Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 41

Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 41 Open Class et svar pá pensefilaíelien PrimerktíutstlHingcr «r víktígc uv flcre gnmncr, Dc fle»tc mcn* in'sker bar ei twtui% beliov for á vise f'retn og opjma anerkjen* ttelMs for det cU* bur latjct elicr utretlct. Bt slikl bcbov hnr ogsá vi friinerkesamlcre. Jrniclk'rtíd hur klftsMskc fri- markeutgftvcr og brev kommet opp pá et irieget hpy ptiwiívk. og spesiclt har objekter i iuksuvk* vuliiet oppnádo hoye murkeds' priw?r |>ö iuiksjotwr, Dette fuir fort til ut utstiliínpfilateii i tru* disjoncU foi>uw>d. spcsieli pft ín- Jeiktntannit ni.viL imiiluliLa aitii. forheholdt pereoner med "fete lommeboker'', Det cr derí’or bebov for cn utvikling og tbrnyelwí inncií ulMÍUingsfilatölíen, siik at det hlir mullg ogsft for ánmJere mod hegnmsede okonomíske restwr* ser í\ va-rc aktjvc win utstíllere. Den relmívt nye "Open CIösh" dcr utBtilknmo cgvn ímtsats og krcfltivJtet tillegges stdrre vekt, byr j>íi imcressönte muiighctcr fór «lle. Dct var uledclijj n sc tten nordiiike utótilííngcn NÖR* DIA 2(XK) i $ol!eniunð i Sveríge 1 faiTÍec niáncd. "Ötwn Clus*" omfattct her hele 70 ckspona KOtn ejcrinomgáendc lc pá iutyt fflvft; 60% ov eks{>oimii <mpnftdde «n pocngsum pft tííler hoycrc De ílc«c uwtiílenw? k ituturlig nok fn Svcrige *om varrt ci foregtingslond fw de kÍAMen. IX’t var barc fi nor cksponater, mcn uJle oppná meget ftnc resuluuer; fra 72 cng tll H5 poen^ plu*> icresjJí icg vii orbcíde for ut tíc! kliiMCn hhr uncrkjem mv li verdíg med rk mer tradisjon utstilíínKskJasKf - ogsá intci xjormit. fct skriu i dcn rctníutí nm pá et i«0ttí mellorn Jed« lor de nordiske lunds forhui fcbruar ifo vi bJe cnígc om tt I feiies mirdisk regletnetit wg ningslirtjer for klosscn. _________________________Tn Hugleiðingar um frímerkja- sýningar FRÍMERKI Umsjón Jón Aðal- steinn Jónsson STUNDUM hefur hvarflað að mér að taka greinar eða a.m.k. efni úr ýmsum þeim frímerkja- blöðum, sem ég fæ, traustataki og birta í þáttum þessum, því að margt af því á erindi til allra safnara, hvar svo sem þeir ala manninn. Raunar hef ég stöku sinnum gert þetta. Hins vegar varpa ég þeirri spurningu nú fram, hvort lesendum þáttanna þyki fengur í þessu aðfengna efni. Vildi ég gjarnan heyra álit sem flestra, annaðhvort skriflega eða munn- lega. Þar sem ég hef bæði þjóð- net (internet) og tölvupóst, mega lesendur, sem það geta, fara þá leið til mín. Póstfang mitt er: jaj@simnet.is. Eins mættu safnarar senda mér ábendingar eða hugleiðingar um frímerkjaefni sömu leið, ef þeir hafa vilja til og tök á. I síðasta þætti var vikið nokk- uð að gildi frímerkjasýninga fyr- ir safnara. Þar ræddi ég m.a. um þá erfiðleika, sem venjulegir safnarar eiga við að etja til þess að koma söfnum sínum á sýning- ar, einkum þó á alþjóðasýningar. Um þetta hugsa eimitt margir safnarar og finnst um leið, að nálaraugað sé nokkuð þröngt og kostnaðarsamt til þess að kom- ast svo langt með söfn sín. Grein í blaði norska Lands- sambandsins, nr. 4 2000, eftir formann þess, Trygve Karlsen, vakti eftirtekt mína og ekki sízt fyrir það, að ekki er langt síðan