Morgunblaðið - 22.09.2000, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hæstiréttur dæmir í hraðakstursmáli
Orð eins lögreglu-
manns nægja ekki
Morgunblaðið/Ásdís
Trillan máluð
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
ökumann af ákæru um hraðakstur.
Ástæða sýknu var sú, að lögreglu-
maðurinn sem mældi ökumanninn á
of miklum hraða var einn á ferð og
engum gögnum var til að dreifa sem
sönnuðu að ökumanninum hefði ver-
ið sýnd hraðatalan á ratsjá lögreglu-
bifreiðarinnar.
Lögreglumaður við embætti
sýslumannsins á Selfossi stöðvaði
akstur mannsins austur Hellisheiði
aðfaranótt 19. október 1999. Lög-
reglumaðurinn var einn á ferð og
taldi hann sig á leiðinni hafa mælt á
ratsjá, að maðurinn hefði ekið á 128
km hraða en leyfilegur hámarks-
hraði er 90 km.
Ökumaðurinn neitaði því fyrir
dómi, að sér hafi verið sýnd tala á
ratsjánni þegar hann var kvaddur
inn í lögreglubifreiðina. Hæstiréttur
segir þó ekki um það deilt, að lög-
reglumaðurinn hafi tjáð ökumannin-
um, að hann teldi hann hafa ekið á
umræddum hraða en ökumaðurinn
kvaðst ekki hafa svarað því sérstak-
lega. Hann hélt því á hinn bóginn
fram bæði hjá lögreglu og fyrir
dómi, að hann hefði ekið á um 100
km hraða eða tæplega það.
í frumskýrslu lögreglumannsins
19. október segir, að maðurinn hafi
komið inn í lögreglubifreiðina og séð
„töluna læsta á skjá radarsins og
kvaðst hann ekki rengja mældan
hraða.“ Það kemur hins vegar fram
í dómi Hæstaréttar að í dagbókar-
færslu um hraðamælingu með ratsjá
er ekki gert ráð fyrir að skráðar séu
upplýsingar um ökumann. Hæsti-
réttur segir: „Sérstakur dálkur er
hins vegar í dagbókinní með yfir-
skriftinni: „Mæling staðfest - aths.“
Þar hefur lögreglumaðurinn skráð í
allt rýmið: „Lögr.maður einn. Öku-
manni sýnd talan.“ Ekki liggur fyr-
ir, hvort ætlað sé, að ökumenn geti
ritað nafn sitt hér eða eftir atvikum
athugasemdir en miðað við uppsetn-
ingu dagbókarblaðsins blasir það
ekki við. Ákærði hefur ekki áritað
þetta blað og skrifar lögreglumað-
urinn einn undir. Annarra gagna um
hraðamælinguna nýtur ekki við.“
Leiðbeiningar ekki til
Þá kemur fram í dóminum að við
málflutning fyrir Hæstarétti lýsti
ríkissaksóknari því, að ákæruvaldið
hefði ekki gefið út sérstakar leið-
beiningar til lögreglustjóra landsins
um það hvort eða hvernig reynt
skyldi að leita
staðfestingar ökumanna á því, að
þeim hefði verið sýnd ratsjá eftir
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
mann í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir manndráp af
gáleysi og svipt hann ökuréttindum
í eitt ár. Maðurinn ók bíl sem valt
með þeim afleiðingum að ungur
drengur lést.
Málavöxtum er lýst svo í dómin-
um að í desember 1998 hafi maður-
inn ekið of hratt og án nægilegrar
aðgæslu í mikilli hálku á vegarkafla
vestur Ólafsvíkurveg í beygju við
Skógarnesafleggjarann, með sex
farþega í bifreið sem gerð var fyrir
hraðamælingu og sú tala sem þar
kæmi fram. í sumum lögregluum-
dæmum væri það gert með ein-
hverjum hætti en nánari upplýsing-
ar um þetta var ekki að finna í
málinu.
Hæstiréttur segir að samkvæmt
þessu sé ekki öðru til að dreifa um
aksturinn en frásögn og skýrslugerð
eins lögreglumanns. Engin gögn
hafi verið færð fram er stutt geti
staðhæfingar hans. Við svo búið og
gegn staðfastri neitun ökumannsins
fyrir dómi sé ekki komin fram sönn-
un þess, að honum hafi verið sýnd
ratsjáin með þeirri niðurstöðu sem
lögreglumaðurinn skráði. Beri því
að sýkna hann af öllum kröfum
ákæruvaldsins.
fjóra farþega og voru tveir ungir
drengir í pallhýsi bifreiðarinnar.
