Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 12

Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ ÍTAWI ^UIiUJdUlU/WldlUI Gamla sfldarverksmiðjan á Skagaströnd hefur tekið algjörum stakka- skiptum í útliti og hefur nú öðlast nýtt líf með tilkomu frystiklefans Gamla síldarverksmiðjan öðlast nýtt líf Skagaströnd - Gamla sfldarverk- smiðjan hefur tekið algjörum stakkaskiptum í vor og sumar. Búið er að klæða helming hennar að ut- an og mála en inni hefur verið kom- ið fyrir frystiklefa, umbúðageymslu og lyftarageymslu ásamt nokkru geymslurými. Skagstrendingur hf. keypti fyrir nokkru verksmiðjuhúsin af Höfða- hreppi. Þar sem áður voru þurrkar- ar verksmiðjunnar, hráefnis- geymsla og fleira á neðstu hæðinni var útbúinn frystiklefí fyrir 400 til 500 tonn af frystum afurðum,Iyft- arageymsla og hleðsiurými. Á mið- hæðinni hefur verið innréttuð um- búðageymsla og vélasalur en efsta hæðin stendur enn ónotuð. Tilkoma nýja frystiklefans, sem stendur á hafnarbakkanum, gjör- breytir aðstöðunni fyrir Skag- strending hf. þar sem nú er hægt að landa beint í klefann frystum afurð- um Arnars og/eða frystri rækju, sem töluvert hefur verið flutt inn frá Noregi og af Flæmska hattin- um. Segja má að með þessum endur- bótum á sfldarverksmiðjunni og því að koma þar inn einhverri starf- semi að nýju hafi tvö stærstu minn- ismerki um breytta útgerðarhætti á Skagaströnd öðlast nýtt líf. Á síð- asta ári tók til starfa vefverksmiðja í húsnæði gamla frystihúss Hóla- ness hf. og rfldr mikil ánægja með að þessar tvær stóru byggingar standi ekki lengur tómar og grotni niður engum til gagns. Morgunblaðið/Ágúst Björgunarskipið Hafbjörg dregur hluta Sæsilfursbryggjunnar á brott. Gömlu bryggjurnar týna tölunni Neskaupstað - Gömlu bryggjurnar hér í Neskaupstað smá týna töl- unni enda að mestu búnar að þjóna sínu hlutverki sem hefur verið mikilvægt gegnum tíðina. Nú á dögunum var Sæsilfurs- bryggjan rifin en hún var á sínum tíma aðal hafskipabryggjan hér á staðnum auk þess sem á henni var saltað í tugi þúsunda síldartunna á síldarárunum sem voru og hétu um og uppúr 1960. Ekki eru allir á eitt sáttir við að bryggjurnar séu fjar- lægðar og finnst það skemma heildarmynd bæjarfélagsins en aðrir telja að bryggjurnar, sem eru orðnar illa farnar, séu slysagildrur og of kostnaðarsamt að halda þeim við. Bæði sjónarmiðin eiga örugg- lega rétt á sér en úr varð að rífa bryggjuna. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Undir berum himni Þórshöfn - Fréttaritari Morgun- blaðsins rakst á útlent par sem svaf úti á hellulagðri stétt fyrir utan íþróttahúsið á Þórshöfn yfir nóttina. Þau komu að sunnan og ætluðu á puttanum til Egilsstaða. Að sögn var þeim ekki kalt um nóttina þótt hitastigið væri aðeins 7 stig. Það er verst hvað Island er vindasamt land, sögðu þýzki ferðalangurinn og tékknesk vin- kona hans sem fannst ekkert mál að sofa undir berum himni þótt kalt væri í veðri. Umhverfissjóður verslunarinnar styrkir Landgræðslu- félag við Skarðsheiði Sex milljóna fram- lag afhent á Fiski- lækjarmelum Grund - Nýverið komu góðir gestir í heimsókn upp á Fiskilækjai-mela færandi hendi. Þarna var mættur Bjarni Finns- son, formaður Umhverfissjóðs