 árið 1998.
Alls skiptu 858 manns um trúfélag
á tímabilinu, sem svarar til 0,3%
þjóðarinnar, svipað og tvö síðustu ár.
Þriggja daga heimsókn norsku konungshjónanna
Verða við vígslu Snorra-
stofu og stafkirkju