Morgunblaðið - 08.07.2000, Side 62
62 'LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Aðstandendur Engla alheimsins, Ieikarar og leikstjðri verða viðstaddir frumsýningu myndar-
innar á kvikmyndahátíðinni Karlovy Vary í Tékklandi næstkomandi þriðjudag.
> KVIKMYNDIN Englar alheimsins
eftir Friðrik Þór Friðriksson hefur
verið valin til þátttöku í aðal-
keppni alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
arinnar í Karlovy Vary í Tékk-
landi. Nítján kvikmyndir frá
jafnmörgum löndum keppa til
verðlauna á hátíðinni sem nú er
haldin í 35. skiptið.
I fréttatilkynningu frá Islensku
kvikmyndasamsteypunni segir:
„Kvikmyndahátíðin í Karlovy Vary
er helsta kvikmyndahátíð Austur-
Evrópu. Hún er í hópi svonefndra
A-hátíða, þ.e. þeirra alþjóðlegu
kvikmyndahátíða sem njóta mestr-
ar virðingar og er þátttaka á slík-
um hátíðum afar eftirsótt kynning.
Englarnir Ingvar Sigurðsson,
Baltasar Kormákur, Hilmir Snær
Guðnason og Björn Jörundur Frið-
björnsson verða viðstaddir
frumsýningu Engla alheimsins
þann 11. júlí í boði hátíðarinnar
ásamt erkienglinum Friðriki Þór
Friðrikssyni. Að hátíðinni lokinni
fara Englar alheimsins í almennar
sýningar í kvikmyndahúsum í
Tékklandi. Skáldsaga Einars Más
Guðmundssonar sem kvikmyndin
er byggð á verður einnig gefín út í
Tékklandi í haust.“
Þá segir enn fremur í tilkynn-
ingunni að dreifing á myndinni
hafí gengið mjög vel og að hún
verði tekin til sýninga í kvik-
myndahúsum á öllum Norðurlönd-
unum í ár og í Þýskalandi og öðr-
um Evrópulöndum á næsta ári.
Myndin verður einnig sýnd á
fjölda annarra kvikmyndahátíða á
næstunni, þar á meðal í Edinborg,
Toronto, Hollywood, Jerúsalem og
Varsjá.
Englar alheimsins var frumsýnd
á nýársdag hér á landi og er enn
sýnd í Háskólabíói. Samkvæmt
fréttatilkynningu er búist við að
100.000. bíógesturinn sjái hana von
bráðar en hans eða hennar bíða
vegleg verðlaun.
Sungið af lífi og sál
GESTIR Kringlunnar og vei
ingastaðarins Hard Rock Ca
skemmtu sér hið besta í gær
sex af vinsælustu hljómsveit-
um landsins tróðu þar upp á
milli 14-18 og var mikið líf í
tuskunum.
Strákarnir í Á móti sól rið
á vaðið og á eftir fylgdu Ira-
fár, Buttercup, Skítamórall
og Land & synir og enduðu
Greifarnir tónleikana með
tilþrifum. Þau leiðu mistök
áttu sér stað í grein sem
fjallaði um tónleikana í
Morgunblaðinu í gær að þeii
voru sagði vera í dag, laug-
ardag og eru lesendur og
aðrir beðnir velvirðingar á
því. En þeir sem misstu af
sveitunum geta hiklaust
tekið gleði sína á ný því að
allar sveitimar sem þarna
komu fram eiga lög á
geisladisknum Svona er
sumarið sem er nýkominn
í verslanir.
er
Morgunblaðið/Golli
Einar Ágúst úr Skítamóral umkringdur ungum aðdáendum.
Yfir 17 milljónir afgreiðslustaöa um allan heim