Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FOSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 Jfc hún bað svo mikið fyrir okkur öllum. Það er erfitt að lýsa sambandinu á milli okkar ömmu með orðum, hún tengdist okkur órjúfanlegum böndum og erum við þakklátar fyrir að hafa átt hana fyrir ömmu. Þegar amma missti heilsuna var hún samt alltaf glöð og leit svo vel út, hún brosti gegnum tárin, engan óraði fyrir því hversu veik hún var. Það var svo gleðilegt að geta glatt Gústu ömmu þegar litli sólargeislinn fékk nafnið Kristján Haukur í maí síðastliðinn og hún hafði heilsu til að vera viðstödd skímina. Aldrei áður höfum við upplifað svo tilfinningaríka skím. Kærlcikur og hvatning hennar eiga eftir að fylgja okkur það sem eft- ir er. Með þessum orðum kveðjum við Gústu ömmu og biðjum Guð að geyma hana og minningu hennar. Megi góð- ur Guð gefa okkur aðstandendum styrk í sorg okkar. Nú legg ég augun aftur ó, Guð þinn náðarkraftur, mínverivömínótt Æ, virst mig að þér taka, méryfirláttuvaka, þinn engil, svo ég sofi rótt (Þýð. S. Egilsson.) Guðbjörg og Margrét Ágústa Guðmundsdætur. „Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af tárum. Sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran). Elsku amma mín, ég trúi því ekki að ég eigi ekki eftir að geta hringt í þig og heimsótt þig. Mig grunaði ekki að þegar ég heimsótti þig á spítalann fyrir fjórum vikum að það yrði síðasta samtalið okkar, þú varst svo hress og bjartsýn eins og alltaf. Þú hafðir bar- ist hetjulega í 20 ár við erfiðan sjúk- dóm en þrátt fyrir að vera mikið veik gafstu aldrei upp vonina. Þú varst mér svo miklu meira en amma, ég kom til þín og afa þegar ég var fjög- urra ára, þið tókuð svo vel á móti mér, ég hef verið að rifja það upp síðustu vikur hvað þið voruð mér góð. Manstu, amma, þegar þið gáfuð mér gátubókina og ég lá á milli ykkar og lagði fyrir ykkur gátur úr bókinni og þegar ég var í klossunum hans afa að leika mér úti í garði og hjálpa afa að gera garðinn fínan? Eg er ykkur mjög þakklát fyrir að hafa verið mér svo góð. Þú kenndir mér bænimar og fór- um við með þær á hverju kvöldi sam- an, þú gafst þér alltaf tíma þegar ég fékk martraðir á nóttunni. Þá fórstu með mig fram og gafst mér banana og mjólk þangað til ég róaðist og leyfðir mér að koma uppí að sofa þótt þú ætt- ir erfitt með það vegna veikinda þinna. Þegar ég fór á róló sem var fyr- ir ofan húsið þitt og ég var ekki á því að fara, þá sagðir þú að ég mætti kalfa í þig og þú kæmir strax að ná í mig. Ég klifraði upp á grindverkið og sá þig og afa í garðinum og var það nóg fyrir mig, bara að vinka ykkur og vita af ykkur nálægt. Eins þegar ég var alltaf að horfa á Húsið á sléttunni og var dolfallin yfir kjólunum. Þú gerðir þér lítið fyrir og saumaðir á mig einn, þessi kjóll vakti mikla lukku hjá mér og er eins og nýr þótt hann sé 20 ára gamall. Það er heldur ekki langt síðan við töluðum um Húsið á sléttunni- kjólinn eins og við kölluðum hann og ég sagði þér að ég mundi aldrei gleyma þessum kjól og hvað ég var ánægð með hann, þú varst mjög ánægð að heyra það. Það voru oft mörg ömmuböm hjá þér þegar ég, Júlli og Viktoría vorum, þá var oft fjör og læti, þú hafðir einstakt lag á að róa okkur niður þegar það var orðið of mikið fjör. Þú áttir spænskukennslu- spólu sem þú settfr í tækið og okkur þótti það ægilega spennandi, eða sett- ir plötu á og lést okkur dansa, það var alltaf svo mikil gleði í kringum þig. Þegar ég var 16 ára og farin að vinna á Sólvangi sá ég auglýsta ferð til Ed- inborgar og langaði mig að fara og sú fyrsta sem mér datt í hug til að fara með varst þú, elsku amma, ég hringdi í þig og spurði þig. Þótt þú værir veik varstu sko til og við vorum farnar eft- ir tvær vikur. Þetta var æðislega góð ferð, við áttum góðan tíma saman, tvær í algjörri draumaborg. Við töluð- um oft um þessa ferð, þú varst eins og skólastelpa með mér í leigubílunum og að þræða búðimar, þetta var virki- lega skemmtileg ferð sem gaf mér mikið. Þú varst óvenju sterk kona, þú sagðfr alltaf að trúin skipti öllu máli og þú legðir allt í hendumar á Guði. Þær voru ekki fáar bænimar sem þú baðst fyrir mér, þú studdir mig í gegnum mína erfiðleika, ég gat alltaf leitað til þín og þú gafst aldrei upp á mér, þú deildir