Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 28

Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 Útge/andi: Arvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. GAGNSÓKN LANDSBANKANS Segja má, að Landsbanki íslands hafi hafið gagnsókn á fjármála- markaðnum með kaupum á brezkum fjárfestingarbanka og fjár- festingu bandarísks banka í Lands- bankanum í því sambandi. Kaup First Union National Bank á hlut í Lands- bankanum marka ákveðin tímamót vegna þess, að þetta er í fyrsta sinn, sem erlendur banki gerist aðili að fjármálamarkaðnum hér með eignar- aðild að íslenzkum banka. Þegar hugmyndir um sameiningu Landsbanka Islands og Islands- banka, sem höfðu verið til umræðu í nokkur misseri, urðu að engu með óvæntri sameiningu Islandsbanka og FBA virtust aðrir bankar og spari- sjóðir komnir í ákveðna blindgötu. Fyrstu viðbrögð voru þau, að eðliiegt væri að stefna að sameiningu Lands- banka og Búnaðarbanka. Svo virðist sem þær hugmyndir hafi aldrei feng- ið nægilegar undirtektir. Eðlilegt var að líta svo á, að sparisjóðirnir gætu komið við sögu, en eignarform þeirra gerir þeim erfitt um vik að taka ákvarðanir um framtíðina. Landsbankinn hefur nú brotizt út úr þessari sjálfheldu. Kaup bankans á 70% hlut í brezka fjárfestingar- bankanum Heritable and General In- vestment Bank Ltd. (HGI) eru að vísu ekki mikil fjárfesting en þó tölu- vert meiri en kaup FBA á brezkum einkabanka á sínum tíma. Hins vegar opnar það nýjar leiðir fyrir Landsbankann að helzti seljandinn, hinn bandaríski banki, tekur við greiðslum í formi hluta- bréfa í Landsbankanum og verður annar stærsti hluthafi bankans á eftir íslenzka ríkinu. Eignaraðild bandaríska bankans að Landsbankanum mun opna hinum síðarnefnda ýmsa möguleika vegna náins samstarfs við einn helzta hlut- hafa Landsbankans auk þess sem kaupin á brezka fjárfestingarbankan- um opna Landsbankanum ný tæki- færi, ekki sízt í einkabankaþjónustu. Það er því Ijóst, að með þessum við- skiptum hefur Landsbankinn skapað sér nýja vígstöðu á íslenzka fjármála- markaðnum, sem er líkleg til þess að bæta^ samkeppnisstöðu hans gagn- vart Islandsbanka-FB A verulega. Jafnframt má telja líklegt að þessi kaup blási nýjum krafti í starfslið Landsbankans, en ekki er ólíklegt að þröng sþaða bankans í kjölfar samein- ingar Íslandsbanka-FBA hafi haft neikvæð áhrif á starfsandann innan bankans. Þegar á allt þetta er litið verður að telja, að þessi þróun mála á vettvangi Landsbankans sé hagstæð fyrir fjár- málamarkaðinn því að hún mun skapa meira jafnvægi í samkeppni á milli stóru bankanna. En jafnframt vakna spurningar um hver viðbrögð Búnaðarbankans verða. Innan hans hafa að vísu verið uppi önnur sjónarmið en innan Landsbankans og meiri áhugi á, að bankinn lifi sjálfstæðu lífi á grund- velli eigin styrkleika og í samstarfi við viðskiptavini bankans. Hins vegar er hætt við, að ímynd Búnaðarbank- ans skerðist ef bankinn finnur ekki sannfærandi mótleik gagnvart óvæntu útspili Landsbankans. Islenzka bankakerfið er að þróast á allt annan veg en flestir gerðu ráð fyrir. Það þarf ekki að vera neikvætt á einn eða annan hátt. Aðalatriðið er að það er komin umtalsverð hreyfing á endurskipulagningu fjármálamark- aðarins og bankakerfisins, þótt hún stefni í aðra átt en upphaflega voru hugmyndir um. Tenging við erlenda banka er já- kvæð. Þegar hugmyndir voru uppi um kaup sænsks banka á stórum