Morgunblaðið - 08.07.2000, Síða 68
Microsoft
+ Office
+ Windows
+ Hugbúnaðarlausnir
563 3000 + www.ejs.is
ftgtniMiifetfr I
Cisco Systems
P A R T N E R
SILVER CERTIFIED
Tæknival
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNU, 103REYKJAVÍK, SÍM1S6SUOO, SÍMRRÉF5691181,PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RTTSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAU GARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Isfélag Vestmannaeyja og Vinnslustöðiii sameinast
Markaðsvirði 22ja þúsund
tonna um 22 milljarðar
Lundarreykjadalur
Sttilka
slasaðist
eftir
bflveltu
JEPPI, sem í voru tvær
danskar stúlkur um tvítugt,
lenti utan vegar við Brautar-
tungu í Lundarreykjadal um
klukkan 19.30 í gærkvöld. Að
sögn lögreglu fór jeppinn
tvær veltur og meiddist önnur
stúlkan nokkuð og var flutt
með sjúkrabifreið á Sjúkra-
húsið á Akranesi. Samkvæmt
upplýsingum frá sjúkrahúsinu
er hún ekki illa slösuð.
Orsakir slyssins voru þær
að jeppinn, sem er af Toyota-
gerð, lenti utan vegar í lausa-
möl og við það missti ökumað-
urinn stjórn á honum með
fyrrgreindum afleiðingum.
Bílvelta við
Grímsstaði
Við Grímsstaði á Fjöllum
lentu tveir ferðamenn í svip-
uðum hremmingum, þ.e. öku-
maðurinn missti stjórn á bíln-
um í lausamöl, með þeim
afleiðingum að hann lenti utan
vegar og fór tvær veltur. Að
sögn lögreglu sluppu ferða-
mennirnir með skrámur, en
bíllinn er óökufær.
Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi var þung umferð
um Borgarfjörð í gær og þó
nokkuð um að ökumenn
þvinguðu aðra ökumenn út af
vegum með ótímabærum
framúrakstri. Mildi þykir að
ekki hafi orðið alvarlegt slys á
svæðinu.
Evrópusambandið
Skilyrði að
selja Go
EVRÓPUSAMBANDIÐ ætlar að
setja það sem skilyrði fyrir fyrir-
huguðum samruna British Airways
og hollenska flugfélagsins KLM að
þau selji lággjaldaflugfélög sín, Go
og Buzz.
Ef af samruna félaganna verður
munu British Airways og KLM
saman mynda stærsta flugfélag í
heimi miðað við veltu, en veltan
ymði sem svarar til um 2.432 millj-
arða króna. Stærsta fiugfélag
heimsins nú er American Airlines
og er velta þess um 2.000 milljarðar
króna á ári.
■ British Airways/19
STÆRSTU hluthafar í ísfélagi Vest-
mannaeyja hf. og Vinnslustöðinni hf.
í Vestmannaeyjum hafa orðið sam-
mála um samruna félaganna og mun
hið nýja félag bera nafnið Isfélag
Vestmannaeyja. Aflaheimildir fé-
lagsins eru um 22 þúsund tonn í
þorskígildum sem eru að verðmæti
um 22 milljarðar króna. Hlutabréf í
Vinnslustöðinni hækkuðu í gær um
Sjóliðar skoða
Reykjavík
FASTAFLOTI Atlantshafsbanda-
lagsins er staddur í Reykjavíkur-
höfn. í flotanum eru sjö skip; frá
Bandaríkjunum, Bretlandi, Hol-
landi, Kanada, Portúgal, Spáni og
Þýskalandi. Flotinn dvelur hér
fram á fimmtudag. Alls eru um
2000 sjóliðar með skipunum sjö.
■ Fastaf loti/6
5,6% í kjölfar þess að tilkynnt var um
samrunann.
Samruninn miðast við 30. apríl síð-
astliðinn, en með þessum áformum
verður til eitt stærsta útgerðar- og
fiskvmnsluíyrii-tæki landsins. Velta
hins sameinaða félags mun væntan-
lega verða nálægt fjórum milljörðum
króna á ári. Félagið mun gera út
fimmtán fiskiskip, reka þrjár fisk-
OPNUÐ verður í dag í Skálholti sýn-
ing á handritum sem nótur og tón-
listartengt efni hefúr fundist í, auk
mynda úr sömu handritum.
Farið hefur verið kerfisbundið yfir
öll íslensk handrit sem varðveitt eru í
Þjóðarbókhlöðunni, frá 1100 og fram
á 19. öld, og dregið saman í gagna-
grunn á þriðja þúsund færslna um ís-
lenska tónlist. Einnig hefur verið
komið upp gagnagrunni um myndlist
sem í eru um þúsund færslur.
Það er Collegium Musicum, sam-
tök um tónlistararf í Skálholti, sem
haldið hefur utan um verkefnið og
segir Kári Bjarnason, formaður sam-
takanna, það fjalla um að draga fram
þá hlið menningarinnar sem hefur
verið í skugganum fram til þessa, þá
hlið sem snýr að tónlist og myndlist,
mjölsverksmiðjur, öfluga saltfisk-
vinnslu, bolfiskfrystingu auk þess
sem það hefur yfir að ráða góðri að-
stöðu til að verka bæði síld og humar.
