Morgunblaðið - 08.07.2000, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 08.07.2000, Qupperneq 50
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ TRÚMÁL Alþjoðlegu ráðstefnunni Trú f framtíðinni lýkur f dag á Þingvöllum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ráðstefnan var sett í Viðey 5. júlí sl. Á myndinni eru Þdrir Stephensen, Ástríður Thorarensen, Davíð Oddsson, Sigurður Árni Þörðarson, Sólveig Pétursdóttir og Halldór Þorgeirsson. Án trúarbragða eru vísindin lömuð Alþjóðlegu ráðstefnunni Trú í framtíðinni („Faith in the future“), sem fulltrúar 20 þjóðlanda hafa setið undanfarna daga, lýkur seinnipartinn í dag á Þingvöllum. Sigurður Ægisson tók nokkra framsögu- menn tali og spurði hvort þeir teldu að hinar tvær að því er virðist ólíku fylkingar, trú og vísindi, gætu átt samleið inn í nýja tugöld, eða hvort slíkt væri borin von og ráðstefna eins og þessi lítils virði. Ástríður Nancey Stefánsdóttir Murphy Hossain B. Roald E. Danesh Kristiansen ASTRÍÐUR Stefánsdóttir, læknir og heimspekingur, vitnaði í Eisenhower, sem sagði að stríð væru of mikilvæg til að láta hershöfðingjana eina um þau. Á sama hátt mætti segja, að vísindin væru of mikilvæg til að láta vísindamennina eina um þau. „Framþróun vísindanna verður aldrei einkamál þeirra sem þau stunda. í mínum huga eru vísindin tæki sem við höfum til að skapa betra líf, bæta ytri lífsskilyrði okkar; við eigum þess vegna að nota þau sem slík. í þeim hlýtur því einnig að ^felast ákveðin hugsjón. Þau eiga ekki bara að leysa tiltekin vandamál fyrir hluta mannkyns, þau eiga að hjálpa okkur að skapa betri heim fyrir alla. Þess vegna er mjög mikilvægt að vís- indamenn séu í starfi sínu meðvitaðir um siðferðileg gildi eins og virðingu fyrir manneslqunni, réttlæti og jöfn- uð. Trúarbrögðin vinna meira með hinn innri mann okkar. Við getum næstum því tekið svo djúpt í árinni að segja, að vísindín nái aldrei því sem skiptir máli, þ.e.a.s. hvemig maður liilr og hvernig manni tekst að rækta og þroska sinn innri mann. Æft’ar held ég að trúarbrögðin gegni miklu sterkara hlutverki en vísindin. Trúarbrögðin ættu að hjálpa okkur að koma auga á og hlúa að þeim gild- um sem nauðsynleg eru fyrir gott mannlíf. Þau ættu að gera okkur kleift að varðveita og iðka þau gildi sem gefa okkar persónulega lffi inni- hald og merkingu. **'> Ég held að vísindin og trúarbrögð- in eigi að geta umgengist hvort ann- að af virðingu; þau gegna bæði mikil- vægu hlutverki í viðleitni okkar til að mynda gott samfélag." Framtíðin er björt Nancey Murphy, guðfræðingur og heimspekingur frá Bandaríkjunum sagðist hafa í næstum 20 ár tekið þátt í samstarfsverkefni ýmissa aðila, sem hefðu það að markmiði að leiða saman fulltrúa vísinda og trúar- bragða og skapa grundvöll til sam- ræðna. „Þegar ég fyrst fékk áhuga á þessu efni var þetta ekki stór eining eða áberandi, og erfitt að fá utan- aðkomandi aðila til að mæta og tjá sig um ýmis mál af þessum toga; maður varð að geta rökstutt hvers vegna slíkt þætti mikilvægt o.s.frv. í dag er þetta gjörbreytt; nú er áhuginn mikill og ekki lengur spurt hvort umræðan sé einhvers virði, enda vita flestir að hún er það. Raun- ar er bara ein grein vísindanna, sem ekki hefur enn komið að þessu efni, að ég held, og það er efnafræðin. Áð- ur fyrr var næsta auðvelt að lesa allt það, sem hafði þetta að umfjöllunar- efni, en núna eru bókmenntirnar orðnar svo miklar að vöxtum, að eng- inn getur lengur fylgst með öllu því sem út kemur. Það segir sína sögu. Ef maður lítur á síðastliðna tvo áratugi held ég að framtíðin sé björt hvað þetta varðar. A.m.k. er ljóst, að áhuginn fer vaxandi og það mjög hratt. Þeir aðilar sem enn hafa ekki komið að þessu, heldur reyna úr fjar- lægð hvað þeir geta til að smána og hæða þessar samræður, eru dálítið úti á þekju í augum almennings, ná ekki lengur eyrum hans og eru jafn- vel litnir hornauga. Vísindi án trúarbragða eru hættuleg Það sem er að gerast í erfðafræði- rannsóknum hefur haft mikil áhrif í þessari umræðu, vegna þess að þar er svo margt sem gæti komið til með að hafa áhrif á líf alls venjulegs fólks. Bandaríkjastjórn hefur fýlgst náið með framvindu þeirra mála, og fyrir ekki löngu gerðist það í fyrsta sinn í sögunni, að ég best veit, að hún veitti beinan fjárstyi’k til samstarfsverk- efnis guðfræðinga og vísindamanna, einmitt vegna hugsanlegra afleið- inga skráningar á erfðamengi mannsins, þ.e.a.s. siðferðilegra álita- mála sem upp kynnu að koma í fram- haldi af því. Hér þótti sem sagt ekki nóg að láta vísindin ein um hlutina, heldur þótti rétt að kalla til aðstoð og leiðbeiningu úr hinum trúarlega geira. Og sú staðreynd er í raun og veru tím- anna tákn.