Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 11
FRÉTTIR
Samvist samkyn-
hneigðra blessuð
í Fríkirkjunni
SAMVIST tveggja samkyn-
hneigðra karlmanna var blessuð í
Fríkirkjunni í Reykjavík um síð-
ustu helgi. Þetta er í fyrsta sinn
sem slík athöfn fer fram í safnaðar-
kirkju á íslandi. Hjörtur Magni Jó-
hannsson fríkirkjuprestur segist
hafa fengið samþykki safnaðar-
stjórnar, en einkum þó ráðfært sig
við eigin samvisku þegar hann tók
ákvörðun um að taka að sér athöfn-
ina.
„Eg tel mig ekki geta takmarkað
blessun og náð guðs við ákveðna
hópa fólks,“ segir Hjörtur.
Hjörtur segir aðspurður að ekki
hafi farið milli mála að mennirnir
séu báðir trúaðir menn, og að at-
höfnin hafi haft mikla þýðingu fyrir
þá. Annar þeirra er af erlendum
uppruna, og komu ættingjar hans
hingað til lands til að vera við-
staddir.
Ekki þjónavígsla
heldur blessun
Undirbúningur athafnarinnar fór
fram í samráði milli mannanna
tveggja og Hjartar.
„Þetta var einföld athöfn, en
mjög kirkjuleg. Hún hafði vissa
þætti guðsþjónustu, en þama fór
ekki fram hjónavígsla, því þau orð
sem ég hafði yfir voru ekki hefð-
bundin vígsluorð. Það var talað um
það frá upphafi að þetta yrði
kirkjublessun á kærleikssambandi
tveggja einstaklinga. Slík blessun
hefur ekki mikið lagalegt gildi, en
mikið gildi fyrir þá sem einstak-
linga,“ segir Hjörtur.
I athöfninni fór fram tónlistar-
ílutningur, sungnir voru sálmar,
beðnar voru bænir og lesið var úr
heilagri ritningu, bæði úr bréfum
Nýja testamentsins og guðspjöllun-
um. Hjörtur segir að þær spurn-
ingar sem hann hafi spurt mennina
tvo hafi snúist um vilja þeirra til að
gefa hvor öðrum kærleika, trúnað
og rými í framtíðinni.
Ekkert helgisiðaform er til fyrir
athöfn af þessu tagi, og segist
Hjörtur vonast til þess að slíkt
form verði fundið. „Hjónavígsla
hefur ákveðið lagalegt og guðfræði-
legt gildi, og það þyrfti að athuga
báða þessa þætti. Athöfn fyrir sam-
kynhneigða einstaklinga þyrfti ekki
endilega að hafa sama form og
stöðu og brúðkaup karls og konu.“
Stefna Fríkirkjunnar
að vera víðsýn
Nokkrir íslenskir prestar hafa
áður blessað samvist samkyn-
hneigðra einstaklinga, meðal ann-
ars forveri Hjartar í embætti frí-
kirkjuprests, en hann segist ekki
vita til þess að athöfnin hafi áður
farið fram í safnaðarkirkju.
„Það hefur verið hluti af stefnu
Fríkirkjunnar frá upphafi að leitast
við að vera víðsýn og umburðar-
lynd í trúmálum. Á fyrri hluta ald-
arinnar fundu til dæmis áhuga-
menn um spíritisma sér vettvang
innan hennar. Meðal annars flutti
sjálfs til stöðu sam-
kynhneigðra innan
kirkjunnar hafi mót-
ast á undanförnum
árum.
„Þeir sem einna
helst eru á móti
þessu byggja af-
stöðu sína á bókstaf-
legri túlkun á
ákveðnum ritningar-
stöðum. í því sam-
bandi má benda á að
misrétti kynjanna
var lengi réttlætt
með tilvísun í ein-
angraða texta í biblí-
unni. Sama er að
segja úm þrælahald
í Evrópu og Amer-
íku, og fleiri mál-
efni.“
Neikvæð og já-
kvæð viðbrögð
Morgunblaðið/Arm Sæberg
Hjörtur Magni Jóhansson fríkirkjuprestur seg-
ist einkum hafa ráðfært sig við eigin samvisku
þegar hann tók ákvörðun um að blessa samvist
tveggja samkynhneigðra karlmanna.
