Morgunblaðið - 19.08.2000, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Samfylkingin kynnir nýja stefnu varðandi fjarvinnslu á landsbyggðinni
V erðið dæmir
landsbyggð-
ina úr leik
Tillaga um svipaða verðskrá fyrir
landið allt lögð fram á Alþingi í haust
JAFN aðgangur að fjarskiptanetinu,
án tillits til búsetu, er forsenda virkr-
ar byggðastefnu í framtíðinni að
mati Samfylkingarinnar en Össkur
Skarphéðinsson, formaður og þing-
menn í nýju norðausturkjördæmi,
Einar Már Sigurðsson, Svanfríður I.
Jónasdóttir og Kristján L. Möller
kynntu stefnu Samfylkingarinnar
varðandi fjarvinnslu á landsbyggð-
inni á fundi í Ólafsfirði í gær. Össur
sagði fundarstaðinn valinn með
táknrænum hætti, því hvergi hefði
stefna stjómvalda um notkun Nets-
ins í þágu landsbyggðarinnar beðið
eins harpallegt skipbrot og í Ólafs-
firði, m.a. vegna vanefnda stjóm-
valda á loforðum um flutning opin-
berra verkefna til fjarvinnslu.
Dreifíkerfíð verði
sameign þjóðarinnar
Össur sagði að þróun Netsins og
starfsemi tengd því gæri orðið mikil
lyftistöng á landsbyggðinni en for-
senda þess að tækist að snúa vörn í
sókn í málefnum landsbyggðar væri
jafn aðgangur að Netinu. Verðlagn-
ing væri hins vegar með þeim hætti
að svo væri ekki, fyrirtæki á lands-
byggðinni væm ekki samkeppnishæf
við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
þar sem kostnaður þeirra við fjar-
skipti og flutning gagna væri marg-
falt hærri. Stefna stjómvalda sé því
líkleg til að dæma landsbyggðarfólk
úr leik í því upplýsingasamfélgi sem
væri að skapast á íslandi.
Samkvæmt tillögum Samfylking-
arinnar ætti upplýsingahraðbrautin,
dreifikerfið að vera sameign þjóðar-
innar með svipuðum hætti og til að
mynda vegakerfið en þannig yrði
kleift að jafna kostnað milli dreif- og
þéttbýlis vegna gagnaflutninga líkt
og er með talsímtöl nú. „í þessu sam-
bandi er alveg skýrt að þegar að boð-
aðri einkavæðingu á Landssímanum
kemur er nauðsynlegt að okkar mati
að dreifikerfið verði skilgreint sem
sameign landsmanna allra. Við vilj-
um að dreifikerfi Landssímans verði
aðskilið frá samkeppnisrekstri hans
og mynda um það sérstakt hlutafélag
Morgunblaðið/Rúnar Pór
Formaður Samfylkingarinnar og þingmenn flokksins í hinu nýja norðausturkjördæmi kynntu stefnu Samfylk-
ingarinnar varðandi fjarvinnslu á landsbyggðinni á fundi í Ólafsfirði í gær. Frá vinstri: Einar Már Sigurðsson,
Svanfríður I. Jónasdáttir, Össur Skarphéðinsson og Kristján L. Möller.
sem verði í eigu ríkisms,“ sagði Öss-
ur. Hann sagði að Samfylkingin
myndi leggja þessa stefnu sína fram
á Alþingi í vetur og í tengslum við
hana tillögur um að svipuð verðskrá
verði fyrir gagnaflutninga hvar sem
er á landinu.
Leggja fram þings-
ályktun í haust
Á fundinum benti Össur á að ráð-
herrar hefði ekki sinnt fyrirmælum
Aiþingis í byggðaáætlun til ársins
2001 um stefnumótun varðandi fjar-
vinnslu innan ráðuneyta sinna og því
myndi Samfylkingin í byrjun þings
leggja fram þingsályktunartillögu
um að verkefni sem hægt væri að
vinna með fjarvinnslu yrðu skil-
greind, fjármagni veitt til að gera
hagkvæmniathuganir á flutningi
flóknari verkefna og að verkefnum
verði útdeilt með útboði. Einnig
hyggðist Samfylkingin leggja fram
tvö þingmál til að örva einkageirann í
þessum efnum. Annars vegar þess
efnis að hið opinbera ráðist í sérstakt
átak til að kynna einkafyrirtækjum
kosti fjarvinnslu ákveðinna verkefna
á landsbyggðinni og hins vegar
frumvarp um breytingar á skattalög-
um, þannig að fyrirtæki sem flytja
störf í upplýsingatækni á lands-
byggðina fái sérstaka tímabundnar
skattaívilnanir.
