Morgunblaðið - 08.07.2000, Side 20

Morgunblaðið - 08.07.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ísfélag Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum sameinast Verður eitt stærsta sjávar- útvegsfyrir- tæki landsins Sameining sjávarútvegsfyrirtækjanna í Vestmannaeyjum ÁlJreyri ) Vestmannaeyjar Isfélag Vestmannaeyja hf. Vinnslustöðin hf Fiskimjölsverksmiðja og meiraihlutaeign í Krossanesi hf. á Akureyri. Frystihús. Saitfiskverkun. Humar-, síldar- og loðnuvinnsla. Netagerðin Ingólfur hf. SigurðurVE, AntaresVE, Gígja VE og Guðmundur VE, loðnuskip. Heimaey VE, Álsey VE, Harpa VE og Bergey VE, bolfiskskip KVÓTI: u.þ.b. 9.000 þorskígildistonn Fiskimjölsverksmiðja. Frystihús. Saltfiskverkun. Humar-, síldar- og loðnuvinnsla. 1/3 í útg.fél. Guldrangi í Fær. ! Sighvatur Bjarnason VE og Kap VE, loðnuskip Jón Vídalín ÁR og Brynjólfur ÁR, bolfiskskip Drangavík VE, Gandí VE og Guðjón VE, bolfiskskip KVÓTI: Um 13.000 þorskígildirtonn, STÆRSTU hluthafamir í ísfélagi Vestmannaeyja og Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum hafa náð sam- komulagi um samruna félaganna. Hið nýja félag mun bera nafnið Isfé- lag Vestmannaeyja en stjómir félag- anna munu fjalla um málið á næstu dögum og er stefnt að því að form- legri vinnu við samrunann Ijúki fyrir ágústlok en samraninn sjálfur miðast við 30. apríl síðastliðinn. Með sameiningunni verður til eitt stærsta útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtæki landsins en aflaheimildir hins sameinaða félags era um 22 þúsund tonn í þorskígildum. Kvóti Isfélags- ins er um 9.000 tonn og kvóti Vinnslu- stöðvarinnar er nokkru meiri, eða 13.000 tonn. Pað ræður yfir um 15% af heildarloðnukvótanum á íslandi en ætla má að veiðiheimildir félagsins skiptist nokkuð jafnt milli bolfisks og uppsjávarfisks. Velta félagsins mun væntanlega verða nálægt fjóram mil- ljörðum á ári. Það mun gera út fimm- tán fiskiskip, reka þijár fiskmjöls- verksmiðjur, öfluga saltfískvinnslu og bolfiskfrystingu auk þess sem það hefur yfir að ráða góðri aðstöðu til að verka bæði síld og humar. Vinnslustöðin eignast meirihluta Sem kunnugt er stefndu Vinnslu- stöðin, ísfélagið, Krossanes og Os- land að sameiningu allra félaganna síðastliðið haust en þá slitu stjóm- endur Vinnslustöðvarinnar viðræð- unum enda töldu þeir þá að hags- munum sínum væri best borgið með áframhaldandi rekstri Vinnslu- stöðvarinnar. I desember síðastliðn- um samþykktu stjómir Krossaness og Isfélagsins sameiningu félaganna undir nafni Isfélagsins og fengu hlut- hafar í Krossanesi 15,5% hlut í hinu sameinaða félagi. í samningaviðræðunum síðastliðið haust var gengið út frá því að Vinnslustöðin myndi eignast 46% hlut í hinu sameinaða félagi, ísfélagið um 40%, Krossanes um 8% og Ósland 5%. Við samranann nú mun Vinnslu- stöðin hins vegar eignast 56,5% en ísfélagið 43,5%. Helsta skýringin á breyttum eignarhlutföllum er sú að Isfélagið stofnaði sérstakt eignar- haldsfélag um eignir sínar í öðram fé- lögum og þar vegur eign Isfélagsins í Tryggingamiðstöðinni þungt. Þessar eignir ísfélagsins ganga ekki inn í hið sameinaða félag. Þá var útgerðarfé- lagið Gandí sameinað Vinnslustöð- inni en það réð yfir 1.000 tonna þorskígildiskvóta og jók þannig verð- mæti Vinnslustöðvarinnar. Loks má svo nefna að verð á loðnukvóta hefur verið metið niður frá því sem áður var vegna lágs verðs á lýsi og mjöli. ísfélagið ræður yfir um 10% loðnu- kvótans en Vinnslustöðin 5% og því reiknast niðurfærslan til meiri lækk- unar á ísfélaginu en á Vinnslustöð- inni. Mun betur undir sameiningu búnir Geir Magnússon, stjómarformað- ur Vinnslustöðvarinnar, segir að Vinnslustöðin sé búin að vinna sín mál mun meira frá því að samninga- viðræðurnar fóra út um þúfur, búið sé að gera miklar breytingar á rekstrinum, meðal annars hafi nærri