hlut í Landsbankanum fyrir nokkrum misserum höfðu margir efasemdir um, að það væri skynsamlegt á þeim tíma. Síðan hefur margt gerzt og við núverandi aðstæður verður það að teljast eftirsóknarvert að erlendir bankar gerist eignaraðilar að ís- lenzku bönkunum. Slíkri eignaraðild fylgir ákveðin þekking, sem kemur íslenzku bönkunum til góða og mun hafa áhrif á starfshætti þeirra og vinnubrögð þegar fram í sækir. Þótt íslenzku bankarnir hafi verið fram- sæknir geta þeir áreiðanlega margt lært í svo nánu samstarfi við erlenda banka. AÐGERÐIR TIL BÆTTRAR UMFERÐAR SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra kynnti í gær átak til bættrar umferðarmenningar. Það hefur það meginmarkmið að minnka mannfórnir í umferðinni. Að átakinu standa, auk dómsmálaráðuneytis, lögreglan, Vegagerðin, Umferðarráð og fjölmörg fyrirtæki. Atakið kemur á réttum tíma að því leyti, að fólki er í fersku minni mörg og hörmuleg slys í umferðinni að und- anförnu, nú síðast rútuslysið við Hólsselskíl. Alls hafa fimmtán manns beðið bana í umferðinni það sem af er árinu, en á síðustu fimm árum hafa 110 manns farizt í umferðarslysum og fjöldi manna slasast meira og minna, margir hlotið örkuml. Ofan á mannfórnirnar bætist svo það gífurlega fjárhagstjón, sem þjóðarbúið í heild verður fyrir af umferðarslysum og árekstrum. Dómsmálaráðherra skýrði frá því, að kynningar- og fræðsluherferð verði beint að vegfarendum, en þó sérstaklega ungum ökumönnum. Einn þáttur átaksins verður aukið umferðareftirlit og á vegum embættis ríkislögreglustjóra og Vegagerðar munu fjórir nýir bílar annast eftirlit á þjóðvegum. Lögreglan mun beina sjónum sérstaklega að hraðakstri, beltanotkun og ölvunarakstri. Það er fagnaðarefni, að herferðinni fyir bættri umferðarmenningu skuli hrint af stað. Mannfórnirnar og tjónið í umferðinni er orðið svo mikið, að í raun er þörf þjóðarátaks til að stemma stigu við þróuninni. Þess vegna er skorað á fólk að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að bæta hér úr. Það er bezt gert með því að aka varlega og fara að settum reglum. Landsbanki íslands kaupir 70% hlut í enskum fjárfestingarbanka Morgunblaðið/Golli Kaup Landsbankans á meirihlutanum í ijárfestingarbankanum The Heritable and General voru kunngerð á fjiilmiðlafundi í gær. F.v. Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaraðherra, Sig- urður Atli Jdnsson, forstjóri Landsbréfa, Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, Leslie M. Contoudis, aðstoðarforsljóri eignarhaldsfélags First Union National Bank, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, Martin H. Young, forstjóri The Heritable and General, og Kjartan Gunnarsson, varaformaður bankaráðs Landsbankans. Ein stærstu hlutabréfaviðskipti íslensks fyrirtækis erlendis * Landsbanki Islands hf. hefur keypt 70% hlut í breska fjárfestingarbankanum Heri- table and General. Nemur kaupverðið 2,3 milljörðum króna. Ætlunin er að fjár- magna kaupin með því að auka hlutafé Landsbankans um 340 milljónir króna. Upplýsingar um First Union National Bank Höfuðstöðvarnar eru í Charlotte í Norður-Karólínu. Eignir nema um 254 milljörðum Bandaríkjadala. Innstæðureikningar geyma um 140 milljarða Bandaríkjadala. Fjöldi viðskiptavina er alls um 16 milljónir. Útibú eru í um 2.300 fjármálamiðstöðvum First Union og á um 330 afgreiðslustöðum First Union Securities. Hlutafé First Union er um 16,9 milljarðar Bandaríkjadala og nú eru 984 milljónir almennra hluta útistandandi. Hlutabréfin eru skráð í Kauphöllinni í New York (FTU á NYSE). Markaðsvirði hlutafjár áætlað um 30 milljarðar Bandaríkjadala. —,............................,..i....