sjálfri þér og gafst svo mikið af þér. Þú bjóst yfir svo miklum kærleik, líf þitt snerist um að gefa af þér og hjálpa öðmm, þú settir sjálfa þig alltaf í annað sæti. Þú þráðir og baðst fyrir því að allir mættu vera sáttir og glaðir. Ég held að það geti enginn gert sér grein fyrir hvað þú varst í rauninni veik, þú barst það al- deilis ekki með þér og aldrei heyrði ég þig kvarta. Þú varst svo ánægð og glöð með það sem þú áttir og alltaf varstu brosandi. Síðustu vikur hafa verið svo erfiðar, að sitja hjá þér tengdri í allskonar tæki. Ég var að segja þér sögur af Andreu Ýri, dóttur minni, þér fannst svo gaman að henni og þú varst henni svo góð, hún gleym- ir því ekki og spyr hvenær amma Gústa með flottu neglumar komi. Og þegar afi var heima var hún hissa að hann væri einn, sem er ekkert skrýt- ið, þið vorað svo samhent og ástfangin eins og unglingar og vorað alltaf sam- an. Mér finnst það ómetanlegt að hafa verið hjá þér og haldið í höndina þína þegar þú kvaddir þennan heim. Þú varst svo friðsæl og við voram öll þarna með afa og studdum hvert ann- að, þú hefðir viljað það. Það er þér að þakka, elsku amma, hvað við erum náin og góð hvert við annað. Það lærð- um við af þér. Ég veit að það verður tekið vel á móti þér og þú færð að hitta bróður þinn, hann Kristján Hauk, langömmu og langafa og alla ættingjana. Eins veit ég að þú ert laus við alla sjúkdóma og ég sé þig fyrir mér núna hlaupandi um eins og ball- erínu, fallega og brosandi. Elsku afi, ég veit að þetta er mjög erfíður tími fyrir þig, ég bið Guð að styrkja okkur öll í sorginni. Elsku amma mín, ég kveð þig með miklum söknuði, ég elska þig með öllu mínu hjarta, ég ætla að enda á bænunum sem þú kenndir mér í æsku. Ég trúi því að við eigum eftir að hittast aftur. Takk fyr- ir allt, Guð geymi þig. Vertu Guð faðir, faðir miiin, ífrelsaransJesúnafiú Hönd þín leiði mig út og inn, svoallrisyndéghafni. (Hallgr. Pét) Nú er ég klæddur og kominn á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól. I guðsóttanum gef þú mér að ganga í dag svo líki þér. (Höfiók.) Láttu nú (jósið þitt, logaviðrúmiðmitt, hafðuþarsessogsæti, SignaðiJesús,mæti. (Höfiók.) Núleggégaugunaftur, Ó, Guð þinn náðarkraftur mínverivömínótt Æ.virztmigaðþértaka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt (Sveinbjöm Egilsson.) Kristur minn, ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu, gakk þú inn og geymdu mig, Guð,ífaðmiþínum. (Höfiók.) Kristjana Gylfadóttir. Elsku Gústa langamma mín, mér finnst það voðalega skrýtið að þú sért farin, ég er alltaf að spyija mömmu mína hvar amma Gústa með flottu neglumar sé, og af hveiju afi sé einn, mamma segir að þú sért hjá Jesú og að þú fylgist með mér. Elsku amma mín þú varst svo góð við mig, það var svo gaman að koma í heimsókn til þín og klappa hundunum, manstu amma ég var ekkert hrædd við Papageno þótt hann gelti svona mikið. Ég á eftir að sakna þín mikið, ég ætla að passa afa fyrii' þig og hundana. Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, tilkomiþittríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á Himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefúm vorumskuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldurfrelsaossfráillu. Þvíaðþitterríkið, mátturinnogdýrðin aðeilífú,amen. Andrea Ýr Baldursdóttir. Elsku Gústa mín, ég vil þakka þér fyrir samverastundimar góðu í þessi sex ár sem ég hef þekkt þig. Ég kom inn í fjölskylduna þína þegar ég kynntist Kristjönu bamabami þínu, ég sá strax að þú varst óvenju góð kona. Það bjó í þér svo mikill kærleik- ur og þú varst alltaf tilbúin að hjálpa. Veikindin þín vora aukaatriði fyrir þig, ég heyrði þig aldrei kvarta og alltaf varstu brosandi. Þú lifðir fyrir fjölskyldu þína, þú varst ánægð ef all- ir vora sáttir. Þú tókst strax svo vel á móti mér og lést mig finna hvað ég var velkominn. Þegar ég heimsótti þig á spítalann fyrir fjóram vikum varstu svo hress og jákvæð eins og alltaf, það var alveg sama hvað gekk á hjá þér, alltaf brostir þú. Það sem hef- ur drifið þig áfram í veikindum þínum er trúin, kærleikurinn og fjölskyldan, þú gafst aldrei upp vonina, lagðir allt í hendumar á Guði og þú sagðir alltaf að hann réði ferðinni. Elsku Gústa mín þú varst algjör hetja, þú barðist hetjulega í mörg ár við erfið veikindi, þú varst einstök og yndisleg kona og þín verður sárt saknað. Elsku Júlli, ég bið Guð að styrkja þig og okkur öll í þessari miklu sorg, ég kveð þig Gústa mín í bili með kærleiksbæninni úr Biblíunni, mér finnst passa mjög vel við þig því að í þér bjó ótrúlega mikill kærleikur. Hvíl í friði. „Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking og þótt ég hefði svo tak- markalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað, en hefði ekki kærleika, væri ég ekki neitt. Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brennd- ur, en hefði ekki kærleika, væri ég engu bættari. Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsam- ur, hreykir sér ekki upp. Hann hegð- ar sér ekki ósæmlega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki lang- rækinn. Hann gleðst ekki yfir órétt- vísinni en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða und- ir lok. Þvi að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum. En þeg- ar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok sem er í molum. Þegar ég var barn, talaði ég eins og bam, hugsaði eins og bam og ályktaði eins og bam. En þegar ég var orðinn fulltíða maður lagði ég niður bama- skapinn. Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum vér sjá augliti til auglitis. Nú er þekking mín í molum en þá mun ég gjör- þekkja, eins og ég er sjálfur gjör- # þekktur orðinn. En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt en þeirra er kærleikur- inn mestur“.( Kærleikurinn mestur 1. kor 13 vers 1-13). Takk fyrir allt, Baldur Ingi Ólafsson. Ó elsku mamma, nú ert þú farin og kvalir þínar loksins horfnar. Ég hef kviðið þessum degi í langan tíma elsku besta mamma mín en þú þurftir að kveljast mikið til að fá að vera með okkur síðan þú misstir heilsuna að- eins 47 ára gömul. Fyrii- tveimur ár- um hélt ég að jarðvist þinni væri að ljúka og grét í fangi þínu af tilhugsun- SJÁSÍÐU54 + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN KRISTJÁNSSON, Holtastíg 8, Bolungarvík sem lést á heimili sínu laugardaginn 16. sept- ember, verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bol- ungarvík laugardaginn 23. september kl. 14.00 Evlalía Sigurgeirsdóttir, Halldóra Jóhannsdóttir, Jóhann Magnússon, Margrét Jóhannsdóttir, Bjarni L. Benediktsson, Sigurgeir G. Jóhannsson, Guðlaug Elíasdóttir, Oddný H. Jóhannsdóttir, Kristján L. Möller, Bjami K. Jóhannsson, Anna S. Jörundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Bróðir okkar, GUNNAR SVEINSSON mag. art, Bogahlíð 22, andaðist á Landspítala við Hringbraut fimmtu- daginn 21. september. Kristjana Ó. Sveinsdóttir, Grímur Sveinsson, Kristveig Sveinsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SELMA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hafnagötu 30, Höfnum, sem lést á heimili sínu laugardaginn 16. sept- ember, verður jarðsungin frá Kirkjuvogskirkju, Höfnum, á morgun laugardaginn 23. septem- ber kl. 13.30. Þóroddur Vilhjálmsson, Birna Ágústsdóttir, Vilhjálmur Reynir Sigurðsson, Sigríður Ágústsdóttir, Sigurður Ari Eiíasson, Selma Ágústsdóttir, Jens Herlufsen, Einar Sigurjónsson, Hugborg Erlendsdóttir, Kolbeinn Sigurjónsson, Guðlaug Á. Arnardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, dóttur, systur, mágkonu og frænku, ÖNNU STEINUNNAR ÁSLAUGSDÓTTUR, Norðurvegi 10, Hrísey. Sérstakar þakkir fá starfsfólk á deild 11e á Landspítalanum við Hringbraut, lyfjadeild 1 og 2 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Heimahlynning á Akureyri. Ásrún Ýr Gestsdóttir, Áslaugur Jóhannesson, Valgerður Áslaugsdóttir, Einar Pétursson, Ingibjörg Áslaugsdóttir, Jóhann Alfreðsson, Jóhannes Áslaugsson, Marína Sigurgeirsdóttir, Baldvin Áslaugsson, Friðrika Björk lllugadóttir, Heimir Áslaugsson og systkinabörn. + Innilegar þakkir og kærar kveðjur til allra þeirra fjölmörgu, sem sent hafa okkur samúðarkveðjur, blóm eða sýndu hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður, mágs og frænda, JÓNS MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR bakarameistara. Jennifer O’Grady Sigurðsson, Sigurður Pétur Jónsson, Philip Jónsson, Margrét Ann Jónsdóttir, Einína Einarsdóttir, Signý Sigurðardóttir, Jón G. Bjarnason og börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.