Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Aðsókn að Verkmenntaskólanum á Akureyri svipuð milli ára
Mun meiri aðsókn að
MA en undanfarin ár
MUN meiri aðsókn er að Menntaskólanum á Ak-
ureyri fyrir komandi skólaár en undanfarin ár og
er ljóst að ekki verður hægt að taka við öllum
þeim nemendum sem sækjast eftir skólavist. Þá
er mjög mikil aðsókn að heimavist skólans og mun
meiri en hægt er að anna, að sögn Jóns Más Héð-
inssonar, aðstoðarskólameistara MA. Hann sagði
við það miðað að nemendur skólans yrðu í kring-
um 600 í vetur, sem er svipaður fjöldi og sl. vetur.
Aðsókn í Verkmenntaskólann á Akureyri er
svipuð og undanfarin ár eða eitthvað á ellefta
hundraðið en gert er ráð fyrir um 1.000 nemend-
um í dagskóla næsta vetur, að sögn Hjalta Jóns
Sveinssonar, skólameistara VMA. „Við erum sér-
staklega ánægð með mikla fjölgun umsókna á vél-
stjórnarsviði en við þökkum það sérstakri auglýs-
ingaherferð sem Vélstjórafélagið og fleiri aðilar
stóðu fyrir í vor. Umsóknum á fyrsta ári á vél-
stjórasviðs fjölgaði um 50% milli ára og við erum
mjög ánægðir með það, þar sem við héldum að
þetta nám væri eitthvað sem ungt fólk hefði ekki
lengur áhuga á.“ Hjalti Jón sagði að einnig væri
mjög góð aðsókn að tré- og rafiðnaðardeildunum
en hann hefði viljað sjá fleiri umsóknir í málmiðn-
aðardeild. „Einnig erum við að bjóða upp á nýja
námsbraut samkvæmt nýrri aðalnámskrá og þar
erum við með góðan hóp. Þar bjóðum við upp á
spennandi námsframboð, sem kemur til með að
reyna á næsta vetur,“ sagði Hjalti Jón.
Jón Már sagði að einungis væri hægt að hýsa
150 nemendur á heimavist skólans en þá væri hún
líka alveg fullnýtt. „Það er því alveg orðið löngu
tímabært að bæta við heimavist fyrir báða fram-
haldsskólana og er mjög þarft fyrir skólabæinn.
Ég tel að aukið heimavistarrými komi t.d. til með
að efla Verkmenntaskólann mjög mikið sem iðn-
og starfsnámsskóla. Og með auknu heimavistar-
rými fáum við enn fleiri nemendur alls staðar af
landinu í bæinn.
Bjartsýnn á fyrirhugað samtarf
Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu hef-
ur verið ákveðið að ráðast í byggingu heimavistar
á lóð Menntaskólans á Akureyri, sem rúma mun
um 200 nemendur og tekin verður í notkun árið
2002. Það er Rekstrarfélagið Lundur sem reisir
og rekur heimavistina en ráðgert er að MA og
VMA fái þar inni fyrir 100 nemendur á hvorn
skóla. Ákveðið hefur verið að velja hefðbundna út-
boðsleið við framkvæmdina og er stefnt að því að
bjóða verkið út í janúar á næsta ári.
Hjalti Jón sagði að sér litist mjög vel á fyrir-
hugaðar framkvæmdir við byggingu nýrrar
heimavistar og hann er bjartsýnn á fyrirhugað
samstarf framhaldskólanna og vonast til að þetta
sé aðeins byrjunin. „Við fáum þarna aðstöðu hjá
Lundi og lít ég svo á að með þvi að geta boðið upp
á heimavist séum við að láta gamlan draum ræt-
ast. Um leið erum við að koma til móts við allt
þetta fólk sem býr hérna í nágrenninu, á Eyja-
fjarðarsvæðinu og víðar. Það getur þá sent börn
sín á heimavist, þar sem hugsað er vel um þau.“
Hjalti Jón sagði að jafnframt væri áhugi fyrir því
innan skólans að gera eitthvað fyrir nemendur
sem eru 18 ára og eldri og væri þar horft til Fé-
lagsstofnunar stúdenta og Iðnnemasambandsins.
„En við höfum þó fyrst og fremst skyldum að
gegna gagnvart nemendum sem eru yngri en 18
ára.“
Nýja Hríseyjarferjan siglir í átt til Hríseyjar, en heimamenn hafa lengi
beðið komu ferjunnar.