— LANDSBANKI íslands hf. hefur keypt 70% hlut í breska fjárfestingar- bankanum The Herita- ble and General Investment Bank Ltd. (HGI) í London. Kaupin eru meðal stærstu einstöku hluta- bréfaviðskipta íslensks fyrirtækis erlendis. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem stór erlendur banki eignast stóran hlut í íslenskum banka sem skráður er á Verð- bréfaþingi íslands. Kaupverðið nemur 19,6 milljón- um punda eða sem samsvarar um 2,3 milljörðum króna. Núverandi meirihlutaeigandi Heritable and General eru Phila- delphia International Investment Corporation (PIIC), sem er dótt- urfyrirtæki bandaríska bankans First Union National Bank, og er eignarhlutur þess 70% af hlutafé bankans. Fyrrverandi og núver- andi stjórnendur hans eiga um 30%. Eftir kaupin mun Lands- bankinn eiga 70% eignarhlut, PI- IC 25% og núverandi stjórnendur bankans um 5%. Til að fjármagna kaupin mun bankaráð Landsbanka Islands leggja það til við hluthafa að hlutaféð í bankanum verði aukið um 340 milljónir króna eða um 5% og eru samningar gerðir með fyrirvara um samþykki hluthafa- fundar. Það hlutafé mun koma að hluta til sem greiðsla fyrir hluta- bréf í Heritable and General. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segir að hluthafafundur í Landsbankanum verði haldinn miðvikudaginn 26. júlí. Gert er ráð fyrir að 4,25% af hlutafé í Landsbankanum verði í eigu First Union, en 0,8% verði seld áfram til samstarfsaðila Landsbankans. Bankaráð Landsbankans mun leggja til við hluthafa að þeir falli frá forgangsrétti sínum að hluta- fjáraukningunni. Gangi þetta eftir verður First Union, í gegnum dótturfyrirtækið PIIC, eigandi að um 4% hlut í Landsbankanum og verður þar með annar stærsti hluthafi bankans miðað við núver- andi hluthafaskrá, næst á eftir ríkissjóði. Landsbankinn með 65% og Landsbréf 5% Áætlun Landsbankans gengur út á að eign hans í breska bank- anum skiptist á milli bankans sjálfs og Landsbréfa í náinni framtíð, þannig að Landsbankinn eigi 65% og Landsbréf 5% í breska bankanum. Áreiðanleika- könnunum og samningum er lok- ið, en kaupsamningurinn er þó gerður með fyrirvara um sam- þykki fjármálaeftirlitsins á Bret- landi. Á fjölmiðlafundi í gær sögðu stjórnendur Landsbankans og Landsbréfa að með kaupunum hygðist samstæðan halda áfram á þeirri braut að auka og efla al- þjóðlega fjárfestingarþjónustu fyrir viðskiptavini sína, einkum á sviði eignastýringar, sérbanka- þjónustu og verðbréfaviðskipta. Gert er ráð fyrir að ný starf- semi Landsbankans innan HGI verði kynnt í byrjun september, en Landsbankinn mun taka við bankanum 14. september. First Union og Landsbankinn í samstarf Aðdraganda kaupanna er að rekja til þess að síðastliðinn vetur hófu starfsmenn Landsbankasam- stæðunnar könnun á hagkvæmni þess að styrkja til muna alþjóð- lega starfsemi á vegum Lands- bankans og Landsbréfa með opn- un útibús erlendis, kaupum á starfandi fjármálafyrirtæki eða nánu samstarfí við önnur fjár- málafyrirtæki, að því er fram kom á fundinum í gær. Þessi vinna leiddi til þess að í maí sl. hófust viðræður við eigendur og stjórn- endur HGI í London. Forsvarsmenn Landsbankans segja að breski