Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dómsmálaráðherra kynnir átaksverkefni til að draga úr slysum í umferðinni
Hert eftirlit með ökuhraða, ölv-
unarakstri o g notkun bflbelta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í gær átak til að draga úr slysum í umferðinni.
ÁTAKI til bættrar umferðarmenn-
ingar verður hrundið í framkvæmd á
næstu vikum, að því er fram kom á
blaðamannafundi sem Sólveig Pét-
ursdóttir dómsmálaráðherra boðaði
til í flugskýli Landhelgisgæslunnar á
Reykjavíkurflugvelli í gær. Sagði
ráðherra að á síðustu fimm árum
hefðu yfir hundrað manns látið lífið í
umferðinni og mörg hundruð manns
orðið fyrir óbætanlegu tjóni.
I átakinu verður lögð áhersla á
fræðslu og kynningu í fjölmiðlum og
verður þá einkum höfðað til ungra
ökumanna, sem eru í sérstökum
áhættuhópi. Auk þess mun lögreglan
um land allt taka þátt í átakinu með
hertri umferðarlöggæslu, sem bein-
ast mun sérstaklega að ökuhraða,
notkun öryggisbelta og ölvunar-
akstri. Þeir aðilar sem þátt taka í
átakinu eru lögreglan, Vegagerðin
og umferðarráð, ásamt ýmsum
fjölmiðlum og fyrirtækjum.
Ungir ökumenn hvattir til að
sýna skynsemi í umferðinni
Dómsmálaráðuneytið stóð í vor
fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni
„Bætt umferðarmenning - burt með
mannfórnir", þar sem Sólveig Pét-
ursdóttir lýsti því yfir að blásið yrði
til sóknar gegn slysum í umferðinni
og sjónum þá helst beint að yngstu
ökumönnunum. í máli ráðherra á
fundinum í gær kom fram að tölur
um slys og óhöpp sýna að yngstu
ökumennirnir eru í sérstökum
áhættuhópi og því verður reynt að
vekja þann hóp sérstaklega til um-
hugsunar um umferðina og hvernig
megi bæta hana. Einnig sagði hún að
ljóst væri að yngstu árgangarnir
lentu ekki aðeins oftast í slysum,
heldur brytu þeir einnig umferðar-
lögin oftast.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar voru 136 ökumenn á aldr-
inum 17-19 ára sviptir ökuréttindum
á grundvelli umferðarpunkta á síð-
asta ári, en það eru rúm 86% allra
þeirra ökumanna sem misstu prófið
á síðasta ári vegna umferðarpunkta.
Hafa ber þó í huga að tvö fyrstu árin
þurfa ökumenn færri punkta til að
verða sviptir ökuleyfi, en ráðherra
sagði þessar upplýsingar sýna að
punktakerfið veitti ungum öku-
mönnum sem ekki virða reglurnar
mildð aðhald.
I átakinu er ætlunin að höfða til
skynsemi unga fólksins og hvetja
það til að muna eftir beltunum og
draga úr hraðanum og minna á að
áfengi og akstur fer aldrei saman.
Ráðherra sagði að ungt og þekkt
fólk hefði gengið til liðs við aðstand-
endur átaksins, og það myndi tala
beint til ökumanna og hvetja þá til að
láta skynsemina ráða í akstrinum.
Fjórir nýir bflar til
eftirlits á þjóðvegum
Stór þáttur í átakinu er að efla
umferðareftirlit og gera lögregluna
sýnilegri, og sagði ráðherra að ríkis-
lögreglustjóri og lögregluembættin í
landinu hefðu nú þegar skipulagt öfl-
ugra eftirlit á vegum. Ætlunin er að
taka sérstaklega fyrir hraðakstur,
notkun öryggisbelta og ölvunarakst-
ur og munu lögregluliðin hafa sam-
starf og forgangsraða verkefnum
með markvissum hætti, þannig að
menn og tæki lögreglunnar nýtist
sem best til að draga úr umferðar-
slysum.
Þá verða lögreglubifreiðar með
hraðamyndavélar og öndunarsýna-
mæla á ferð um landið, en lögreglan
hefur nú endurskoðað þátt öndunar-
sýna og mun beita þeirri aðferð af
fullum krafti framvegis. Samkvæmt
niðurstöðum nýlegrar rannsóknar
hefur ölvunarakstur aukist talsvert
og á fundinum kom fram, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar í Reyka-
vík, að ölvunarakstur hefði líklega
aldrei verið meiri en nú í borginni, og
væri það áhyggjuefni.