alllri frystingu í landi verið hætt og fyrirtækið hafi markað sér ákveðna og skýra stefnu og sé mun betur und- ir samrana búið nú en síðastliðið haust. Aðspurður segir Geir að ekki standi til að hefja frystingu í landi aftur að svo stöddu. Mestu máli skipti þó að þessi samrani nú komi öllum Vestmannaeyingum til góða, til verði mjög öflugt og stórt fyrirtæki með góða kvótastöðu og ljóst að sá kvóti verði kyrr; hið nýja fyrirtæki muni ekki sameinast öðram fyrirtækjum nema á eigin forsendum. Það hafi verið mikið metnaðarmál allra sem að viðræðunum komu að tryggja stöðu Vestmannaeyja og fiskútgerð þar. Geir segir Ijóst að samlegðar- áhrif af samrananum verði veraleg en það muni hins vegar taka nokkum tíma að ná þeim að fullu fram. Ljóst sé að við sameininguna skapist miklir möguleikar varðandi hagræðingu í útgerð og vinnslu en það eigi alger- lega eftir að setjast yfir þá vinnu. Hluthafafundur Vinnslustöðvarinnar á eftir að leggja blessun sína yfir sameininguna og þarf aukinn meiri- hluta til en Geir segist ekki gera ráð fyrir öðra en að samraninn verði samþykktur. Ekki fjöldauppsagnír Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri ísfélagsins, segir að ísfélagið hafi lengi verið tilbúið til sameiningar og þar á bæ séu menn mjög ánægðir með að þetta hafi nú loksins tekist. Mörg sóknarfæri og tækifæri opnist við sameininguna og það komi bæjarfélaginu til góða að hafa eitt öflugt sjávarútvegsfyrir- tæki. Aðspurður segir Sigurður að ekki standi til að segja upp starfsfólki í stóram stíl vegna sameiningarinnar en gera megi ráð fyrir mjög minni- háttar fækkun starfsmanna. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins verður Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri Isfélagsins, stjómar- formaður hins nýja félags, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, mun stýra fyrirtækinu. Stefán Frið- riksson hjá Vinnslustöðinni verður útgerðarstjóri, Hörður Óskarsson hjá Isfélaginu verður fjármálastjóri og framkvæmdastjóri fiskimjöls- verksmiðjanna verður Pétur Ander- sen frá ísfélaginu. Olíuviðskipti félagsins munu skipt- ast nokkuð jafnt á milli Olíufélagsins, sem á stærstan hlut í Vinnslustöðinni, og Skeljungs og félagið mun tryggja bæði hjá Tryggingamiðstöðinni og VTS en VÍS er einn stærsti hluthafinn í Vinnslustöðinni með 12-14% hlut. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist vera mjög sáttur með sameiningu Vinnslu- stöðvarinnar og ísfélagsins og segir að með henni sé ákveðinni óvissu eytt. „Það hafa áður verið umræður í gangi um sameiningu Vinnslu- stöðvarinnar við önnur fyrirtæki og að okkar mati gat það þýtt að við værum að missa aflaheimildir úr bænum og þar af leiðandi fækkun starfa. Það er hins vegar ekki svo í þessu tilfelli þó auðvitað fylgi sam- einingu af þessari stærðargráðu allt- af einhverjar breytingar á störfum,“ segir Guðjón. Guðjón segir að til lengri tíma litið sé þessi sameining að sínu mati mjög mikill styrkur fyrir bæjarfélagið og það sé ánægjulegt að fyrirtækin í bænum séu tilbúin að taka höndum saman. Fólk uggandi um störf sín Amar Hjaltalín, formaður Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja, segir að mikil óvissa ríki meðal sinna félags- manna um framtíðina vegna samein- ingarinnar. „Við höfum engar upp- lýsingar fengið um hvað þessi sameining kemur til með að hafa í för með sér. Síðast þegar sameining hjá þessum fyrirtækjum var uppi á borð- inu var talað um mikinn samdrátt í starfsemi með tilheyrandi uppsögn- um og við sjáum ekki í hendi okkar að það verði annað uppi á teningnum núna. Það er því óhætt að segja að fólk sé uggandi um störf sín. Það sem vakir fyrir stjórnendum fyrirtækjanna er hagræðing og ég held að við sameininguna verði ekki minni peningar sem streyma út úr fé- laginu. Eina breytingin verður sú að þeir