Morgunblaðið - 19.07.2000, Side 47

Morgunblaðið - 19.07.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ I DAG BRIPS Umsjón Uuðmundur 1‘áil Arnarson NORÐMENN urðu Evr- ópumeistarar í flokki spilara 25 ára og yngri, en sautjánda Evrópumóti ung- menna lauk á sunnudaginn í Tyrklandi. Lengst af höfðu ísraelar góða forystu og leit út fyrir sigur þeirra á tíma- bili, en undir lokin dró sam- an með liðunum á toppnum og Israelar urðu á endanum að sætta sig við þriðja sætið. Hollendingar skutust upp í annað sætið í lokaumferð- inni, en Frakkar urðu fjórðu. Fjórar efstu þjóðirn- ar taka þátt í HM ungmenna í Ríó á næsta ári. Islenska liðinu gekk misjafnlega og endaði með rúma meðalskor í fimmtánda sæti. Norð- menn og Israelsmenn mætt- ust í næstsíðustu umferð og munaði þá aðeins sjö stigum á liðunum. Leikurinn var fjörugur og við skulum skoða nokkur spilanna á næstu dögum. Austur gefur; allir á hættu. Norður * KD4 ¥9852 ♦ 852 + A42 Vestur * G853 ¥ - ♦ KG109764 + D6 Austur A 9762 ¥ K1043 ♦ - + KG875 Suður + Á10 ¥ ÁDG76 ♦ ÁD3 + 1093 Á báðum borðum varð suður sagnhafí í fjórum hjörtum eftir að vestur hafði hindrað í tígli. Utspilið var smár spaði í báðum tilfell- um. Norðmaðurinn Thomas Charlsen tók slaginn í borði og svínaði hjartadrottningu. Þegar 4-0 legan kom í ljós, tók Charlsen spaðaás og dúkkaði lauf. Vörnin kom aftur með lauf, sem Charl- sen drap, henti tígli niður í spaða og fór af stað með hjartaníu. Austur lét tiuna og gosinn átti slaginn. Nú spilaði Charlsen sér út á laufi og lét vörnina hjálpa sér að búa til tíunda siaginn. Austur gat spilað svörtu spili í tvöfalda eyðu eða gefið fría hjartasvíningu. Á hinu borðinu fór ísrael- inn Yaniv Vax eins af stað - tók spaðann í borði og svín- aði í trompi. Síðan tók hann spaðaás, fór inn á laufás og henti laufi í spaðadrottn- ingu. Svo kom hjartanía - tía og gosi. Næst spilaði Vax laufi. Austur tók slaginn og gat losað sig tímabundið út á þriðja laufinu, en nú kom Vax með skemmtilegan leik - spilaði tígulþristi undan ÁD3 og neyddi vestur til að gefa úrslitaslaginn. Vel spilað hjá báðum sagnhöfum og engin sveifla. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkjmningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fieira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Arnað heílla O A ÁRA afmæli. í dag, OU miðvikudaginn 19. júlí, er áttræður Samúel J. Valberg húsgagnabólstr- ari, Kambsvegi 34, Reykja- vík. Eiginkona hans er Guðný K. Valberg. í tilefni afmælisins ætla þau hjónin að taka á móti ættingjum og vinum laugardaginn 22. júlí nk. á milli kl. 16-19 á heimili sonar síns og tengdadóttur að Heimalind 2, Kópavogi. rj pf ÁRA afmæli. í dag, i tJ miðvikudaginn 19. júlí, er sjötíu og fimm ára Ingibjörg Ólafsdóttir, Höfðagrund 21, Akranesi. Hún verður að heiman á af- mælisdaginn. r A ÁRA afmæli. Nk. Ov/ laugardag, 22. júh, verður fimmtugur Valur Leonhard Valdimarsson, Jakaseli 12, Reykjavik. Eig- inkona Vals er Kristín Magnca Eggertsdóttir. Býður hann ættingjum, vin- um og samstarfsfólki að fagna þessum áfanga með sér í Tannlæknasalnum, Síðumúla 35, á afmæhsdag- inn kl. 20. A A ÁRA afmæli. í dag, t:v/ miðvikudaginn 19. júlí, verður fertugur Þor- steinn Halldórsson heild- sali, umboðsmaður Bitburg- er Group GmbH, harkari og formaður Baldurs, mál- fundafélags Sjálfstæðis- manna í Kópavogi. I tilefni þessara timamóta munu Þorsteinn og_ kona hans, Fanney Elín Ásgeirsdóttir, efna til samsætis með haust- inu og mun verða tilkynnt þar um er nær dregur. Alþjóðlegt stærðfræðiár Árið 2000 er alþjóðlegt stærðfræðiár. 