ritstjóri blaðsins, 0yvind Refs- nes, var látinn taka pokann sinn fyrir grein, þar sem hann deildi - og að mínum dómi ekki að öllu leyti að ástæðulausu - á stefnu ýmissa stjórnarmanna í lands- samböndum frímerkjasafnara á Norðurlöndum og eins á stjórn- armenn FIP í sýningarmálum. Ég leyfi mér því að birta þessa grein úr blaðinu lesendum þátt- arins til umhugsunar. Fyrirsögn greinarinnar hljóð- ar svo: Opinn flokkur svar við peningafrímerkjasöfnuninni (pengefilatelien). Svo segir Trygve: „Frímerkjasýningar eru mikilvægar af mörgum ástæð- um. Flestir hafa eðlilega þörf íýrir að sýna og fá viðurkenn- ingu fyrir það, sem þeir hafa gert eða komið í kring. Slíka þörf höfum við frímerkjasafnar- ar einnig. Jafnframt hafa „klassískar" frímerkjaútgáfur og bréf náð mjög háu verðstigi (prisnivá). Sérstaklega hafa hlutir í hæsta gæðaflokki náð háu markaðs- verði á uppboðum. Af þessu hef- ur leitt það, að sýning frímerkja í hefðbundnum flokki, einkum á alþjóðasýningum, virðist bundin þeim, sem eru með digur pen- ingaveski. Hér er þess vegna þörf fyrir þróun og endurnýjun innan frímerkjasýninganna, svo að þeir safnarar, sem hafa tak- mörkuð fjárráð, geti einnig orð- ið virkir sýnendur. Hinn tiltölulega nýi „Opni flokkur", þar sem eigið framlag og sköpunargáfa sýnandans fær meira vægi en áður, býður öllum upp á skemmtileg tækifæri. Var ánægjulegt að sjá norrænu sýninguna, NORDIA 2000, í Sollentuna í síðasta mánuði [það var í marz sl.]. í „Opnum flokki“ voru 70 sýningarefni, sem var yfirleitt á háu stigi (hoyt nivá): 60% af þessu efni náði 70 stigum eða hærra en það. Flestir sýnendur komu að sjálfsögðu frá Svíþjóð, en það land hefur haft forystu í þessum flokki. Einungis 6 norsk sýning- arefni voru í þessum flokki, en öll hlutu þau góð verðlaun eða frá 72 stigum upp í 85 stig og þar að auki heiðursverðlaun. Ég vil vinna að því, að þessi flokkur verði viðurkenndur til jafns við hefðbundna flokka - einnig á alþjóðavettvangi. Eitt skref var tekið í þá átt á fundi með formönnum norrænu lands- sambandanna í febrúar, þegar við urðum sammála um að semja sameiginlegar norrænar reglur og stefnumið fyrir flokkinn." Þannig hljóðar grein for- manns norska Landssambands- ins, og á ég von á því, að hún fái hljómgrunn með íslenzkum frímerkjasöfnurum. Eins og fram kemur í lok greinarinnar, urðu formenn norrænu lands- sambandanna sammála um nýj- ar reglur og stefnumið fyrir Op- inn flokk. Trúlega hefur þetta eitthvað verið rætt innan stjórn- ar L.Í.F., en ekki hef ég orðið var við, að stjórnin hafi látið hina almennu safnara vita, hvað þarna gerðist. En þetta varðar fyrst og fremst þá, eins og fram kemur í grein Trygve Karlsens. Finnst mér það heldur mikið tómlæti af hálfu stjórnarinnar að hafa ekki komið þessari síð- ustu afstöðu norrænu samband- anna til Opna flokksins á fram- færi við safnara hér heima. Margur safnarinn hlýtur einmitt að gleðjast yfir þeirri stefnu- breytingu, sem hér er að verða í sýningarmálum, enda er alveg ótækt - og engan veginn í anda frumkvöðla frímerkjasöfnunar - að útiloka almenna, áhugasama safnara frá sýningum, einungis vegna þess, að þeir hafa ekki tök á að safna mjög sjaldgæfu og