versl- unarinnar, sem afhenti formanni Landgræðslufélags við Skarðsheiði, Baldvini Björnssyni, sex milljónir króna úr svonefndum pokasjóði í styrk á árinu 2000 til uppgræðslu á Hafnar- og Fiskilækjarmelum ásamt skjólbeltagerð meðfram veg- inum undir Hafnarfjalli. Umhverfíssjóðurinn styrkti verk- efnið um sömu upphæð á síðasta ári. Umhverfissjóður verslunarinnar (pokasjóðurinn) veitir styrki til verkefna sem miða að því að græða landið, fegra það og bæta. Verslanir um land allt standa að sjóðnum en tekjur af sölu burðarpoka er framlag þeirra í sjóðinn. Ai'Iega úthlutar Umhverfíssjóður verslunarinnar styrkjum á bilinu 25-30 milljónir króna til einstaklinga og félaga víða um land. Samanlögð upphæð styrkja frá árinu 1995 er nálægt 150 milljón- um króna. Fréttavef- ur fyrir Þingeyj- arsýslur Ilúsavik - Opnaður hefur verið á slóðinni http:// www.vikin.is fyrsti og eini fréttavefurinn sem eingöngu er fyrir Þingeyjarsýslur. Eig- endur og umsjónarmenn vik- in.is eru þeir Arngrímur Ai-n- arsson og Hákon Hrafn Sigurðsson. Þeir segja að síð- unni sé ætlað að fylla það tómarúm sem þeir telji að hafí skapast í frétta- og upp- lýsingaflutningi úr sýslunum og að þeirra mati sé kominn tími til að auka frétta- og upplýsingaflæðið til íbúa og þeir ætli að skapa jákvæðan og uppbyggilegan fréttaflutn- ing af svæðinu. Það hafi borið á frekar neikvæðum frétta- flutningi og markmið vikin.is sé að snúa þessu við. Frétta- flutningurinn verður óháður og vikin.is rekinn á auglýs- ingatekjum. Auk fréttaflutnings sem verður meginuppistaða vefj- arins er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir svæðið sem almenningur getur nálgast á einum stað. Þeir Arngrímur og Hákon Hrafn ætla að reyna að halda vefnum eins lifandi og ferskum og kostur er, en þar sem þeir reka hann í frístundum er óhugsandi að hann verði uppfærður jafnt á við stóra fréttavefi sem hafa á tugi starfsmönnum að skipa. Hákon Hrafn starfar sem lyfjafræðingur hjá Cyclops, dótturfyrirtæki Islenskrar erfðagreiningar, og einnig við vefhönnun. Arngrímur er nemi í tölvunarfræði við Há- skólann í Reykjavík og starf- ar einnig við vefhönnun auk þess sem hann stundar markaskorun með Völsungi í þriðju deildinni í knatt- spyrnu. Styrkir landbætur undir Hafnarfjalli Landbætur undir Hafnarfjalli er eitt stærsta verkefnið sem sjóðurinn hefur styrkt en meðal annarra stærri verkefna má nefna upp- græðsluna á Hólasandi og verkefni með Skógræktarfélagi íslands. Landgræðslufélag við Skarðsheiði var stofnað 28. apríl 2000. Stjórn þess er skipuð eftirtöldum aðilum: Baldvin Björnsson, formaður, Sverrir Sverrisson, Gísli Jónsson, Daníel Daníelsson og Sigurður Val- geirsson. Undanfari þessarar félagsstofn- unar var sá, að framkvæmdastjóri Markaðsráðs Borgarfjarðar, Guð- rún Jónsdóttir, kallaði til fundar við sig á síðasta ári fulltrúa landeig- enda, Búnaðarsamtaka Vesturlands, Vegagerðarinnar, Landgræðslunn- ar og Skógræktarinnar og var mark- mið fundarboðanda að hrinda af stað verkefni sem hefði þríþætt mark- mið: að vernda og stækka Hafnar- skóg, að breyta eyddu landi í nytja- land og minnka þannig álag á þann gróður sem fyrir er og að skýla um- ferð fyrir vindum og skafrenningi. Ekki þarf