Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 56

Morgunblaðið - 08.07.2000, Page 56
- 56 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍDAG Erindi um eldgosin í Vatnajökli FYRIRLESTRAR í máli og mynd- um eru á hverju þriðjudagskvöldi á jöklasýningunni í Sindrabæ á Höfn í Homafírði. Næstkomandi þriðju- dagskvöld, 11. júlí kl. 20, mun Magn- ús Tumi Guðmundsson, jarðeðlis- fræðingur við raunvísindadeild Háskóla Islands, flytja erindi sem hann nefnir: Eldgosin í Vatnajökli - Lykill að eldvirkni ísaldarinnar. I dag verða gos undir jökli einkum - í Vatnajökli og Mýrdalsjökli. I>ví horfa menn mjög til Islands til að skilja menjar um forn eldgos annars staðar. í erindinu verður fjallað um gos undir jökli, hegðun þeirra og ein- kenni, sagt frá eldgosunum í Gjálp 1996 og Grímsvötnum 1998 og hvemig þau hafa varpað nýju ljósi á viðfangsefnið. Tæpt verður á sögu rannsókna á gosum í jöklum og hvert hlutverk Vatnajökuls hefur verið í þeim, allt frá því fyrstu eig- inlegu athuganirnar hófust í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum 1934. Jafnframt verður fjallað um hvem- ig ferðatækni á jöklinum hefur breyst í tímans rás og átt stóran þátt í að auðvelda rannsóknirnar. Magnús Tumi er Reykvíkingur, fæddur 1961. Hann lauk BS-prófi í jarðeðlisfræði frá Háskóla íslands 1986 og doktorsprófi í sömu grein frá Lundúnaháskóla 1992. Magnús vann við jöklarannsóknir á Raun- vísindastofnun Háskólans 1991- 1994. Frá 1995 hefur hann verið dósent í jarðeðlisfræði við Háskóla íslands. I rannsóknum sínum hefur hann einkum kannað eldgos í jökl- um auk athugana á innri gerð eld- fjalla með jarðeðlisfræðilegum mælingum. Mótmæla hækkun bflatrygginga FLÓABANDALAGIÐ hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: „Flóabandalagið lýsir yfír megn- ustu vanþóknun á hækkunum bif- reiðatrygginga hjá Sjóvá-Almenn- um. Með þessum hækkunum og öðmm verðlagshækkunum að und- anförnu hefur orðið alvarlegur brestur á þeim launaforsendum sem núgildandi kjarasamningar byggja á. Flóabandalagið gerir þá kröfu til fyrirtækja að þau brjóti ekki niður þá launastefnu sem mótuð hefur verið í landinu. Flóabandalagið fer fram á að Sjóvá-Almennar endur- skoði þessa ákvörðun sína og hvetur önnur tryggingafélög til að fylgja ekki fordæmi óhóflegra hækkana. Við síðustu samningagerð vom félögin innan ASI reiðubúin til að horfa til stöðugleika efnahagslífsins og taka höndum saman við at- vinnurekendur um að koma verð- bólgunni niður. Þetta var einnig gert í trausti þess að atvinnurek- endur stæðu við sitt og að stjórn- völd legðu sitt af mörkum. Ymis stórfyrirtæki, svo sem stórmarkaðir og nú síðast trygg- ingafyrirtæki, hafa brugðist í því að vinna eftir meginmarkmiðum kjarasamninganna. Þá hafa stjórn- völd horft aðgerðalítil á þessa skaðlegu þróun verðlags undan- farna mánuði. Ljóst er að launafólk getur ekki sætt sig við að forsendur kjara- samninganna séu eyðilagðar. Ef ekki tekst að ná tökum á verðbólgunni á næstunni er ljóst að kjarasamningum verður sagt upp í upphafi næsta árs.“ Sumarferð kvenna- deildar Rauða kross Islands KVENNADEILD Reykjavíkur- deildar Rauða kross íslands fer í hina árlegu sumarferð miðvikudag- inn 12. júlí. Mæting er í Umferðar- miðstöðinni kl. 9 og verður lagt af staðkl. 9.30. Að þessu sinni verður ekið um Kjósarskarð og fyrir Hvalfjörð í Borgames. Eftir stutta dvöl í Borg- amesi verður haldið að Reykholti þar sem Snorrastofa verður skoðuð, ásamt öðm. Frá Reykholti verður ekið um Geldingadraga áleiðis í Hvalfjörð að Hótel Glym, í Norræna fræðasetrið, þar sem snæddur verð- ur kvöldverður. Að lokum verður haldið heim um Hvalfjarðargöngin. Tilkynnið þátttöku tímanlega. Utivistardagur í Hafnarfírði SKÓGRÆKTAR- og útivistardag- ur verður haldinn í dag, laugardag- inn 8. júlí, við Hvaleyrarvatn í Hafnarfírði og hefst dagskráin kl. 14 við Skógræktarstöðina þar sem fáni