Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 4%
FÓLK í FRÉTTUM
Sonic Youth er frægasta tiiraunarokksveit samtímans
Erum bara að
búa til tónlist
Bandaríska sveitin Sonic Youth hefiir dvalið á
jaðri rokktónlistarinnar frá upphafí og er óþreyt-
andi á að leita nýrra leiða í list sinni. Arnar
Eggert Thoroddsen ræddi við trymbillinn
Steve Shelley um rokkheima og geima.
Sonic Youth í blóma. Steve Shelley trommuleikari er annar frá vinstri.
Af eigin sannfæringu
SONIC Youth var eitt aðal-
númerið á All Tomorrows
Parties tónlistarhátíðinni, í
Englandi í apríl. Það var kannski
dæmigert fyrir þessa sveit að gefa
áhorfendum ekki það sem þeir
vildu, allir slagarar voru skildir
eftir heima og þess í stað fengu
áhorfendur nær einungis að heyra
lög af nýjustu plötunni „NYC
Ghosts and Flowers" sep var óút-
gefin á þeim tíma. Áhorfendur
voru á báðum áttum eftir tónleik-
ana, sumir fúlir, aðrir snortnir,
enn aðrir eitt stórt spurninga-
merki. Sonic Youth mega eiga að
þeir komu fram sem sannir lista-
menn þetta kvöldið, virtu allt að
vettugi fyrir utan innblásturinn.
Trommuleikari Sonic Youth,
Steve Shelley, var fremur trénað-
ur er ég hitti hann fyrir seint á
sunnudagskvöldi. En kurteis var
hann fram í fingurgóma og viðmót-
ið hlýlegt. Og sáttur við hátíðina.
„Ég er mjög ánægður yfir því að
við höfum komið hingað. Aðstand-
endur hátíðarinnar buðu okkur að
koma og okkur leist mjög vel á
hinar hljómsveitirnar. Við heyrð-
um líka að fyrirkomulagið á hátíð-
inni væri flott. Krakkamir þyrftu
ekki að sofa í tjöldum, liggja í
drullu eða vera sólbrennd. Skipu-
lagið er til sóma og ég kæmi aftur
ef vilji væri fyrir hendi.“
Meðlimir Sonic Youth sinna
ýmsu öðru en sveitinni, starfa að
margs konar listiðn annarri og
flest reka þau eigið útgáfufyrir-
tæki. „Ég rek merki sem kallast
Smells like records, Thurston
[Moore, gítarleikari og söngvari]
sér um merki sem heitir Ecstatic
Peace og síðan eigum við öll sam-
an merki sem heitir SYR eða Son-
ic Youth Recordings.“
Það eru margir sem telja Sonic
Youth vera með helstu rokksveit-
um sem fram hafa komið. Shelley
segir að það sé staðhæfing sem
hann pæli ekki í. „Ég hugsa ekki
um það,“ svarar hann snöggt. „Það
sem ég hugsa um er að hitta band-
ið, semja lög, fara í tónleikaferða-
lög og slíkt. Við hugsum ekki um
hvað aðrir segja, vinsældakeppnir
og slíkt. Við erum bara aðbúa til
tónlist og reynum að fýlgja eigin
sannfæringu í því ferli.“
Stór merki /
lítil merki
Eitt af bitbeinum rokkhunda eru
hinar eilífu vangaveltur hvað varð-
ar risaútgáfur og óháðar. Það þótti
sæta þó nokkrum tíðindum er Son-
ic Youth, frummynd hinnar óháðu
sveitar, ákvað að skrifa undir
samning við Geffen útgáfurisann í
upphafi síðasta áratugar. Margir
voru að vonum áhyggjufullir og
töldu nú vera líklegra en ella að
hugsjónirnar færu fyrir bí. Hafa
Sonic Youth lagt sig fram við
að halda í þær? „Það er ekki
rétt að orða þetta svona,“ seg-
ir Shelley. „Við erum bara að
gera það sem við erum aði^
gera. Okkur finnst gott að
umgangast andans skylt fólk,
ég kalla það ekki að vera að
reyna að halda í einhver gildi.
