Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Gjöld með nemendum sem eiga lögheimili í öðrum sveitarfélögum Innheimtu fylg^t fastar eftir Reykjavík REYKJAVÍKURBORG mun í vetur fylgja því fastar eftir að innheimta gjöld með nemendum sem sækja nám í grunnskólum Reykjavíkur en eiga lögheimili í öðrum sveitarfélögum. „Ef börn eiga lögheimili í öðrum sveitarfélögum þurfa foreldrar þeirra að óska eft- ir því við sveitarfélag sitt að það greiði fyrir skólagöngu barnsins í Reykjavík," segir Guðbjörg Andrea Jónsdóttir forstöðumaður þróunarsviðs Fræðslumiðstöðvar Reykja- víkur. Hún segir að það fari eftir stærð skólans hver upphæð sú sem greidd er með hverj- um nemanda sé, en að hún sé yfirleitt um 20.000 krónur á mánuði í stærri skólum. Aðeins greitt með 36 nemendum af 172 Guðbjörg Andrea segir að hingað til hafí því ekki verið fylgt nógu vel eftir að inn- heimta umrædd gjöld frá sveitarfélögunum. A síðasta skólaári hafi 172 nemendur sem áttu lögheimili utan Reykjavíkur sótt nám í grunnskólum Reykjavíkur en aðeins hafi verið gerðir samningar um greiðslu við viðkomandi sveitarfélög fyr- ir 36 þeirra. Jafnframt hafi 107 nemendur sem eiga lög- heimili í Reykjavík stundað nám í skólum í öðrum sveit- arfélögum en Reykjavíkur- borg hafi greitt með þeim öllum til viðkomandi sveitar- félaga. Guðbjörg Andrea segir að fjöldi nemenda sem eigi lög- heimili utan Reykjavíkur sé svipaður í ár og hann var í fyrra. Nú verði gengið eftir því að fá greitt með hverjum og einum enda hafi grunn- skólarnir hingað til tapað tölvuverðri upphæð með því að innheimta ekki þetta gjald. 'HHl Teikning/Vilhjálmur Hjálmarsson Nýtt kennsluhúsnæði við Austurbæjarskóla Austurbær INNAN skamms hefjast framkvæmdir við Austur- bæjarskóla en til stendur að koma fyrir kennsluhúsnæði með fjórum kennslustofum á þaki geymsluhúss Orkuveitu Reykjavíkur norðvestan við skólann. Húsið verður byggt á stálbita sem hvíla á þaki geymsluhússins og hver skólastofa verður sjálfstæð færanleg eining. Að utan verður húsið klætt með ljós- um sléttum plötum. Húsnæðið verður alls um 340 fermetrar og hljóðar kostnaðaráætlun upp á um 60 milljónir króna. Byggingarnefnd Reykja- víkur hefur veitt leyfi fyrir framkvæmdunum, en auk kennsluhúsnæðisins sjálfs verður byggður gangur yfir í sjálft skólahúsið. Stefnt er að því að hægt verði að taka húsnæðið í notkun um áramót. Morgunblaðið/Jim Smart Þessar stúlkur fengu fylgd yfir Hamrahlíðina á leið sinni í Hlíðarskóla rétt um hádegi í gær. Engin vetrarfrí gefín í grunn- skólum í vetur Reykjavík VETRARFRÍ verða engin í grunnskólum Reykjavíkur í vetur, að sögn Guðbjargar Andreu Jónsdóttir for- stöðumanns þróunarsviðs Fræðslumiðstöðvar Reykja- víkur, en hún segir að daga- talið í vetur sé þannig að færri helgidagar séu um helgar og því séu færri virk- ir dagar á þessu skólaári en voru í fyrra. „Þessi vetrarfrí í fyrra voru gefin af því að það voru fleiri virkir dagar á tímabilinu 1. september til 31. maí, heldur en gert er ráð fyrir í kjarasamningum kennara. Þar er gert ráð fyrir 170 kennsludögum. En nú passar dagatalið betur, þannig að það verður ekkert vetrarfrí í vetur,“ segir Guð- björg Andrea. í fyrra vetur voru vetrar- frí í grunnskólum gagnrýnd nokkuð af foreldrum og tók Óskar ísfeld Sigurðsson, áheyrnarfulltrúi foreldra í Fræðsluráði, málið upp á fundum í ráðinu. Meðal þess sem fram kom í gagnrýni á vetrarfríin var að í sumum tilfellum skertu þau þann fjölda kennsludaga sem nemendur eiga rétt á sam- kvæmt lögum, en þeir eiga að vera 170 kennsludaga. Einnig kom fram að starfs- dagar kennara teldust ekki til kennsludaga, en um það liggur fyrir úrskurður menntamálaráðuneytisins. Fylgd yfir götu Hlíðar NU þegar starf grunnskól- anna er hafið eru gangbraut- arverðir búnir að taka sér stöðu við margar þær um- ferðargötur sem nemendur þurfa að ganga yfir til að komast í skólann. Gangbrautarvörðurinn við Hlíðaskóla sér til þess að bíl- arnir stöðvi við gangbraut- ina og svo fylgir hann börn- unum yfir götuna. Vilji til að- gerða til að jafna stöðu kynjanna Garðabær GARÐABÆR hefur gefið út jafnréttisáætl- un, sem bæjarstjórn hefur samþykkt, þar sem lýst er vilja til að jafna aðstöðu kynjanna með sérstökum aðgerð- um. Hún tekur annars vegar til stjórnkerfis og starfsmanna bæjar- ins og hins vegar til þeirrar