Maðurinn missti vald á bifreiðinni,
sem fór út af veginum og valt með
þeim afleiðingum, að pallhýsið
losnaði og drengii-nir köstuðust af
bifreiðinni og lést annar þeirra.
Hæstiréttur féllst á þá niður-
stöðu héraðsdórns að maðurinn
hefði sýnt af sér vítavert gáleysi
með því að flytja drengina á palli
bifreiðarinnar án nokkurs öryggis-
búnaðar. Það athæfi hafi gert
auknar kröfur til hans um ítrustu
NÚ liggur á að klára að mála trill-
una, enda er nýtt fiskveiðiár hafið
og tími til kominn að hefja róður.
Guðmundur Jónsson sjómaður
Iagði mikla natni í að mála Bæjar-
varkárni í akstri og yrði að meta
atvik og afleiðingar með sérstöku
tilliti til þess. Héraðsdómur tók
fram, við mat á refsingu, að dreng-
urinn sem lést við bílslysið var hálf-
bróðir sambýliskonu ökumannsins.
Um fjölskylduharmleik væri að
ræða sem hlyti að hafa lagst þungt
á ökumanninn og fjölskyldu hans.
Hæstiréttur tók fram að það
hefði verið verulegur annmarki á
rannsókn málsins, að lögregla hafði
ekki látið skoða bifreiðina sérstak-
lega eftir slysið.
fellið í Reykjavíkurhöfn nú á dög-
unutn og er báturinn orðinn fallega
hvítur og blár líkt og hafið og brim-
ið, sem mun bera hann í kringum
strendur landsins um ókomna tíð.
Borgarstjórn ræðir
verð einbýlishúsalóða
Lóðirseljast I
á 4-7 millj.
MIKILL lóðaskortur er í Reykjavík
og afleiðingin er sú að einbýlishúsa-
lóðir eru að seljast á mjög háu verði,
eða á bilinu 4 til 7 milljónir ki’óna.
Þetta kom fram í máli Snorra Hjalta-
sonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, á borgarstjórnarfundi.
Á fundi borgarstjórnar í gær
spunnust umræður um lóðamál á
höfuðborgarsvæðinu og héldu sjálf-
stæðismennirnir Guðlaugur Þór
Þórðarson og Snorri Hjaltason því
fast fram að mikill lóðaskortur væri
á svæðinu. Þeir sögðu lóðaskortinn
hreinlega vera yfirlýsta stefnu
Reykjavíkurlistans, en Helgi Hjörv-
ar, borgarfulltrúi Reykjavíkurlist-
ans, mótmælti því harðlega. Hann
sagði ástæðan fyrir háu verði lóða
væri sú að nú væru fleiri umsækj-
endur um þær en áður hefði tíðkast.
Snorri sagði að í nýlegu lóðaútboði
í Grafarholti hefðu lóðir farið á tvö-
földu og jafnvel þreföldu verði.
-------*-4_4-----
Jökulsá
skilar bil
og bakpoka
Norður-Hóraði. Morgunblaðið.
BÍLALEIGUBÍLL sem hollenskt
par var á og lenti í Jökulsá á Dal 15.
júlí síðastliðinn er fundinn. Bíllinn
hafði borist tæpan kílómetra niður
efth’ ánni, farið þvert yfir hana og
skorðast þar við stein. Þegar Jök-
ulsáin minnkaði eftir norðanskotið á
dögunum kom bfllinn í ljós en hann
hefur verið á um tveggja metra dýpi
frá því hann fór í ána.
Stefán Ólason, bóndi í Merki, sá
bílinn í vatnsborðinu við austur-
bakka árinnar á þriðjudaginn þegar
áin hafði minnkað verulega frá því
sem hún var í sumar. Nú hefur hins
vegar aukist í ánni og bíllinn horfinn
í vatnsflauminn aftur.
Hollenska parið missti allt sem
það hafði meðferðis og mátti heita
heppið að sleppa lifandi.
Bakpoki hafði flotið burt úr bflnum
og fannst hann rekinn úti við Hnef-
ilsdal á dögunum þegar Stefán Jóns-
son bóndi þar var að laga girðingu
við Jökulsána. Hafði bakpokann rek-
ið nálægt 20 kflómetra. I bakpokan-
um voru meðal annars veski þeirra
beggja með skflríkjum, kortum og
peningum sem allt virðist óskemmt.