“ Hossain B. Danesh, geðlæknir frá Sviss, sagði að ef fulltrúar trúarbragðanna héldu áfram að hugsa um trúarbrögðin á sama hátt og þeir hefðu gert fram að þessu, og ef fulltrúar vísindanna héldu áfram á sömu braut og verið hefði, myndi ekki verða mögulegt að stofna til samstarfs af neinu viti. „Menn eru nefnilega búnir að þyngja og flækja trúarbrögðin með svo mörgu, sem á ekkert skylt við upp- runa þeirra. Ýmislegur óþarfi hefur hrúgast ut- an á kjarna trúarbragð- anna og situr þar enn fastur og stendur boð- skapnum fyrir þrifum. Flest trúarbrögð byggjast á ákveðnum andlegum verðmætum. Þegar við t.d. lítum á kenningar trúar- bragðahöfunda eins og Móse, Búddha, Jesú Krists og Múhameðs, þá sjáum við, að þeir boðuðu ákveðin grund- vallaratriði, sem þeim fannst mikil- vægari en annað. Einn þessara stólpa er kærleikur; annar friður; þriðji sannleikur; o.s.frv. Með við- komandi áherslum breyttu þessir menn hugsun og lffi fólks. Á þeim langa tíma, sem þessi trúarbrögð og önnur hafa lifað, hefur mannkynið smátt og smátt byggt við þessar áherslur, þessa andlegu stólpa, kjarnann, svo að útkoman er eitt- hvað, sem ekki kemur heim og sam- an við upphafið. Af þessu leiðir, að í stað kærleika er komið hatur, í stað friðar stríð, í stað sannleika svik og prettir og lygi. Á þessum sama tíma hafa einnig bæst við aðrir óæskilegir hlutir, eins og t.d. hindurvitni og for- dómar. Svo gerist það, að tími nútímavís- inda rennur upp um miðja 19. öld og síðar. Og fyrr en varir lýstur þessum tveimur fylkingum saman, hjátrúnni og upplýsingunni. Ástæðan var ein- föld, hinn eiginlegi kjarni trúar- bragðanna, hin andlegu verðmæti, sem trúarbragðahöfundarnir höfðu gefið af sér, voru grafin og hulin og sáust ekki lengur. Einungis viðbæt- urnar voru sýnilegar. Af þessu leiddi, að hin nýju vísindi misskildu hið sanna eðli og innihald trúar- bragðanna og því fór sem fór. Og vís- indin héldu því nú fram, að það eina sem eitthvert gildi hefði væri hið efn- islega, hið fasta, hið mælanlega; ann- að væri bull og vitleysa. Vísindin týndu þannig sál sinni, ef svo má að orði komast, og vísindamenn urðu sí- fellt ofstækisfyllri í garð trúarbragð- anna, og svo öfugt. Við þetta mynd- aðist klofningur, þar sem tvær fylkingar stóðu allt í einu andspænis hvor annarri. Og þessi klofningur er enn við lýði. En ef vísindamenn kæmu fram og játuðu í einlægni og auðmýkt, að vísindin hefðu ekki svar við öllum hlutum, yrði margt betra; og sama er auðvitað að segja um full- trúa trúarbragðanna. í raun og veru er lausnin í því fólgin, að vísindin þurfa að eignast hjarta, og trúar- brögðin opinn huga. Albert Einstein sagði eitt sinn, að trúarbrögð án vís- inda væru blind, og vísindi án tiúar- bragða lömuð. Ég myndi orða þetta þannig, að vísindi án tiúarbragða séu hættuleg, og trúarbrögð án vís- inda sömuleiðis. Vísindin og trúar- brögðin koma úr gagnstæðum átt- um; vísindin eru vaxin upp úr grasrótinni, en trúarbrögðin niður af himnum. Mannkynið þarf á báðum þessum fylkingum að halda, samein- uðum. Með ráðstefnu eins og þessari er gerð tilraun til að draga fram hið raunverulega eðli vísinda og trúar- bragða og skapa nýjan grundvöll, og með réttu hugarfari mun það tak- ast.“ Höfum í raun ekkert val Roald E. Kristiansen, guðfræð- ingur frá Noregi, kvað þessar sam- ræður milli vísinda og trúarbragða örugglega koma til með að halda áfram, vegna þess einfaldlega að þörfin væri svo knýjandi; við hefðum í raun ekkert val. „Vísindin standa ekki ein og sér, heldur eru þau hluti samfélagsins og hafa afleiðingar þar. Þau verða ekki stunduð í einhverju tómi, án tengsla við sögu og menn- ingu. Eins er með trúarbrögðin; þau eru ein af mörgum leiðum til að skilja þennan heim. Af þessu leiðir að vís- indin verða að einhverju leyti að horfa til trúarbragðanna. Þar með er ekki sagt, að allir vísindamenn muni koma að þessu. Hins vegar er afar mikilvægt, að alltaf séu einhverjir í vísindageiranum tilbúnir að taka þátt í samræðum af þessum toga, ef eitthvert öryggi og vit á að vera í komandi framtíð. Þessi ráðstefna er ákaflega mikilvæg, einmitt vegna þessa. Hún er þó ekkert einangrað fyrirbæri, heldur er hluti keðju sem nær um allan heim.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.