Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 22

Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Lögbundin einræðisstjórn Pútíns byijar með lögleysu © Project Syndicate AP Vladímír Pútín ásamt ígor Sergejev varnarmálaráðherra á vopnasýn- ingu í borginni Nízhm' Tagfl í Úralfjöllum fyrir nokkrum dögum. eftir Richard Pipes RÚSSNESKIR menntamenn og þeir sem fjalla um rússnesk málefni í öðrum löndum eru almennt sam- mála um að eitt þeirra mikilvægu verkefna - ef ekki það allra mikil- vægasta - sem Rússland stendur frammi fyrir eftir fall Sovétríkjanna sé að koma á lögbundinni stjóm en það er undirstaða lýðræðis og frjáls markaðsbúskapar. Það er þó vafa- mál hvort Pútín forseti og aðstoðar- menn hans gera sér grein fyrir þessu. Sumar aðgerðir þeirra og yf- irlýsingar benda til að þeir séu til- búnir til að fórna lögum fyrir póli- tísk hentugleikasjónarmið í þeim tilgangi að byggja upp „sterkt ríki“. Frá upphafi sögu sinnar hefur Rússland ekki búið við lög sem grundvallarreglu í samskiptum stjórnenda ríkisins og þegnanna. Allt þar til í byrjun tuttugustu aldar þekktu keisarar engar lagalegar hömlur eins og þær sem takmörk- uðu einveldi vestur-evrópskra þjóð- höfðingja. Þeir þurftu ekki að virða einkaeign á landi af því að allt til árs- ins 1785 var allt land í þeirra eigu. Þeir þurftu heldur ekki að virða réttindi aðalsins af því að allir aðals- menn voru þjónar þeirra til miðrar 18. aldar. Bændur, sem voru níu tíundu þjóðarinnar, voru að lang- mestu leyti ánauðugir leiguliðar krúnunnar eða aðalsins og sem slíkir höfðu þeir alls engin lagaleg rétt- indi. Fyrstu lögbækur Rússlands voru settar saman á fjórða áratug 19. aldar og fyrstu virku dómstólarnir komu fram á sjöunda áratug ald- arinnar. Lög voru vitaskuld til en þau þjónuðu ekki því hlutverki að vemda fólk gegn gerræðislegum ákvörðun- um stjómarinnar, þess í stað vom þau tæki til að stjóma. Til að mynda var ekki hægt að fara í mál við emb- ættismenn keisarans án þess að fá leyfi frá yfirmönnum þeirra. Sú hug- mynd að venjulegt fólk ræki mál fyr- ir dómstólum gegn stjómvöldum var algerlega óhugsandi. Lagaleg hefð var því mjög yfir- borðsleg í Rússlandi þegar bolsévík- ar hrifsuðu völdin. Þeir sjö áratugir sem þeir höfðu alræðisvald gerðu að engu það takmarkaða lagakerfi sem hafði þó skotið rótum. Lenín skil- greindi „alræði öreiganna" sem „takmarkalaus völd, sem engin lög gætu náð yfir, sem engar reglur gætu hamlað, sem hvílir með bein- um hætti á valdbeit- ingu“. Þannig var það satt best að segja. Pútín forseti hefur fullyrt að í Rússlandi nú- tímans verði lögin hinn sanni „einræðisherra". En margt bendir til þess, að hann líti á lög með hefðbundnum, rússnesk- um hætti, þ.e. ekki sem grundvallar- reglu, sem bindur jafnt ríki og þegna, heldur sem tæki fyrir ríkið til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ein birtingarmynd þessa viðhorfs er nýleg árás á höfuðstöðvar Media- Most-samsteypunnar en sjónvarps- og útvarpsstöðvar hennar og dag- blöð hafa gagnrýnt herferðina gegn Tsjetsjenum. Árásin - sem gerð var af vel vopnuðum og grímuklæddum mönnum! - var, að því er sagt er, gerð til að rannsaka ólöglegar að- gerðir starfsmanna fyrirtækisins. En árásin sjálf var algerlega ólögleg aðgerð, sem ennþá hefur ekki verið beðist afsökunar á. Annað dæmi snýr að tilraunum Pútíns til að hafa taumhald á landstjór- um hinna 89 héraða Rússlands. Á síðasta áratug hafa þessir kjörnu embættis- menn náð völdum eins og þeir væru barónar í léns- skipulagi og í sumum tilfellum ganga aðgerðir þeirra greinilega í berhögg við stjórnarskrána. Til að ná taumhaldi á þeim hefur Pútín út- nefnt sjö