Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 46

Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 46
46 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Maestro I " ÞITT FE HVAR SEM ÞÚ ERT IJI l.pl.RJC GÓLFSTROKKAR FVRIR VATNS- OG HITALAGNIR IINFALT • SNVRTILEOT ■ FUÓTLECT Oólfítrokkarnir frá SIMPLEX eru elnfaldir í uppsetningtr og snyrtilegir. Cólfstrokkarnlr henta fyrlr fiestar gerðlr af rörum UMRÆÐAN Afram Sleipnismenn ÞÓ SVO að Davíð konungur verði reiður við mig, eins og biskup- inn, vil ég samt taka undir þau orð okkar ágæta biskups að þetta þjóðfélag er farið að stjómast af mikilli græðgi og eiginhags- munahyggju. Þó svo að Davíð hafi orðið fúll út í biskupinn tók hann að nokkru leyti undir orð hans í 17. júní-ávarpi sínu um það að við mættum ekki gleyma lítilmagnanum. Hver svo sem meiningin var hjá Davíð er það alveg ljóst að hér á landi er að verða rosaleg stéttaskipting, sem alls ekki þyrfti að vera þar sem þetta litla fallega land sem við byggjum er ríkt af auðlindum og allir ættu að geta haft það mjög gott, ef græðgi og misskipting væri ekki slík sem hún er. Hver eru t.a.m. rökin fyrir því að fyrirtækin geti ekki greitt fólkinu sínu mannsæmandi laun þegar þau skila milljóna og hundraða milljóna hagnaði ár eftir ár? Það má ekki gera mannsæmandi kjarasamninga að sögn stjómvalda og atvinnurekenda því þá fer verð- bólgan af stað, sem er bara kjaftæði eins og komið hefur í ljós. Verðbólgan hefur ætt upp þrátt fyrir lúsarkaup- hækkanir í undanfarandi kjarasamn- ingum. Hver eru rökin fyrir því að forstjóri eða bankastjóri o.s.frv. er með 10-20 sinnum hærri laun en verkamaðurinn eða þjónustufull- trúinn sem er andlit fyrirtækisinns út á við, ekki eru þeir 10^-20 sinnum mik- ilvægari eða Idárari? Forstjóri gerir lítið ef hann hefur ekki undirmenn sem vinna störfin og redda hlutunum, eða eins og einn flugmaður sagði við mig, hver eru rökin fyrir því að flug- maður sem tekur flugvélina á loft, setur síðan sjálfstýringuna á og lapp- imar upp á mælaborðið og hefur það huggulegt hefur 10-12 sinnum hærri laun heldur en bifreiðarstjórinn sem er í umferðinni á jörðu niðri og þarf að hafa alla athyglina við aksturinn og verður fyrir ótrúlega miklu áreiti og stressi. Fyrirtækiseigendur og stjómvöld verða að fara átta sig á því að kúrvan í skipuritinu snýr öfugt, andlit fyrir- tækisins er miklu mikil- vægara en forstjórinn sem situr einhversstað- ar á bakvið. Það er ömurlegt til þess að vita að forystu- menn verkalýðsfélag- anna séu svo uppteknir af peninga- og valda- græðgi að þeir megi ekki vera að þvi að hugsa um verkafólkið sem þeir em kosnir til að vinna fyrir. Valda- baráttan í verkamanna- sambandinu ber þess gleggst merki. Menn skulu athuga það, að þeir em að leika sér með fjármuni verkafólksins, en Verkfall Það er aðdáunarvert, segir Marías Sveinsson, hvað fólkið í þessu litla félagi stendur vel saman. glýjan í augum þeirra er líklega orðin svo mikil að sú staðreynd er orðin fjarlæg. Hvaða leyfi hafa nokkrir pót- intátar til þess að ræna verkalýðinn milljónum til að gera starfslokasamn- ing við einn pótintátann sem kosin var af fulltrúum verkalýðsins af því að þeim finnst þeir þurfia að losna við hann, þið hafið bara ekkert leyfi til að haga ykkur svona, þið emð ekki kosnir til þess, formaðurinn á að falla í kosningu á næsta þingi ef ekki er hægt að nota hann lengur. Það á ekki