27. september stendur Flötur samtök stærðfræðikennara fyrir Degi stærðfræðinnar. Þá munu vonandi sem flestir skólar landsins hafa stærðfræð- ina í fyrirrúmi. Flötur er með bækling í undirbúningi sem sendur verður í alla skóla. I honum verða hug- myndir að verkefnum til þess að vinna þennan dag. Þema dagsins verður / rúmfræði. Þraut 10 Hvernig er hægt að skera kleinuhring: a) í átta eins hluta með því að skera þrisvar? b) í tólf ólíka hluta með þvi að skera þrisvar? Svar við þraut 9. a) b) LJOÐABROT Ongulseyri Ég geng um Eyrar götur. Æ, guð komi til! Hvað er það, sem skyggir á hálfan himininn? Er það hattur eða hvað? Nú, hér er ei neitt að hræðast! Frú Hansen er þar á ferð með hatt, sem var keyptur í Kaupmannahöfn og kostaði jarðarverð. En heyrið þér mig, frú Hansen! Er hátignarsvipurinn líka keyptur í Kaupmannahöfn? Hvað kostar meterinn? Örn Arnarson. STJÖRNUSPÁ eftir Frances Urake KRABBI Afmælisbam dagsins: Þrátt fyrirgóðan hugátt þú það til að virðast oflátungs- legur og þarft því að huga vei að framkomu þinni. Hrútur (21.mars-19. apríl) Þar sem þér virðast nokkrar leiðir færar þarftu að gaum- gæfa þær vandlega áður en þú velur þá réttu. Mundu að þú hefur nægan tíma til þessa vals. Naut (20. apríl - 20. maí) Þótt þig langi mest til þess að hlaupa frá vandanum, skaltu grípa til þrautseigjunnar og ljúka við verkið. Þú verður því feginn, þá búið er. Tvíburar . (21. maí - 20. júní) nA Þú þarft að sýna meiri hug- kvæmni til þess að leysa það vandamál, sem nú brennur á þér. Ekki gefst upp, því þú átt ýmsar innistæður að taka af. Krabbi (21. júní-22. júlí) Þú verður að gera þér grein fyrir því, að þegar þú leitar samstarfs við aðra, þá þarftu oft að slá af þínum ýtrustu kröfum til þess að mál þokist áleiðis. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Vertu skjótur til að hrinda hugmyndum þínum í fram- kvæmd áður en einhverjir aðrir verða fyrri til og stela hugmyndum þínum. Vernd- aðu þinn rétt. Meyja ** (23. ágúst - 22. sept.) Stattu klár á því að aðrir eru fyrst og fremst að skara eld að eigin köku rétt eins og þú. Með þetta á hreinu ætti sam- starfið að ganga afbragðs vel. (23. sept. - 22. okt.) m Þú átt umfram allt að stefna að því að láta drauminn ræt- ast, hversu fjarlægt sem takmarkið virðist í upphafi. Hálfnað er verk, þá hafið er. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Reynstu vini þínum vel, þeg- ar hann leitar til þín með sín trúnaðarmál. Gættu þeiira svo sem þinna eigin og þá mun vináttan dafna með degi hverjum. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) AO Þú ert allur einhvern veginn út og suður og átt erfitt með að einbeita þér að því sem þú þarft að gera. Taktu þér tak og bættu úr þessum ágalla. Steingeit (22. des. -19. janúar) Hlustaðu vandlega á það sem aðrir segja. Sumt er til fróð- leiks en margt má fara inn um annað eyrað og út um hitt. En fróðleikurinn er mikils virði. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) Lestu til hlítar öll skjöl sem þér er ætlað að undirrita. Það liggur aldrei svo mikið á að þú þurfir ekki að sýna varkárni. Hún er öll þér í hag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú skalt halda óhikað þá leið sem þú hefur sett þér, því sjálfur veizt þú bezt, hvað þú vilt. Það munu aðrir sjá þegar þú hefur náð takmarki þínu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindaiegra staðre.vnda. MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 47 EVO-STIK L i ! ÞÉTTIEFNI Sfealatnt All Purpose ■tœ wooti & m ■ Mctal Fraitm Sea i «3523331 „I Roof & EVO-STIK TJÖRUBÖND ÁRVÍK ÁRMÚLA 1 • SlMi 568 7222 • FAX 568 7295 ÁRVÍK ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 ttsala! Opið í da» frá kl. 8.00 - 20.00 Opið lau»arda» frá kl. 10-16 Á<#HM5ID Mörkinni 6, sími 588 5518 Bílastæði við búðarvegginn. Stökktu til Costa del Sol 7. ágúst frá kr. 33.955 Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol þann 7. ágúst, en vinsældir þessa staðar hafa aldrei verið meiri. Hér finnur þú frábæra gististaði, glæsilega veitinga- og skemmtistaði, frægustu golfvelli Evrópu, glæsilegar snekkjubátahafnir, tívolí, vams- iciiiuuiuuiagaiua, giæsnega tpronaostoou og spennanai kynmsreorir i ífíinu. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða 'allan tímann. Þú getur nú tryggt þér ótrúlegt tilboð í sólina, þú bókar núna og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir. Verð kr. 33.955 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, vika, 7. ágúst, stökktu tilboð. Verð kr. 44.990 HEIMSFERÐI M.v. 2 í stúdíó, vikuferö, 7. ágúst Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.