Morgunblaðið - 19.07.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 19.07.2000, Síða 50
§0 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 FÓLK í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ Eitthvað er betra en hvaðsemer Whatever, skáldsaga eftir Michel Houellebecq. Paul Hammond snar- aði á ensku. Serpents Tail gefur út. 155 síðna kilja. Kostar 1.975 kr. í Pennanum Eymundssyni. SKÁLDSAGAN Whatever, eða hvaðsemer, vakti gríðarlega athygli í Frakklandi á sínum tíma, enda þótti mönnum hún fanga vel tóm- hyggju nútímans. Sumir gengu svo langt að líkja henni við söguna af utangarðsmanningum Mersault sem tekinn var af lífi fyrir að gráta ekki við jarðarför móður sinnar í . Jrægri bók Alberts Camus. Sú bók glímdi við tilvistarhyggju og til- gang, en bók Houellebecq fæst aft- ur á móti við tómhyggju og tilgangsleysi. Sögumaður bókarinnar er forrit- ari í fyrirtæki sem sérhæfir sig í landbúnaðarhugbúnaði. Hann hef- ur meðal annars tekið þátt í að setja saman hugbúnað fyrir tilstilli Landbúnaðarráðuneytis Frakk- lands sem er ætlaður smærri stofn- unum á vegum ráðueytisins víða um Frakkland. Sögumaður er löngu búinn að átta sig á að hugbúnaður- inn er tilgangslaus, en það skiptir hann ekki ýkja miklu máli því líf hans er tilgangslaust hvort eð er. Hann fyllist ekki einu sinni örvænt- -4ingu yfir tilgangsleysinu, því ör- væntingin er tilgangslaus og ekki bara örvæntingin, því tilfinningar eru almennt hlægilega tilgan- gslausar. Þannig er þessi spegilmynd nú- tímamannsins sem á sér ekki líf, því það er tilgangslaust, og blandar ekki geði við annað fólk, því það er ómerkilega tilgangslaust. Það eru þó fleiri hliðar á sögumanni en hann vill sjálfur viðurkenna, meðal ann- ars fær hann útrás í smásögum um dýr sem tala sín á milli, og smám sáman kemur í ljós að í brjósti hans bærast tilfinningar sem hann kann ekki að orða og skilur ekki. Bók Houellebecq er bráðvel ■ fcSkrifuð og bráðfyndin á köflum. Þrátt fyrir allt tilgangsleysið er hún innihaldsrík og mannlýsingar lif- andi, eins og til að mynda frásögnin af hinum ógæfusama Tisserand sem er svo ljótur að hann vekur æv- inlega fyrirlitningu. Þrátt fyrir líf sem er uppfullt af vonbrigðum og vonleysi varðveitir hann sakleysi sem forðar honum frá glæp og und- irstrikar að ef einhver er fyrirlitleg- ur í sögunni þá er það sögumaður. Þrátt fyrir það er ekki annað hægt en kenna í brjósti um sögumann, ut- angarðsmann vorra tíma, þar sem •hann lifir sínu tilgangslausa lífi, óhræddur við dauðann því hann er líka tilgangslaus, en samt að glíma við eitthvað innra með sér sem sigr- ar hann að lokum, líkt og nútíma- maðurinn sem glímir við tilgangs- leysið þar til hann áttar sig á að eitthvað er betra en hvaðsemer. Arni Matthíasson. PÓLITÍSK RÉTTHUGSUN í BARNABÓKUM Allt er í heiminum hverfult Kvöldsögur hafa löngum reynst happa- drjúgar til að koma orkumiklum krökk- um inn í draumalandið. En þegar Jóhanna K. Jóhannesdóttir las litlu frænku sína í svefn hnaut hún um að eitt- hvað hafði breyst í Leikfangalandi. valdi herra og útdeilir skipunum á hægri og vinstri. Þar kemur einnig fram hin staðlaða ímynd gamla heimsins að svertingjar séu latir til vinnu „ég er svo þreyttur“ segir einn og „ég vil ekki óhreinka nýju fötin“ segir annar álkulegur á svip- inn, skyrtulaus en með ermalíning- ar, flibba og hálsbindi. Konungur ættflokksins mundar kökukefli í stað veldissprota og hvílir bik- svarta fæturna á trékassa. Snobbaður Doddi BÓKIN sem kveikti á ritskoðunar- perunni heitir Ten Little Toddlers (frænka býr í Bandaríkjunum) og kennir litlum börnum listina að telja frá einum upp í tíu. Pers- ónurnar eru tíu sprækir krakkar sem lenda í hinum ólíklegustu æv- intýrum og týnast frá hópnum í leiðinni. Onnur bók, nákvæmlega sama eðlis, var lesin í barnæsku greinar- höfundar en hún hét Tíu litlir negrastrákar og sagði frá ærsla- fullum, kolbikasvörtum hottintott- um sem skottuðust á lendarskýlum einum klæða um frumskóga svört- ustu Afríku. Þannig voru nú þeir óupplýstu tímar hins myrka áttunda ára- tugar. Svona bók væri aldrei gefin út í dag á þessum pólitískt rétthugs- andi tímum enda yrðu útgáfufyrir- tæki sem stæðu fyrir þannig útgáfu fljótt krossfest og brennd á báli al- menningsfyrirlitningarinnar fyrir að ala á fordómum og fáfræði. Mörkin milli þess sem ekki má og er leyfilegt eru skýr og talnabörn tíaldarinnar eru af öllum þjóðern- um og báðum kynjum (tvö þeirra nota meira að segja gleraugu og önnur tvö eru rauðhærð). Síðasta hálmstráið Leiðréttingarpensill rétthugsun- arinnar litar líka yfir Lukku Láka og þótt kappinn sé skjótari en skugginn að skjóta nær hann ekki að leita sér skjóls frá honum. Lukku Láki reykti nefnilega einu sinni og naut þess í hveijum einasta ramma myndasagnanna að sjúga nikótínið úr filterslausum lfkkistu- naglanum. í dag er Lukku Láki orðinn grænmetisæta því í stað tjúkandi rettunnar er komið ræfils- legt strá sem lafir út um munnvik riddara sléttunnar. Lukku Láki hefur reyndar marg- oft verið umdeildur og þá helst fyr- ir það hvað indjánarnir (afsakið, frumbyggjar Ameríku) eru látnir vera afspymu heimskir. Morris, faðir hans Láka, fékk ófáar skamm- irnar fyrir þetta og þótti allra verst þegar indjánamir voru látnir tjá sig með táknmáli en ekki talmáli. Gengur þetta jafnvel svo langt að í eftirmála Bardagans við Bláfót- unga skrifar Fjölvaútgáfan: „Það er líka með hálfum huga, að vér leggjum út í það afrek að gefa út Bláfótungabókina. Svo miklar deil- ur hafa staðið um hana og menn skiptast í öndverða fiokka, þar sem hver höndin er upp á móti annarri, og þar á meðal upp á kvenhöndinni, um það hvernig túlka beri allra handa handagang í öskjunni. Má segja að um leið og fylkingar stíga saman, sé sundur skipt lögum og að Halanegrar og hottintottar í Svartálfaborginni hennar Enid Blyton. „Manni getur nú sárnað“ Doddi og Eyrnastór hittast í fyrsta sinn. í stað þess komi til handalögmálið." Svipuð skoðanaskipti urðu líka um Tinna litla tindilfætta þegar hann heimsótti Afríkuríkið Kongó. Meira að segja í skipsferðinni á leiðinni til Afríku eru allir verka- menn um borð svertingjar en yfir- menn, þ.e. skipstjóri og stýrimenn, eru hvítir. Öllu heldur munar engu að Tobbi sé drepinn þegar klaufa- legur (svartur)háseti kastar til hans björgunarhring og vill ekki betur til en svo að hringurinn rotar hund- spottið og það sekkur til botns. Það fellur svo í hlut hins mjallhvíta skipsherra að lífga Tobba við og verður hann fyrir vikið hetja dags- ins. Seinna í bókinni veldur Tinni járnbrautaróhappi í lest sem frum- byggjarnir eiga. I stað þess að hjálpa til við að reisa lestina við stendur hann eins og hinn hvíti út- Fáir barnabókahöfundar hafa samt orðið eins illa fyrir barðinu á gagnrýnendum og Enid Blyton. Bækur hennar hafa löngum þótt fullar af kynþáttafordómum, kynja- mismunun og hreinu og kláru snobbi. Sálfræðingurinn Michael Woods hefur reyndar sagt henni til varnar: „Hún var bam, hún hugs- aði eins og barn og hún skrifaði eins og bam.“ Spýtukarlinn Doddi sem býr í Leikfangalandi átti sér marga and- stæðinga og gengu bókaverðir og gagnrýnendur fjórða og fimmta áratugarins svo langt að setja bann á Dodda karlinn því hann hafði svo takmarkaðan orðaforða. Honum var lýst sem „sjálfselskustu, gleði- snauðustu og skynhelgustu, mest snöktandi andhetju í breskri skáld- skaparsögu". En bannið entist reyndar ekki og hefur Doddi notið ómældra vinsælda um áratuga skeið ásamt besta vininum Eyrna- stórum og nágrannabangsanum Bjössa feita. Nafnakallið heldur áfram út fyrir Leikfangaþorp því í næsta nágrenni, en þó í mátulega ömggri fjarlægð, búa svartálfamir í Svartálfaborg. Aðskilnaðarstefn- an er í hávegum höfð og því verður Dodda skelfílega bylt við þegar lestin sem hann var farþegi í stað- næmist í borginni og „mddust þrír jafnvel upp í vagninn til Eymastórs og Dodda“. Það skiptir samt ekki nokkm máli fyrir siðferðisvitund og blygðunarkennd hinna farþeg- anna, þar með talinna svartálfanna, að Doddi sjálfur er kviknakinn og skammast sín ekki vitund fyrir ófúavarinn spýtukroppinn. Þess má einnig geta að Blyton og Van Der Beek sem teiknaði íbúa Leik- fangalands virðast ekkert hafa far- ið mikið í felur með uppmna Dodda því þar fer að sjálfsögðu spýtu- strákurinn Gosi í afar gegnsæju dulargervi. I gegnum aldirnar hafa bama- sögur alltaf verið endurskrifaðar til að laga þær að viðkvæmni þrýstihópa og var til dæmis mesta grimmdin snemma tekin úr Grimmsævintýrunum. Þeir sem vilja forða litlu ung- unum sínum frá slæmu fordæmi eins og eiturlyfjaneytendunum í Lísu í Undralandi, apalátunum í Dagfinni dýralækni og undir- lægjuhættinum í Litla svarta Sam- bó er bent á skotheldar útgáfur Ja- mes Finn Garner af klassísku ævintýrunum í bókunum Politically Correct Bedtime Stories og Once Upon a More Modern Time þar sem Rauðhetta litla, Öskubuska, Hans og Gréta og stafrófið allt eins og það leggur sig fær hreinhugsunar- þvott svo jafnvel ráðvandasta for- eldri finnur ekki óhreinan blett á. Bókum vísindi The Faber Book of Science, safn greina um vísindi eftir leika og lærða. John Carey ritstýrir, Faber & Faber gefur út 1996.530 síðna kilja í stóm broti. SÚ VAR TÍÐ að bækur um vís- indi voru metsölubækur og ung- menni gleyptu í sig sögur af glæfra- legum uppgötvunum sem breyttu heiminum. Gengi þannig bóka dal- aði eitthvað þegar menn áttuðu sig á því að vísindin voru þess ekki megnug ein og sér að skapa betri heim, en undanfarin ár hefur vegur vísindabóka vaxið mjög, kannski í takt við þá bjartsýni sem einkennir aldamót/árþúsundamót. A ámm áður voru vinsælar hér á landi og reyndar víða um heim, bækur þar sem safnað var saman greinum eftir vísindamenn í bland við frásagnir leikmanna sem höfðu nasasjón af vísindunum. Yfirleitt ægði saman vísindagreinum, líkt og í Undur veraldar, framúrskarandi safni sem Mál og menning gaf út 1954, eða menn einblíndu á fram- farir í læknavísindum eins og í þeirri gagnmerku bók Baráttan gegn dauðanum fyrir sextíu árum. Sú bók sem hér er gerð að umtals- efni er af fyrri gerðinni, þ.e. í henni er enginn greinarmunur gerður á vísindagreinum, heldur eru þar greinar um kjarneðlisfræði, innan um greinar um náttúrufræði, lífeðl- isfræði, stjarnfræði og svo má telja. Greinunum er skipað í einskonar tímaröð eftir því sem vísindunum hefur fleygt fram, en sem betur fer einskorðar ritstjórinn sig ekki við það, því sumar uppgötvanir eru þess eðlis að það er ekki fyrr en löngu síðar að almenn þekking er komin á það stig að menn gera sér grein fyrir hve byltingarkenndar þær eru. I bókinni eiga greinar eða brot úr greinum margir helstu vísinda- menn sögunnar, en einnig eru frá- sagnir annarra af verkum þeirra og margar afbragðsgóðar. Þannig er sagt frá verkum Leonardos da Vincis, Edisons, Newtons, Darwins, Richard Dawkins, Mendelévs, Ein- steins og svo má telja allt fram á okkar daga, einnig eiga greinar Rachel Carson, Stephen Jay Gould, Laura Fermi, Italo Calvino, Primo Levi, Arthur C. Clarke, Isaac Asi- mov og fjölmargir fleiri sem daðrað hafa við vísindi, kynnst þeim í gegnum sína nánustu eða stundað þau aukreitis. Mikill kostur er að Carey lætur fljóta með kenningar sem síðar voru afsannaðar og að auki glefsur úr deiluritum til að draga upp mynd af vísindalegri umræðu hvers tíma. Bók sem þessi hentar einna best til að grípa niður í hana hér og þar, en eftir því sem fleiri kaflar eru lesnir fæst betri mynd af vísinda- sögunni sem gefur svo aftur veg- vísa á frekari lestur. Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.