Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 63 BRÉF TIL BLAÐSINS Dagur án bila Frá Else Williamson: HÉR UM árið var maður drepinn af bjarndýri í Finnlandi. Maður- inn lenti milli birnu og húna og brást móðirin við í samræmi við eðli sitt. Högg af öflugum hrammi varð til þess að bjarndýrakló kom við hálsæð mannsins. Atvikinu var veitt gíf- urlegt rými í fjölmiðlum og bjarndýrið, sem með þessum hætti brást til varnar afkvæmi sínu, átti stutt eftir ólifað. Að náttúran sé óviðráðanleg getum við ekki sætt okkur við. Að menningin reynist okkur jafn óviðráðanleg og þar að auki mörgum sinnum hættulegri er gefinn lítill gaumur. Rúmlega einn maður á dag deyr í bílslysi í Finnlandi og þá slösuðu má telja í þúsundum. Á íslandi er hlutfall slasaðra allt að tvöfalt hærri en annars staðar á Norðurlöndumog eftirtektarvert er hve margir þeirra sem slasast í umferðinni eru milli 15 og 20 ára. Hugmyndin um bíl sem tákn fyrir frelsi og lífsgæði er orðin verulega úrelt. Þessi farartæki hafa gert okkur að þrælum hávaða og mengunar svo ekki sé minnst á allsráðandi vegakerfi. Sú trú að akandi maður andi að sér minna magni eiturefna heldur en gangandi eða hjólandi maður er útbreidd en hefur þó verið af- sönnuð. Niðurstöður rannsókna sýna að akandi maður fær 30% meira af því góða. Talið er að um tvær til þrjár vinnustundir á dag fari í að borga og halda uppi bíl. Með því að hjóla eða ganga í vinnuna væri því ekki aðeins hægt að fá hreyf- ingu og ferskt loft, heldur þar að auki tíma til að sinna áhugamál- um, vera með fjölskyldu eða bara slappa af. Þegar betur er að gáð getur það ekki annað en vakið furðu hvað menn velja að veita forgang í lífinu. Auðveldara er þó að skilja þetta ef hafður er í huga sá gífurlegi máttur sem auglýs- ingar hafa yfir lífsstíl okkar. Bíll- inn, tiltölulega skammlífur en ótrúlega dýr, er óskabarn neysl- unnar. 22. september gengur í borgum víða um Evrópu undir heitinu „evrópskur dagur án bíla“. Tilgangurinn er að einn dag á ári gefist mönnum kostur á að upp- lifa borg sína frá sjónarhóli sem þeim er annars aldrei kleift og sýna fram á nýja valkosti. Snjall- ir kaupmenn kunna að nýta sér aðstæðurnar og koma með ýmis tilboð til dæmis gegn framvísun miða úr almenningsfarartæki. Á vegum European Youth For Action hefur þegar ellefu ár í röð verið haldið átak fyrir bílalausum borgum í formi hjólaferðar í gegnum Evrópu, pólitísk stefnu- yfirlýsing sem einnig hefur tákn- rænt gildi. Hver og einn getur tekið þátt í því eins og honum hentar í sínu daglegu lífi og þá ekki endilega með því að vera sí- hjólandi í rigningu og roki. Aðal- málið er að draga úr óþarfa notk- un blikkdósarinnar sem er hættuleg öllu því sem lifir. Hver gangandi maður, hvert hjól, hver farþegi í strætó þýðir einum bíl minna. Pláss er fyrir fleiri og margfalt fleiri í þessum efnum, sama hvaðan menn koma og hvert menn eru að fara. Hvar stendur ísland? Sömu gömlu vindar munu blása hér um ómuna tíð en vonin er að nýir vindar blási með jafnmiklum krafti á komandi tímum. Seint mun undir- rituð gleyma hljómnum í fimmtíu hjólabjöllum frá fimmtán löndum sem í síðsumarsrökkri hringja inn framtíðina - tónlist okkar tíma. ELSE WILLIAMSON, Hjarðarhaga 33, Reykjavík. Alfreð kemur til dyranna eins og hann er klæddur Frá Stefaníu Sigurðardóttur: ÞAÐ ER alveg ótrúlegt hvað Al- freð Þorsteinsson hefur verið yf- irlýsingaglaður, hann talar úr sal borgarstjórnar Reykjavíkur eins og hann sé að flytja framboðs- ræðu til Alþingis. Gæti verið að Alfreð Þorsteinsson sé á leiðinni í Samfylkinguna? Hann sendir samstarfsflokki Framsóknarflokksins í ríkisstjórn kaldar kveðjur og telur allt vont koma þaðan, meðal annars ráðn- ingar í stöður á vegum hins opin- bera. Hann segir að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi raðað sínu fólki í allar þær valdastöður sem flokk- urinn eigi möguleika á. En maðurinn gleymdi að telja upp allar þær stöður sem Fram- sóknarflokkurinn hefur veitt flokksmönnum sínum, bæði hæf- um og óhæfum, meðal annars hans eigin forstjórastöðu hjá Sölu varnarliðseigna, veitingu Finns Ingólfssonar í stöðu bankastjóra Seðlabanka, forstjóra íbúðalána- sjóðs, Guðmund Bjarnason, for- mann stjórnar Ríkisspítala, Guð- nýju Sverrisdóttur og veitingu Ómars Kristjánssonar í stöðu for- stjóra Flugstöðvar Leifs^ Eiríks- sonar og hefur Halldór Ásgríms- son fengið áfellisdóm frá umboðsmanni alþingis fyrir það. Þetta eru bara nokkur dæmi um flokkshollustuna. Sjónvarp, útvarp og dagblöð hafa gefið þessum yfirlýsingum Alfreðs Þorsteinssonar mikið og gott rými, Rás 2 var með Alfreð í nokkurs konar „maður er nefnd- ur“-þætti í síðdegisútvarpinu sl. föstudag, það má geta þess hér að Ríkisútvarpið er eitt af þeim fyrirtækjum þar sem hann telur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi rað- að sínum mönnum í valdastöður til áhrifa. Þessum yfirlýsingum Alfreðs hafa margir framsóknarmenn svarað í sömu fjölmiðlum og er nokkuð ljóst að þeir eru ekki allir sáttir við þessar yflrlýsingar og komið hefur fram ósk frá fpr- manni flokksins, Halldóri Ás- grímssyni, um að Alfreð haldi sig við borgarmálin og láti sig um landsmálin. Eru þetta skýr skila- boð til Alfreðs um að hann hafi gengið of langt í yfirlýsingum , sínum. Það hefur ekki farið fram hjá þeim sem fylgjast með íslenskri pólitík að Framsóknarflokkur- inn þarf að berjast fyrir lífi sínu hér í Reykjavík, þetta hafa þær kannanir sem gerðar hafa verið sýnt okkur. Fylgi Framsóknar- flokksins verður ekki aukið með samfloti við R-listann í næstu borgarstjórnarkosningum, því að R-listinn er ekkert annað en Samfylkingin og við hana keppir Framsóknarflokkurinn um kjör- fylgið. Fari Framsóknarflokkur- . inn og R-listinn fram saman í næstu borgarstjórnarkosning- um, líkist það engu meir en að flokkurinn sái í akur óvinar síns. STEFANÍA SIGURÐAR- DÓTTIR, Vindási 2, Reykjavík. Ensk fjölskylda þakkar aðstoð Frá Anne, Ben, Claire og Sam Harding: LESENDUR blaðsins muna ef til vill eftir frétt um enska fjölskyldu sem féll í Skaftafellsá 29. ágúst. Kon- an, Anne, hafði hætt að anda og var flutt með sjúkrabíl og þyrlu á sjúkra- hús í Reykjavík. Við erum þessi fjölskylda. Anne kom aftur til Englands sex dögum eftir slysið og er nú komin heim til sín. Hún er á góðum bata- vegi og varð ekki fyrir varanlegu heilsutjóni. Án sérfræðiþekkingar, umönnun- ar og dásamlegrar góðvildar ótrú- legs fjölda manna gætum við ekki verið í þeirri giftusamlegu stöðu sem viðerumínú. í öllu fríinu á íslandi og einkum eftir slysið vorum við agndofa yflr góðvild og göfuglyndi Islendinga sem gerðu allt sem þeir gátu til að hjálpa okkur. Læknisaðhlynningin og önnur að- stoð sem við fengum var frábær. Einnig andlegi stuðningurinn við hvert okkar fyrir sig og okkur öll sem fjölskyldu. Við stöndum í þakkarskuld við marga og ef við minnumst ekki á ein- hvern þeirra í þessu bréfl biðjumst við velvirðingar á því. Við nefnum hér nokkur nöfn sem við þekkjum. Við vonum að allir aðrir sem hlut áttu að máli viti við hverja er átt. í Skaftafelli: • Starfsmennirnir og börnin á tjald- stæðinu og landverðirnir, einkum „Brian“, og verðir tjaldstæðisins. • Lögreglumaðurinn á staðnum. • Mennirnir á sjúkrabílnum og lög- reglumennirnir frá Höfn og Kirkjubæjarklaustri. • Þyrlusveitin. í Reykjavík: • Allt starfslið gjörgæsludeildarinn- ar. • Óskar Einarsson læknir og starfs- félagar hans. • Ættingjar annarra sjúklinga á deildinni, einkum tveggja manna sem slösuðust í flugslysi fyrir mánuði. • Allt starfslið deildar B7. • Sjúkrahúspresturinn, Gunnar Matthíasson. • Bára Jóhannsdóttir, hjá Arctic Experience. • Starfslið