starfsemi og þjónustu sem stofnanir bæjarins veita. Auk þess er þar beint til- mælum til yfirvalda og forsvarsmanna stofn- ana og fyrirtækja, sem eru rekstrarlega óháð bænum. „Með jafnréttisáætl- uninni lýsir bæjar- stjórn Garðabæjar vilja sínum til þess að jafna stöðu kvenna og karla í bæjarfélaginu með sér- stökum aðgerðum," segir í frétt frá Garða- bæ. „Það er stefna bæjarstjórnar að kynin eigi að njóta sömu tækifæra, fá sömu laun fyrir sömu vinnu, hafa sömu réttindi og hafa sömu möguleika til áhrifa í samfélaginu." Framkvæmdir við breikkun Miklubrautar milli Kringlumýrarbrautar og Grensásvegar hefjast senn Hjólreiðamenn vara við mistökum Miklabraut LANDSSAMTÖK hjólreiða- manna hafa gert athuga- semdir við fyrirhugaða breikkun Miklubrautar milli Kringlumýrarbrautar og Grensásvegar og telja nauð- synlegt að ekki verði gerð frekari mistök við hönnun stíga við Miklubraut, eins og það er orðað. „Miklabrautin er miðsvæð- is í borginni og því hafa göngustígamir mikið verið notaðir af hjólreiðafólki sem leið hefur átt í austur-vestur Reykjavík. Seinustu fram- kvæmdir við Miklubraut milli Grensásvegar og Reykjanes- brautar hafa fyrst og fremst miðast við að koma bifreiðum án hindrana um Miklubraut. Þar hefur slitlag stíga með- fram Miklubrautinni verið lagfært en um leið hafa vega- lengdir lengst um allt að þriðjung vegna fjölda beygja umhverfis mislægu gatna- mótin við Réttarholtsveg. Þetta er í hrópandi andstöðu við yfirlýsta stefnu Reykja- víkurborgar," segir í umsögn- inni. Þá er vitnað til þess að á vefsíðu Reykjavíkurborgar segi að efla skuli vistvænar samgöngur, svo sem almenn- ingssamgöngur, hjólreiðar og gangandi umferð og að efla skuli hlut göngu- og hjólreiða- stíga í umferðarkerfinu þann- ig að stígarnir verði ákjósan- legur samgöngumáti. mólreiðar hvorki greiðfærar né öruggar „Ef af þessu á að verða þá verður að gera öllum sam- göngum jafnt undir höfði. Hjólreiðar á göngustígum Reykjavíkur eru hvorki greiðfærar né öruggar þar sem þeim er blandað við gangandi umferð auk þess sem bifreiðar hafa allan for- gang í samgöngum og í hönn- un umferðarmannvirkja borgarinnar,“ segir í athuga- semdum hjólreiðamanna. Þeir leggja til ýmsar breyt- ingar á núverandi stígum, svo sem að núverandi stígur á kaflanum verði breikkaður úr 2,5 m í 4 metra, eða a.m.k. að breidd stígsins fyrir hjólandi verði ekki minni en 2 metrar og réttur vegfarenda sé ótví- ræður. Mikilvægt sé að stíg- urinn sé skilgreindur sem að- albraut. Því þurfi að vara akandi umferð við gangandi og hjólandi umferð með til- heyrandi skiltum og merking- um. Þá verði að lyfta stígnum svo vatn renni síður yfir hann eða haldist á honum. 80% slysa vegna hönnunar „Það er afskaplega mikil- vægt að staðið verði vel að þessum framkvæmdum og að vistvæn umferð gangandi og hjólandi verði gert jafnhátt undir höfði í öllum fram- kvæmdum. Talið er að rúm- lega 80% slysa á hjólreiðafólki megi rekja til lélegrar hönn- unar umferðarmannvirkja,“ segir í athugasemdunum. „Það er afskaplega mikilvægt að ekki dragist á þriðja ár að gera nothæfan stíg eins og raunin varð á meðfram Miklu- brautinni frá Grensásvegi að Reykjanesbraut. Auk þess er það mikilvægt að stígarnir verði ekki lokaðir bæði að norðan og sunnanverðu með- an framkvæmdir standa yfir,“ segir í athugasemdunum sem Magnús Bergsson, varafor- maður Landssamtaka hjól- reiðamanna, undirritar. Framkvæmdir við breikk- un Miklubrautar milli Kringlumýrarbrautar og Grensásvegar um eina akrein eiga að hefjast á næstunni og ljúka að mestu á tveimur mánuðum en endanlega 1. júní 2001. Tilgangur breikkunarinnar er að auka umferðarrými og umferðaröryggi á Miklu- braut, sem að henni lokinni verður að minnsta kosti þrjár akreinar í báðar akstursstefn- ur allt frá Kringlumýrarbraut að Höfðabakka. Fram- kvæmdasvæðið um 1,5 km að lengd. Beygjureinar fyrir vinstri beygju á gatnamótum Miklubrautar við Kringlu- mýrarbraut og Háaleitis- braut verða lengdar. Gang- stígar meðfram Miklubraut verða færðir fjær og jarð- vegsmönum og gróðri komið fyrir milli stígs og götu með- fram íbúðum við Hvassaleiti. Síðar verður aðrein að Kringlu breytt. Miklubraut verður ekki lokað meðan á framkvæmd- um stendur en einn metri af akbrautum tekinn undir framkvæmdasvæði verktaka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.