streyma í vasa hluthafa en ekki inn í bæjarfélagið." Arnar segir að forsvarsmenn fyr- irtækjanna hafi ekki haft samband við verkalýðsfélögin og því sé tals- verð óvissa ríkjandi með framhaldið. Kynnti fjárfest- um Netverk HOLBERG Másson, forstjóri Net- verks, hélt kynningu á fyrirtækinu fyrir fjárfestingarbanka og blaða- menn á ráðstefnunni Intemet IPO Foram, sem haldin var í London í síðustu viku. Var Holberg einn af fimmtíu forstjóram fyrirtækja sem boðið var til þessarar kynningar, en eingöngu var boðið fyrirtækjum sem búist er við að fari á markað innan skamms. Ráðstefnan var haldin á vegum stórfyrirtækja á borð við EASDAQ og IBM og fjallaði einkum um net- fyrirtæki sem einbeita sér að þráð- lausum samskipum og verslun á Netinu. Að sögn Holbergs var það áhugavert að vera boðið að halda kynningu á ráðstefnunni og þar sem hjá Netverki yrði væntanlega innan skamms haftnn undirbúning- ur að skráningu fyrirtækisins á fyrri hluta næsta árs hafi einnig verið gagnlegt að hitta íúlltrúa fjár- festingabanka og annaira fyrir- tækja sem sérhæfa sig í að aðstoða fyrirtæki sem ætla sér á markað. Alvöru flotefni Efnifrá: OPTIROC ABS147 ABS154 ABS316 SmlSjuvsgur 72,200 Kópavogur Slml: 564 1740, Fax: 554 1769 ai =S 5 Eigið fé Gilding- ar 7 milljarðar SOFNUN stofnhlutafjár Gildingar - fjárfestingarfélags ehf. er lokið, en upphaflega var gert ráð fyrir að eigið fé fyrirtækisins næmi um fimm millj- örðum króna. Áhugi fjárfesta á hinu nýja fyrirtæki reyndist hins vegar það mikill að ákveðið var að nýta fyr- irliggjandi heimildir samkvæmt sam- þykktum félagsins og söfnuðust alls sjö milljarðar króna. Allir bankar landsins meðal hluthafa Hluthafar Gildingar era um 50 talsins en meðal þeÚTa era allir bank- ar landsins, lifeyrissjóðir, mörg með- alstór og stór íslensk fyrirtæki, þekktir íslenskir athafnamenn svo og starfsmenn Gildingar og aðilar þeim tengdir. Þá hafa fjölmargir forsvars- menn fyrirtækja myndað félög um hlutafjáreign sína í Gildingu. Enginn hluthafi á stærri hlut en 9% í félaginu. Gilding - fjárfestingarfélag ehf. er þekkingarfyrirtæki á sviði fjárfest- inga sem hefur það að markmiði að vera í fremstu röð varðandi arðsemi. Það stefnir að virku eignarhaldi í inn- lendum fyrii’tækjum auk þátttöku í erlendri fjárfestingu. Félagið leggur áherslu á gott samstarf við innlendar og erlendar fjármálastofnanir og aðra fjárfesta og endurspeglast það í breiðum hluthafahópi. í tilkynningu frá félaginu segir að hinar góðu undirtektir við hlutafjár- söfnun fyrirtækisins sýni trú á starf- semi þess og gefi til kynna að menn telji þörf á nýju afli inn á fjár- magnsmarkaðinn sem taki virkan þátt í umbreytingu og samranaferli fyrútækja. Hlutir i félaginu vora allir seldir á genginu 1,25. Hlutafé verður greitt inn í sex jöfnum greiðslum mánaðar- lega til áramóta. Gilding - fjárfestingarfélag Stærstu hluthafar Eignarhaldsfélagið Eyrir hf 8,82% Þorsteinn Vilhelmsson f.h. fjárfesta 8,82% Kristján Guðmundsson hf. f.h. fjárfesta 7,05% Lífeyrissjóðurinn Framsýn 4,23% Fjárfestingarsjóður Búnaðarbankans hf. 4,23% Óháði fjárfestingarsjóðurinn hf. 4,23% Safn ehf. og dótturfélög 3,70% Xapata S.A. 3,14% Elfar Aðalsteinsson f.h. fjárfesta 3,00% Jón Helgi Guðmundsson f.h. fjárfesta 2,82% Lífeyrissjóður sjómanna 2,12% lsoportS.A. 2,12% Bergstaðir sf. 2,03% Búnaðarbanki íslands hf. 1,76% Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. 1,76% Samvinnulífeyrissjóðurinn 1,76% Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hf 1,76% Kaupfélag Arnesinga 1,76% Íslandsbanki-FBA hf. 1,76% Kaupþing hf 1,76% Landsbankinn Fjárfesting hf 1,76% Mallard S.A./ Össur Kristinsson 1,76% Vátryggingafélag íslands h.f.______________1,76% Samtals 73,91% Aðrir hluthafar___________________________26,09%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.