Morgunblaðið - 19.07.2000, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 19.07.2000, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ rtm". |i | yu linmiliiriin f S L A N D ■ ▲ BRAVO 1505 • 150x100x35 • 500 kg -Kr. 89.000,- ▲ BRAVO 205E • 202x112x35 • 500 l<g -Kr. 119.000,- ▲ BRAVO 225 • 225x145x30 • 746 Irg -Kr. 145.000,- ▲ Ál 1205 NýlT • 203x128x30 • 500 Itg-Kr. 158.000,- ▲ BRAVO310TB* 310x168x30 • 1.600 kg- Kr. 295.000, A. E-750stórogsterl< • 260x130x40 • Kr. 189.000,- ▲ Alhliðo flutningsvagn • 400x180x24 • 2.400 kg A Ekto bíloflutningovogn • 2.500 kg ▲ Mótorhjólavognfyrir 1-2 hjól Súrefnisvörur Karin Herzog Silhouette KIRKJUSTARF ÍDAG Safnadarstarf Sumarferð Askirkju, safnaðarfé- lags og kirkjukórs SUMARFERÐ Áskirkju, safnaðar- félags og kirkjukórs verður farin sunnudaginn 23. júlí nk. Lagt verður af stað frá Áskirkju kl. 8.30 árdegis. Messað verður í Prestbakkakirkju, Kirkjubæjarklaustri. Sr. Árni Berg- ur Sigurbjörnsson prédikar, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari. Léttur hádegisverður verður í Höfðabrekku. Á Hótel Hvolsvelli verður snæddur kvöldverður. Verð fyrir fullorðna kr. 4.000 og fyrir börn kr. 2.000. Vinsamlega tilkynnið þátt- töku fyrir fímmtudaginn 20. júlí til eftirtalinna: Erla sími 553-4784, Guðrún sími 553-0088, Þóranna sími 568-1418 og Guðrún B. sími 581- 2044. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á eftir. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrirbænir kl. 18. Selljamarneskirkja. Orgelleikur kl. 12-12.30. Léttar veitingar á eftir í safnaðarheimilinu. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu á eftir. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í kirkjunni á fimmtudögum í júlí kl. 10.30-12. Ýmislegt til fróðleiks og skemmtunar, kaffí á könnunni. Um- sjón hefur Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni. Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna- stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk- um, allir velkomnir. Tekið á móti fyr- irbænaefnum í kirkjunni og í síma 567-0110. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar- stund kl. 12. Hugleiðing, altaris- ganga, fyrirbænir, léttur málsverður á eftir í Ljósbroti, Strandbergi kl.13. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 20 ópið hús unglinga í KFUM & K húsinu á Vestmannabraut. Fíladelfía. Biblíulestur kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. VELVAKAJMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þakkir fyrir endursýningar EG sem er komin á þenn- an títt um talaða eftir- launaaldur og greiði tæp 40% af lífeyrissparnaði til okkar blessaða íslenska ríkis, vil þakka ríkissjón- varpinu fyrir endursýn- ingar frá fyrstu árum sjónvarpsins sem vekja upp yndislegar endur- minningar frá því maður var ungur - eins og sjón- varpið var þá. 1974 - er við nokkur saman ókum til Laugar- vatns daginn fyrir þjóðhá- tíð og gistum þar. Fórum í Laugarvatnsgufubað og ókum að morgni til Þing- valla Lyngdalsheiði og sungum Fanna skautar faldi háum alla leiðina. Þvílíkur dýrðardagur. Sérlega gaman var í kvöld að hlusta á og sjá ræðu HKL sem ég man þó ekki frá 1974. Ég sá hann fyrir mér yrkja: Stóð ég við Öxará - hvar ymur foss í gjá. Þá vakti sérstakar end- urminningar hjá mér Sig- fús Halldórsson. Árið 1952 leigði ég herbergi á Sólvallagötu og þar kom Sigfús, í ársbyrjun var það, settist við píanóið og vildi spila alveg nýtt lag sem hann hafði ort á Reykhólum um jólin. Litla flugan tengist Sól- vallagötu í minni mínu. Síðan kom Ragnar Bjarnason, sem vakti hjá mér fornar minningar frá æskudögum þegar ég dvaldi að sumri á Þing- völlum hjá vinafólki. Bjarni