Á næstu vikum verður vegaeftirlit
hert með samstarfi Vegagerðarinnar
og ríkislögreglustjóra. Embættin
munu í sameiningu gera út fjóra
nýja bíla til eftirlits á þjóðvegum, en
ein bifreið verður gerð út frá Akur-
eyri með samkomulagi við lög-
regluna þar. Bílarnir verða merktir
Vegagerðinni og lögreglunni og bún-
ir forgangsljósum og í hveijum bfl
verður einn lögreglumaður auk
starfsmanns Vegagerðarinnar. Lög-
reglumaðurinn mun geta tekið á
hvers kyns umferðarlagabrotum og
starfsmenn Vegagerðarinnar verða
vitni í öllum lögregluaðgerðum. Tel-
ur ráðherra að þetta fyrirkomulag
muni stórefla löggæsluna á þjóðveg-
unum.
Starfshópur endurskoðar
umferðarlöggjöfina
Einn þáttur í átakinu felst í nýjum
merkingum á hættulegum stöðum á
þjóðveginum. Jafnframt munu lög-
regla, umferðarráð og Vegagerðin
leitast við að koma á framfæri upp-
lýsingum með reglubundnum og
markvissum hætti, þ.á.m. um hættur
sem liggja í umferðinni og þróun um-
ferðarmála. Ráðherra sagðist leggja
á það áherslu á átakstímabilinu, sem
stendur fram á haust, að komið yrði
reglulega á framfæri upplýsingum,
t.d. á tíu daga fresti, um fjölda um-
ferðarlagabrota úr öllum umdæmum
landsins, upplýsingum um hraða-
mælingar og breytingar þar á.
„Þannig höldum við áhuga al-
mennings á málinu. Síðan tel ég
nauðsynlegt að leggja mat á árang-
urinn, hverju átakið hafi skilað og til
hvaða aðgerða sé rétt að grípa í
framhaldi af því.“
Þá tilkynnti dómsmálaráðherra að
ætlunin væri að skipa starfshóp til
að fara yfir umferðarlöggjöfina og
gera tillögur að breytingum til að
auka öryggi og bæta umferðina.
Þessi vinna fer nú strax af stað og
mun starfshópurinn starfa náið með
umferðaröryggisnefnd ráðuneytis-
ins. Kannað verður gaumgæfilega
hvort gera verði róttækar breyting-
ar, ekki síst í ljósi alvarlegra slysa að
undanförnu, I því sambandi hafa
margar spurningar vaknað og má
þar nefna hækkun ökuleyfisaldurs,
endurskoðun sekta og fleira.
25% hækkun
iðgjalda
hjá FÍB
Tryggingum
FÍB Tryggingar hafa tilkynnt 25%
hækkun iðgjalda bílatrygginga að
jafnaði, en vátryggjandi FIB Trygg-
inga hjá Lloyds í London ákvað að
breyta iðgjöldum bflatrygginga í ljósi
breytinga á íslenskum vátrygginga-
markaði. Jafnframt verður frá og
með næstu mánaðamótum tekinn upp
nýr 75% bónusflokkur hjá FIB
Tryggingum.
I fréttatilkynningu segir að meðal-
hækkun grunniðgjalda ábyrgðar-,
slysa- og framrúðutiygginga verði
um 25% og að kaskótryggingar hækki
að meðaltali um 10%. Tryggingaið-
gjöld yngstu ökumannanna hækka
mest, en minnst verður hækkunin hjá
eldri og reyndari ökumönnum. Skipt-
ing í áhættusvæði verður óbreytt.
Frá 1. ágúst nk. verður tekinn upp
nýr 75% bónusflokkur, sem miðaður
er við ökumenn 25 ára og eldri með
fullan 70% bónusafslátt miðað við nú-
verandi kerfi. Skilyrði þess að njóta
þessa nýja bónusflokks er að aðeins
tveir heimilismenn yfir 25 ára aldri
aki bílnum og að báðir hafi verið tjón-
lausir sl. 4 ár eða hafi aðeins valdið
einu tjóni síðusfu síðustu 10 árin.