kostnaðarsömu kiassísku efni. FASTEIGNASALA FAXAFENI 5 SÍMI 533 1080 FAX 533 1085 EYJA HRAPPSEY - BREIÐAFIRÐI. Höfum fengið í einkasölu Hrappsey, einstaka náttúruperlu á Breiðafirði. Einstakt fuglalíf og gróðurfar. Eyja með merka sögu. Uppl. gefur Sveinn. NYBYGGINGAR HRAFNSHOFÐI - MOSFELLSBÆ. Glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Fjögur svefnherbergi og góðar stofur. Húsið er timburhús á steyptum sökkli. Afhendist fullbúið að utan með gróf- jafnaðri lóð en fokhelt að innan. Teikn- ingar á skrifstofu. Verð 15,5 millj. BAUGATANGI - SKERJAFJORÐUR. Höfum tvö stórglæsileg einbýlishús til sölu í Skerjafirðinum. Húsin eru einlyft með tvöföldum bílskúr. Alls 210 fm Húsunum verður skilað fullfrágegnum að utan en fokheldum að innan. Gróf- jöfnuð lóð. Góðar stofur og 3 svefnher- bergi. Teikningar á skrifstofu. HVERAFOLD - GRAFARVOGUR. Huggulegt 125 fm einlyft einbýlishús í Foldunum. 60 fm bílskúr. Húsið er úr timbri. 4 svefnherbergi. Fallegur garö- ur meö miklum gróðri. Verð 18,2 millj. Bratji Bjtitasson Börktir Hrnfnr>son Mnrjnús Inifi Svcinn loifimiöur löffinnúur f.tlimjsson Gtiðiniiiulssoti löffinnður lofjmadur I0gg fíistfíignusnli Fagleg þjótiusta lögmann.i tryggir örugg vidskipti SUMARHUS GRAFARVOGUR - STARARIMI. Vel skipulagt 136 fm einbýlishús auk 40 fm tvöfalds bílskúrs í rólegu hverfi. Þrjú svefnherbergi. Björt stofa og rúmgott eldhús. Stór suðurgarður. Húsið er ekki að fullu frágengið. —0 J , « i L: :: I . C_' • *- | I p ■ HÓLAHJALLI - KÓPAVOGI. Fallegt einbýlishús á einstökum útsýnisstað í Kópavogi. Húsið er tvilyft 210 fm auk bilskúrs. Húsinu verður skilað fullfrá- gengnu að utan en fokheldu að innan. Grófjöfnuð lóð. EINBYLISHUS BREKKUGERÐI - AUSTURBÆR. Stórt og glæsilegt tvílyft einbýlishús á besta stað. Tvær ibúðir eru í húsinu. Efri hæð, stórar stofur og gert ráð fyrir 4 svefnherbergi. 2-3 herbergja séríbúð á neðri hæð með sérinngangi. Stór tvöfaldur bílskúr og fallegur garður með miklum gróðri. Garðskáli. Húsinu hefur verið haldið vel við. Tilboð ósk- ast. SUÐURVANGUR - HAFNARFIRÐI. Vel skipulögð íbúð í nýviðgerðri blokk. Nýlegt baðherbergi, Eldhús með eldri en góðri innréttingu. Snyrtileg og vel um gengin íbúð í rólegu hverfi. Verð 11,8 millj. ATVINNUHUSNÆÐI GRAFARVOGUR - STAKKHAMR- AR. 170 fm bjart einbýlishús á einni hæð. Fjögur rúmgóð svefnherbergi. Góð stofa og eldhús. Innangengt úr húsi í innbyggðan bílskúr. Góð stað- setning á eftirsóttum stað. SELTJARNARNES - SKERJA- BRAUT. Þrilyft timburhús með klæðn- ingu. Rúmgott hús með með góðum afgirtum garði. Húsið er allt endurnýj- að að innan. Mjög bjart, stórt og fallegt eldhús. Nýlegar raflagnir. Gott hús fyr- ir stóra fjölskyldu. GRAFARVOGUR - LOGAFOLD. Glæsilegt 170 fm einbýlishús meö 75 fm bílskúr á besta stað í Grafarvogi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og stór stofa. Glæsileg lóð og mjög stór, góð- ur bílskúr. Stutt í skóla og alla þjón- ustu. Mikið áhvílandi. Tilboð óskast. HÖFUM STÓR GLÆSIHÚS Á SKRÁ SEM HENTAÐ GETA STÓRFJÖL- SKYLDUNNI. 