að kaupa hann í burtu með stolnum peningum. Það er ekki síður lítil- mannlegt og lýsir því best hvemig verkalýðsforystan er þenkjandi, að formaður verkamannasambandsins „sem oft hefur gagnrýnt starfsloka- samninga" skuli láta græðgiglýjuna villa sér sýn, og taka við næstum fjór- földum árslaunum verkafólksins fyrir það eitt að hætta, sveiattan, þetta er lélegt. Það verður að teljast afar furðulegt hvað verkalýðsfélögin og alþýðusambandið hafa verið spör á stuðning við verkfallsaðgerðir Sleipn- ismanna. Þau tóku seint og illa við sér eins og stuðningyfirlýsing ASI lýsir kannski best, það var ekki fyrr en nokkuð var liðið á verkfall að þeir sendu stuðningsyfirlýsingu eftir að Sleipnismenn vom búnir að minna þá á að þeir væm í verkfalli. Hver er ástæðan fyrir því að félögin sýna ekki samstöðu og hvetja menn? Getur það verið að forystan sé orðin svo bundin af atvinnurekendum í gegnum lífeyr- issjóðabitlingana að þeir sjái ekki bjálkann í auga sér? Guð fyrirgefi ykkur, þið hræsnarar. Vilja menn ekki hærri laun? Ég ber mikla virðingu fyrir Óskari og þeim harða kjama Sleipnismanna sem þora að bjóða atvinnurekenda- auðvaldinu byrginn með því að fara í verkfall til að reyna að rétta hlut bif- reiðarstjóra. Það er aðdáunarvert hvað fólkið í þessu litla félagi er áræðið, ákveðið og stendur vel sam- an, það færi betur á því fyrir verka- lýðinn, að fleiri væm svona harðir. Eg ber að sama skapi litla virðingu fyrir þeim bílstjómm sem með sleikju og undirlægjuhætti gagnvart vinnu- veitandanum láta nota sig og nafn sitt til að brjóta á bak aftur þá viðleitni Sleipnismanna til að hækka launin okkar og gera bifreiðarstjórastarfið að því virðingarstarfi sem það áður var. Já, ég segi sleikjuhætti, það hlýt- ur að vera sleikjuháttur við vinnu- veitandann sem rekur menn tfi að framkvæma verkfallsbrot og að geta ekki sýnt samstöðu með þeim mönn- um sem leggja hefimikið á sig tfi að berjast fyrir laununum okkar, varla er ástæðan sú að menn vfiji ekki hærri laun. Ég vil halda því fram að það jaðri við mannréttindabrot hjá sýslumann- inum í Reykjavík að samþykkja lög- bann á Sleipnismenn að óskoðuðu máli og með þeim forgangshraða sem það fékk, er það nóg ástæða hjá Teiti Jónassyni að leggja bara fram lista með einhverjum nöfnum til að fá lögbannskröfu framgengt? Þarf ekki sýslumaður að skoða þann lista og ganga úr skugga um það hvar menn- Marías Sveinsson imir eru skráðir í félag og vinnu? Er það ekki að minnsta kosti siðlaust að samþykkja lögbannskröfu á mann sem er í fullri vinnu hjá SVR en á lista Teits? Samviska mín segir að það sé siðlaust, og ennþá siðlausara fmnst mér það hjá viðkomandi vagnstjóra SVR sem viðurkenndi fyrir mér að nafn hans væri með fullu samþykki á listanum. Bflsljói'ar, stöndum saman Það er kominn nýr kórstjóri í grát- kórinn. Það heyrist orðið lítið í Krist- jáni Ragnarssyni enda veður kvóta- aðallinn í peningum upp fyrh' haus, en þess meira heyrist í Ara Edwald, nú er hann orðinn aðalgrenjari, og barmar sér hástöfum. Heldur Ari að hann sé að tala við tóma aula? Hann kemur með yfirlýsingar í fjölmiðlum um að Sleipnismenn séu að leggja fyrirtækin í rúst með verkfallinu. Éyrirtæki sem eru að tapa milljónum á hverjum degi hljóta að geta borgað örlítið hærri laun. Menn með fleiri hundruð þúsunda mánaðartekjur ættu að skammast sín fyrir að láta slíkt út úr sér. Hvað heldur Ari að hann sé búinn að