Kristján L. Möller nefndi að leiga
á 2 megabita línu kostaði fyiirtæki á
höfuðborgarsvæðinu 7-20 þúsund
krónur, fyrirtæki á Akureyri og Isa-
firði yrðu að greiða um 250 þúsund
krónur og fyrirtæki á Egilsstöðum
372 þúsund krónur. Hann sagði
Landssímann neita að breyta mæl-
ingu á vegalengdum, mælt væri eftir
vegakerfi ekki loftlínu eins og til að
mynda tíðkaðist í Danmörku. „Tals-
ímagjöld eru jöfn hvar sem er á land-
inu þannig að fordæmi eru fyrir því
að þetta megi jafna,“ sagði Kristján.
Svanfríður benti á að þetta fyrir-
komulag háði þeim skólum á lands-
byggðinni sem sinntu fjarkennslu
þar sem dýrara væri að senda gögn
þaðan.
Dagskrá sunnudaginn 20. ágúst 2000
10.15 Fyrri rútuferð frá Upplýsingamiðstöð að Vesturgötu 8 í Hafnarfirði
ásamt Jónatani Garðarssyni, leiðsögumanni. Verð 800,- kr. (kort og
hádegishressing innifalin).
114W Messa í Krýsuvíkurkirkju.
12.00 Hádegishressing í Krýsuvíkurskóla (kr. 500,-).
12.15 Rúta fer til Hafnarfjarðar - möguleiki á að komast til baka
13.00 -18.00 Sveinshús opið - sýningin Maður og land. Skipulögð leiðsögn á
hálftíma fresti.
13.00-17.00 Stóri-Nýibær. Afkomendur síðustu ábúenda á Stóra-Nýjabæ
bjóða gesti velkomna og bregða upp leiftri frá liðinni tíð í máli og
myndum. Kl. 13.00 og 15.00 flytur Guðrún Bjarnadóttir, sagnfræð-
ingur, ágrip af búskaparsögu Guðmundar og Kristínar 1895 - 1933.
13.00 Rútuferð með Ferðafélagi íslands frá BSÍ (kl. 13.00) með viðkomu í
Mörkinni 6 og Upplýsingamiðstöð að Vesturgötu 8 í Hafnarfirði (kl.
13.20) undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar. Verð 800,- kr. (kort og
síðdegishressing innifalin).
14410 -17.00 Fræðsludagskrá við Seltún tileinkuð orku í Krýsuvík.
Fræðsla um jarðhita í Krýsuvík í umsjá Sverris Þórhallssonar,
verkfræðings á Orkustofnun og Þorgils Jónassonar, sagnfræðings á
Orkustofnun. Fræðslustundir hefjast kl. 14.00,15.00 og 16.00
Gönguferð á vit Austurengjahvera. Rúmlega 2ja tíma ganga undir
leiðsögn Jónatans Garðarssonar hefst kl. 14.45 að lokinni
fræðslustund.
14.00-17.IMI Kaffiveitingar í Krýsuvíkurskóla kr. 500,-).
17.30 Rúta fer til Hafnarfjarðar að fræðsludagskrá lokinni.
Árþúsundaverkefni Hafnarfjarðarbæjar
Samstarfsverkofnl vlO
RE YKJAVÍK
Dagskrá Listasumars á
Akureyri 22.-29. ágúst
22. ÁGÚST kl. 20 í Deiglunni. Fag-
urtónleikar með Sigurbjörgu Hv.
Magnúsdóttur falla niður af óviðráð-
anlegum orsökum.
23. ágúst kl. 20 í Kompaníinu.
Danssýning. Asako Ichihashi og
dansflokkur frá Dansskólanum á Ak-
ureyri. Undirleikur með lifandi tón-
list. Aðgangur kr. 1.000.
24. ágúst kl. 20 í samkomuhúsinu.
Frumsýning á barnaóperunni
„Slangan Sæmi sem langaði að læra
að syngja". Aðgangur kr. 1.000 fyrir
12 ára og yngri og kr 1.200 fyrir full-
orðna. Hópafsláttur (10 stk) kr. 800.
Önnur sýning 25. ágúst kl. 20,
þriðja sýning 26. ágúst kl. 14 og
fjórða sýning kl. 17 sama dag.
Miðasala í samkomuhúsinu/leik-
húsinu frá og með þriðjudeginum 22.
ágúst.
24. ágúst kl. 22 í Deiglunni. Heitur
fimmtudagur: Zenker kvartettinn
frá Hollandi: Gulli Guðmundsson -
kontrabassi, Florian Zenker - gítar,
Christian Kappe - trompett og Flor-
ian Lammerding - trommur. Að-
gangur ókeypis.
25. ágúst kl. 20:30 í Deiglunni.
Bókmenntavaka. Ljóðadagskrá um
Þorstein frá Hamri.
26. ágúst kl. 21 í safnaðarheimili
Akureyrarkirkju. Kiassískir tónleik-
ar. Bergenensemble. Tone Hagerup-
klarínett, Jörg Berning- selló, Signe
Bakke- píanó.
Aðgangurkr. 1.000
29. ágúst kl. 20 í Deiglunni. Fagur-
tónleikar. Ólöf Sigríður Valsdóttir
syngur við undirleik Helgu Bryndís-
ar Magnúsdóttur. Aðgangur kr.
1.000.
Þessir tónleikar eru jafnframt
lokatónleikar Listasumars og verður
Listasumri slitið að tónleikunum
loknum.
Myndlist:
26. ágúst kl 16 í Kompunni opnun
myndlistasýningar Henriettu Van
Egten.
29. ágúst kl. 16 í Ketilhúsinu. Opn-
un sýningar Heimis Freys Hlöðvers-
sonar á „Audio-visual“ list.
Ketilhúsið efri hæð. „Tímans rás“.
Rúrí sýnir verk unnin út frá gömlum
ljósmyndum og rennandi vatni. Sýn-
ingin stendur til 27. ágúst.
Opið daglega frá kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Aðgangur er ókeypis
Ketilhúsið neðri hæð. List- og
handverkssýningin „Val Höddu“.
Samsýning átta list- og handverks-
kvenna. Sýningin stendur til 27.
ágúst.
Opið daglega frá kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Aðgangur er ókeypis.
Deiglan, myndlistasýning Elvu
Jónsdóttur. Sýningin stendur til 27.
ágúst.
Opið daglega frá kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Aðgangur er ókeypis
,Audio visual art gallery“ Lista-
sumars, Deiglan neðri hæð. Tvö
myndbandaverkeftir John Hopkins.
„book of one thousand Buddhas“ og
„John Hopkins neoscenes: a sel-
ection of video works - 1989-99“.
Sýningin stendur til 27. ágúst.
Opið daglega frá kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Aðgangur er ókeypis.
------FH---------
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 á morgun, sunnudag.
Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudag.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 á
fimmtudag, 24. ágúst og hefst hún
með orgelleik. Bænaefnum má koma
til prestanna. Hægt er að fá léttan
hádegisverð í Safnaðarheimili eftir
kyrrðarstundina.
GLERÁRKIRKJA: Kvöldmessa
verður í Lögmannshlíðarkirkju ann-
að kvöld, sunnudagskvöld kl. 21.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma annað kvöld, sunnudag-
skvöld kl. 20.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðs-
brotning kl. 20 í kvöld, ræðumaður
Gunnar Rúnar Guðnason. Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar kl. 11 á
morgun, sunnudag. Þórir Páll Agn-
arsson sér um kennsluna. Léttur
málsverður að samkomu lokinni.
Vakningasamkoma um kvöldið kl.
20. Snorri í Betel syngur einsöng og
verður einnig með predikun kvölds-
ins.