að orðlengja það að þeg- ar varð mikill áhugi fyrir verkefninu og sex milljóna króna framlag Um- hverfissjóðs í fyrra varð sem víta- mínsprauta fyrir forsvarsmennina. Markaðsráð og Guðrún Jónsdóttir drógu sig þá út úr verkefninu og formlegt félag heimamanna var stofnað í apríl sl. En Guðrún Jóns- dóttir á heiður skilinn fyrir fram- takssemina. A árinu 1999 var sáð lúpínu og grasi í um 150 ha. lands og ráðgert er að sá öðru eins á þessu ári. Undir- búningur að skjólbeltum hófst þegar í fyrra og þann 13. júlí átti að gróð- ursetja einfalda röð af alaskavíði á um þriggja km löngu belti. Það er vinnuskóli sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar sem gróðursetti í belt- ið með góðri aðstoð Sveins Runólfs- sonar og Bjarna Finnssonar þegar hinn síðarnefndi hafði losað sig við milljónirnar í hendur Baldvins Björnssonar. Morgunblaðið/Helga Hafsteinsdóttir Héraðsmessa við Krosslaug í Lundar reykjadal Grund - Á fjórða hundrað manns sóttu messu við Krosslaug í hinu ágætasta veðri, þrátt fyrir dökkt út- lit á laugardaginn og rigningarspá fyrir sunnudaginn. Athöfnin hófst með skrúðgöngu presta og kórs frá þjóðveginum að lauginni en á undan göngunni gengu fána- og krossberar sem voru fermingarböm úr hinum ýmsu sóknum Borgarfjarðarpró- fastsdæmis. Eftirtaldir prestar komu að mess- unni: Sr. Geir Waage, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, sr. Árni Pálsson, sr. Brynjólfur Gíslason, sr. Eðvarð Ingólfsson, sr. Kristinn Jens Sigur- þórsson, sr. Björn Jónsson og sr. Flóki Kristinsson. Messan hófst með ávarpi prófasts sr. Þorbjörns Hlyns Árnasonar. Hann gat þess, að upphafsmaður að því að gera Krosslaug upp og halda upp á 1000 ára kristni við laugina væri Ingimundur heitinn Ásgeirsson frá Reykjum, bóndi á Hæli í Flóka- dal. Fyrrum prófastur Borgfirðinga, sr. Jón Einarsson í Saurbæ, hafði einnig mikinn áhuga á málinu og studdi það með ráðum og dáð meðan hans naut við. Áslaug Traustadóttir landslagsarkitekt frá Hvanneyri skipulagði svæðið en kostnaður við skipulag og plöntun var borinn af Lundarreykjadalshreppi og Borgar- fjarðarprófastsdæmi. í messunni skírði sr. Árni Pálsson eitt barn, sem hlaut nafnið Þorkell Ingi, en foreldr- ar hans eru Jónas Þorkelsson og Inga Hólmfríður Gunnarsdóttir úr Borgarbyggð. Altarisþjónustu önnuðust sr. Brynjólfur Gíslason, sr. Eðvarð Ing- ólfsson, sr. Kristinn Jens Sigurþórs- son og sr. Geir Waage. Nýkjörinn sóknarprestur Hvann- eyrarprestakalls, sr. Flóki Kristins- son, predikaði og um kórsöng sáu félagar úr kirkjukórum Borgarfjarð- arprófastsdæmis. Veggir endurhlaðnir árið 1980 Krosslaug er á merkjum milli Brennu og Reykja en þar voru Vest- lendingar skírðir árið 1000 þegar þeir komu af Þingvöllum. Líkur eru á að ekki færri en 3.000 manns hafi tekið skírn á þessum stað á kristni- tökuári. Veggir laugarinnar voru endurhlaðnir árið 1980 í umsjá þjóðminjavarðar og er laugin nú friðlýst. Hitinn í lauginni er um 42°C. Prestar prófastsdæmisins, og allir sem komið hafa að framkvæmdum við Krosslaug, eiga þakkir skildar fyrir eftirminnilega og hátíðlega stund. Slík samkoma þyrfti að vera ár- lega en ekki á 1000 ára fresti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.