Morgunblaðið - 19.07.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 45_
FRETTIR
Uthlutun styrkja úr
Barnamenningarsj óði
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum
úr Barnamenningarsjóði. Auglýst
var eftir umsóknum 4. apríl sl. og
rann umsóknarfrestur út 3. maí. Alls
sóttu 35 aðilar um styrki til 38 verk-
efna. Úthlutað var styrkjum samtals
að fjárhæð 2.240 þús. kr. til eftir-
talinna 16 verkefna:
1. Áslaug Jóhannsdóttii', Barna-
spítala hringsins, leikstofa vegna
menningarviðburða fyiir veik börn.
80.000 krónur.
2. Gunnar Karlsson til undirbún-
ingsvinnu fyrir útgáfu á gagnvirkum
margmiðlunardiski byggðum á
Grýlusögu eftir Gunnar Karlsson.
120.000 krónur.
3. Kirkjulistavika á Akureyri til
flutnings helgileiksins Ferðin til lífs-
ins. 150.000 krónur.
4. Listahátíð ungs fólks á
Austurlandi, L.ung.A vegna fyrstu
listahátíðar ungs fólks á Austurlandi
2000.120.000 krónur.
5. Listasafn Reykjavíkur,
fræðsludeild, vegna hugmynda- og
þróunarvinnu við verkefnið: Er list-
in þraut? 120.000 krónur.
6. Magnea Sverrisdóttir, æsku-
lýðsfulltrúi, til verkefnisins: Ævi og
starf Hallgríms Péturssonar.
150.000 krónur.
7. Miðstöð nýbúa til tónleikahalds
og kórstarfs fjölmenningarlegs
barnakórs. 100.000 krónur.
8. íslandsdeild Bin) Norden, Rak-
el Pálsdóttir, þjóðfræðingur, til upp-
setningar heimasíðu samtakanna og
tölvupóstlista fyrir umræðuvettvang
um barnamenningu. 100.000 krónur.
9. Safnasafnið til efniskaupa,
flutningskostnaðar og kynningar
útisýningar á hreyfiverkum nem-
enda í Myndlistarskólanum á Akur-
eyri. 80.00 krónur.
10. Skógarmenn KFUM vegna
Listasmiðju í Vatnaskógi.150.000
krónur.
11. Stoppleikhópurinn til uppsetn-
ingar á leikinni ljóðadagskrá fyrir
unglinga. 200.000 krónur.
12. Tónmenntakennarafélag ís-
lands vegna norræns barnakóra-
móts á íslandi, Norbusang 11, 31.
maí til 4. júní. 150.000 krónur.
13. Tónstofa Valgerðar til hljóð-
færakaupa fyrir tónleikahald fatl-
aðra nemenda. 200.000 krónur.
14. Þjóðlaghátíðin á Siglufirði,
Gunnsteinn Olafsson vegna barna-
dagskrár á þjóðlagahátíðinni á
Siglufirði. 120.000 krónur.
15. Þjóðlagasveitin Embla til að
kynna íslenskan þjóðlagaarf fyrir
leikskólabörnum. 200.000 krónur.
16. Örn Ingi Gíslason til að gera
kvikmynd með þátttöku unglinga
sem fjallar á siðbætandi hátt um
unglingsárin. 200.000 krónur.
Þrjú iðnfélög styrkja at-
vinnuendurhæfingu öryrkja
FÉLAG bókagerðarmanna, Bfl-
iðnaðarfélagið og Trésmiðafélag
Reykjavíkur afhentu íyrir nokkru
Janusi Endurhæfingu styrk að upp-
hæð 500.000 kr. hvert félag um sig.
Þetta framlag félaganna styrkir fjár-
hagslegan grundvöll verkefnisins og
er mikilvæg viðurkenning og hvatn-
ing fyrir starfsfók Janusar Endur-
hæfingar, segir í fréttatilkynningu.
Einnig segir meðal annars: „Únd-
anfarin ár hefur Sameinaði lífeyris-
sjóðurinn fundið fyrir því eins og
aðrii' lífeyrissjóðir hér á landi að
fleiri úrræði hefur skort við endur-
hæfingu öryrkja. A síðasta ári skip-
aði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis
og tryggingamálaráðherra starfshóp
sem í voru tryggingayfirlæknir, full-
trúar frá heilbrigðis-, mennta- og fé-
lagsmálaráðuneyti auk fulltrúa Sam-
einaða lífeyrissjóðsins. Nefndin lauk
störfum í júní 1999 og mælti með því
að ráðist væri í tilraunaverkefni um
endurhæfingu öryrkja. I framhaldi
af því hafa ráðuneytið og Sameinaði
lífeyrissjóðurinn tekið höndum sam;
an við að koma verkefninu af stað. I
ár styrkir heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið verkefnið um 8,5
milljónir en áætlað er að verkefnið
kosti 25 millj. kr.
Stofnað hefur verið einkahlutafé-
lagið Janus Endurhæfing ehf. sem
alfarið er í eigu Sameinaða lífeyris-
sjóðsins.
Endurhæfingin er til húsa í Vörðu-
skóla sem er hluti af Iðnskólanum í
Reykjavík og fer þar m.a. fram fjöl-
breytt fræðsla. Þrír iðjuþjálfar, fé-
lagsráðgjafi og sjúkraþjálfari starfa
að verkefninu. Auk þess veita lækn-
ar og sálfræðingur aðstoð.
Nýjungin er sú að komið er á sam-
vinnu mennta- og heilbrigðiskerfis-
ins um endurhæfinguna. Þannig
gefst þátttakendum kostur á að
skoða möguleika sína til atvinnu og
auka við menntun sína. Þess ber þó
að geta að þetta er ekki hefðbundin
menntun, engin lokapróf eru tekin
og hver og einn fer í gegnum endur-
hæfinguna/námið á sínum hraða.