Nýja Hríseyjarferj-
an siglir inn fjörðinn
Morgunblaðið/Klemenz Bjarki
Framkvæmdir við
flugstöðina á
Akureyri ganga vel
Morgunblaðið/Kristj án
Framkvæmdum innanhúss
í fiugstöðinni lýkur í vik-
unni. Á myndinni eru Þdrð-
ur Ármannsson og Jdhann
Þdrðarson að störfum.
Breyting-
um á sal
senn lokið
FRAMKVÆMDIR við flug-
stöðina á Akureyri hafa verið í
fullum gangi í vor og sumar og
eru að mestu á áætlun, segir
Sigurður Hermannsson, um-
dæmisstjóri flugmálastjómar á
Norðurlandi. Stefnt er að því að
framkvæmdum inni í flugstöð-
inni ljúki í vikunni, en írágang-
ur utanhúss stendur líklega
fram í miðjan september.
Sigurður segir að ekki sé
hægt að komast hjá því að far-
þegar verði fyrir einhveiju
ónæði við framkvæmdir sem
þessar. „Við höfum reynt að
láta farþega finna sem minnst
fyrir þessu og t.d. unnið há-
vaðasamari verk þegar færri
eru í flugstöðinni. Það er hins
vegar erfitt því hér er umferð
um völlinn frá sjö á morgnana
og framyfir miðnætti. Farþeg-
ar hafa hins vegar sýnt þessum
framkvæmdum mikla þolin-
mæði,“ sagði Sigurður.
Jagúar heldur
tónleika
HLJÓMSVEITIN Jagúar heldur
fönktónleika í Deiglunni í kvöld kl.
21:30 á vegum Listasumars. Hljóm-
sveitin Jagúar er nú í sinni fyrstu
tónleikaferð og raunar að fara sína
fyrstu ferð út fyrir höfuðborgar-
svæðið.
Hljómsveitin mun spila á 19 tón-
leikum á 20 dögum og þ.m.t. á Lista-
sumri á Akureyri í Deiglunni.
Hljómsveitina skipa þeir Börkur
Hrafn Birgisson á gítar, Daði Birgis-
son á Fender Rhodes, Nord lead og
Kurzweil hljómborð, Ingi S. Skúla-
son bassaleikari, Kjartan Hákonar-
son trompetleikari, Samúel yngri
Samúelsson á básúnu og Sigfús Órn
Óttarsson trommuleikari. Jagúar
leikur sk. fönk-tónlist.
Miðaverð á tónleikana er 1.000 kr.
NORRÆNT áhugafélag um naut-
griparæktun, NOK, heldur ráð-
stefnu dagana 23.-26. júlí á Akur-
eyri. Áð sögn Gunnars
Guðmundssonar, gjaldkera ís-
landsdeildar NÖK, eru samtökin
þannig uppbyggð að 40 manns eru
í hverri landsdeild og geta ekki
verið fleiri. Félagar samtakanna
eru kúabændur, rannsóknarmenn,
kennarar í búnaðarfræðum, starfs-
menn afurðastöðva og dýralæknar.
Þing samtakanna, sem stofnuð
voru 1948, eru haldin annað hvert
ár og er þetta í annað sinn sem
þingið er haldið hér á landi.
„Þessi samtök hafa enga aðra
formlega starfsemi en að halda
ráðstefnu á tveggja ára fresti. Þar
SKIPSFLAUTUR voru þeyttar á
gamla Sævari og fólk á bryggjunni
í Hrísey klappaði þegar nýja Hrís-
eyjarferjan sigldi inn Eyjafjörðinn
og lagðist að bryggju í Hrísey í
fyrsta sinn. Sem kunnugt er hefur
sem ekki geta verið fleiri en 40 í
hverri landsdeild er mikil sam-
keppni um að komast inn í samtök-
in. Við höfum þær reglur af ef að
félagar mæta ekki á eina ráðstefnu
af hverjum þremur detta þeir út og
hægt er að taka nýja inn í staðinn,
sagði Gunnar. Hann segir að á ráð-
stefnunum sé fjallað um þau má-
lefni sem eru efst á baugi í naut-
afhending nýju ferjunnar dregist á
langinn, m.a. vegna galla í skrúfu-
búnaði, en þau vandræði voru
gleymd og gleðin ríkti þegar nýja
ferjan var loksins komin heim.
griparækt og mjólkurframleiðslu á
Norðurlöndunum á hverjum tíma.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er
einmitt „Kúabóndinn á nýrri öld“.