bankinn sé afar vel rekinn og traustur. Hann sér- hæfir sig í ráðgjöf og útlánastarf- semi á sviði verkefnafjármögnun- ar íbúðabygginga. Lögð verður áhersla á að við- halda núverandi rekstri og styrkja hann eins og kostur er. Samhliða því munu Landsbankinn og Landsbréf bæta við nýjum starfssviðum. Samningar hafa tekist við alla helstu núverandi stjórnendur bankans um áfram- haldandi störf þeirra, þ.m.t. for- stjórann. Fljótlega mun síðan nýtt starfsfólk verða ráðið til bankans til að byggja upp starfsemi Landsbankans innan hans. Samfara eignaraðild First Un- ion í Landsbankanum hafa stjórn- endur Landsbankans og banda- ríska bankans ákveðið að taka upp samstarf á ákveðnum sviðum fjármálaviðskipta, en stefna PIIC, dótturfyrirtækis First Union, er að eignast minnihluta í völdum fjármálafyrirtækjum til uppbygg- ingar skipulegs samstarfs. Sérsviðið verkefnafjármögnunarlán til íbúðarhúsabygginga Breski fjárfestingarbankinn HGI var stofnaður í Glasgow árið 1877 í þeim tilgangi að fjármagna húsnæðiskaup og var bankinn skráður í verðbréfahöllinni í Glas- gow til ársins 1956, en þá komst hann aftur í einkaeigu og voru höfuðstöðvarnar fluttar til Lon- don. Árið 1979 varð bankinn að dótturfélagi fjárfestingarbanka- hóps, Heritable Group PLC, sem hafði með höndum fjölbreytta banka- og fjárfestingarstarfsemi. Árið 1983 gerðist fyrirtækið CoreStates minnihlutaeigandi í Heritable Group PLC, en varð meirihlutaeigandi í júnímánuði ár- ið 1993. Heritable Group PLC, ásamt meginviðskiptafyrirtæki þess, Heritable Finance Group, var selt til City Mortgage Cor- poration í júní árið 1996. Frá árinu 1996 hefur bankinn einbeitt sér alfarið að sérgrein sinni, sem felst í því að veita sérsniðin og veðtryggð verkefna- fjármögnunarlán til íbúðarhúsa- bygginga til reyndra byggingar- verktaka og húsbyggjenda. First Union keypti CoreStates fyrir 19,3 milljarða bandaríkja- dala í apríl 1998, sem fól í sér að endanlegt móðurfyrirtæki bank- ans breyttist, en hafði engar meiri háttar breytingar í för með sér varðandi viðskipti bankans eða æðstu stjórn hans. Bankinn býr að menntuðu og reyndu stjórnunarliði, en 22 starfsmenn vinna hjá honum í dag. Sjötta stærsta bankasam- stæða Bandaríkjanna Helsta þjónusta sem First Un- ion National Bank býður upp á er alhliða bankaþjónusta ásamt al- hliða miðlunarþjónustu og nú- tímalegu vöruframboði til neyt- enda, sérfræðileg fjármálaráðgjöf um peningamál, eignastýring, að- gengi að fjármagnsmörkuðum, fjárfestingarbankaþjónusta og al- þjóðleg bankaþjónusta við fyrir- tæki. Bankinn hóf starfsemi árið 1908, undir nafninu Union Nation- al Bank, með höfuðstöðvar í Char- lotte. First Union-nafnið kom fyrst til sögunnar árið 1958, þegar Union National og First National Bank and Trust Co. í Asheville, Norður-Karólínufylki, runnu sam- an og mynduðu fyrsta bankann sem hafði höfuðstöðvar í Charlot- te og rak útibú í annarri borg. First Union National Bank, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Charlotte í Norður-Karólínu, er sjötta stærsta bankasamstæða Bandaríkjanna með eignir sem nema 254 milljörðum bandaríkja- dala miðað við 31. mars 2000. Bankinn hefur mestu markaðs- hlutdeild innistæðureikninga á svæðinu frá Flórída til Conn- ecticut. Hann starfar um öll Bandaríkin og er sjötta stærsta verðbréfamiðlunarfyrirtæki Bandai-íkjanna með alls 6.900 fag- lærða og löggilta verðbréfamiðl- ara. Félagið