embættismenn (að mestu leyti fyrrverandi hershöfðingja og KGB-menn), sem líkjast einna helst æðstu embættismönnum keisara- tímans, er þjóna sem fulltrúar hans. Þegar Pútín gerði þessa ákvörðun heyrinkunna bætti hann við að hann myndi „reka“ þá ríkisstjóra sem uppvísir yrðu að ólöglegum aðgerð- um. Þessi ógnun var í sjálfu sér ólög- leg, því að samkvæmt rússnesku stjórnarskránni er aðeins hægt að reka réttkjörna embættismenn með fyrirskipunum dómstóla. Ef til vill var þetta „forsetalegt mismæli". En þegar forsetinn misstígur sig á þennan hátt, ef hann gerði það yfir- leitt, sést að hann setur sjálfan sig enn ofar lögum. Þriðja birtingarmyndin viðkemur nýlegri óvirðingu yfirvalda í Moskvu við stríðsdómstól Sameinuðu þjóð- anna með því að taka á móti varnar- málaráðherra Júgóslavíu, Dragoljub Ojdanic. Ojdanic er var formlega ákærður fyrir ári af stríðsdómstóln- um í Haag, dómstól, sem komið var á fót með samþykki Moskvu til að refsa fyrir glæpi gegn mannkyni í Kosovo. Sem aðildarríki að öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna bar rúss- neskum yfirvöldum skylda til að handtaka Ojdanic. Þrátt fyrir það komu þau fram við hann eins og op- inberan gest, komu á fundum með honum og varnarmálaráðherra Rússlands og með yfirmanni rúss- neska hersins. Vandamálið er að þó að Vladímír Pútín hafi útskrifast frá lögfræði- deild háskólans í Pétursborg þá þjónaði hann í mörg ár í KGB og hefur safnað í kringum sig fyrrver- andi starfsmönnum öryggislög- reglunnar en meginhlutverk hennar innanlands var að bæla niður gagn- rýni á yfirvöld. Hugarfar þessara manna miðast við það að ná mark- miðum sínum án þess að hengja sig í lagalegum smáatrið- um. Slíkan bakgrunn er erfitt að yfirstíga, sérstaklega ef nýja verkefnið er að stofna „sterkt ríki“. Þetta veit á illt fyrir Rússland, sem á enn eftir að læra að pólitískur styrkur fæst ekki með því að traðka á borgaralegum réttindum þegnanna heldur með því að skapa tilfinningu fyrir sameiginlegum hagsmunum stjórnvalda og fólksins, með ósveigjanlegri virðingu fyrir lögunum. Richard Pipes er höfundur bókar- innarRussia Under the Old Regime. Hann hefur einnig gefið út tveggja binda verk um rússnesku bylting- una. Hann ernú prdfessor ísagn- fræði við Harvard en átti áðursæti f öryggisráði Hvíta hússins. Speight varar við frekari óeirðum „Gam- anið er rétt að byrja“ Suva. AP. GEORGE Speight, leiðtogi uppreisnarmanna sem héldu þingmönnum í gíslingu í tvo mánuði á Fídjíeyjum, varar við því að frekari óeirðir muni lík- lega brjótast út á eyjunum í kjölfar útnefningar nýrrar rík- isstjórnar. Þrátt íyrir að tveir manna Speights hafi fengið sæti í stjórninni sagði hann að ráð- herralistinn myndi leiða til and- spyrnu. „Þeir eru á mjög hálum ís. Ég held að þeir muni fá harða andspyrnu," sagði Speight. Þegar hann var spurð- ur hvort búast mætti við að óeirðir brytust út á Fídjí að nýju sagði Speight: „Ég spái því. Gamanið er rétt að byrja.“ Speight hafði krafist þess að stjómarskrá eyjanna yrði breytt og íbúum af indverskum uppruna, sem eru í minnihluta, meinað að fara með nokkur völd. Meðal gíslanna sem upp- reisnarmenn héldu var forsætisráðherra eyjanna, sá fyrsti úr röðum minnihlutans. Viðskiptaþvinganir Speight brást ókvæða við því að ekki fengju fleiri stuðnings- manna hans sæti í nýrri ríkis- stjóm, sem útnefnd var í gær af Ratu Josefa Iloilo forseta. Aft- ur á móti útnefndi Iloilo enga menn af indverskum uppmna, í samræmi við kröfu Speights. Nýsjálendingar hafa hafið viðskiptaþvinganir gegn Fídjí og krefjast þess að þar verði á ný tekið upp lýðræði með þátt- töku allra kynþátta. Ástralir til- kynntu í gær að þeir myndu