Gunnar sagði að einnig yrði fjall-
að um ytra umhverfi bóndans, t.d.
hvaða kröfur hann á að gera til
fræðslu, rannsókna og til afurða-
stöðva, svo einhver dæmi séu tek-
in.
Ljóðakvöld
LJÓÐAKVÖLD verður í Davíðshúsi
í kvöld kl 20.30 og er það tileinkað
sjálfu skáldinu frá Fagraskógi, Dav-
íð Stefánssyni. Miðvikudagskvöld
eru ljóðakvöld í Húsi skáldsins og
eru til skiptis á Sigurhæðum og í
Davíðshúsi. Dagskráin er í höndum
Erlings Sigurðarsonar, forstöðu-
manns hússins, og hefst stundvís-
lega kl. 20.30 í kvöld, en húsið verður
opnað kl. 20.
Öll fjölskyldan mætir
„Við leggjum ekki eingöngu
áherslu á fagið á þessum ráðstefn-
um, því að vaninn er að makar og
börn fylgi ráðstefnugestum og við
leggjum ekki síður áherslu á fé-
lagslega þáttinn í samtökunum. Við
getum nefnt að eftir hádegið á
mánudeginum verður ferð um
Skagafjörðinn. Við sjáum þar
hestasýningu á Vindheimamelum,
heimsækjum Vesturfarasetrið á
Hofsósi og förum að lokum í grill-
veislu á Hólum í Hjaltadal," sagði
Gunnar. Einnig nefndi hann að far-
ið yrði í fimm skoðunarferðir á
kúabú í Eyjafirði á miðvikudegin-
um.
Vegagerðin á
Norðurlandi eystra
Birgir tek-
ur við af
Guðmundi
BIRGIR Guðmundsson, umdæmis-
stjóri Vegagerðarinnar á Vestur-
landi, hefur verið ráðinn umdæmis-
stjóri Vegagerðarinnar á
Norðurlandi eystra. Hann tekur við
stöðunni af Guðmundi Svafarssyni,
sem verið hefur umdæmisstjóri á
Norðurlandi eystra í tæp 32 ár.
Birgir, sem er fæddur og uppalinn
á Akureyri, hefur verið umdæmis-
stjóri á Vesturlandi í 25 ár „og það
var því kominn tími til að breyta til“,
sagði hann í samtali við Morgunblað-
ið. Birgir starfaði hjá Vegagerðinni á
Akureyii á árunum 1972-1975, eða
þar til hann tók við stöðunni í Borg-
arnesi.
---------------
Fyrirlestur
í Listasafninu
á Akureyri
DR. RICHARD Wine heldur í kvöld
kl. 20 fyrirlestur í Listasafninu á Ak-
ureyri sem fjallar um „Kynlíf, lygar
og listtímarit". í erindi sínu mun dr.
Richard einnig koma inn á það hvers
vegna nútímalist er svona skrýtin.
Dr. Richard Wine er einn ritstjóra
Art in America og lætur mikið til sín
taka um samtímalist, arkitektúr og
hönnun á alþjóðavettvangi, en Art in
America er eitt stærsta og áhrifa-
mesta listtímarit heims.
Dr. Richard Wine er doktor í bók-
menntum frá University of Chicago
og hefur ritað fjölda greina um listir,
bókmenntir og menningarsögu.
Aðgangseyrir að fyrirlestrinum er
300 krónur og eru allir velkomnir.
-------------------
Hringhenda
sýnd í
Kompunni
í KVÖLD kl 20 verður opnuð í
Kompunni, Kaupvangsstræti 24,
sýning á verki Jóns L. Halldórsson-
ar „Hringhendu“. Hringhenda þessi
er máluð lágmynd, eins konar form-
spil hrings og allra hinna ferhyrndu
forma Kompunnar.
Kompan er opin þriðjudaga til
laugardags frá kl. 14 til 17. Engin
boðskort verða send en allir eru vel-
komnir.
Norrænt áhugafélag um nautgriparækt þingar á Akureyri
Kúabóndinn
á nýrri öld