Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Aalborg Portland selur sement á Íslandi eftir 40 ára hlé
Sementssíló Aaalborg Portland í í Helguvík er 3.500 rúmmetrar að stærð.
Samkeppni á íslenska
sementsmarkaðinum
DANSKI sementsframleiðandinn
Aalborg Portland A/S stofnaði fyrr á
þessu ári dótturfélag hér á íslandi,
Aalborg Portland íslandi hf., og mun
það formlega taka í notkun nýja
starfstöð í Helguvík í dag, föstudag.
Frá stöðinni í Helguvík mun verða
dreift sementi til steypustöðva og
byggingarfyrirtækja á Islandi. Á lóð
Áalborg Portland Islandi í Helguvík
er gert ráð fyrir að hægt verði að
byggja tvö sementssíló en sílóið sem
nú verður tekið í notkun er 3.500
rúmmetrar að stærð.
Sementsverksmiðjan nær
einráð á markaðinum
Sementsverksmiðjan á Akranesi
hefur verið nær algerlega einráð á
sementsmarkaðinum hér á landi frá
stofnun verksmiðjunnar árið 1958.
Flutt hefur verið inn sement til ís-
lands en magnið hefur hins vegar
verið hverfandi til þessa og yfirleitt
um sérstakar tegundir sements að
ræða. Með starfsemi Aalborg Port-
land hér á landi má hins vegar vænta
aukinnar samkeppni á þessum
markaði. Mikil uppsveifla hefur ver-
ið á sölu á sementi hér á íslandi und-
anfarin ár vegna mikilla fram-
kvæmda í byggingariðnaði. Þannig
nam sala Sementsverksmiðjunnar
hátt í 130.000 tonnum í fyrra og Gylfi
Þórðarson, forstjóri Sements-
verksmiðjunnar, telur að enn meira
muni seljast í ár eða 135.000 til
140.000 tonn ef tíð helst þokkaleg
það sem eftir lifir ársins. Til saman-
burðar megi nefna að salan hafi að-
eins numið um 76.000 tonnum árið
1995.
Fyrsti farmurinn
á leiðinni
Fyrsta farmi Aalborg Portland,
liðlega 4.000 tonnum af sementi,
verður landað í sílóið í Helguvík í lok
þessarar viku. Sementið sem aðal-
lega verður boðið upp á verður
markaðssett undir nafninu Rapid
sement en það er sterkt sement með
styrkinn 52,5. Að sögn Bjama Ósk-
ars Halldórssonar, framkvæmda-
stjóra Aalborg Portland íslandi,
verður sementið flutt inn með tank-
skipum í eigu Aalborg Portland AS
beint frá sementsverksmiðju félags-
ins í Álaborg. Bjarni segir að sem-
entið verði síðan afgreitt á tankbíl-
um í lausu til steypuframleiðenda en
einnig verður boðið upp á minni
pakkningar, þ.e. 25 og 40 kíló af öðr-
um tegundum sements auk lág-alk-
alí sements í stórsekkjum sem hent-
ar vel til virkjana og mannvirkja þar
sem veggþykkt er mikil.
Samkeppnishæfir í
verði og gæðum
Aðspurður segir Bjami að það sé
auðvitað ekkert launungarmál að
Aalborg Portland íslandi ætli sér
skerf af íslenska markaðinum. Hvað
gæði sementsins snerti verði mark-
aðurinn hinn endanlegi dómari en
óhætt sé að fullyrða að sementið frá
Aalborg Portland sé hágæðasement.
Hvort og hvenær reist verði annað
síló ráðist vitaskuld af viðbrögðum
markaðarins en fyrstu viðbrögð hafi
verið jákvæð.
Aðspurður segir Bjarni að Aal-
borg Portland Islandi verði sam-
keppnishæft bæði í verði og þjón-
ustu en það sé vitaskuld erfitt að spá
fyrir um verðþróun á markaðinum
þar sem samkeppni sé rétt í þann
mund að hefjast. Það sé hins vegar
von sín að sú samkeppni muni fara
fram á heilbrigðum gmndvelli og
gagnast kaupendum á sementi á ís-
landi.