4 HERBERGJA KLUKKUBERG - HAFNARFIRÐI. Vorum að fá í einkasölu glæsilega 4ra herbergja íbúð í nýlegri blokk. Ibúðin er alls 104 fm á tveimur hæðum með sérinngangi. Parket og dúkar á gólfum. Óvenjufallegt útsýni. lagt 38,2 fm sumarhús, auk svefnlofts, í landi Miðengis. Landið er lyngmosa- mói með lágvöxnu birkikjarri. Góð flöt fyrir leiksvæði. Failegt útsýni. Verð 4,5 millj. SKORRADALUR. Óvenjuvandað 60 fm sumarhús auk svefnlofts í Skorra- dal. Útsýni yfir vatnið og falleg fjalla- sýn. Landið vaxið mannhæðarháum birkikvistum. Bústaðurinn afhendist til- búinn til klæðningar og innréttinga að innan. Vatn og rafmagn komið í bú- staðinn. Verö 5,7 millj. GLÆSILEGT SUMARHÚS TIL FLUTNINGS. Sérlega glæsilegt og vandað sumarhús til sölu. Húsið er fullbúið og tilbúið til flutnings. Allur frágangur á húsinu er til fyrirmyndar. Hentugt fyrir félagasamtök eða þá sem vilja mjög vandað sumarhús. Verð 6,8 millj. SUMARHUSALODIR MÝRAKOT - ÓDÝRT. Góð lóð, 1/2 hektari að stærð, í landi Mýrakots. Raf- magn og kalt vatn komið að lóðar- mörkum. Möguleiki á heitu vatni. Fyrir- liggjandi samþykktar teikningar að sumarhúsi á lóðinni. Verð aðeins 350.000. REYKJAVELLIR. Vorum að fá í sölu tvær góðar eignarlóðir í landi Reykja- valla. Örstutt í Reykholt þar sem er öll nauðsynleg þjónusta, þ.m.t. sundlaug. Skemmtilegar göngu- og reiðleiðir í nágrenninu. Útsýni að Heklu. Raf- magn, heitt og kalt vatn á svæðinu. Verð 600.000-700.000. KLAUSTURHÓLAR. Góð eignarlóð í Grimsnesi í landi Klausturhóla. Raf- magn, heitt og kalt vatn lagt að lóðar- mörkum. Verð 500.000. MÝRAKOT. Tvær eignarlóðir í skipu- lögðu sumarhúsahverfi í landi Mýra- kots. Vinsælt hverfi. Verð 500.000, hvor lóð. HELLUDALUR VIÐ GEYSI. Kjarrivax- ið eignarland, u.þ.b. 1/2 hektari, stein- snar frá Gullfossi og Geysi. Heitt og kalt vatn að lóðarmörkum og stutt í raf- magn. Verð 950.000. FOSSVOGUR Höfum á skrá bæöi einbýlishús og rað- hús i Fossvogi í skiptum fyrir raðhús á einni hæð eða glæsilegar stórar íbúðir í sama hverfi. LEITUM AÐ LEITUM AÐ atvinnuhúsnæði fyrir traust fyrirtæki á verðbilinu 50 til 70 milljónir. Húsnæði þarf að vera 800-1000 fm með góðum innkeyrslu- dyrum og skrifstofuaðstöðu. HÖFUM FJÁRSTERKA KAUPEND- UR að einbýlishúsum, helst á einni hæð með góðum bílskúr, á verðbilinu 25 til 35 milljónir. FYRIRTÆKI SKÚLAGATA. Um 93 fm nýlegt at- vinnuhúsnæði í húsi byggðu 1990 á eftirsóttum stað í nýja Skúlagötukjarn- anum. Hentar fyrir ýmsa þjónustustarf- semi og verslunarrekstur. Verð 11,8 milljónir. SUÐURLANOSBRAUT. Um 159 fm verslunarrými á besta stað við Suður- landsbrautina. Góð aðkoma og bíla- stæði. Hentar fyrir verslunar- og þjón- ustustarfsemi hverskonar. AUGLYSINGASTOFA. Helmingur í góöri auglýsingastofu með trausta við- skiptavini til sölu. Þetta er fyrirtæki með mikla vaxtarmöguleika. Uppl. gef- ur Sveinn. FJÖLRITUN. Fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjölritun, setningu og frágangi er til söiu. Góð velta og tekjumöguleikar. Fyrirtækið er vel staðsett. Uppl. gefur Magnús. VANTAR - VANTAR - VANTAR Vegna mikiller sölu vantar okkur allar geröir eigna á söluskrá. Við metum eígnina J)ína, þér að kostnaðarlausu, Jiegar |>ér hentar. Fagleg þjónusta lögmanna tryggir örugg víðskipti meö eígnina |>ína. I|róttir á Netinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.