er átjándi stærsti sjóð- stjórinn í Bandaríkjunum, stærsti veitandi íbúðalána, ellefti stærsti veitandi veðlána og meðal stærstu miðmarkaðslánveitenda á fyrir- tækjamarkaði í Bandaríkjunum. Halldór J. Kristiánsson, bankastjórí Landsbanka Islands Tímamót í íslensku fjármálalífí HALLDÓR J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbanka íslands, segir að kaup First Union á hlut í Lands- bankanum marki tímamót, þar sem erlendur aðili hafí ekki keypt svo stóran hlut í viðskiptabanka fyrr. „Vissulega er þetta mjög mikilvæg- ur áfangi, enda hefur ekki verið mik- ið um stóra erlenda fjárfestingu í ís- lensku fjármálalífi til þessa. Þetta er mjög ánægjulegur viðburður,“ segir hann. Bankaráð Landsbankans mótaði þá stefnu á fundi í júní 1999 að eðli- legt væri að fylgja eftir ákvörðun bankans um að setja upp og reka svokallaða Fortuna-sjóði á eynni Guemsey á Ermarsundi. Ákveðið var að setja upp starfsstöð í London. Kannaðir vom þrír kostir í þvi efni. I fyrsta lagi að setja upp útibú og umboðsskrifstofu fyrir Lands- bankann. í öðru lagi að Landsbank- inn byggði upp sitt eigið dótturfélag í London, sem hefði fullkomið bankaleyfi. í þriðja lagi að kaupa einingu sem þegar væri starfandi og hefði öll tilskilin bankaleyfi; starfs- fólk og húsnæði. Ákveðið að kaupa starfandi einingu „Eftir að hafa farið vandlega yfir þessa kosti komumst við að þeirri niðurstöðu að sá þriðji væri eðlileg- astur og hagkvæmastur; að kaupa starfandi einingu sem gæti hentað til uppbyggingar fyrir sérbanka- þjónustu, eignastýringu og verð- bréfaviðskipti Landsbankans og Landsbréfa. Við réðum fjármála- ráðgjafa í London í nóvembermán- uði til að leita að slíkri einingu og könnuðum 10-12 banka,“ segir Hall- dór. Eftir umræður og vangaveltur fékkst sú niðurstaða að Heritable and General Investment Bank hent- aði Landsbankanum vel. „Þar er arðsöm starfsemi fyrir; hæft starfs- fólk og auðvelt að byggja upp þá þjónustu sem við höfum í huga,“ segir Halldór. Halldór segir að 70% eignaraðild First Union-bankans, sjötta stærsta banka Bandaríkjanna, hafi styrkt tiltrú Landsbankans á The Herita- ble and General Investment Bank. „Við sáum fljótt að bankinn var afar vel rekinn, með hátt eiginfjárhlutfall og góða arðsemi heildareigna. Við áttuðum okkur einnig á því að stefnumið First Union-bankans var að eiga ekki meirihluta í erlendum bönkum. Bankinn vildi hins vegar eiga stóran minnihluta í bankanum í London og það féll afar vel að stefnu okkar,“ segir hann. First Union lýsti yfir áhuga á að fá hlutabréf í Landsbankanum sem greiðslu fyrir hlutabréf sín í breska bankanum, enda féll það vel að fyrr- nefndri stefnu um að eiga sterkan minnihluta í erlendum bönkum. „Við komumst að niðurstöðu í meginat- riðum í maí, en viðræður hafa staðið yfir í júm' og fyrrihluta júlí. Allar áreiðanleikakannanir liggja fyrii” skattalegs, lagalegs og fjárhagslegs eðlis, auk þess sem starfsmannamál eru fullkönnuð. Því er öllum þáttum samninga lokið og eini fyrirvarinn er samþykki á hluthafafundi Lands- bankans og að fjármálaeftirlit Bret- lands samþykki samningana. Halldór vill ekki viðurkenna að þessi viðskipti sýni fram á veikleika löggjafar sem takmarkar erlenda fjárfestingu í íslenskum sjávarút- vegi. „Ég vil ekki segja það. Áð mínu viti er mikilvægast að halda opnu fjármagnsstreymi í þær atvinnu- greinar þar sem erlendir aðilar geta lagt af mörkum