Einnig voru í bakpokanum um 30
áteknar filmur sem eru óskemmdar
og myndavél sem var ónýt.
Reynt verður að ná bflnum úr ánni
um helgina.
Ný heimasíða
um tannheilsu
á N etinu
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra opnar formlega nýja
heimasíðu um tannheilsu. Frá vinstri: Magnús R. Gíslason yfirtann-
læknir, Berglind E. Ólafsdóttir, starfsmaður Tannvemdarráðs, Ingi-
björg og Jóhanna Ólafsdóttir, starfsmaður Tannverndari’áðs.
Tíðni tannskemmda hjá 12 ára börnum
Samanburður milii þjóða frá 1970-96
’ Tennur sem hafa skemmst, tapast eða eru fylltar
NÝ heimasíða um tannheilsu og
tannvernd er komin á Netið, en
Tannverndarráð hefur unnið að
uppsetningu síðunnar, sem hefur
slóðina: www.tannheilsa.is. Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra opnaði síðuna form-
lega, á henni eru upplýsingar
sem eiga bæði að nýtast fagfólki
og almcnningi, en stefnt er að
því að heimasíðan verði rikjandi
þáttur í fræðslustarfi Tann-
verndarráðs.
I fréttatilkynningu frá Tann-
verndarráði kemur fram að erf-
iðlega hafi gengið að fækka
tannskemmdum hjá íslendingum
þrátt fyrir að hér á landi séu
starfandi hlutfallslega fleiri
tannlæknar en t.d. annars staðar
á Norðurlöndunum og að hið op-
inbera greiði hluta kostnaðarins
fyrir tannlækningaþjónustu
barna og unglinga.
„Efalaust skiptir mestu gríð-
arleg neysla sykurs, sælgætis og
gosdrykkja, sem m.a. tengist því
hve söluturnar eru margir," seg-
ir í fréttatilkynningunni. „Hver
íslendingur, hvert mannsbarn,
neytir að jafnaði um 20 kg af
sælgæti og drekkur 142 lítra af
gosdrykkjum á hverju ári þrátt
fyrir að fáar þjóðir hafi betri að-
gang að góðu drykkjarvatni.“
í tilkynningu Tannverndar-
ráðs segir að verulega hafi dreg-
ið úr tannskemmdum á Islandi
frá því ráðið tók til starfa, en
hins vegar sé eyðingin á yfir-
borði tanna af völdum sýru orðin
alvarlegt heilbrigðisvandamál.
„Mikil gosdrykkjaneysla er að-
alástæðan, en óhófieg drykkja
sætra og súrra drykkja leiðir af
sér að tennurnar liggja stans-
iaust í sýrubaði og leysast upp.
Oft eru tennurnar mikið til
horfnar af þessum sökum. Þetta
á oftar en ekki við um framtenn-
ur og er bæði erfitt og kostnað-
arsamt að laga þessar skemmdir.
Söluturnar eru margir á ís-
landi og leggja þeir aðal-
áhersluna á sölu á sælgæti og
gosdrykkjum. Víða um land eru
sams konar vörur seldar á ólík-
legustu stöðum t.d. bensínstöðv-
um, vídeóleigum, sjúkrahúsum
og skólum. Aftur á móti hefur
ekki enn tekist að koma á skóla-
máltíðum, sem verður að teljast
mjög bagalegt í ljósi þess hve al-
gengt er orðið að foreldrar vinni
báðir utan heimilis. Við höfum
nógu marga starfandi tannlækna
til að gera við þær tennur sem
skemmast í íslendingum, en við-
gerð tönn verður aldrei jafngóð
og óviðgerð. Mikilvægast er að
koma í veg fyrir skemmdir, sem
er að stærstum hluta á valdi ein-
staklinganna sjálfra, eins og
menn annars staðar á Norður-
löndunum hafa sýnt fram á.“
f Tannverndarráði sitja Sigfús
Þór Eliasson, prófessor við tann-
læknadeild HI, Guðrún Stefáns-
dóttir, frá Félagi íslenskra tann-
fræðinga, Erla Ingólfsdóttir, frá
Félagi tanntækna og aðstoðar-
fólks tannlækna, og Magnús R.
Gíslason frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Hæstiréttur dæmir í máli ökumanns vegna banaslyss
Skilorðsbundið fangelsi
og svipting ökuréttinda