Bö átti bústað og bát og þá sigldi ég með honum um Þingvallavatn og minnist alltaf fallega stráksins sem var með í siglingunni. Það er gaman að rifja upp gamlar og góðar endurminningar. Takk fyrir, sjónvarp. Þá vil ég þakka Pétri Péturssyni þul fyrir fróð- legar og raunar ómetan- legar frásagnir frá fyrri dögum og vona að hann hafí meira í farteskinu áð- ur en það hylst gleymsku. Fyrir nokkrum kvöld- um hlustaði ég á stór- merkilegt viðtal í útvarp- inu við Sigmund Guð- bjarnarson prófessor. Viðtalið ætti að birtast í Morgunblaðinu með vel sýnilegri fyrirsögn og góðri kynningu. Ennfrem- ur fannst mér mjög merkileg könnun sem sagt var frá í Morgun- blaðinu, rannsókn á námsárangri sem sýndi að nemendur sem stunda tónlistarnám eru að öðru jöfnu hæfari nemendur en aðrir og taka betri próf. Ég minnist líka lauslegrar könnunar á árangri nem- enda á Isafirði fyrir löngu þar sem var mikil tónlist- arkennsla sem sumum fannst taka of mikinn tíma frá skólanámi. Þar kom einnig fram að þeir nemendur sem iðkuðu tónlistarnám stóðu sig betur í skóla og voru yfir- leitt með betri einkunnir en þeir sem ekki voru í tónlistarnámi. Það er vert að vekja at- hygli á því sem betur má fara. Ingibjörg. Nettó í Mjódd KONA hafði samband við Velvakanda og langaði að koma á framfæri ánægju sinni með verslunina Net- tó í Mjódd. Þessi verslun er afar björt og skemmti- leg, starfsfólkið situr við vinnu sína og er einstak- lega þægilegt og jákvætt og þessi verslun er full- komlega samkeppnisfær við aðrar verslanir á höf- uðborgarsvæðinu. And- rúmsloftið afslappað, vöruúrvalið mikið og verðið afar hagstætt. Þarna er mjög gott að versla og ekki skemmir fyrir að það er mikið af kynningum þarna. Ég vil endilega sjá Nettó á fleiri stöðum á höfuðborgar- svæðinu. Tapad/fundið Fundinn skór UNGI maðurinn sem skildi eftir símanúmer í Grikklandi og aniian skó- inn sinn í garði í miðbæ Reykjavíkur síðastliðið fímmtudagskvöld er beð- inn um að hringja í síma 471-1052. Betri eru tveir skór í brúkun en einn í garði. Giftingarhringur fannst KARLMANNS giftingar- hringur fannst fyrir fram- an SPRON í Spönginni í Grafarvogi 10. júní sl. Innan í hringnum er graf- ið nafnið Gróa. Upplýs- ingar i sima 698-0470. Gleraugu töpuðust GLERAUGU í gylitri um- gjörð töpuðust á körfu- boltavelli við Bakkana í Breiðholti í síðustu viku. Upplýsingar í síma 564- 2554. Fundarlaun. Gulur kókómjólkur- bakpoki tekinn í misgripum GULUR kókómjólkur- bakpoki var tekinn í mis- gripum í veitingatjaldinu á kristnitökuhátíðinni á Þingvöllum á æfingu föstudagskvöldið 1. júlí sl. I bakpokanum voru galla- buxur, hvítur anorakkur og bók merkt Diljá. Ef einhver veit um afdrif bakpokans vinsamlegast hafið samband í síma 898- 5111. Dýrahald Hund vantar heimili timabundið ER einhver sem vill taka að sér yndislegan og fal- legan, hreinræktaðan hund tímabundið út sum- arið? Upplýsingar í síma 586-8310, eftir kl. 19. Moli er týndur STÓR, grábröndóttur högni, um það bil 10 ára gamall, hvarf frá Holta- gerðinu í Kópavogi þar sem hann er í pössun. Hann gegnir nafninu Moli. Hann er vel merkt- ur, bæði með ól og eyrna- merktur. Á ólinni hans er tunna með nafninu Al- bert, en þeir sem vita eitthvað um ferðir hans eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Ernu í síma 564-2237. Kettlingur fæst gefins VEL upp alinn tveggja mánaða kettlingur fæst gefíns. Við verðum að láta hann frá okkur vegna of- næmis á heimilinu. Upp- lýsingar í síma 461-4878. Þrír kettlingar fást gefins ÞRÍR gullfallegir kettl- ingar, einn loðinn, annar alsvartur, kassavanir og þrifalegir, fást gefms. Upplýsingar í síma 869- 0253. SKAK IJmsjóii Helgi Áss Grétarsson STAÐAN kom upp á Norðursjávarmótinu í Es- bjerg á milii stórmeistar- anna Boris Gulko (2643) frá Bandaríkjunum, hvítt, og Englendingsins John Emms (2526). 