tækniþekkingu og fjárhagslegan styrk. Þar á ég við fjármálafyrirtæki, tryggingarekst- ur og iðnrekstur margs konar. Með tilliti til þeirrar fæmi og krafts sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki búa yfir má í raun segja að erlend fjár- festing sé ekki endilega íslenskum sjávarútvegi stórkostlega mikil- væg,“ segir Halldór. Halldór viðurkennir þó að með kaupunum sé First Union að fjár- festa óbeint í íslenskum sjávarút- vegi, þar sem Landsbankinn og Landsbréf eiga talsverðan hlut í ís- lenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. „En þar er um afar smáa og dreifða hluti að ræða. Því er alls ekki hægt að tala um eignatengsl í þeii-ri merk- ingu að um ráðandi hlut sé að ræða,“ segir hann, „þessi fjárfesting First Union í Landsbankanum er ekki hugsuð bara á annan veginn. Við höfum rætt um víðtækt samstarf bankanna á milli,“ segir Halldór. Valgerdur Sverrisdóttir, viðskiptaráöherra Kaupin afar þýðingarmikil VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra telur kaupin vera afar þýðingarmikil fyrir Lands- bankann. „Bæði það að eignast stóran memhluta í banka í London sem hefur öll tilskilin leyfi sem Landsbankinn sækist eftir, og eins að fá stóran bandarískan banka sem stærsta eignaraðila í Landsbankan- um fyrir utan ríkið.“ Hún bætir við að kaupin séu ekki síður jákvæð fyrir íslenskt viðskiptalíf. Þetta sé alveg í takt við þá stefnu ríkis- stjórnarinnar að fá erlenda aðila til samstarfs við íslensku bankana. Um fyrirhugaða hlutafjáraukn- ingu Landsbankans segir Valgerð- ur að lagabreytingu þurfi ekki til þess. „Þetta eykur ekki útlánagetu bankans og er því ekki þensluhvetj- andi.“ Aðspurð um frekari sölu ríkis- sjóðs á hlut sínum í Landsbankan- um segir Valgerður að á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar sé að selja bank- ana. Þetta sé alltaf til umræðu, bæði innan viðskiptaráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar, án þess þó að nein stefna hafi verið mótuð til lengri tíma. „Við höfum sumarið til að vinna þessa vinnu þar sem þingi lauk í vor án þess að tími ynnist til að breyta lögunum. Hvað sem gert verður mun kalla á lagabreytingar," segirValgerður. Leslie M. Contoudis, aöstoöarforstjóri eignarhaldsfélags Rrst Union Landsbank- inn er fram- sýn stofnun LESLIE M. Contoudis er aðstoðar- framk\'æmdastjóri Philadelphia Int- emational Investment Corporation, sem er eignarhaldsfélag First Union og nú stærsti einkahluthafi Lands- banka Islands. Hún segir að kaupin á 4% hlut í Landsbankanum séu í sam- ræmi við stefnu First Union, að vera virkur minnihlutaeigandi í fjármála- fyrirtækjum um víða veröld. „Markmið okkar er að sjálfsögðu að fjárfestingar skili sem mestmn arði fyrir hluthafa okkar. Einnig viljum við færa út kvíamar og útvíkka starfsvið First Union,“ segir hún. „Við eram langtímafjárfestar og er- um sífellt að leita að nýjum tækifær- um,“ segir Leslie. Leslie segist vera bjartsýn fyrir hönd Landsbankans. „Við kynnt- umst fyrirtækinu þegar við leituðum fyrir okkur um sölu á hlut í The Heri- table and General Investment Bank í London. Við komumst að þvi að Landsbankinn er afar framsækin fjármálastofnun og opin fyrir nýj- ungum. Hann er auðvitað einn af leiðtogunum á íslenskum banka- markaði," segir hún. Leslie segir First Union hafa vitað af þeim áætlunum íslenska ríkisins að minnka hlut sinn í Landsbankan- um, en hann nemur nú 72%. „Það er okkur heiður að starfa með íslensk- um stjómvöldum, en fyrirætlanir um sölu á hlut ríkisins hafa ekki áhrif á stöðu okkar sem hluthafa í Lands- bankanum. Við einbeitum okkm- að því að koma á viðskiptasamstarfi milli Landsbankans og First Union,“ segir Leslie. Býður hugsanlega upp á íslensk hlutabréf vestanhafs Leslie segir að ekki sé að fullu ákveðið hvemig samstarfi bankanna tveggja verði háttað. Sérfræðingar frá hvoram banka muni hittast á reglubundnum fundum og miðla af reynslu sinni og þekkingu. „Hluti af samstarfssamningi bankanna snýst um að þetta samstarf verði samfellt. Stjómendur Philadelphia Intema- tional Investment Bank og Lands- bankans munu hittast ársfjórðungs- lega og ákveða samstarfssvið," segir Leslie. First Union er sjötta stærsta verð- bréfamiðlunarfyrirtæki i Bandaríkj- unum. Leslie segir að vel geti verið að bankinn bjóði hlutabréf í íslensk- um fyrirtækjum til sölu í Bandaríkj- unum. „Við hyggjum á náið samstarf við Landsbréf og vonumst til að taka þátt í þeirri þróun sem óneitanlega á sér stað með auknum áhuga á íslandi sem fjárfestingarkosti,“ segir hún. Sjötti stærsti banki Bandaríkjanna First Union National Bank, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Charlotte í Norður-Karólínu er sjötta stærsta bankasamstæða Bandaríkjanna með eignir sem námu 254 milljörðum' bandaríkjadala 31. mars 2000. FUNB hefur mestu markaðshlut- deild innstæðureikninga á svæðinu frá Flórída til Connectieut. FUNB starfar um öll Bandaríkin og er sjötta stærsta verðbréfamiðl- unarfyrirtæki Bandaríkjanna með alls 6.900 faglærða og löggilta verð- bréfamiðlara. Félagið er átjándi stærsti sjóðstjórinn í Bandaríkjun- um, stærsti veitandi íbúðarlána og ellefti stærsti veitandi veðlána. FUNB er meðal stærstu miðmark-^ aðslánveitenda á fyrirtækjamarkaði í Bandaríkjunum. Viðskiptavinir First Union era 16 milljónir talsins. Martin H. Young, forstjóri The Heritable and General Engar meiri- háttar breytingar á núverandi starfsemi MARTIN H. Young, forstjóri The Heritable and General, segir að kaup Landsbankans á bankanum séu afar spennandi hvað stjórnun varðar. „Við munum tileinka okkur í nokkrum mæli íslenskar aðferðir. Ég sé fyrir mér að við getum byggt upp öfluga og virta sér- bankaþjónustu." Young segii’ að hugmyndin að sölunni hafi orðið til hjá stjórnend- um bankans. „Við bentum meiri- hlutaeigandanum, First Union, á hversu agnarsmár bankinn væri í samanburði við bandaríska bank- ann. I framhaldi af því ákváðu stjórnendur First Union að selja meirihluta sinn.“ - Young segir að núverandi starf- semi ljárfestingarbankans muni ekki taka neinum meiriháttar breytingum eftir kaupin. „Seljend- ur meirihlutans töldu það mikil- vægt við söluna að þetta yrði óbreytt. Auðvitað koma svo inn einhverjar nýjungar með nýjum meirihlutaeiganda. Við munum ef- laust bæta við þjónustuþáttum og þar af leiðandi nýjum starfsmönn- um, m.a. frá Landsbankanum." Aðspurður segir Young að bank- inn sé ekki stór í samanburði við aðra banka í London. Afkoma hans ^ sé þó afar góð og hafi verið það lengi. „Eitt af því sem ég tel að hafi vakið mikinn áhuga hjá stjórn- endum Landsbankans er að yfir- stjórnendur Heritable and General hafa starfað lengi hjá bankanum. Þeir standa því ekki á byrjunarreit eftir kaupin. Kunnáttan er til stað- ar í bankanum í London.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.