Öskað eftir
upplýsing-
um um
Tjörnina
BORGARFULLTRÚAR Sjálf-
stæðisflokksins lögðu fram fyr-
irspurn á fundi borgarráðs í
gær, um hvernig borgaryfir-
völd hyggist standa að umsjón
og eftirliti með umhverfi og
fuglalífi Tjarnarinnar. í fyrir-
spurninni segir að óskað sé eft-
ir upplýsingum með hliðsjón af
því ástandi sem verið hafi við
Tjörnina og Ráðhúsið í sumar.
Tilgreint verði m.a. hvernig
staðið hefur verið að eyðingu
vargfugls, hreinsun Tjarnar-
innar og fóðrun fugla.
Stórhætta í Hafnarfírði vegna
ofsaaksturs innbrotsþjófs
Hristi lögregluna
tvisvar af ser
INNBROTSÞJÓFUR á flótta undan
lögreglu skapaði mikla hættu í Hafn-
arfirði í gær þegar hann ók á ofsa-
hraða um bæinn, þar á meðal um
helstu umferðargötur bæjarins.
Það var um klukkan átta í gær-
morgun sem tilkynning barst til lög-
reglunnar í Hafnarfirði um að inn-
brotsþjófur væri á ferð í
íþróttamiðstöðinni við Kaplakrika.
Fóru lögreglumenn þegar á staðinn
en þegar þá bar að garði var inn-
brotsþjófúrinn á bak og burt en sjón-
arvottar gátu gefið lýsingu á bfl hins
grunaða og hvert hann hefði farið.
Skömmu síðar sjá lögreglumennimir
umræddan bfl aka eftir Reykjanes-
braut á móts við Kaplakrika og hefja
þegar eftirför. Um leið virðist sá sem
í bflnum var verða var við lögregluna
og ekur á ofsahraða, gegn rauðu Ijósi,
yfir gatnamót Reykjanesbrautar og
Fjarðarhrauns, þar sem töluverð um-
ferð var að sögn lögreglu.
Stefnir bfllinn síðan suður Reykja-
nesbraut með lögreglubflinn fast á
eftir en beygir síðan til hægri niður
Lækjargötu þar sem hann ekur
áfram, enn á ofsahraða, fram hjá
kirkjunni og síðan vestur Fjarðar-
götu. Þegar að vesturbænum kemur
missa lögreglumennimir sjónar á
bflnum en halda þó áfram að aka um
svæðið og litast um. Við gatnamót
Vesturgötu og Vesturbrautar koma
þeir auga á bflinn aftur og aka að hon-
um en þá ekur hinn granaði á lög-
reglubflinn í tilraun tfl að snúa bfl sín-
um við.
Þegar hér er komið sögu fer annar
lögreglumaðurinn út úr lögreglubfln-
um, hleypur að bfl hins granaða og
reynir að komast inn til að stöðva
hann en bfllinn er þá læstur. Tekur
þá lögreglumaðurinn það ráð að
brjóta hliðarrúðu og freista þess að
ná lyklinum úr kveikjulásnum og
stöðva_ þannig þessa glæfralegu öku-
ferð. Á meðan á öllu þessu stendur
heldur ökumaðurinn áfram að reyna
að snúa bílnum við og tekst það rétt
áður en lögreglumaðurinn nær að
stöðva hann. Branar bfllinn þá af stað
á ný en lögreglumaðurinn sá sér þann
kost vænstan að kasta sér frá bflnum.
Lögreglubfllinn hélt eftirförinni
áfram en missti aftur af hinum grun-
aða, í þetta sinn í Norðurbænum.
Skömmu síðar fékk lögreglan ábend-
ingu um að bfllinn stæði mannlaus við
húsagötu í Vesturbænum. Var þá far-
ið á heimili skráðs eiganda bflsins,
sem þar var skammt frá, og hann
handtekinn þar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Við sama heygarðshornið
BÆNDUR til stranda og upp til fyrir veturinn. Tíðin hefur verið Morgunbiaðsins rakst á þær nýver-
Qalla eru um þessar mundir flestir með besta móti að undanförnu og ið. Mikilvægt er líka að sem mest
við sama heygarðshomið; nefniiega þessar blómarósir drógu hvergi af náist inn, svo sem stystur tími sé
að slá tún sín og safna heyi í hiöðu sér við raksturinn er ljósmyndari fyrir skepnur milli heys og grasa.