Morgunblaðið - 08.07.2000, Síða 26
►
Líkur á barneignum
minnka með aldrinum
New York. Reuters Ilealth.
Reuters
Lisa Kudrow leikkona eignaðist þríbura í þáttaröðinni Friends, en
oft gengur konum komnum undir fertugt illa að eignast börn.
KONUR sem eru
farnar að nálgast
fertugt eiga mun
minni möguleika á að
eignast barn en yngri
konur, samkvæmt
nýrri skýrslu er birt-
ist í ritinu British
Medical Journal 24.
júní.
Um það bil einn
fimmti þungana með-
al 35 ára kvenna og
yfir önnur hver
þungun meðal 42 ára
kvenna misferst, að
því er vísindamenn
við Statens Serum
Institut í Kaup-
mannahöfn greina
frá.
Mæla þeir með því
að konur sem orðnar
eru þrítugar eða fer-
tugar og hafa hug á
barneignum fái upp-
lýsingar um líkumar
á að þungun takist
ekki. Niðurstöðumar
byggjast á rannsókn á
öllum konum sem urðu
bamshafandi í Dan-
mörku á árunum 1978-1992, alls 1,2 milljón-
um þungana 634.272 kvenna.
I leiðara í sama hefti tímaritsins segja vís-
indamenn við Columbiaháskóla í Bandaríkj-
unum að þrátt fyrir að líkumar á barneign-
um minnki með aidrinum kunni það að hafa
kosti fyrir konur að eignast böm seinna á
ævinni. „Eldri foreldrar eru ef til vill ekki
eins hraustir og yngri foreldrar, en allar lík-
ur eru á að reynsla þeirra og þekking séu
meiri, fjárhagsstaða þeirra betri og þeir hafi
frekar efni á því að ala upp barn.“ Hættan á
að missa fóstur er mest hjá elstu konunum,
og er 8,7% hjá 22 ára konum en 84,1% hjá 48
ára og eldri. Fyrri þunganir eða barneignir
hafa engin áhrif. Þá er hættan á fósturláti og
utanlegsfóstri meiri hjá eldri konum.
TENGILL
....Yíyraísbmjie.Qm...........................
Höfuðmeiðsl algeng-
asti áverki ungbarna
The New York Times.
MÖRGUM foreldrum ungbarna kann að
koma á óvart að bömum þeirra stafar
mest hætta af höfuð- og hálsmeiðslum,
sem em hartnær 70% áverka ungbaraa
sem lögð em inn á bandarísk sjúkrahús.
Stundum er foreldrum barnanna um
að kenna. Eitt af hverjum íjómm ung-
bömum sem vom lögð inn á sjúkrahús
hafði sætt illri meðferð eða misþyrming-
um.
Þetta kemur fram í einni af fyrstu
rannsóknunum á algengustu áverkum
ungbama á bandariskum sjúkrahúsum.
„111 meðferð á mjög stóran þátt í þessu,“
sagði Mary Christine Bailey sem annað-
ist rannsóknina. „Og þar sem þetta em
sjúklingar sem vom lagðir inn á sjúkra-
hús em þetta slæm tilvik og ég komst að
því að rúmur fjórðungur þessara sjúkl-
inga var með áverka vegna illrar með-
ferðar og það er nokkuð uggvekjandi
niðurstaða.“
Bömin sem vom lögð inn á sjúkrahús
vegna illrar meðferðar vom oft verst á
sig komin, jafnvel verr en börn sem
höfðu orðið fyrir bflslysum.
Eitt af hveijum sex barnanna sem
sættu illri meðferð var sett í umsjá
bamavemdaryfirvalda.
Um fjórðungur allra baraanna sem
lögð vora inn á sjúkrahús var með ein-
hvers konar áverka. 46% þeirra meidd-
ust vegna falls og var það algengasta
ástæða áverkanna. 16% baraanna urðu
fyrir bflslysum.
Rannsóknin ieiddi enn fremur í ljós að
71% baraanna urðu fyrir áverkunum á
heimilum si'num eða öðmm heimilum.
Meðalaldur baraanna var fimm mánuðir
en tveggja mánaða böra vom stærsti
aldurshópurinn.
Reuters
25% innlagðra ungbarna á sjúkrahús í
Bandaríkjunum sæta illri meðferð.