bílaleigunnar Terra Nova, einkum Stefán og Guðbjartur. • Starfsfólk Hótels Lindar. • Starfsfólk Hótels Holts. • Starfsfólk efnalaugarinnar við Rauðarárstíg. Við getum ekki fullþakkað öllu því fólki sem hjálpaði okkur á erfiðasta tíma í lífi okkar. Við viljum einnig þakka íslensku þjóðinni fyrii’ að veita svo frábæra læknis- og björgunar- þjónustu. ANNE, BEN, CLAIRE OG SAM HARDING. Ríkissj ónvarpið Frá Sveini Þorsteinssyni: ÉG ER hlynntur því að við íslend- ingar rekum og eigum ríkissjónvarp og ríkisútvai’p. En ég er ósáttur við það að Sjónvarpið skuli ekki senda út á tveimur rásum. Þá er ég að tala um að senda út hefðbundna dagskrá á annarri rásinni og síðan á hinni rás- inni viðburði eins og Ólympíuleikana og annað sem er að gerast í íþrótta- heiminum hverju sinni. Einnig aðra viðburði svo sem sinfóníutónleika, popptónleika o.s.frv., en láta ekki framantalda liði raska hefðbundinni dagskrá. Það eru sem betur fer ólíkar óskir um dagskrána, en með svona fyrir- komulagi myndu fleiri verða sáttir með hana. Líka væri í lagi að bæta við svo sem einni bíómynd um helg- ar, t.d. á föstudögum og laugardög- um, þannig að sjónvarpað væri til að minnsta kosti klukkan eitt eftir mið- nætti þessi kvöld. Það eru ótrúlega margh’ sem horfa mikið á sjónvai’p og á ég þar við eldra fólk og sjúklinga og það má ekki taka þetta kannski eina skemmtiefni sem þetta fólk hefur, al- gjörlega frá því, það er þannig að mjög margir hafa takmarkaðan áhuga á því að horfa á íþróttir. En svo eru líka margir sem hafa gaman af íþróttum og hugsanlega væri þá hægt að sýna meira af því efni og öðru sem ég áður taldi upp, á annarri rás. Svo er líka annað sem ég vildi breyta og það er fyrirkomulagið á gjaldheimtu Ríkissjónvarpsins og Ríkisútvarpsins. Þar vildi ég að af- notagjaldið yrði greitt með öðrum sköttum, ákveðin upphæð á alla sem eru skattskyldir nema ellilíf- eyrisþega, þeir væru undanþegnir þessum greiðslum. Með þessu fyrir- komulagi væri jafnvel hægt að lækka afnotagjöldin vegna betri skila og svo legðist innheimtustofnunin nið- ur, sem ábyggilega er rekin með mai’gi’a milljóna kostnaði ár hvert. Þar að auki myndi vera aflögð sú njósnastarfsemi sem nú er í gangi gagnvart fólki sem er með sjónvarp en hefur ekki greitt afnotagjöld og það fólk sem sinnir þeim störfum fengi skemmtilegri störf í staðinn. SVEINN ÞORSTEINSSON, Hvanneyrarbraut 60, Siglufirði. Cartíse Úlpur, frakkar, dragtir o.fl. Stærðir 36-52 Hamraborg 1 Garðarsbraut 15 sími 554 6996 Húsavík sími 464 2450 Benedikt Jóhannesson Glúmur Jón Björnsson Frjáls verslun og Fiskifélag íslands e&ia til opins fúndar á Grand hóteli Eeykjavíkur mánudaginn 25. september kl. 15.00 - 17.00. Yfirskrift fundarins er „heimsendir". FJallað verður um bókina Hið sanna ástand heimsins eftir Danann Bjpm Lomborg. Bjpm mætir á fundinn og heldur öamsögu ásamt Tryggva Felixsyni, hagfræðingi og framkvæmdastjóra Landvemdar. Fiskifélagsútgáfan gaf bókina út á dögunum. Þrfr spyrlar verða á fúndinum, þeir Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, Stefán Jón Hafstein, framkvæmdastjóri fjölmiðlafyriitækisins t- íslands ehf., og Guðmundur Frímannsson, heimspekingur og deildarfoiseti við Háskólann á Akureyri. Þá mimu Jón Bjamason, þingmaðm: Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, Glúmur Jón Bjömsson efnafræðingur, Ámi Finnsson, framkvæmdastjóri Náttúruvemdarsamtaka íslands, og Alda Möller matvælafræðingur leggja orð í belg á fundinum. Framkvæmdastjúrl Flskifélags íslands, Pétur Bjamason, setur fúndinn. Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, sem gefur út Frjálsa verslun, verður fúndarstjóri. Fundurinn er öllum opinn. Grand Hútel Reykjavík, mánudaginn 25. september, kl. 15.00 -17.00 Fiskifélag íslands iMáaiK.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.