verður dreginn að húni við Höfða og Magnús Gunnarsson bæjarstjóri ílytur ávarp. Að því loknu hefst skógar- og minjaganga umhverfis Hvaleyrar- vatn í fylgd Jónatans Garðarsson- 1 ar. Farið verður frá Höfða og tek- ur ferðin rúmlega 1 klst. Einnig hefst létt fræðsluganga um Höfða- skóg í fylgd Steinars Björgvinsson- ar garðyrkjufræðings. Farið verð- ur frá Höfða og tekur ferðin um 40 mín. Skógargetraun fyrir yngstu kynslóðina verður í Höfða sem tengist göngunni. Dregið úr rétt- - um svöram og verðlaun veitt kl. 16. Kl. 15-16 verður fugla- og grasa- skoðun í fylgd Steinars Björgvins- sonar garðyrkjufræðings og fleiri fróðra manna. Við Hvaleyrarvatn kl. 14.10-16 verður haldinn sumarratleikur fyr- ir fjölskylduna í umsjá ferðamála- nefndar og gögn um ratleikinn af- hent á sandvíkinni við vatnið. Skátar hafa umsjón með leikjum fyrir bömin frá kl. 15-16. Leikimir verða á túninu við skátaskálann. Einnig verður kynning á skáta- starfinu og fróðleiksmolar um Hafnarfjörð. Kl. 16 verður síðan grillað við vatnið. Heitt verður í kolunum og getur hver og einn komið með eitt- hvað á grillið. Pappadiskar, áhöld og djús verður á staðnum. íshestar verða með hesta og teyma undir bömunum við hesta- miðstöð íshesta frá kl. 15-16. VELVAKAJVDI Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Einkennileg þjónusta FYRIR stuttu síðan fékk ég ábyrgðarpóst frá Is- landspósti. Atti ég von á þessum pósti og var mér sagt að búið væri að setja þetta í póst. Hringdi ég á pósthúsið því mér lá á og vildi ná í þetta sjálf. En það var ekki hægt, mér var sagt að þetta yrði keyrt út til mín. En fyrir rest var mér sagt að ég gæti náð í þetta upp í Stórhöfða sem ég gerði. En ég þurfti að senda póstinn áfram og það var ekki hægt upp í Stórhöfða svo ég þurfti að fara annað. Dóttir mín flutti norður í land fyrir nokkru og fékk hún bréf frá Islandspósti þess efnis að fyrir póst sem kæmi á gamla heimilisfang- ið hennar og sendur yrði til hennar áfram yrði rukkað fyrir og sé það gert eftir 3 mánuði. Finnst mér þetta ein- kennileg þjónusta. Er ekki nóg að tilkynna sig á póst- húsinu og í þjóðskrá? Það væri æskilegt að vita á hvaða forsendum þetta gjald er settá. Guðrún Sigurðardóttir. Kápa tekin í misgripum Grágræn kápa var tekin í misgripum 4. júlí í Leitar- stöð Krabbameinsfélags- ins. Kápan sem skilin var eftir er nr. 42 og merkt: Gil Brett. Þeir sem kannast við þetta hafi samband í síma 557-4087 eða 565-4884. Um sjómannaafslátt Eg vil benda því fólki sem býr og starfar í landi og er alltaf að tala um að afnema sjómannaafsláttinn á að því sé velkomið að koma til sjós og skrá sig á skip. Það vant- ar alltaf fólk til sjós og þeir sem öfundast út í sjómenn út af afslættinum er vel- komið að prófa að vinna á sjó. Gamall sjómaður. Hlutavelta Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Þessir duglegu drengir söfnuðu með hlutaveltu kr. 3.546 til styrktar hjartveikum börnum. Þeir heita Daníel Smári Hauksson, Edvard Þór Indriðason og Alexander Smári Hauksson. Morgunblaðið/Golli Þessir duglegu drengir söfnuðu kr. 2.124 kr. til styrktar Rauða kross íslands. Þeir heita Styrmir Svavarsson, Guð- mundur I. Jónsson, Eyþór Ó. Ragnarsson og Gunnar F. Halldórsson. Á myndina vantar Lúðvík Þ. Leósson. Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 5.732 með tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Signý Rún Péturs- dóttir og Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir. Morgunblaðið/Ragnhildur Þessar duglegu stúlkur söfnuðu dósum fyrir 5.719 kr. til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Þær heita Elísabet Ósk Ögmundsdóttir og Guðrún Dóra Ámadóttir. Yíkverji skrifar... VÍKVERJI hefur sveiflast milli örmagna vesalmennsku og taumlausrar reiði að undanfömu. Hann veit þó að ekki er ráðlegt að taka sér penna í hönd í reiðikasti og því síður í svekkelsi, en ætlar samt að láta vaða og