Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 42

Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ ,42 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 MÍNNÍNGAR JAKOBINA MATHIESEN tJakobma Mat- hiesen fæddist í Keflavík 9. mars 1900. Hún lést 19. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði 30. júní. Fólkið í Petersens- húsinu í Keflavík er ■j^mér minnisstætt allt frá bernskuárum, Jú- líus Petersen, Guðflnna kona hans og böm þeirra öll. Á meðan Pet- ersensfólkið, Júlíus, forfeður hans og ættingjar bjuggu í Petersenshúsi var það sannkallað ævintýrahús, utan- dyra jafnt sem innan. Ég man að þegar ég steig inn fyrir þröskuldinn fannst mér ég vera komin í allt annan heim, systurnar og móðir þeirra voru íramúrskarandi fallegar konur og Júlíus og piltamir tveir hlýlegir og bamgóðir menn. Stundum settist Hulda við orgelið í stofunni og spilaði Kirkjuhvol, hún amma mín það sagði mér, og bauð mér að koma inn í stof- -j., una og syngja með sér. Það vom heil- agar stundir í lífi lítillar stúlku. Mér er það í minni er afi minn, Þorgrímur Þórðarson héraðslæknir í Keflavík, fór í sjúkravitjanir um héraðið, þá var fylgdarmaður hans ævinlega Jú- h'us Petersen. Amma mín, Jóhanna Ludvigsdóttir, spurði jafnan mann sinn: „Fer hann Júlíus ekki með þér?“ Þorgrímur svaraði því játandi. Þá vissum við að öryggi hans var tryggt eins og hægt var. Þorgrímur afi minn og Júlíus Pet- ersen nutu þess að ferðast saman á góðhestum sínum. Jakobína Petersen og móðir mín, Anna Þorgrímsdóttir, vom vinkonur frá fyrstu kynnum. Þótt móðir mín væri nokkrum ámm eldri var vinátta þeirra traust og því líkust sem systur væm. Þau tryggðabönd entust alla tíð. Þótt leiðir skildu, er móðir mín fluttist í Borgarfjörðinn en Ja- kobína stofnaði heimili í Hafnarfirði, var sam- band þeirra stöðugt. Sama má segja um fólk- ið í Læknishúsinu í Keflavík. Amma mín gladdist innilega þegar frændi hennar Jón Mathiesen kvæntist Ja- kobínu. Jón og amma mín vora náskyld og þótti henni undurvænt um Jón. Ungu hjónin komu oft í heimsókn til okkar í Læknishúsið. Jón kom þá með Ijósmyndir af stöðum sem ömmu minni vom kærir frá æskuáram er hún ólst upp í Hafnarfirði. Heimili Jakobínu og Jóns stóð lengi við Strandgötu í Hafnarfirði. Það sem einkenndi heimilið í mín- um augum var birta, hlýja og gest- risni. Jóhanna systir mín tengdist hjónunum og dætmm þeirra, Soffíu og Guðfinnu, órjúfandi böndum. Hún dvaldist hjá þeim mörg sumur á æsku- og unglingsáram. Við systkin- in voram ætíð velkomin á heimilið sem gestir og dvalargestir. Jakobína vann ötullega að öllum áhugamálum sínum. Var hún hverri konu glæsilegri á að líta. Minnisstæð verður hún öllum sem þekktu hana er hún klæddist fallega íslenska bún- ingnum sínum, sem hún bar með kvenlegri reisn og þokka. Jakobína og Jón Mathiesen eign- uðust tvær dætur, Soffíu sem giftist Davíð Scheving Thorsteinssyni framkvæmdastjóra. Hún lést í blóma lífsins frá manni og þrem ungum bömum. Yngri dóttirin Guðfinna er gift bandarískum manni, Martin J. Bevans, og þau eiga fimm börn. Innilegar saknaðar- og samúðar- kveðjur frá