Við hugsuðum okkur vel um
áður en við skrifuðum undir
þennan samning og komumst
að þeirri niðurstöðu að það
væri fyrir bestu.“
Shelley telur svona samn-
inga þó ekki vera nauðsynlega
forsendu fyrir hljómsveitir
sem vilja ná langt. „Það er
það alls ekki,“ segir hann.
„Það er til fullt af góðum
óháðum merkjum. Ég á t.d.
ekki von á því að Sonic Youth
verði á stóru merki allan sinn feril.
Ástæðan fyrir því að við gerðum
þennan samning var sú að við
vorum að ferðast út um allan heim
og stundum komum við á staði þar
sem plöturnar okkar voru ekki
fáanlegar. Það var erfitt fyrir
þessi minni merki að halda í við
vöxt hljómsveitarinnar þannig að
okkur fannst upplagt á þeim tíma
að ganga inn í samstarf við Geff-
en.“
Shelley segist að lokum hafa séð
blábyrjunina á tónleikum Sigur
Rósar, en þeir léku einmitt á há-
tíðinni, sama kvöld og Sonic
Youth. „Ég sá fyrstu tvö lögin og
þau voru góð. Mér fannst þetta
fínt hjá strákunum."
Ríkharður Jónsson heiðursfélagi Arsenalklúbbsins
Ríkharð-
ur Jóns-
son heið-
ursfélagi
ARSENALKLÚBBURINN á ís-
landi útnefndi á dögunum Rík-
harð Jónsson, fyrrverandi knatt-
spyrnuhetju frá Akranesi, heið-
ursfélaga Arsenalklúbbsins á
íslandi. Fyrir eru tveir heiðurs-
félagar, Finnbogi Friðfinnsson
frá Vestmannaeyjum og Bjarni
Felixson íþróttafréttamaður.
Ríkharður, sem á sinum tima lék
og æfði með Arsenal, var út-
nefndur á árshátíð Arsenal-
klúbbsins.
Arsenalklúbburinn er elsti
stuðningsmannaklúbbur erlends
knattspyrnuliðs á íslandi. Hann
var stofnaður árið 1982 og telur
nú um 1.300 virka meðlimi. í vor
efndi klúbburinn til hópferðar á
úrlitaleik Evrópukeppni félags-
liða sem fram fór í Kaupmanna-
höfn milli Arsenal og Galatasaray
frá Tyrklandi. Um áttatíu gall-
harðir stuðningsmenn skelltu sér
í ferðina og skemmtu sér konung-
lega þrátt fyrir að bikarinn færi
til Tyrklands.
Hluti hópsins góða sem fór á vegum Arsenalklúbbsins á úrshtaleikinn í
Kaupmannahöfn. Stefán Sálarmaður Hilmarsson er fyrir miðri mynd.
Studningsmannaklubbur Arsenal a Islandi
ásamt Jóhanni Þór, Kjartani formanni og Haraldi.
Vonbrigði íslensku Arsen-
almannanna voru mikil
þegar ljóst var að Galatas-
aray hafði betur.
NAIL VITAL
Sterkar neglur
á 2-3 vikum.
Útsölustaðir:
Lyf og heitsa - Apótek
og helstu snyrtivöruverstanir
Dreifiogaraðöi; Cosmic ehf., simi 588 6525
Raciet tjaldvagnar
íf
Sportbúð Titan - Seljavegi 2-101 Reykjavík
Netfang: titan@isa.is - Vefsiða: www.isa.is/titan
Borgarferðir
tn Prag
í haust
frá kr. 25.990
með Heimsferðum
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til
að kynnast þessari ótrúlegu borg með
beinu flugi til Prag, í október og
nóvember. í boði eru góð 3 og 4 stjömu
hótel og spennandi kynnisferðir um
kastalann og gamla bæinn með
íslenskum fararstjómm Heimsferða, þar
sem þú kynnist alveg ótrúlega heillandi
mannlífi þessarar einstöku borgar sem ______________.
á engan sinn líka í Evrópu.. Fáðu bæklinginn sendan
Verð kr.
25.990
M.v. 2 í herbergi, Ariston,
13. nóvember m. 8.000 kr afsl..
sem gildir fyrir brottfarir á
sunnu- eða mánudegi.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595
1000. www.heimsferdir.is