freista þess að skrifa sig/rá þessu. Ástæður fyrir reiðiköstunum era meðal annars verðlagsþróunin og hvemig endalaust er svínað á neyt- endum í þeim efnum án þess að ríkis- valdið hreyfi legg eða Uð. Annað er brottkast á fiski og að dómi Víkverja era þeir sem slíkt athæfi stunda ekk- ert annað en hreinir og klárir land- ráðamenn. Ekki verður þó fjallað um þessi mál að sinni heldur annað, sem valdið hefur Víkverja hvað mestri sálarangist síðustu daga, og það tengist að sjálfsögðu boltanum. (Hér hætta líklega flestir að lesa, en það verður bara að hafa það.) Málið er að KR-ingar era dottnir út úr bikarkeppni KSI og það er súr biti að kyngja, hvort sem um er að kenna ósanngjarnri dómgæslu eða ekki. Raunar hefur Víkveija alltaf fundist dálítið hallærislegt að kenna dómuram um þegar illa gengur. Þeir gera mistök, ekki síður en leikmenn og þjálfarar, og það er bara hluti af leiloium. En þetta er hundfúlt engu síður. Vfirverji verður líka að viðurkenna að honum er farið að daprast sjón þegar kemur að knattspymu og þetta kemur meðal annars fram í því að hann sér leikina öðravísi en annað fólk. Honum finnst til dæmis alltaf brotið meira á sínum mönnum, en minna dæmt þeim í vil. Og alltaf finnst honum þeir sýna skemmtilegri knattspymu en hinir og bera sig bet- ur á leikvelli. Það er ef til vill líka bara hluti af leiknum? xxx FYRIR utan framangreindar hremmingar hefur Víkveiji uppgötvað að hann hefur líklega ekki hundsvit á fótbolta. Hann hefur nefnilega alltaf staðið í þeirri trú að „sókn sé besta vömin“, en hefur nú komist að raun um að „vöm er besta sóknin". Vamarknattspyma he/ur jafnan verið í hávegum höfð á íslandi. Til marks um það má tilfæra klausu af íþróttasíðu Morgunblaðsins nú í vik- unni svohljóðandi: „FH-ingar léku mjög skynsamlega. Þeir lágu aftar- lega og vora svo fljótir að fara í hröð upphlaup þegar þeir unnu knöttinn af Stjömumönnum.“ Víkveiji hefur orðið var við að andstæðingar KR-inga pakka venju- lega í vöm og treysta á skyndisóknir og það að „fiska vítaspymur", sem stundum hefur borið árangur á ög- urstundu. Þetta er kallað að „leika skynsamlega". Þegar KR-ingar draga sig hins vegar aftar á völlinn og freista þess að halda fengnum hlut er það kallað „andleysi, hug- myndaskortur, úrræðaleysi“ og jafn- vel „hreinn aumingjaskapur". Það er sem sagt ekki sama hvort Jón Jóns- son eða Jón Kr. Jónsson á í hlut. Ef að meðal Jón leggst í vöm er það „skynsamlegur leikur", en þegar Jón Kr. gerir það er hann aumingi! Við öll þessi leiðindi bætist svo að menn era með dylgjur um að þjálfari KR-inga sé ekki starfi sínu vaxinn. Víkveija finnst þar ómaklega vegið að góðum og hæfileikaríkum dreng. Vissulega hafa KR-ingar verið að misnota mörg dauðafæri í leikjum að undanfömu, en þjálfarinn getur fjandakornið ekki stjómað því af bekknum hvernig leikmenn hitta boltann, - eða hvað? Því verður heldur ekki á móti mælt að það hafa orðið afdrifarík „vinnu- slys“ í nokkrum síðustu leikjum. Menn hafa kannski verið að leika vel í fyrri hálfleik, en síðan misst einbeit- inguna í þeim síðari. í þeim efnum þurfa leilanenn sjálfir að gyrða sig í brók og gera betur. Vonandi falla for- svarsmenn KR ekki í þá gryfju að reka þjálfarann þótt örh'tið hafi blásið á móti. Slíkt hefur aldrei kunnað góðri lukku að stýra og þá fyrst myndu þeir skemmta skrattanum, það er andstæðingum KR-inga, sem era þó býsna kátir fyrir þessa dagana. Þrátt fyrir armæðu, sjónskekkju og vanþekkingu á eðli knattspym- unnar er Víkveiji staðráðinn í að fara á völlinn í dag og hvetja sína menn, og hann skorar á samheija sína að gera slíkt hið sama. Það er á erfið- leikatímum sem ríður á að „standa saman allir sem einn“. Eða eins og skáldið kvað á 95 ára afmælinu að viðstöddu miklu fjölmenni: „Mótlæti er til að sigrast á, / sameinaðir við sigram þá...“ og svo framvegis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.