Framhald verkefnisins
Gert er ráð fyrir að safna því fé
sem á vantar 15-16 millj. kr. með
frjálsum framlögum á einu til tveim-
ur árum, m.a. frá þeim sjóðum og
fyrirtækjum sem hér eiga hlut að
máli. Tilraunaverkefninu lýkur í
sept. 2001. Niðurstöðurnar verða þá
afhentai' heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu og þeim aðilum
sem koma til með að styrkja verkefn-
ið. Það er síðan á þeirra valdi að taka
ákvörðun um framhaldið."
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Erlendur Erlendsson, eigandi og framkvæmdarstjóri ásamt hundinum
sínum Randveri.
Blikksmiðja
austurbæjar ehf.
BLIKKSMIÐJA austurbæjar ehf.
hefur flutt starfsemi sína um set.
Frá stofnun, árið 1972, hefur fyrir-
tækið verið til húsa að Borgartúni
25. Nú þegar stendur til að rífa það
til að rýma fyrir nýju og stærra
húsi og ekki hefur reynst unnt að fá
viðunandi húsnæði í næsta ná-
grenni, varð að ráði að flytja starf-
semina að Súðarvogi 6. Nýja hús-
næðið er bæði stærra og betur
fallið til starfseminnar, enda eru
bæði eigendur og starfsmenn mjög
ánægðir á nýja staðnum. Enn sem
fyrr er sinnt hvers kyns þjónustu
við fyrirtæki og einstaklinga, bæði
hvað viðgerðir varðar, sem og ný-
smíði. Helsta framleiðsla er loft-
ræstikerfi og margskonar sérsmíði
úr ryðfríu stáli og áli. Þakrennur og
niðurföll ásamt köntum, skotrenn-
um og skyldum vörum eru auðvitað
hefðbundinn þáttur í framleiðslu og
þjónustu fyrirtækisins.
Antikikonar í Viðey
NÚ í sumar stendur yfir í Viðeyjar-
stofu sölusýning á rússneskum antik-
ikonum og róðukrossum. Viðeyjar-
ferja fer frá Sundahöfn út í Viðey
mánudaga-miðvikudaga kl. 13,14 og
15. Fimmtudaga kl: 13, 14, 15, 19,
19:30 og 20 og laugardaga-sunnudaga
kl: 13,14,15,16,17,19,19.30 og 20.
Daglegar eyjasigl-
ingar á Skagafirði
FERÐAÞJÓNUSTAN Lónkoti í
Skagafirði býður upp á daglegar
eyjasiglingar á Skagafirði. Ferðin
sem er farin heitir Gullni þríhyrning-
urinn, en það er sú þrenning sem
setur hvað mestan svip á Skagafjörð,
Þórðarhöfði, Drangey og Málmey.
Siglt er hjá svipmiklu 200 metra háu
og þverhníptu berginu í Þórðar-
höfða, þá að klettinum Kerlingu við
Drangey og farið í land í eyjunni, og
á heimleið siglt umhverfis Málmey.
Ferðin er um 4 tíma löng. Farið er
kl. 10 á morgnana. Einnig bjóðast
aðrar ferðir sem farnar eru eftir
pöntunum eða óskum ferðamanns-
ins. Sjóstöngin er ætíð höfð með um
borð. Daglegar eyjasiglingar eru frá
Lónkoti tímabilið 20. júní til 20.
ágúst.
BRIDS
IJmsjon Arnór G.
Ilagnarsson
Bikarkeppni Bridssam-
bandsins - önnur umferð
Nú fer hver að verða síðastur að
spila leikina í annarri umferð bik-
arkeppninnar en síðasti spiladagur
er á sunnudaginn kemur.
Úrslit sem liggja fyrir eru þessi:
Sveit Hermanns Lárussonar
vann sveit Guðrúnar Óskarsdóttur,
91-89. Eskey vann sveit Halldóru
Magnúsdóttur, 97-81. Sveit Hlyns
Garðarssonar vann sveit Sigríðar
Hrannar, 161-93. Sveit Hjördísar
Sigurjónsdóttur vann sveit Máln-
ingar. Norðurís vann TNT, 146-90,
og sveit Orkuveitu Reykjavíkur
vann sveit Kristjáns Ö. Kristjáns-
sonar, 117-65.
Eins og áður sagði er síðasti
spiladagur á sunnudag og verður
dregið í þriðju umferð þá þegar.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í As-
garði Glæsibæ mánud. 10. júlí. 20
pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Þórarinn Arnason - Fróði B. Pálsson 265
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórss. 263
Halldór Magnúss. - Páll Hanness. 259
Árangur A-V:
Júlíus Guðmundss. - Olíver Kristóferss. 252
AuðunnGuðmss.-AlbertÞorsteinss. 250
Hjálmar Gíslas. - Viggó Nordquist 240
Borgarnesi fim. 20/7
Reykjavík, í laugardal
fös. 21/7 kl. 19 - lau. 22/7 kl. 17 og 19
sun. 23/7 kl. 17 og 19 - mán. 24/7 kl. 19
þri. 25/7 kl. 19 - mið. 26/7 kl. 19
fim. 27/7 kl. 19 - fös. 28/7 kl. 19
Miðasala opin daglega frá klukkan 14 H
Beza
MEWNTAMAI____
staf íyrlr staf.
Til brúðkaups- og
tækífærísgjafa.
Sérmerkt bollapar fylgir.
10 gerðir.
17773 Einar
ÍMM Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900