mér og eiginmanni mín- um, Pétri Péturssyni. Bima Jónsdóttir. MARGRÉT HARALDSDÓTTIR + Margrét Har- aldsdóttir fædd- ist á Kjalarlandi í s Vindhælishreppi 29. september 1943. Hún lést á Ifknardeild Landspítalans 24. júní síðastliðinn og fór útfór hennar fram frá Kópavogs- kirkju 3. júlí. Nú er Margrét vin- kona mín búin að fá hvíldina eftir erfið veikindi. Hún var ein af þessum hvunndags- hetjum sem notuðu líf sitt og orku til að sinna og hlúa að öðram. Ég kynntist henni fyrir sextán ár- um en þá voram við báðar staddar í ^ Reykjavík með fötluð börn okkar og bjuggum saman í húsi sem Þroska- hjálp á og hefur reynst margri fjöl- skyldunni utan af landi mikið þarfa- þing. Við voram báðar kvíðnar yfir því hvernig búskapurinn saman myndi takast hjá okkur en sá kvíði reyndist óþarfur. Okkur leið vel saman og börnunum okkar líka, og áður en við kvöddum hvor aðra eftir fjögurra vikna dvöl veltum við því fyrir okkur hvort við gætum ekki haft einhver áhrif þannig að við vær- um aftur saman næst þegar þyrfti að fara í þjálfun og læknisvitjun. í,Næstu ár hittumst við oft í „Mel- gerði“ og var það ómetanlegt að vita af því að vera á sama tíma og Magga. Annarri þótti skemmtilegra að elda og hinni að þrífa og þá var verkunum skipt þannig. Á kvöldin vora saumavélarnar settar upp á borð og hver jogging-gallinn saum- aður á eftir öðram. Þama var oft ;glatt á hjalla á kvöldin, voram við oftast fjórar konur saman í einu og handavinnan hafði öll völd. Það var ómetan- legt fyrir okkur að kynnast og fá reynslu- sögur hver annarrar, þar sem við voram víða að og sumar einangr- aðar með sín vanda- mál. Búðarferðirnar okkar Möggu voru oft með alls konar uppá- komum og gátum við oft hlegið dögum sam- an að því sem gekk á. Binni minnti okkur oft á þegar ekki vildi betur til í öllum hamagangin- um en svo að keyrt var yfir einn inn- kaupapokann. Magga hafði frábær- an húmor og sá alltaf spaugilegu hliðarnar á öllum málum. Hún hafði svo skemmtilegan orðaforða sem hún notaði og hvað það var yndislegt þegar einhver var að segja henni eitthvað sem henni þótti ótrúlegt og spurði þá: „Sastu sjálfur uppi í tré?“ Magga flutti síðar til Reykjavíkur til að búa Binna sínum heimili þar en hann fór í Öskjuhlíðarskóla. Þar bjuggu þau saman ásamt Kristínu Dís þar til fyrir rúmu ári að Binni, orðinn fullorðinn maður, flutti að heiman eins og allir fullorðnir gera einhvern tíma. Við hjónin nutum mikillar gestrisni Möggu og fengum oft að gista eina nótt þegar þurfti að hendast til Reykjavíkur á fundi. Og ekki var að spyrja að, það var setið og skrafað langt fram á nótt. Kæra vinkona, minningarnar eiga eftir að ylja um ókomin ár, þær tekur eng- inn frá okkur. Elsku Bjössi, Dís, Binni, Siggi, Þórann, aðrir ættingjar og vinir, innilegustu samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur á þessum erfiðu tímum. Sólveig og Einar. Þakklæti og virðing er mér efst í huga er ég minnist Jakobínu Mat- hiesen. Síðast þegar ég hitti hana, þá komna á 101. aldursár, var yfir henni eins og ætíð á langri leið, glæsibrag- ur og reisn. Jakobína var einstök kona, áræð- in, hispurslaus og yfir henni ríkti gleði og bjartsýni. Hún vakti athygli hvar sem hún fór. Jakobína var gift afabróður mín: um, Jóni Mathiesen kaupmanni. I minningu æskuára var alltaf gaman á mannamótum þar sem þau vora, hann ofurlítið stríðinn, reitti af sér góðlátlega brandara og sagði sögur hún skoðanafóst og hreinskilin. Jón dó árið 1973. Jakobína vann ötullega að félags- málum, hafa mörg félagasamtök not- ið einlægra krafta hennar en fjöl- skyldumanneskja var hún fyrst og fremst. I heimsóknum til hennar sagði hún mér fréttir af sínum og spurðist frétta, hún fylgdist vel með með sín- um ferska huga allt til loka. Stjórnmál vora henni ofarlega í huga alla tíð, hún var ein af stofnend- um Vorboða, félags sjálfstæðis- kvenna í Hafnarfirði. Sagði hún mér margt frá fyrri tíma og fyllti frásögn sína lífi, fannst henni að það væri nauðsyn nútímafólki að vera meðvit; að um það sem á undan var gengið. í stjómmálum hvatti hún eindregið til að þora að hafa skoðanir, fylgja sann- færingu sinni og taka ákvarðanir. Aldrei bar Jakobína sorgir sínar á torg, aldrei kvartaði hún undan slæmu heilsufari, hún þakkaði fyrir það góða og það skipti máli. Kjamakona er gengin. Um margt var hún á undan sinni samtíð. Ég vil á kveðjustund þakka fyrir ánægjulega samvera, vinarhug mér og fjölskyldu minni til handa. Kæra fjölskylda, ykkur öllum færi ég og fjölskylda mín innilegar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Jakobínu Mat- hiesen. Valgerður Sigurðardóttir. Jæja amma, þar kom að því. Þú varst búin að tala um það lengi. En það er víst þannig að enginn lifir að eilífu, en það sem við eigum og getum þakkað fyrir era minningamar. Það fyrsta sem ég man eftir er ilm- urinn af heitu súkkulaði og Ijúffeng- um pönnukökum heima á Álfaskeið- inu. Hver sá sem bragðaði pönnukökurnar hennar ömmu gat aldrei gleymt þeim og er ég þar engin undantekning. Ekki nóg með að bak- aðir væra tugir pönnukaka ofan í all- an mannskapinn heldur fékk ég þær líka stundum með heimsendingar- þjónustu ef svo má segja, þegar amma stökk upp á fjórðu hæð, níræð, án þess að blása úr nös og bakaði of- an í mig þar til ég sprakk. Meðan á átinu stóð spjölluðum við heilmikið, þrátt fyrir áttatíu ára aldursmun. Það var líka svo ótrúlegt amma mín, hvað þú fylgdist vel með. Á Is- landi var hvorki sími né sjónvarp árið 1900 en svo var það núna rétt um daginn að þú varst að spyrja mig um Netið og hvernig þetta virkaði nú allt saman. Þetta þótti mér með ólíkind- um, en alltaf gat amma komið manni á óvart. Eitt af því sem ég man þó allra helst era orð sem amma hafði í há- vegum alla tíð og ég veit að ég gleymi ekki. „Vín er ríðbjóður," sagði amma og mér er sagt að fjögurra ára hafi ég setið uppi á afgreiðsluborði í Áfengis -og tóbaksverslun ríkisins og haft þessi orð eftir háum rómi, við mikinn fögnuð viðstaddra. Amma sagði þetta oft og nú síðast fyrir stuttu þegar ég fór með glænýju stúdentshúfuna að heilsa upp á hana. Það var eins og við manninn mælt að mér var tekið sem þjóðhöfðingja og boðinn bijóstsykur og ýmislegt annað, en svo kvaddi hún mig á þessa leið: „Bless Davíð minn, Guð geymi þig og mundu að vín er viðbjóður". Þótti mér þetta hin besta kveðja og með orðum mínum hér reyni ég að feta í fótspor þín amma og kveðja þig á viðeigandi hátt. Takk fyrir minningamar amma mín og Guð geymi þig. Davíð. Það sem af er þessu ári hefur þjóð- in verið að rifja upp og minnast merkra atburða sem gerst hafa á lið- inni öld. Vissulega hafa átt sér stað miklar breytingar á öllum sviðum þjóðlífsins og vonandi oftast til bóta. Nú þegar við kveðjum Jakobínu Mathiesen sem lifði allt þetta tímabil og nokkram mánuðum betur er mér efst í huga þakklæti, þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þessari stórbrotnu og góðu konu og að hafa átt samleið með henni í þrjátíu og fimm ár. Fyrstu kynni mfn af henni vora þegar ég kynntist tengdasyni henn- ar, Davíð Sch. Thorsteinsson, sem þá var ekkjumaður. Hann missti konu sína Soffíu árið 1964 en hún var eldri dóttir Jakobínu og Jóns Mathiesen. Þau eignuðust þijú böm: Lauru, Hrund og Jón, en yngri dóttir Jóns og Jakobínu er Guðfinna, eða Dunda eins og hún oftast er kölluð. Það er óhugsandi að minnast Ja- kobínu án þess að nefna um leið eig- inmann hennar, Jón Mathiesen, kaupmann í Hafnarfirði, því þau vora sem órjúfanleg heild og stórbrotnir persónuleikar, hvort á sína vísu. Jón dó langt um aldur fram en í níu ár hlotnaðist mér sú gæfa að njóta samvista við hann. Jón var einstakur maður, alltaf hress og kátur og til- búinn að hjálpa þeim sem bágt áttu og umfram allt reyndist hann „Sossubörnunum" sínum vel. Hann laumaði t.d. alltaf alls konar góðgæti í pokann þegar ég pantaði í matinn hjá honum og yfirleitt notaði hann tækifærið og kom sjálfur með sendinguna og heimsótti okkur í leið- inni. Þegar svo kom í ljós hitt og þetta sem ekki hafði verið á pöntun- arlistanum var alltaf sama svarið: „Það er sama hvar þetta liggur.“ Það hlýtur að hafa reynst erfitt fyrir Jón og Jakobínu að fá nýja konu við hlið Davíðs inn í líf sitt og barn- anna en allt frá fyrsta degi fann ég aldrei annað en hlýju og elsku streyma frá þeim. Það era ótal dýrmætar minningar tengdar afa og ömmu í Habbó eins og þau vora alltaf kölluð í fjölskyldunni og er mér sérstaklega minnisstætt hvað það var alltaf gott að koma á heimili þeirra við Hringbraut J.M., sem var eina húsið við þá braut og sem þá var úr alfaraleið. Þetta var notalegt timburhús við lækinn, sannkallaður unaðsreitur, fjarri skarkala lífsins. Það var eins og að ganga á vit ævintýranna að koma þar inn og finna hinn góða anda sem þar ríkti. Minningamar um ferðalögin sem farin vora með Jakobínu, og Jóni á meðan hans naut við, vítt og breitt um landið dofna seint og sömuleiðis, eftir að Jón dó, þegar við sóluðum okkur með ömmu í Flórída eða þegar hún lét sig ekki muna um að koma siglandi á Þingvallavatni á tíræðis- aldri til að heimsækja okkur. Ekki má heldur gleyma hinum ýmsu fundum sem ég upplifði með henni, þá sérstaklega öllum jólafund- unum hjá Vorboðanum þar sem hún var ein af stofnendum og lengi for- maður. Fundirnir sjálfir fundust mér misskemmtilegir en alltaf vai- hún jafnglæsileg og með afbrigðum STEFÁN ÓLIÁRNASON STEINUNN ÁRNADÓTTIR + Stefán Óli Árna- son fæddist í Reykjavík 8. maí 1941. Hann varð bráðkvaddur á heim- ili sínu í Kúpavogi 20. júní siðastliðinn og fdr útför hans fram frá Kdpavog- skirkju 28. júni. Steinunn Árna- ddttir fæddist í Reykjavík 14. janúar 1951. Hún lést á Landspítalanum 17. júní síðastliðinn og fdr útför hennar fram frá Hallgrímskirkju 29. júní. Á sautjánda júní var ég stödd í Noregi og fékk á svipuðum tíma fréttir af stórjarðskjálfta á íslandi og fréttina um andlát frænku minnar Steinunnar. Daginn sem ég kom heim vora fyrstu fréttir þær að Stef- án Óli bróðir hennar væri látinn. Hvað er eiginlega að gerast hér heima? Nú hefur ykkur verið svipt burt úr okkar stóra frændsystkinahópi eins og Þór bróður ykkar, langt um aldur fram, og erfitt er að skilja hvers vegna það erað þið systkinin sem hverfið fyrst á braut en það er svo margt í tilveranni sem við fáum aldrei svörvið. Mörg höfum við tifað okkar fyrstu spor í húsinu hennar ömmu á Berg- þóragötu 6B. Þar var ég svo gæfusöm að alast upp með ykkur og hafa ykkur ásamt Gumma, Boggu og Þór sem mín yngri systkini. Fullorðin hlógum við Stefán Óli oft að því hvað þú, Gummi og Ollý frænka voruð þæg og hlýðin þegar ég draslaðist með ykkur og hafði fyrir dúkkurnai- mínar. Margs er að minnast en þó mest hvemig við eins og ein fjölskylda, með tvö pör af foreldram, ykkar og mína, ólumst upp við ástúð og um- hyggju sem okkur fannst á unglings- áranum á stundum vera of mikil af- skiptasemi. En þú, Steinunn mín, Steinunn Iitla, eins og mamma sagði alltaf, æsku þinni fylgdist ég ekki eins vel með þar sem ég bjó í öðram lands- hluta á þeim áram sem þú varst að vaxa úr grasi. Ég kynntist þér sem þroskaðri konu sem kallaðir okkur saman er nokkur tími var liðinn frá dauða mömmu þinnar og sýndir með því að við sem fjölskylda voram þér mikilvæg í sorg þinni og sýndir þann- ig elsku þína til okkar. Ég fékk líka að vera í tengslum við þig er þau veik- indi, sem tóku þig frá börnum þínum og Jóa, tóku að herja á þig og fann þann ótrúlega styrk sem Steinunn litla (hennar mömmu) hafði í þeirri raun. Styrkur stórfjölskyldunnar hefur verið snar þáttur í lífi okkar allra og haft áhrif á okkur og þið systkinin Stefán Óli og Steinunn og makar ykk- ar hafið sýnt það. Þið vorað ötulust að mæta í mánaðarlega frændsystkina- kaffinu í Kringlunni í mörg ár og sýnduð með því hversu mikilvæg bönd stórfjölskyldunnar vora ykkur og þú Stefán Óli byggðir upp ásamt eiginkonu þinni sama andrúmsloft gestrisni á ykkar heimili eins og þú hafðir alist upp við á Bergþóragöt- unni. Ógleymanlegt er mér m.a. síð- asta afmælið sem þið hélduð fyrir mömmu þína og sú fallega og skemmtilega ræða sem þú af þinni al- úð og virðingu fluttir mömmu þinni. Ég gleymi heldur aldrei þegar hringt var í mig síðla kvölds fyrir nokkram mánuðum. Það var þá Steinunn að segja mér að þau Jói væru nú eigend- ur að Bergþóragötu 6B og þar væra allirvelkomnir áný. Ég þakka fyrir nærvera ykkar í gleði og sorg og bið guð að gefa fjöl- skyldum ykkar styrk. Ykkar frænka, Sdlveig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.