Gylfi Þórðarson, forstjóri Sem-
entsverksmiðjunnar, segir að Sem-
entsverksmiðjan selji meira í dag en
hún ráði við með góðu móti þannig
að menn hafi ekki sérstakar áhyggj-
ur af samkeppni í sölu sements í bili
Sementsverksmiðjan haldi öllum
sínum viðskiptamönnum að minnsta
kosti enn sem komið er. Það verði
hins vegar einfaldlega að koma í Ijós
hvað muni gerast á markaðinum
með tilkomu Aalborg Portland á ís-
landi.
Aalborg Portland A/S var stofnað
árið 1889 og er því orðið 111 ára
gamalt fyrirtæki en státar nú af
mjög tæknivæddu og háþróuðu
framleiðsluferli. Fyrirtækið hóf sölu
á sementi til íslands árið 1903 og
seldi hér sement allt fram til ársins
1958 en þá hóf Sementsverksmiðja
ríkisins starfsemi. Sement frá Aal-
borg Portland var því notað við
byggingu margra eldri og merkari
steinhúsa og mannvirkja hér á Is-
landi sem reist voru fyrir árið 1960
og þótti sementið frá Áalborg Port-
land reynast mjög vel. Við stofnun
Sementsverksmiðju ríkisins ákváðu
stjómendur Aaalborg Portland að
hætta starfsemi á íslenskum mark-
aði.
Þegar umræða um einkavæðingu
og sölu Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi hófst íyrir nokkrum árum
sýndu stjórnendur Aalborg Portland
kaupum á Sementsverksmiðjunni
áhuga sem og ört vaxandi bygging-
armarkaði á Islandi. Ekkert varð af
kaupunum og ríkisvaldið tók ákvörð-
un um að fresta sölunni á Sements-
verksmiðju ríkisins sem reyndar er
hlutafélag nú en allt hlutafé er enn í
eigu ríkisins.
Mjög öflugt
sementsfyrirtæki
Aalborg Portland er ráðandi á
danska sementsmarkaðinum með
um 85% markaðshlutdeild. Það er í
eigu Portland Holding sem aftur er í
eigu FLS Industries, sem er eitt
allra stærsta iðnaðarfyrirtæki í Dan-
mörku. Framleiðslugeta Aalborg
Portland er um 2,8 milljónir tonna af
sementi á ári og flytur fyrirtækið lið-
lega helming þess út. Velta þess var
um 12,5 milljarður íslenskra króna í
fyrra en á fyrra helmingi þessa árs
nam veltan 7,8 milljörðum þannig að
gera má ráð fyrir að heildarveltan
verði nokkru meiri í ár. Starfsmenn
Aalborg Portland eru um 800 talsins.
Dímon hugbúnað-
arhús í samstarf
við Cell Network
DÍMON hugbúnaðarhús hefur hafið
samstarf við Cell Network, sem er
leiðandi fyrirtæki í Svíþjóð hvað
varðar þráðlausar lausnir, og mun
Cell Network héðan í frá mæla með
Waporizer-hugbúnaði Dímons við
viðskiptavini sína. Þá mun Cell
Network nota Waporizer sem þró-
unarverkfæri við þráðlausar lausnir
fyrir viðskiptavini sína.
Cell Network er eitt fremsta net-
ráðgjafarfyrirtæki heims, en við-
fangsefni þess eru Netið og
gagnvirkir miðlar. Fyrirtækið býður
mikilvægar viðskiptalausnir og sér
að fullu um áætlanagerð, tækni,
hönnun og innihald. Meðal viðskipta-
vina þess eru Ericsson, Volvo, Gen-
eral Electrics, Telia, AstraZeneca,
Telenor og Statoil. Cell Network er
skráð á verðbréfaþingi Stokkhólms
og hefúr meira en 2.100 starfsmenn í
lölöndum.
