Morgunblaðið - 19.07.2000, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
TONLIST
GeLsladiskur
-*■ IT’SALLTRUE
Poppgaldurinn
Morgunblaðið/Skarphéðinn
Kristínu Björk þykir Elíza hafa sparað fiðluna sína fullmikið.
Morgunblaðið/Ólafur Páll
Sigrún, Elíza, Anna Margrét, Kidda og Kalli.
Flytjandi: Bellatrix.
Sveitina skipa: Kalli: Trommur,
slagverk, forritun. Kidda: Bassi.
Elíza María Geirsdóttir: Söngur,
fiðla, hljómborð og slagverk. Anna
Margrét: Gítar. Sigrún: Hljómborð
og gítar. Upptökustjórn og
hljóðblöndun: Dan Swift.
Útgefandi: Fierce Panda 2000.
BELLATRIX, eða Kolrassa
Krókríðandi eins og hljómsveitin hét í
upphafi ferils síns, varð til fyrir hálf-
gerða slysni. Nokkrar hæfileikaríkar
stelpur bjuggu til band fyrir Músík-
tilraunir í Tónabæ. Svo komust þær
og fjöldi annarra að því að þær voru
bara helvíti góðar og að þetta var
skemmtilegt.
Síðan þá hafa margir strengir slitn-
að, mikið vatn runnið til sjávar og
steinamir í því slípast. Kannski ein-
um of? Það var einhver heillandi
neisti í skaðræðisöskrum Elízu og
hráum hljómi Kolrössu Krókríðandi á
fyrstu plötu þeirra, Drápu. Það var
eitthvað hressandi hamsleysi við
hljómsveitina sem gerði hana svo
sjarmerandi. En nú hefur popp-
bransinn sest á bak ótemjunni og
beislað hana þannig að nú á nýju plöt-
unni, It’s All True, lýtur hún svipu-
höggum knapans þæg og góð. Þá er
bara að spyrja sig: Er þetta gott
popp? Það er dálítið sviplaust, lögin
eiga það til að renna saman og eru
auk þess mjög útreiknanleg og í raun
fátt sem kemur á óvart. Það er ekki
gott, eða hvað? Gott popp þarf reynd-
ar ekki endilega að koma á óvart, það
getur gert eitthvað fyrir eyrað þótt
það sé alveg eins og margt af því sem
glymur á útvarpsstöðvunum alla
daga. Og það eru nokkur lög á diskin-
■iim sem ná því og eru bara þræl-
skemmtileg. Þetta eru lög eins og til
dæmis „The Girl with the Sparíding
Eyes“ og „Lullabye" svo einhver séu
nefnd. Það fyrstnefnda skartar ein-
faldri og grípandi hljómborðslínu sem
drífur lagið áfram í góðum félagsskap
hressilegs trommuleiks Karls og
kraftmikils söngs Elízu. Smáatriðin
eru oft það sem gefa lögum þá sér-
stöðu sem þau þurfa til að vera sjálf-
stæð fyrirbæri sem segja sína sögu.
Þannig skjótast í „The Girl with the
Sparkling Eyes“ lítil hljóð lík klukk-
uspili upp á yfirborðið endrum og
eins, kannski í hlutverki neistans í
augum stúlkunnar.
Eitt metnaðarfyllsta lag It’s All
True, hvað útsetningu, uppátækja-
semi og lagasmíðar snertir, er lagið
„Lullabye". Það byrjar ósköp mein-
leysislega og næstum því leiðinlega
en svo kemur orgelið inn með
skuggalegt en kamivalískt stef sem
sprengir upp stemmninguna og dýna-
míkina um leið eins og heimsendir sé í
nánd. Þama nær sannfæringarkraft-
ur Bellatrix hámarki og ekki spilla
forritaðh- taktarnir sem krauma und-
ir eins og það sé alveg að fara að sjóða
upp úr. „Hmm þetta hljómar eins og
þau séu að meina þetta,“ hugsaði ég
með mér þegar ég heyrði þetta lag.
Sama má segja um ballöðuna „If I
Fall“ sem er einlæg og falleg með ág-
ætis taktpælingum og skemmtilega
vatnskenndum gítarhljómum.
Sviplausu lögin sem ég nefndi hér
áðan em hins vegar nokkuð mörg á
diskinum. T0 dæmis „Daredevil",
„This Boy Will Be Mine“ og „Tamed
Tiger“. Hvað meinar hún með „svip-
laus?“ Hugsar kannski einhver. Gít-
arleikurinn er frekar óspennandi.
Hann er staðfastur en tekur engar
áhættur og þar af leiðandi gerist fátt
og bæði hljómurinn og hugmyndafá-
tæk spilamennskan verða fljótlega
þreytandi. Laglínumar eiga það til að
vera dálítið einsleitar og einhvem
veginn ekki nógu ögrandi þó dýna-
mísk og flott rödd Elízu bjóði upp á
það. Eg saknaði einnig dálítið að
heyra ekki meira í fiðlunni hennar El-
ízu sem kom sjaldan við. Það sker dá-
lítið af sérstöðu hljómsveitarinnar
þegar fiðluna vantar.
Þó að ég kunni ekki að meta þróun-
ina sem orðið hefur á tónlist Bellatrix
í gegnum árin, finnst mér hún mjög
skiljanleg og ég lái þeim ekki að hafa
látið beislast af kröfuhörðum popp-
bransanum. Fáar íslenskar hljóm-
sveitir hafa verið jafnofboðslega dug-
legar við að spila og koma sér á
framfæri og þykir mér harkan í hark-
inu aðdáunarverð. Það er ekkert grín
að lifa af tónlistarsköpun einni sam-
an, það kostar gríðarlega vinnu og
fómir sem Bellatrix hefur vafalaust
þurft að færa. En á meðan hljóm-
sveitin metur tónlistina sem hún sem-
ur enn jafnmikils og áður og hún gef-
ur þeim það sem þau vilja fá frá
henni, þá er slípunin auðvitað þess
virði fyrir þau. Og hvað svo sem sagt
verður um þessa nýjustu afurð Bella-
trix, er spilagleðin enn fyrir hendi og
þeirra öflugasta vopn í stríðinu um
hyllina.
Kristín Björk Kristjánsdóttir
I.EfKFEIACi ÍSLANDX
tastA&Mn
551 3000
THRILLER sýnt af NFVI
fös. 21/7 kl. 20.30 laus sæti
fös. 28/7 kl. 20.30 aukasýning
530 3030
BJÖRNINN — Hádegisleikhús
með stuðningi Símans
Mfim. 20/7 kl. 12
lau. 22/7 kl. 12
mið. 26/7 kl. 12
fim. 27/7 kl. 12
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 1 Loftkastalanum
og frá kl. 11-17 I Iðnó. Á báðum stððum er opið
fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar
sýning er. Miðar óskast sóttir I viðkomandi leikhús.
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dðgum fyrir sýningu.
Janet Jackson leikur í „Nutty Professor 2‘
A tali við tennisbolta
ÁÐUR en hún lagði tónlistarheim-
inn að fótum sér var hún sjónvarps-
stjama í þáttunum „Fame“ þar sem
hún dansaði af lífi og sál og var ástf-
angin upp fyrir haus af hinum lið-
uga Leroy. Síðan hefur tónlistin átt
hug og hjarta Janet Jackson og hún
er einn vinsælasti kvenkyns-
tónlistarmaður allra tfma.
Leiklistarbakterían hefur þó
ávallt blundað í henni og von bráðar
geta aðdáendur hennar séð hana í
kvikmynd því hún fer með hlutverk
JLLKI lUl
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningar hefjast kl. 20.30
Miðapantanir í síma 561 0280
Miðasala er opin í Tjarnarbíói,
Tjarnargötu, frá kl. 12-18.
Frumsýning fös. 21. júlí kl. 20.30. Uppselt.
2. sýn. sun. 23. júlí, örfá sæti laus.
3. sýn. fös. 28. júlí
4. sýn. lau. 29. júlí
5. sýn. fös. 4. ágúst
Ath. Ósóttar
pantanir seldar
, , 2 dögum fyrír
6. sýn. lau. 5. ágúst sýningu.
unnustu hins íturvaxna
prúfessors Klump í mynd-
inni „Nutty Professor II:
The Klumps". Eddie Murp-
hy fer sem fyrr með hlut-
verk prófessorsins. Hann
fer reyndar með heil sex
hlutverk í þessari mynd!
Tónlistin enn
númer eitt
Jackson birtist síðast á
hvita tjaldinu í myndinni
„Poetic Justice" í leikstjórn
Johns Singletons. Segist
hún eiga margar fyrir-
myndir úr kvikmyndaheim-
inum og segir Meryl Streep,
Clenn Close og Angela
Bassett vera eftirlætis leik-
konur sínar.
Síðan hún lék í „Poetic
Justice" hafa henni boðist
mörg hlutverk í kvikmynd-
um en þeim hafnaði hún öll-
um þar til nú. „Handritin
voru annaðhvort alltof lík
„Justice" eða að ég átti að
leika alveg sömu per-
sónuna. Mig langaði að
gera eitthvað alveg nýtt.“
Jackson er mjög ánægð með að
hafa fengið hlutverk í „Nutty Prof-
essor“ en þar sem Murphy er oft að
leika marga aðila í hverju atriði
komu oft upp furðulegar aðstæður
sem hún þurfti að fást við. Stundum
þurfti hún að tala við og horfast í
augu við tennisbolta sem átti að
tákna einhvern úr Klum-fjölskyhl-
unni. „Iionum [Murphy] tókst alltaf
að gera allar persónur sinar ljóslif-
andi fyrir mér,“ segir Janet Jack-
Reuters
Jackson segist þó ekki ætla að
leggja kvikmyndaieik alfarið fyrir
sig, tónlistin sé aðalatriðið.
„Ég myndi aldrei gefa tónlistina
upp á bátinn. Ég er reyndar að
vinna að nýrri plötu i augnablikinu,
en ég mun halda áfram að Ieika i
kvikmyndum því ég hef mjög gam-
anafþví."
Það er þó óþarfi að búast við því
að Jackson fái óskarinn fyrir leik
sinn í „Nutty Professor“ en hún fær
að öllum likindum nokkra aura i
vasann og gífurlega athygli.
Stutt
Giftist
flækingshundi
► INDVERSK stúlka giftist flæk-
ingshundi að hindúasið á dögunum.
Sljörnuspekingur nokkur hafði
sannfært föður stúlkunnar um að
með því að giftast hundinum myndu
ill áhrif frá plánetunni Satúrnusi
fara úr stúlkunni og í hundinn.
Stúlkan, sem heitir Anju, hefur átt
við veikindi að stríða auk þess sem
hún hefur verið sérlega óheppin.
Hún datt t.d. ofan í gosbrunn, hefur
beinbrotnað og brennt sig í eldhús-
inu. Það var hindúaprestur sem gaf
hundu og Anju saman við virðulega
athöfun að vistöddum 250 íbúum
heimabæjar hennar. Bæjarbúar,
sem flestir eru ólæsir, voru ánægðir
með brúðkaupsvcisluna en hæddust
að athöfninni. „Faðirinn er hjá-
trúarfullur en mér er alveg sama
því ég komst í þessa fínu veislu,“
sagði einn nágranninn.
„Ég er að gera það sem ég tel
vera Anju fyrir bestu,“ segir faðir-
inn. „Afi minn lét framkvæma svip-
aða athöfn fyrir fjörutíu árum og
það virkaði."
Bæjarbúar höfðu gaman af at-
höfninni og hlógu mikið þegar
stúlkan setti blómasveig um hálsinn
á hundinum og aðstoðuðu hundinn
við að setja sveig um háls stúlkunn-
ar með loppunum.
Keypti útsýni
fýrir
lottó-vinning
► RÚMLEGA sextugur norskur
lottóvinningshafi notaði nýverið
vinning sinn til þess að varðveita út-
sýnið frá heimili sínu. Maðurinn, sem
heitir Alf Bjömsen, yfirbauð fyrir-
tækið sem ætlaði sér að reisa báta-
hús við hafnarbakkann beint fyrir
framan húsið hans til þess að hann
gæti, ásamt fjölskyldu sinni, haldið
áfram að njóta fagurs útsýnis frá
heimili sínu. Kostaði það hann um 10
milljónir króna af þeim 32 sem hann
vann í lottóinu að fá vilja sínum fram-
gengt en fyrirtækið ætlaði að kaupa
svæðið fyrir byggingaframkvæmdir
daginn eftir að hann vann í lottóinu.
„Ef vinningurinn hefði komið viku
seinna hefði níu metra hátt bátahús-
næði risið fyrir framan húsið mitt,“
sagði Björnsen. Sagðist hann eiga
nóg af veraldlegum hlutum og því
hefði hann ákveðið að vemda útsýnið
og sér hann ekki eftir þeim pening-
um.
James Brown
otar hnífi
► James Brown, konungur sálar-
tónlistarinnar, hefur verið sakaður
um að ógna rafvirkja með hnífi og
halda honum föngnum. Að því er
kemur fram í lögregluskýrslum fór
maðurinn að
heimili Browns
vegna þess að
borist hafði
kvörtun um raf-
magnsbilun. Eft-
ir að maðurinn
var kominn inn
um ólæst örygg-
ishlið mætti hann
kónginum sem bað hann að bíða.
Þegar Brown kom aftur sagðist
hann vera í vinnu hjá stjórnvöldum
og gæti þvi handtekið rafvirkjann
og læst hann inni fyrir að fara um
landareign sína í leyfisleysi. Því
næst mun Brown hafa ógnað mann-
inum með hnífi.
Fyrirtækið sem rafvirkinn starf-
ar hjá sagði að rafmagn væri ekki
bilað í húsi Browns og að hann vissi
ekki hver hefði hringt og beðið um
viðgerðarmann.
Brown fékk dóm fyrir líkamsárás
og vopnaburð frá 1988 til 1991. Árið
1998 fór hann í þriggja mánaða
fíkniefnameðferð til þess að sleppa
við tveggja ára fangelsisdóm fyrir
að hafa í fórum sinum marijúana og
vopn.