Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 48
.48 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Línur að skýrast í dómum kynbótahrossa á Landsmóti
Sigurinn í höfn hjá Gleði frá Prestbakka og Þorvaldi Arna.
Spyrna frá Holtsmúla og Þörarinn Eymundsson, hækkuðu enn hæfileikaeinkunnina.
Spyrna frá Holts-
múla og Alfadís frá
Selfossi slá í gegn
Fjögurra vetra hryssan Spyrna frá
Holtsmúla er án efa ein af stjörn-
•'Um landsmótsins en hún bætti enn
við sig á yfirlitssýningu í gær þeg-
ar hún hækkaði sig í stökki og
fékk nú 9,0. Áður hafði hún hækk-
að sig um hálfan i dómum fyrir
tölt en reyndar lækkað um hálfan
fyrir brokk. Spyrna er því komin
með fjórar níur í hæfileikum sem
er einstakur árangur hjá fjögurra
vetra hrossi. Með þessum árangri
er Spyrna að leggja grunn að
glæsilegri útkomu Holtsmúlabús-
ins á landsmótinu og sömuleiðis
föður sínum Orra frá Þúfu. Móðir
hennar er Sara Borgfjörð frá
Holtsmúla. Knapi á Spyrnu var
Þórarinn Eymundsson.
Önnur hryssa í fjögurra vetra
flokki, Álfadís frá Selfossi, fær
fimm níur fyrir hæfileika, fyrir
tölt, brokk, vilja og geðslag, feg-
urð í reið og fet. Á yfirlitssýningu
hreyfði hún svo vel við skeiðeink-
unn er hún fékk 7,0 en það hafði
hún ekki gert áður. Með þessu
náði hún öðru sæti, er komin með
8,66 fyrir hæfileika sem er met-
einkunn hjá fjögurra vetra hrossi.
Líklegast hefur Galsi frá Sauðár:
króki átt metið til þessa, 8,63. í
aðaleinkunn hlaut hún 8,31. í
þriðja sæti varð Þerna frá Arnar-
hóli með 8,27.
Gleði frá Prestbakka tryggði sér
sigur í flokki fimm vetra hryssna.
Hún hefur haldið hinni firna háu
hæfileikaeinkunn, 8,96, í þau tvö
skipti sem hún hefur komið fyrir
dóm á mótinu. Var þessari glæsi-
legu hryssu og knapa hennar, Þor-
valdi Árna Þorvaldssyni, fagnað
vel undir lok yfirlitssýningar á
fimm vetra hryssum. Gleði er und-
an Þorra frá Þúfu og Gyðju frá
Gerðum. Hún hlaut í einkunn 8,70.
f öðru sæti varð Gígja frá Auðs-
holtshjáleigu með 8,36 og Ösp frá
Háholti varð þriðja með 8,32.
Bringa frá Feti var örugg með
efsta sætið í sex vetra flokki með
8,66, Gyðja frá Lækjarbotnum
kemur næst með 8,38 og Flauta
frá Dalbæ er þriðja með 8,37.
Af sjö vetra hryssum var það
Þula frá Hólum sem varð hlut-
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Álfadís frá Selfossi setti nýtt met í hæfileikaeinkunn fjögra vetra hrossa
er knapinn Christine Lund fékk góðan skeiðsprett úr hryssunni.
skörpust með 8,46, Þruma frá Þór-
eyjarnúpi varð önnur með 8,33 en
missagt var í Morgunblaðinu í gær
að hún hefði lækkað en því var öf-
ugt farið því hún hækkaði í dóm-
um á mótinu. Spurning frá Kirkju-
bæ hafnaði í þriðja sæti með 8,30.
í dag verða yfirlitssýningar
stóðhesta og verður byrjað á fjög-
urra vetra hestum klukkan 11.
Berglind Rósa vann
si g upp 1
BERGLIND Rósa Guðmundsdóttir,
Gusti, á Maístjömu frá Svignaskarði
vann sig upp úr 10. sæti í það 8. með
glæsibrag er hún hlaut 8,75 í einkunn í
B-úrslitum í imglingaflokki á Lands-
móti hestamanna. Þar með er hún
%búin að vinna sér rétt til að keppa í A-
úrslitum sem fram fara á laugardag-
inn og hefjast kl. 18.30.
Röð annarra keppenda á B-úrslit-
um eru þannig:
9. Sigurþór Sigurðsson, Fáki, á
Funa frá Blönduósi með 8,45,
10. Unnur Bima Vilhjálmsdóttir, á
Roða frá Akureyri einnig með 8,45,
—y 11. Svandís Dóra Einarsdóttir,
Sörla, á Ögra frá Uxahrygg með 8,53,
A-urslit
12. Elka Haraldsdóttir, Gusti, á
Ábóta frá Bólstað með 8,42,
13. Ragnar Gylfason, Sleipni, á
Létti frá Laugarvatni með 8,36,
14. Sæþór Fannberg, Fáki, á Leó
frá Múla einnig með 8,36 og
15. Þóra Matthíasdóttir, Fáki, á
Gæfu frá Keldnakoti með 8,32.
Sigurður S. Pálsson, Herði, var jafii
Sæþóri Fannberg eftir forkeppnina
og var ákveðið að þeir fengju báðir að
taka þátt í B-úrslitum. Sigurður dró
sig þó út úr keppni áður en til þess
kom þar sem hryssan hans, Rimma
frá Ytri-Bægisá, reyndist ekki heil á
fæti.
Sandra Líf
komin í
A-úrslit í
barnaflokki
SVIPAÐAR sviptingar urðu í B-úrslit-
um í barnaflokki á landsmótinu og í
unglingaflokki. Sandra Líf Þórðar-
dóttir úr Sörla vann sig upp úr 13.
sæti í það 8. á Díönu frá Enni. Hún
fékk einkunnina 8,53. Þar með er hún
kominn í hóp þeirra sem keppa í A-
úrslitum í barnaflokki sem hefjast kl.
12 á morgun, sunnudag.
Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir, Stíg-
anda, á Spóa frá Fjalli er í 9. sæti með
8,46, en hún var í 15. sæti eftir for-
keppnina. Röð annarra keppenda er:
10. Tinna Dögg Tryggvadóttir,
Loga, á Lyftingu frá Kjarnholtum
með 8,45,
11. Sigrún Arna Brynjarsdóttir,
Sleipni, á Sylgju frá Selfossi með 8,43,
12. Róbert Þór Guðnason, Mána, á
Hauki frá Akureyri með 8,36
13. Guðbjörn Árnardóttir, Freyfaxa,
á Þyrnirós frá Egilsstöðum með 8,35,
14. Jóna Stína Bjarnadóttir, Hom-
firðingi, á Eldi frá Fornustekkum með
8,32 og í
15. sæti Vigdís Matthíasdóttir, Fáki,
á Gyðju frá Syðra-Fjalli með 8,27.
;
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sandra Líf Þdrðardóttir á Díönu frá Enni.