draga úr aðstoð til eyjanna, skera á flest hernaðarleg tengsl og meina náms- og íþrótta- mönnum að fara til eyjanna og kalla heim hæst setta stjórnar- erindreka sinn á eyjunum. Samstarfsmenn Pútíns úr KGB hafa aldrei hengt sig í lagaleg smáatriði Fyrstu rússnesku lögbækurnar voru ekki settar saman fyrr en á 19. öld Berezovskí hyggst beita fjölmiðlaveldinu gegn Pútín Moijkvu. AP. RÚSSNESKI auðkýfingurinn Borís Berezovskí hyggst sameina fjölmiðla sína í eitt fyrirtæki sem á að vemda pólitíska hagsmuni hans. Dagblaðið Nezavísímaja Gazeta, sem er í eigu Berezovskís, sagði í for- ystugrein í gær að auðjöfurinn hygð- ist gera fjölmiðlaveldi sitt að beittara pólitísku vopni. Berezovskí sagði sjálfur á blaðamannafundi á mánu- dag að nýja fyrirtækið ætti að vera „mikilvæg pólitísk lyftistöng" í bar- áttu hans og stjórnarandstæðinga við Vladímír Pútín forseta. Berezovskí á 49% hlut í ORT, stærstu sjónvarpsstöð Rússlands, en ríkið á meirihluta í stöðinni. Hann vildi ekki svara því hvort ORT yrði hluti af nýja fyrirtækinu og sagði að- eins að það fengi öll þau hlutabréf sem hann ætti. Aður hafði hann lagt til að ríkisstjómin setti meiri pen- inga í ORT eða seldi honum hluta- bréf sín ef hún gæti það ekki. Berezovskí sagði að fyrirtækið yrði undir stjórn Igors Shagdúrasú- lovs, sem lét af embætti aðstoðar- skrifstofustjóra forsetans um helg- ina. Shagdúrasúlov var áður aðalframkvæmdastjóri ORT. Berezovskí var mjög áhrifamikill í Kreml í forsetatíð Borís Jeltsíns og studdi Pútín í forsetakosningunum í mars, meðal annars með því að láta fjölmiðla sína hampa honum í kosn- ingabaráttunni. Auðkýfingurinn lagðist hins vegar gegn Pútín þegar forsetinn tók að sækjast eftir aukn- um völdum á kostnað rússneskra héraðsstjóra. Þau áform gætu skað- að Berezovskí og fleiri auðjöfra þar sem þau hindra að þeir geti gert arð- vænlega samninga við héraðsstjór- ana, sem hafa ráðið yfir miklum auð- lindum. Berezovskí kvaðst á mánudag ætla að láta af þingmennsku til að mótmæla meintum einræðistilhneig- ingum forsetans. Hann sakaði Pútín um að reyna að eyðileggja stórfyrir- tæki og kvaðst ætla að beita sér fyrir því að héraðsstjórar og andstæðing- ar stjórnarinnar á þinginu tækju höndum saman. Það gæti orðið til þess að nýr flokkur yrði stofnaður. Ottast saksdkn Berezovskí og fleiri kaup- sýslumenn notuðu áhrif sín í Kreml til að tryggja sér ríkiseignir á lágu verði með vafasömum einkavæðing- arsamningum. Berezovskí hefur verið bendlaður við fjárdrátt í tengslum við stærsta flugfélag Rúss- lands, Aeroflot. Saksóknarar telja að andvirði 46 milljarða króna af hagnaði fyrirtækisins hafi verið lagt inn á bankareikninga erlendis ólöglega með aðstoð tveggja svissneskra fyrirtækja. Berezovskí var í fyrstu grunaður um aðild að málinu en saksóknaramir óska nú Reuters Borís Berezovskí á blaðamannafundi í Moskvu þegar hann tilkynnti að hann hygðist láta af þingmennsku. aðeins eftir vitnisburði hans. Berezovskí hefur hvatt Pútín til að veita almenna sakaruppgjöf vegna efnahagsglæpa sem framdir voru fyrstu árin eftir hrun Sovétríkjanna 1991. Hann segir að allir rússneskir kaupsýslumenn hafi gerst sekir um lögbrot á þessum tíma, annaðhvort í grandaleysi eða af ráðnum hug. Nokkrir rússneskir fjölmiðlar hafa túlkað atlöguna að Pútín og endurskipulagningu fjölmiðlaveldis- ins sem örvæntingarfulla tilraun af hálfú Berezovskís til að veijast hugs- anlegri saksókn. „Berezovskí kann að hafa komist að þeirri niðurstöðu að fjölmiðlaveldi undir hans stjórn sé miklu árangursríkari vöm gegn hugsanlegri saksókn en þinghelgin,“ sagði dagblaðið Vremja MN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.