Morgunblaðið - 08.07.2000, Side 16
16 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Akureyrarbær auglýsir
svæði fyrir orlofshús
á Akureyri
Akureyrarbær auglýsir laust til umsóknar svæði fyrir or-
lofshúsabyggð í Búðargili á Akureyri. Aðeins hluti svæð-
isins verður byggingarhæfur í fyrsta áfanga. Væntanlegur
lóðarhafi skal vinna tillögu að deiliskipulagi svæðisins í
samráði við umhverfisráð Akureyrarbæjar, sem sér um
auglýsingu tillögunnar skv. byggingar- og skipulagslög-
um.
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 föstudaginn 21. júlí nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í upplýs-
ingaanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, sími 460 1000,
og þangað skal umsóknum skilað.
Byggingarfulltrúinn á Akureyri.
AKUREYRI
Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar um uppsögn sína
Starfíð í núverandi
mynd lagt niður
ÁRNI Ólafsson, skipulagsstjóri
Akureyrabæjar, sem sagt hefur
upp störfum, sagði ástæður upp-
sagnar sinnar vera sáraeinfaldar.
„Starfið í núverandi mynd hefur í
raun verið lagt niður. í tillögum
sem bæjarstjórn hefur samþykkt
er lagt til að búið verði til eitt
embætti úr byggingafulltrúa og
skipulagsstjóra. Við það get ég
ekki sætt mig og tel það dæmi um
slæma stjórnsýsluhætti,“ sagði
Árni.
Árni segir það óviðeigandi að
setja þessi tvö embætti í sama
poka, þar sem þessir málaflokkar
sé í eðli sínu ólíkir. „Þessir mála-
flokkar fara illa saman í einu emb-
ætti. Það er heimild fyrir þessari
breytingu í lögum en þar er fyrst
og fremst verið að hugsa um hin
örsmáu sveitarfélög sem hafa ekki
efni á að hafa nema einn starfs-
mann í þessum embættum,“ sagði
Árni.
Þar fyrir utan segist Árni ekki
vita af því að honum standi hið
nýja starf til boða. „Annar mögu-
leiki í stöðunni er að ég lendi í e.k.
verkefnisstjórastarfí, sem er þrepi
neðar í stjórnkerfínu og hefur allt
annað vægi og umhverfi. Þannig að
þeir valkostir sem ég hef í stöðunni
eru ekki ásættanlegir,“ sagði Árni.
Árni sagði að það væri sjálfsagt
mjög gott fyrir bæjarfélagið að fá
nýtt blóð en uppsögn hans byggði
alfarið á þeim forsendum að starfið
hefði verið lagt niður í núverandi
mynd.
Sumartónleikar
í Akureyrarkirkju
FJÓRTÁNDA ár Sumartónleika
Akureyrarkirkju verður með svip-
uðu sniði og undanfarin ár, með org-
el Akureyrarkirkju í aðalhlutverki.
Fyrstu tónleikarnir verða næstkom-
andi sunnudag kl. 17 en þeir síðustu
verða 6. ágúst.
íslenskir og danskir tónlistar-
menn munu á fimm tónleikum í sum-
ar leika og syngja tónlist frá ýmsum
tímum tónlistarsögunnar og er að-
gangur ókeypis. Tónleikarnir hefj-
ast allir kl. 17 á sunnudögum og taka
um klukkustund. Yfirskrift þeirra
er Þúsund ára kristni á íslandi.
Á fyrstu tónleikunum næstkom-
andi sunnudag mun Graduelakór
Langholtskirkju syngja undir stjórn
Jóns Stefánssonar. Kórinn tók til
starfa árið 1991 og eru miklar kröf-
Ljóðatónleik-
• •
ar á Onguls-
stöðum
ÞÓRHALLUR Hróðmarsson flytur
eigin ljóð og lög í ferðaþjónustunni á
Öngulsstöðum í kvöld, laugardaginn
8. júlí, kl 21. Hann syngur og leikur á
hjómborð frumsamin lög við sínar
eigin útsetningar.
Þóhallur hefur haldið tónleika víða
á Suðurlandi, m.a. á Höfn í Horna-
firði og í Hveragerði. Hann er bú-
settur í Hveragerði og er kennslu-
stjóri við Garðyrkjuskóla ríkisins.
Hann hefur á síðustu árum ort mörg
ljóð og samið við þau lög. Aðgangur
að tónleikunum er ókeypis.
ur gerðar til þeirra sem fá inngöngu
í kórinn. Hann hefur meðal annars
sungið með Sinfóníuhljómsveit Is-.
lands verk eftir Jón Leifs inn á
geislaplötu. Einnig hefur komið út
jólaplata með söng kórsins.
Jón Stefánsson hefur frá upphafi
verið stjórnandi kórsins. Hann hef-
ur verið organisti og kórstjóri í
Langholtskirkju nær óslitið síðan
1964.
Lára Bryndís Eggertsdóttir er
meðleikari á tónleikunum. Hún hef-
ur verið aðalundirleikari Graduale-
kórsins frá fimmtán ára aldri.
Á efnisskrá tónleikanna verða
m.a. íslensk verk og þjóðlagaútsetn-
ingar en einnig mun kórinn flytja
verk sem hann hafði með í fartesk-
inu frá Kanada s.l. sumar.
Safnadagur í
Minjasafninu
ÍSLENSKI safnadagurinn
verður haldinn hátíðlegur á
Minjasafninu á Akureyri
sunnudaginn 9. júlí. í tilefni
dagsins verða sýndir nokkrir
kvenbúningar úr eigu safns-
ins.
Þá má einnig minna á nýjar
og glæsilegar sýningar safns-
ins um sögu Eyjafjarðar og
Akureyrar. í safninu stendur
einnig sýning á ljósmyndum
Sigríðar Zoéga frá Þjóð-
minjasafni íslands.
Minjasafnið er opið alla
daga frá kl. 11-17 og auk
þess á miðvikudögum til kl.
21.
UTBOÐ
Lóðarframkvæmdir við
Verkmenntaskólann á Akureyri
Tæknideild Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum
í lóðarfrágang á austurlóð VMA.
Helstu framkvæmdir eru:
Jarðvegsfiutningar, ca 1800 m3.
Regnvatnslagnir og snjóbræðslulagnir.
Malbikun bílastæða, ca 3250 m2.
Steypa kantsteina, stoðveggi, undirstöður o.fl.
Hellulögn, ca 1000 m2.
Þökur, sáning og gróðurbeð,
ca 150 m2, 1000 m2, 335 m2.
Runnar og tré.
Raflýsing og raflagnir.
Gögn verða seld hjá Verkfræðistofu Norðurlands ehf.,
Hofsbót 4, 600 Akureyri, 11.-14. júlí nk.
Verð á útboðsgögnum er kr. 10.000.
Tilboð verða opnuð hjá Tæknideild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 600 Akureyri, 20. júlí 2000, kl. 10.00.
TÆKNIDEILD AKUREYRARBÆJAR