I tilkynningu um samninginn
kemur fram að næstu skref Dímons
verði að halda námskeið fyrir sér-
fræðinga frá Cell Network þar sem
þeim verður kennd uppsetning, við-
hald og notkun á Waporizer-hugbún-
aðinum. Námskeiðin verða haldin
jafnhliða námskeiðum fyrir Aston IT
í Kaupmannahöfn sem nýverið tóku
að sér að dreifa Waporizer-hugbún-
aðinum fyrir Dímon.
Hugsanlegt tilboð
MeritaN ordbanken
Ósltí. Morgunblaðið.
TALIÐ er að sænski bankinn Mer-
itaNordbanken hafi hug á að kaupa
þriðja stærsta banka Svíþjóðar, För-
eningssparbanken. Þetta hefur m.a.
Aftenposten eftir óstaðfestum heim-
ildum.
Eigandi MeritaNordbanken er
eignarhaldsfélagið Nordic Baltic
Holding (NBH). Félagið hefur gert
tilboð í hlut norska ríkisins í Kredit-
kassen, hefur keypt danska Unibank
og mun líklega bjóða í Förenings-
sparbanken.
Markaðsverðmæti MeritaNord-
banken er um 190 milljarðar
sænskra króna eða um 1.700 millj-
arðar íslenskra króna. Markaðsverð-
mæti Föreningssparbanken sam-
svarar aftur á móti um 600
milljörðum íslenskra króna.
Yfirtakan gæti mætt andstöðu
samkeppnisyfirvalda ESB, að því er
segir í Áftenposten, því sameiginleg
markaðshlutdeild bankanna myndi
fara yfir 30%.
Föreningssparbanken á 25% í
norska bankanum Sparebank 1
Gruppen. Fari svo að NBH kaupi
bæði Kreditkassen og Förenings-
sparbanken, hefur það eignast hlut í
tveimur norskum bönkum.
Dagens næringsliv bendir á að til
samans myndu Kreditkassen og
Sparebank 1 Gruppen mynda
stærsta banka Noregs, að markaðs-
verðmæti og markaðshlutdeild.
Vodafone kaupir
40% í Global Sign
VODAFONE sem er stærsti aðili í
heiminum í þráðlausum símasam-
skiptum, hefur keypt 40% hlut í
Global Sign sem er leiðandi fyrir-
tæki í útgáfu á rafrænum skilríkj-
um. Vodafone keypti hlutinn í fram-
haldi af um 16 milljóna króna
hlutafjáraukningu.
Að sögn Sigurðar Erlingssonar
framkvæmdastjóra Global Sign á
íslandi munu þessi kaup Vodafone í
GlobalSign móðurfyrirtækinu flýta
fyrir þeirri þróun að geta notað
GSM síma á öruggan hátt í viðskipt-
um. Vodafone sé með þessum kaup-
um að víkka enn frekar þá styrku
stöðu sem þeir hafa á símamarkað-
inum.
Vodafone og GlobalSign munu
setja mikinn þunga í að þróa og festa
í sessi þjónustur í rafrænum við-
skiptum í tölvum og farsímum, sér-
staklega internet GSM símum sem
byggja á WAP eða UMTS tækni.
Siminn býður
Frelsisnotendum VIT
FRELSISNOTENDUR hjá Sím-
anum GSM geta fengið sér VIT í
símann sinn, en fram til þessa
hefur sú þjónusta ekki verið opin
viðskiptavinum í Frelsi. í til-
kynningu kemur fram að til þess
að unnt verði að virkja VIT-ið
verði viðskiptavinir Símans GSM
að skipta gömlu kortunum sínum
út fyrir ný gagnakort á næstu
þjónustumiðstöð Símans. Nýju
kortin eru afhent án endurgjalds
og á þeim er VIT orðið hluti af
valmyndinni. Jafnframt er mögu-
leiki á því að skipta út þeim val-
myndum sem fyrir eru í símanum
og velja þá þjónustu sem hentar
hverjum og einum á vefslóðinni
www.vit.is.
Byrjað var að dreifa gagnakort-
um sem innihéldu VIT strax í sum-
ar, en valmyndin hefur fram að
þessu ekki verið sýnileg hjá Frels-
isnotendum þar sem ekki var unnt
að bjóða upp á þjónustuna fyrr en
nú.
Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT