Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið /Arnaldur Jón Marinó Jónsson við hljóðfærin sem hann hefur smíðað. Fiðluna sem hann heldur á vann hann fyrir lokapróf í skólanum. Hver fiðla er einstök NÝVERIÐ bættist í fámennan hóp fiðlusmiða hér á landi Jón Marinó Jónsson sem útskrifaðist sem hljóð- færasmiður frá Newark and Sherwood College í Englandi eftir þriggja ára nám. Jón Marinó er húsasmíðameistari að mennt og starfaði lengi við þá iðn. Hann ákvað hins vegar fyrir þremur árum að halda ásamt eiginkonu sinni, tveggja mánaða syni og þriggja ára dóttur til Englands og hefja nám við hljóðfærasmíði. „Al- veg síðan í gagnfræðaskóla hefur mig dreymt um að gerast hljóðfæra- smiður," segir Jón Marinó. „Kennari minn í Keflavík Erlingur Jónsson hvatti mig til að vinna við útskurð. Það var ekki fyrr en fyrir nokkrum árum að ég ákvað að slá til eftir að ég sá viðtal við unga konu í sjónvarpinu sem nýlokið hafði námi í fiðlusmíði." Newark and Sherwood College er mjög virtur skóli og áður hafa tveir íslendingar lokið þar námi. Þrjátíu nemendur fá inngöngu ár hvert og komst Jón Marinó í gegnum þungt inntökupróf. „Námið er eingöngu verklegt,“ segir hann. „Gert er ráð fyrir að nemendur smíði tvær fiðlur fyrsta árið en ég smíðaði aukalega aðrar tvær sem ég teiknaði og hannaði frá grunni. A öðru ári smíðum við víólu ásamt því að taka viðgerðarnám- skeið sem tekur sjö mánuði. Síðasta árið tók ég svo utanskóla og bjó hér á íslandi. Þá smíðaði ég selló og þreytti lokapróf sem felur í sér að smíða fiðlu á innan við fimm vikum.“ Þegar skólanum lauk var haldin sýning á verkum útskriftarnemenda og voru nokkur hljóðfæranna valin fyrir tónleika með hinum fræga Schidlof-kvartett. Þar á meðal var fiðlan sem Jón Marinó smíðaði sem lokaverkefni. „Meðlimir kvartettsins völdu fjögur sett af hljóðfærum til að spila á, það er átta fiðlur, fjórar víól- ur og jafnmörg selló. I lokalaginu sögðust þau velja besta hljóðfærið af hverri tegund og í þeim hópi var fiðl- an sem ég hafði gert. Það var eigin- lega mesta hrósið sem ég gat feng- ið,“ segir Jón Marinó brosandi. „Allar fiðlur eru vitaskuld mjög áþekkar í útliti en samt er engin þeirra eins. Maður skapar því ein- stakling í hvert skipti sem maður smíðar fiðlu. Mörg atriði, til dæmis innleggið, er hægt að túlka með sín- um hætti og því myndi ég frekar segja að ég væri listamaður en iðn- aðarmaður.“ Jón Marinó rekur verkstæði á Hraunbraut 47 í Kópavogi þar sem hann vinnur að nýsmíði og viðgerð- um á fiðlu, lágfiðlu, selló og bassa. Sjálfur hefur hann aldrei spilað á strengjahljóðfæri en segir það ekki koma að sök. „Það er reyndar nauð- synlegt að hafa þokkalega gott tón- eyra til að geta greint á milli tónanna en maður þarf ekki að vera flembi- fær leikari,“ segir Jón Marinó hlæj- andi. Hann er samt sem áður að spá í að innrita sig í tónlistarskóla á næst- unni. „Dóttur mína, sem er 6 ára, langar að fara í Suzuki-tónlistarskól- ann í haust og ætli ég fari ekki bara með henni,“ segir hann að lokum. Richard Bona í röngu umhverfí I síðustu grein sinni frá djasshátíðinni í Kaup- mannahöfn segir Guðjón Guðmundsson frá rafbassaundrinu Richard Bona og þreytulegum Joe Sample. SAGAN segir að Richard Bona hafi vakið athygli í heimabæ sínum Minta í Kamerún strax á barnsaldri fyrir engiltæra rödd og mikla hæfi- leika í hljóðfæraleik. Klúbbeigandi í bænum með djass í æðum vildi setja upp djasskvöld í klúbbi sínum og lánaði Bona, þá um tvítugt, vinyl- plötusafnið sitt. Forsjónin stýrði því svo að pilturinn setti á fóninn plötu með Jaco Pastorius og framtíð Bona var ráðin. A tónleikunum í Circus- byggingunni í Kaupmannahöfn mátti greina auðheyrilegan