„Höfúðáverkar sem em nógu slæmir til að
börn séu lögð inn á sjúkrahús era aðeins topp-
urinn á ísjakanum miðað við það sem við sjáum
á bráðamóttökunum," sagði Mary Hegenbarth
sem sérhæfír sig í bráðabaraalækningum við
Children’s Mercy-sjúkrahúsið í Kansas. „Fjöl-
mörg böra verða fyrir höfuðmeiðslum án þess
að vera lögð inn á sjúkrahús.“
Hún bætti þó við að ungböra væm alltaf
lögð inn á sjúkrahús ef gmnur léki á að þau
hefðu sætt illri meðferð.
Er hjónabandið þess virði?
GYLFl ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Ég hef verið gift í 10 ár
og á 3 börn á aldrinum 2-9 ára
með manninum mínum.
Lengi gekk allt vel hjá okkur,
en nú stefnir í skilnað af margvís-
legum orsökum og við virðumst
ekki geta náð sáttum. Er það þess
virði að reyna allt til þess að
bjarga hjónabandinu án þess að
okkur líði lengur vel saman?
Svar: Mjög stórt hlutfall hjóna-
banda og sambúða hér á landi
endar í skilnaði. Meðal þess helsta
sem fólk gefur sem ástæðu fyrir
hjónaskilnaði eru samkvæmt
rannsóknaniðurstöðum óhófleg
áfengisneysla og framhjáhald. Þó
geta ýmsar aðrar ástæður legið til
grundvallar og ekki er óalgengt að
hjónin eða sambýlisfólkið vaxi ein-
faldlega hvort frá öðru, hætti að
finna ánægju af samvistum sín í
milli, geti ekki talað saman af ein-
lægni og fari hvort í sína áttina í
áhugamálum sínum og lífsstíl.
Hjónaskilnaður er eitt mesta
álag sem fjölskylda verður fyrir.
Fæstir gera sér grein fyrir því
hvað röskunin er mikil á lífi hjóna
sem skilja, einkum þegar ung
börn eiga í hlut. Fjárhagslegi
vandinn sem oft fylgir í kjölfarið
við skiptingu eigna getur oft orðið
mikill, tengslin við tengdafjöl-
skyldur og sameiginlega vini
slitna stundum eða verða vand-
ræðaleg, og missir sameiginlegs
heimilis og fjölskyldu getur valdið
öryggisleysi og rótleysi og jafnvel
alvarlegu þunglyndi. Erfiðust er
þó baráttan um börnin og þau fá
stundum óþyrmilega að finna fyrir
henni. Enda þótt slæmt andrúms-
loft og árekstrar innan fjölskyld-
unnar geti haft í för með sér
vandamál sem stundum verða
ekki leyst á annan hátt en með
skilnaði bendir allt til þess að
kostir hjónabands og fjölskyldu-
lífs vegi þyngra en gallarnir þegar
til lengdar lætur. Það er sjaldgæft
að sleppa við ýmiss konar mótlæti
og árekstra í venjulegum hjóna-
böndum og oftar en ekki styrkir
það hjónabandið fremur en öfugt.
Skoðanir sem mikið voru til um-
ræðu fyrir nokkrum árum, um að
kjarnafjölskyldan væri búin að
ganga sér til húðar sem sambýlis-
form, eru nú að mestu þagnaðar,
og víðast hvar er nú lagt allt kapp
á að hlúa sem mest að fjölskyld-
unni í blíðu og stríðu. Rannsóknir
hafa sýnt að fólk í hjónabandi eða
sambúð er í mun minni hættu á
misnotkun vímuefna, sjálfsvígum
og margs konar geðrænum kvill-
um og hjónaskilnaður og sundrun
fjölskyldunnar er einn stærsti
áhættuþátturinn fyrir ýmiss kon-
ar geðræn vandamál hjá hinum
fráskildu og þá ekki síður fyrir
börnin sem verða í meiri hættu að
lenda í alls konar aðlögunarvanda.
Hegðunarvandkvæði og tauga-
veiklunareinkenni hjá börnum,
bæði á meðan þau em ung og síð-
ar í lífinu eru oft fylgifiskar þess
að fjölskylda þeirra leystist upp.
Slíkt getur gerst vegna dauða for-
eldris en árekstrarnir og fjöl-
skyldukreppan sem af skilnaði
leiðir era þó að jafnaði miklu al-
varlegri.
Það er ljóst að afleiðingar
hjónaskilnaðar geta haft alvarleg-