Vinnslustöðin, ísfélagið, Krossa-
nes og Ósland stóðu að sameiningu
allra félaganna síðastliðið haust en þá
slitu stjórnendur Vinnslustöðvarinn-
ar viðræðunum enda töldu þeir þá að
hagsmunum sínum væri best borgið
með áframhaldandi rekstri Vinnslu-
stöðvarinnar.
Vinnslustöðin eignast 56,5%
í hinu sameinaða félagi
í desember síðastliðnum sam-
þykktu stjórnir Krossaness og ísfé-
lagsins sameiningu félaganna undir
nafni Isfélagsins og fengu hluthafar í
Krossanesi 15,5% hlut í hinu samein-
aða félagi.
I samningaviðræðunum síðastliðið
haust var gengið út frá því að
Vinnslustöðin myndi eignast 46%
hlut í hinu sameinaða félagi, ísfélagið
SIGURÐUR Líndal, lagaprófessor
við Háskóla íslands, segir að gerð
starfslokasamninga af hálfu hins op-
inbera sé á gráu svæði. Engar reglur
kveði á um beitingu slíkra samninga
og núverandi kerfi geti boðið upp á
að geðþóttaákvarðanir ráði för við
gerð slíkra samninga og misræmi
verði.
Sigurður segii’ að svo kunni að
fara að einhver leiti réttar síns fyrir
dómstólum vegna gerðar starfsloka-
samnings.
Nokkrir tugir starfslokasamninga
eru gerðir á vinnumarkaði hér á
landi á hverju ári, en slíkir samning-
„vegna þess að menn hafa einfald-
lega gleymt að horfa á hana“.
„Við sem stöndum á bak við þessa
rannsókn í Skálholti erum í raun að
segja að íslenskur menningai-arfur
hafi grafist undir í handritunum. Um
miðja 19. öld þegar ýmsir menn tóku
að safna íslenskum handritum og
kalla eftir þeim fóru þau úr hinum
vinnulúnu höndum þjóðarinnar og
varð fyrir vikið bjargað - en gleymd-
ust. Þau voru geymd og gleymd. Is-
lensk menning er eins og ísjakinn -
það er ekki nema örlítið brot sem
stendur upp úr. Það var svo sáralítið
prentað, ýmist í Skálholti eða á Hól-
um, öldum saman, að menn miðluðu
menningunni í hinum skrifuðu
skræðum. Síðan þegar handritin
komast í öruggt skjól handritasafn-
um 40%, Krossanes um 8% og Ósland
5%. Við samrunann nú mun Vinnslu-
stöðin hins vegar eignast 56,5% í hinu
sameinaða félagi en ísfélagið 43,5%.
Helsta skýringin á breyttum eign-
arhlutföllum er sú að Isfélagið stofn-
aði sérstakt eignarhaldsfélag um
eignir sínar í öðrum félögum og þar
vegur eign ísfélagsins í Trygginga-
miðstöðinni þungt. Þessar eignir Is-
félagsins ganga ekki inn í hið samein-
aða félag. Þá var útgerðarfélagið
Gandí sameinað Vinnslustöðinni en
það réð yfir 1.000 tonna þorskígildis-
kvóta og jók þannig verðmæti
Vinnslustöðvarinnar. Loks má svo
nefna að verð á loðnukvóta hefur ver-
ið metið niður frá því sem áður var
vegna lágs verðs á lýsi og mjöli. Isfé-
lagið ræður yfir um 10% loðnukvót-
ans en Vinnslustöðin 5% og því reikn-
ast niðurfærslan til meiri lækkunar á
Isfélaginu en á Vinnslustöðinni.
■ Verður/20
ar hafa verið í umræðunni að undan-
förnu í kjölfar starfsloka tveggja for-
manna í verkalýðshreyfingunni.
Viðmælendur Morgunblaðsins eru
sammála um að gerð slíkra samn-
inga sé eðlileg á hinum almenna
vinnumarkaði, en engar heimildir
séu hins vegar til um starfsloka-
samninga af hálfu hins opinbera.
„[1] einhverjum tilfellum hafa slík-
ir samningar falið í sér meiri bætur
fyrir starfsmenn hins opinbera en
þeim ber samkvæmt lögum,“ segir
Páll Hreinsson lagaprófessor.
■ Fallhlífarsamningar/12
anna lokast þau þar inni - og þá fær
bara hluti af þeirri menningu sem í
þeim er að lifa. Það eru Islendinga-
sögumar, Eddukvæðin o.s.frv. - hið
skrifaða orð - en tónlistin og mynd-
listin gleymist vegna þess að það er
ekkert auga vakandi í handritasöfn-
unum sem horfir á þennan heim.
Þannig að við höldum því fram að í
þessum rannsóknum séum við ekki
að draga fram staka mola úr fortíð-
inni sem fyrir tilviljun hafi gleymst
heldur séum við að draga fram sam-
hengi íslenskrar menningar, sam-
hengi hinnar trúarlegu hugsunar
sem var miðlað í sálmum, söngvum
og myndum öldum saman,“ segii'
Kári.
■ Silfurþráður/Lesbók 6
Morgunblaðið/Jim Smart
Sýning á tónlistarhandritum í Skálholti
Menning sem verið
hefur í skugganum
Starfslokasamning-
ar af hálfu hins op-
inbera á gráu svæði