Pastor- ius í leik Bona, sem er kristinn og ræktar sína trú, en líka margt alveg nýtt og ógnvekjandi ferskt. Það var engu líkara en messíönsk boð væru í öllu sem hann gerði og nærvera Bona felldi skugga á stóru nöfnin, David Sanborn og Joe Sample. And- legur leiðtogi rafbassaleikara er kominn fram með kyndil Pastoriusar í hendi. Tónleikarnir, sem töldust til hinna stærri á Kaupmannahafnarhátíð- inni, voru að stærstum hluta mislukkaðir og fylltu alls ekki upp í væntingar. David San- born er kóngur hins fellda (smooth) djass en hefur átt innkomur í meira krefjandi formum með athyglisverðum ár- angri. Sample þekkja bræðingsmenn frá Krossförunum og sóló- skífum hans. Brian Blade er kunnur af sam- starfi sínu við Joshua Redman en hefur síðan með góðum árangri skapað sér nafn sem einn magn- aðasti trommuleikari yngri kynslóð- arinnar. Þetta voru eiginlega hinir undar- legustu tónleikar. Það var lagið Corners af síðasta plötu Sanborn, Inside, sem var opnunarlagið. Ekta bræðingsnegling. Dálítið ýktar til- finningar í saxófón en hörku „grúv“. Síðan upphófst skensið. Sample, sem sá um kynningar, var fráleitt skýr í framsetningu og virtist sem einhver misklíð væri milli hans og Sanboms. Sample bauð Sanborn að ávarpa tón- leikagesti þótt sá síðamefndi hefði enga tilburði uppi í þá vera og allt var þetta fremur vandræðalegt. Sample var líka oft á tíðum úti á grænu túni í sínum einleiksköflum þótt vissulega hefði hans vöramerki, glæsilegar og vel „fönkaðar" strófur, flotið með. Sanborn var yfirleitt fyr- irsjáanlegur í sínum spuna og fátt í raun sem kom á óvart. Undarlegt var þegar Sample hóf að leika Brúðarmars- inn í einni kynningunni án sýnilegrar ástæðu. Síðar var sagt að þetta hefði . verið svartur húmor hjá Sample. Sanborn hefði verið í tygjum við stúlku en upp úr sambandinu hefði slitnað skömmu fyrir þessa tónleika og virtist sem Sample vOdi strá salti í sárin. Ævintýrið hófst þeg- ar Sample og Sanborn hurfu af sviði, líklega til að gera upp sín mál. Bona og Blade léku „dúó“ af fyrstu plötu Bona sem Columbia gaf út í fyrra og nefnist Scenes from my Life. Bona hefur yf- ir að ráða ótrúlegri tækni og gat látið bassann hljóma eins og selló, sítar og banjó og flest þar á milli og byggði upp hljómagranna sem hann söng yfir á móðurmáli sínu douala. Þessi dúó bjargaði tónleikunum og áheyr- endur gáfu í skyn með taktföstu upp- klappi að þeir vildu heyra meira frá Bona og Blade. Það var því fullkomið spennufall þegar Sample kom einn fram á sviðið og stiklaði með kennaralegum tón á stóra í gegnum sögu Jelly Roll Morton af öllum mönnum og tónleikunum lauk á ein- hverri marséringu úr þeirri bók og enginn vissi hvaðan á sig veðrið stóð. Hitt er ljóst að Richard Bona er nafn sem menn þurfa að leggja á minnið því stjarna hans á eftir að skína skært. Ricard Bona Málverka- sýning á Sölvabar NÚ STENDUR yfir málverkasýn- ing Rannveigar Jónsdóttur á Sölva- bar í Lónkoti í Skagafirði. Á sýning- unni era m.a. ádeilumyndir vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda á hálendinu. Flestar myndanna era unnar með olíu á krossvið. Rannveig útskrifaðist úr MHÍ vorið 1987 og hefur haldið einkasýn- ingar og tekið þátt í samsýningum. Sýningin á Sölvabar stendur til 31. júlí. Allir bolir aðeins 1.200 kr. Nýir bolir í MOGGABÚÐINNI [ Moggabúðinni getur þú keypt boli, töskur, klukkur o.fl. á einstöku verði beint af Netinu með öruggum hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær sendar heim til þín eða á vinnustað. EINFALT OG ÞÆGILEGT! Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1, og keypt vörurnar þar. MOGGABÚÐIN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.