Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Grettir
Ljóska
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ljósmynd/Hjörtur L. Jónsson
Þátttakendur í enduro-keppninni við rásmarkið.
Viggó Viggósson í loftköstum.
Framúrskarandi
árangur í mótor-
hjólakeppni
Ferdinand
Skrítið, ha?
Ruglað.
Stór-
furðulegt.
Hvað eru þau að
tala um, Magga?
Þau hafa aldrei séð neinn taka með
sér franskar í pennaveskinu áður.
Frá Hirti L. Jónssyni:
VIGGÓ Viggósson, nýkrýndur
íslandsmeistari í mótorkrossi árið
2000, fór ásamt þeim Karli Gunn-
laugssyni, Jóni Magnússyni og Skúla
vélvirkja til Englands í lok ágúst, til
að taka þátt í enduro-mótorhjóla-
keppni sem nefnist Fast Eddy.
Keppni þessi hefur verið haldin frá
árinu 1986 og er fyrirmynd sams-
konar keppna í Ameríku, auk þess
sem íslandsmótið í enduro er með
svipuðu sniði.
Viggó hafði með sér keppnishjól
sitt sem er KTM 300cc. Hjólið var
flutt í kössum sem auðvelt var að
meðhöndla og var svo sett saman á
staðnum.
Brautin er staðsett fyrir sunnan
Stoke og er um sex kílómetra löng og
að hluta í skógivaxinni hlíð.
Viggó var í hópi 250 áhugamanna í
flokki mótorhjóla með vél stærri en
175cc. Keppnin stóð í tvær klukku-
stundir, og þegar hún var flögguð af
var Viggó í 9. sæti í heildina og 5. í
sínum flokki.
Tók þátt í atvinnumannakeppni
Viggó taldi sig geta enn betur og
fékk leyfi til að taka þátt í atvinnu-
mannakeppninni, sem var haldin
skömmu á eftir áhugamannakeppn-
inni. Þetta var þó talið nánast
ómögulegt og sögðu keppnishaldar-
ar það sambærilegt við að keppa í
einu maraþonhlaupi fyrir hádegi og
svo öðru eftir hádegi. Þetta gekk þó
upp og Viggó fékk að taka þátt í
keppni atvinnumanna. Sú keppni tók
þrjá klukkutíma, með tveimur hléum
fyrir bensínáfyllingu og viðgerðir.
Viggó vann sig smátt og smátt upp í
þessari keppni og kom það flestum á
óvart að á endanum hafnaði hann í
24. sæti í atvinnumannaflokknum og
5. sæti í sínum flokki.
Ein umferð er eftir í íslandsmeist-
aramótinu og verður hún haldin á
morgun, laugardaginn 23. septem-
ber, við Litlu kaffistofuna. Fimm
eiga möguleika á titlinum í ár og
þeirra á meðal er Viggó Viggósson.
HJÖRTUR L. JÓNSSON,
Ásgarði 53, Reykjavík
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.