kosta þessi fyrir- tæki með þrjóskunni í sér? Það er nefnilega frekar hann sem er að steypa fyrirtækjunum í glötun, það sést best á því að fyrirtæki sem standa utan og jafnvel innan Samtaka atvinnulífsins eru reiðubúin að borga samkvæmt kröfugerð Sleipnis, en Ari sættir sig bara ekki við að geta ekki svínbeygt, eða jafnvel drepið, þetta litla félag. Það vita það allir, nema kannski Ari, að fyrirtækin í landinu vaða í peningum og geta vel borgað hærri laun, ef græðgin væri ekki látin ráða. Það er aðdáunarvert hvað fófidð í þessu litla félagi stendur vel saman og lætur ekki lemja á sér, og mættu margir taka sér það til fyrirmyndar. Ég skora á alla bílstjóra að standa saman og láta ekki vinnuveitendur komast upp með það lengur, að sundra okkur til þess eins að halda niðri laununum. Þeir eru að fremja mannréttinda- brot með því að þvinga menn til að vera í hinum og þessum félögum og jafnvel utan félaga. Það erum við sjálf sem ráðum því í hvaða félagi við er- um. Fylkjum okkur nú um fagfélag okkar, Sleipni. Því þá fyrst er við stöndum öll saman náum við árangri og laununum upp. Höfundur er vagnstjóri hjá SVR. : Stóreignir óskast Höfum verið beðnir um að útvega: 2.500-3.000 fm skrifstofubyggingu (atvinnuhúsnæði). 4.000-5.000 fm skrifstofubyggingu (atvinnuhúsnæði). Staðgreiðsla í boði. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir, Stefán Hrafn eða Óskar. INNLENT ^Oðkaupsveislur—Gtisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynnlngar og fl. og fi. og fl. - veislirtp<á ,.og ýmsir fylgihlutir * Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggja á effirminnilegan viðburð - Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700 m2 Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og tjaldhitarar. títáta á heimavelli síml 5621390 • fax 552 6377 • bi*@*cout.ls Nýr formaður Islensk- ameríska verslunarráðsins AÐALFUNDUR íslensk-ameríska verslunarráðsins var nýlega haldinn og á fundinum var Ólafur Jóhann Olafsson hjá Time Wamer Digital kos- inn nýr formaður. Fráfarandi formað- ur er Jon Yard Amason lögfræðingur og meðeigandi í fyrirtækinu Haight, Gardner. Nýr varaformaður Islensk- ameríska verslunarráðins er Thor Thors. jr. og framkvæmdastjóri er Magnús Bjamason viðskiptafulltrúi. Framundan á þessu ári er t.d. ráð- stefna hinn 8. september í Boston sem verslunarráðið og New England Aquarium standa fyrir um fiskveiðar og fiskveiðistjórnun. Ræðumenn á þeirri ráðstefnu verða m.a. Halidór Asgrímsson utanríkisráðherra og Magnús Gústafsson, forstjóri Cold- water Seafood Corp., auk fjölmargra sérfræðinga á þessu sviði frá Banda- ríkjunum og Kanada. I október mun íslensk-ameríska verslunarráðið standa fyrir ráðstefnu í samvinnu við Amerísk-íslenska verslunairáðið um fjárfestingar- mögueika á íslandi. Jafnframt mun ráðið ásamt íslenskum fyrirtækjum í Kanada standa fyrir hádegisverði í Halifax hinn 9. ágúst þegar forseti ís- lands verður þar. Islensk-ameríska verslunarráðið hefur staðið fyiir fjölmörgum atburð- um undanfarna mánuði, t.d. hádegis- verðafundi með Davíð Oddssyni for- sætisráðherra í Ottawa auk atburða í New York, Los Angeles og Norfolk. Frekari upplýsingar um verslunar- ráðið og atburði sem fram fara í Bandaríkjunum á árinu 2000 er hægt að finna á heimasíðu verslunarráðsins icelandtrade.com eða á www.iceland- naturally.com.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.