33.Rh5+! Kh8 Riddarinn er friðhelg- ur þar sem eftir 33...gxh5 34.Dg3+ fellur hrókurinn á el. 34.Dg3! He7 35.Dxd6 Hef7 36.fxg6 hxg6 37.Dxg6 Hh7 38.Rf6 og svartur gafst upp enda fátt um fína drætti. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Mikhail Gurevich, 2667, 6,5 v. 2. Peter Svidl- er, 2689, 6,5 v. 3. Curt Hansen, 2613, 5,0 v. 4. Al- exander Grischuk, 2606, 5,0 v. 5. Peter Heine Nielsen, 2578, 4.5 v. 6. Boris Gulko, 2643, 4,5 v. 7. Lars Bo Hansen, 2562, 4,0 v. 8. Nick DeFirmian, 2567 4,0 v. 9. John Emms, 2527, 3.0 v. 10. Dennis De Vreugt, 2511, 2.0 v. Víkverji skrifar... REYKJANESBRAUT hefur iðulega komið til umræðu síð- ustu misseri vegna hinnar miklu og hröðu umferðar sem þar er á hverjum degi, nánast allan sólar- hringinn. Þar verða stundum al- varleg slys og sum því miður bana- slys. I seinni tíð hefur borið meira á kröfum um að hún verði breikk- uð þannig að hægt verði að stefna umferð eftir tveimur akreinum í hvora átt. Víkverji fer nokkuð oft um „Brautina“, eins og Suðurnesja- menn nefna hana, og hefur svosem sjaldnast nokkrar áhyggjur af slíkri ferð. í þau skipti hefur um- ferð gengið greiðlega og menn aka flestir sem næst því á leyfilegum hámarkshraða. Þó kemur fyrir að einhver vill fara hægar yfir eða verður að gera það, t.d. sé hann með eftirvagn. Þá hefst framúr- aksturinn og þar með eykst slysa- hætta. Og vegna mikils framúr- aksturs telja þeir sem um brautina fara á hverjum degi að brýnt sé að fá tvær akreinar í hvora átt. Eflaust hafa þeir sem vilja breikka brautina talsvert mikið til síns máls. Sé umferð í gagnstæða átt aðskilin má búast við að hætta á óhöppum minnki. Eftir sem áður geta menn ekið hratt og glanna- lega og farið sjálfum sér og öðrum að voða. Slys munu því vart hverfa þótt tveggja akreina vegur komi til. Áfram hlýtur að þurfa sæmi- lega og ábyrga hegðan undir stýri. X X x SLYS í rútum vekja jafnan óhug því þegar þau verða eru þau meira ógnvekjandi en önnur um- ferðaslys vegna þess fjölda fólks sem í þeim lendir oft. Þau gerast kannski ekki oft en of oft og spurning er hvernig má reyna að draga úr þeim. Sjálfsagt eru or- sakir þeirra jafnmargar og slysin en það virðist æ oftar koma fram að öryggisbelti gætu dregið úr meiðslum. Rétt eins og gerist í minni bílum. Er þá ekki rétt að hraða því á einhvern hátt að slíkur búnaður sé tekinn upp í rútum? XXX NOKKUÐ þykir Víkverja hvim- leiður margs konar póstur sem dettur inn um bréfalúgu heim- ilisins. Reglulega koma hvers kyns auglýsingablöð um ágæti þessa eða hins stórmarkaðarins, heimilis- tækjasalans eða tölvu- og tækja- salans. Víkverja er til efs að þessi útgáfa borgi sig en þó hlýtur það að vera fyrst henni er haldið til streitu. Og það er erfitt að verjast þessu nema kannski setja orðsend- ingu við lúguna og óska þess að heimilinu sé hlíft við auglýsingum. Eina ráðið er þó líklega bara að þeyta þessu í ruslagáminn með öðrum óþarfa sem safnast vill fyr- ir. Það er nefnilega með ólíkindum hversu mikið af drasli venjulegt heimili getur „framleitt". Þess vegna er það af hinu góða að menn taki upp flokkun sorps, temji sér ákveðnar venjur við inn- kaup og dragi úr notkun plasts og umbúða. Þetta er að vísu hægara sagt en gert en með þrautseigjunni hefst þetta og Víkverji telur að hann geti jafnvel tekið upp svona venjur að einhverju leyti. En það gæti tekið tíma og krafist þolin- mæði og viðhorfsbreytingar. Sem er kannski stærsti þröskuldurinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.