Haraldur Níelsson landsfrægar
prédíkanir um þessi efni í fjölda
ára. Þó svo við leyfum ýmsar stefn-
ur og skoðanir innan kirkjunnar er
ekki víst að við skrifum undir þær
allar, en við viljum vera vettvangur
fyrir þær. Við lítum ekki á okkur
sem stofnun sem hefur svörin á
reiðum höndum."
Hjörtur segir að afstaða hans
Hjörtur segist
hafa fengið töluverð
viðbrögð við athöfn-
inni frá öðrum prest-
um, bæði neikvæð
og jákvæð, einkum
frá þeim sem starfa í
kristnum söfnuðum
utan Þjóðkirkjunn-
ar. Hann segist ekki
geta spáð fyrir um
það hvort þessi at-
höfn muni hafa áhrif
á þróun mála hjá
Þjóðkirkjunni.
„Vonandi flýtir
þetta fyrir því að form verði fundið
fyrir athafnir sem þessar,“ segir
Hjörtur.
í Fríkirkjunni er á sjötta þúsund
manns, og segir Hjörtur að þeim
hafi fjölgað töluvert undanfarin tvö
ár. Hann segir að miðað við fyrstu
viðbrögð muni athöfnin fremur
verða til þess að fjölga safnaðar-
meðlimum en fækka þeim.
Embættistaka
forseta Islands
1. ágústnk.
Heldur í
opinbera
heimsókn
tii Kanada
FORSETI íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, fer í opin-
bera heimsókn til Kanada í
ágúst nk. í boði landsstjórans
Adrianne Clarkson.
Þetta verður fyrsta opinbera
heimsókn Ólafs Ragnars eftir
að nýtt kjörtímabil hans hefst
en embættistaka hans sem for-
seta til næstu fjögurra ára
verður 1. ágúst nk.
Heimsókn forseta og fylgd-
arliðs stendur dagana 3. til 9.
ágúst og hefst með móttökuat-
höfn í Winnipeg í Manitoba 4.
ágúst en þetta mun vera í
fyrsta sinn sem kanadísk
stjómvöld taka á móti erlend-
um þjóðhöfðingja utan höfuð-
borgarinnar Ottawa við upphaf
opinberrar heimsóknar.
Auk þess að sækja Islend-
ingaslóðir í Winnipeg heim og
taka þar þátt í hátíðarhöldum á
Islendingadegi 7. ágúst mun
forsetinn fara til Vancouver í
Bresku Kólumbíu og til Halifax
í Nova Scotia.
Með forseta í fór til Kanada
verður Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra auk starfsfólks
forsetaskrifstofú og utanríkis-
ráðuneytis.
Mazíífl 323 S
Skulagötu 59, slmi 540 5400 www.raesir.is
Isafjbrður: Bilatangi ehf. Akureyri: BSA hf. EgilsstaSIr: Bilasalan Fell Selfoss: Betrl bdasalan Vestmannaeyjar: Bifreieaverkstaði Muggs Akranes: Bilis Keflavik: Bilasala Keflavikur Hornafjbrður: Vflsmiðja Hornafjarðar
‘Mazda 323 S. VerÖ 1.530.000 kr. Meöalgreiðsla á mánuði m.v. 09.06.2000, 500.000 útborgun/uppitaka, bílalán í 84 mánuði, 8% vexti og 4% verðbólgu.
** manuði*
verðnr
Mazdu 323 S
binn bíll
• ABS hemlalæsivörn TCS spólvörn
• Útvarp, geislaspilari og fjórir hátalarar
• Framsætisbak sem breyta má í hentugt borb
• Upphitabir og rafstýrbir hlibarspeglar
• Þriggja ára eba 100.000 km ábyrgb