Morgunblaðið - 22.09.2000, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Saga Akureyrar, þriðja bindi komið út
Fæðing nú-
tímamannsms
ÞRIÐJA bindi Sögu Akureyrar er
komið út, en í því er fjallað um tíma-
bilið frá 1906 til 1918 og ber það
heitið Fæðing nútímamannsins.
Höfundur bókarinnar er Jón Hjalta-
son, en hann skrifaði einnig fyrri
bækurnar tvær um Sögu Akureyrar.
Fyrsta bókin, í landi Eyrarlands og
Nausta, fjallar um tímabilið 809 til
1862 og kom hún út árið 1990, en
annað bindið, Kaupstaðurinn við
Pollinn, greinir frá atburðum ár-
anna 1863 til 1905. Sú bók kom út ár-
ið 1994.
í ritnefnd þessa þriðja bindis voru
þeir Bernharð Haraldsson, formað-
ur, Guðmundur Gunnarsson og dr.
Kristján Kristjánsson.
Saga Akureyrar, þriðja bindi, er
mikið verk, um 400 blaðsíður að
lengd og prýtt fjölda ljósmjmda,
mörgum sem aldrei hafa áður birst á
prenti.
Til fróðleiks og skemmtunar,
ekki af skyldurækni
Markmið söguritarans, Jóns
Hjaltasonar, er sem fyrr að Sögu
Akureyrar eigi menn að lesa sér til
skemmtunar og fróðleiks en ekki af
skyldurækni. Sá háttur hefur verið
hafður á af hans hálfu og Akureyrar-
bæjar að semja aðeins um eitt bindi í
senn. Samningaviðræður um þriðja
bindið drógust og því hófst ritun
þess ekki fyrr en í ársbyrjun 1998,
en hafði þá legið niðri frá árinu 1994.
I þriðja bindi Sögu Akureyrar er
dregin upp mynd af þeim miklu
breytingum sem urðu á akureyrsku
samfélagi í upphafi 20. aldar og ekki
síst hvernig hugsunarháttur Akur-
eyringa og raunar íslendinga allra
varð allur annar en verið hafði frá
landnámi.
Meðal þess sem um er fjallað í
bókinni er konungskoman árið 1907,
ýmis mál er varða bæjarstjórn og
samfélagið, eins og fátækrahjálp og
jafnaðarstefnu, samgöngumál og
komu símans norður. Þá er í bókinni
fjallað um ásýnd Akureyrar á þess-
um tíma og hvernig hún kom útlend-
um ferðamönnum fyrir sjónir. Tíð-
um stórbrunum í upphafi aldarinnar
eru gerð skil sem og tilurð slökkvi-
liðs í bænum og lagningu vatnsveitu
kjölfar þeirra. Helstu atriðum er
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júh'usson bæjarstjóri tekur við fyrsta eintaki þriðja bindis af Sögu Akureyrar úr hendi formanns
ritnefndar, Bernharðs Haraldssonar, en söguritarinn, Jón Hjaltason, fylgist með á milli þeirra.
varða heilsu og samtryggingu þessa
tíma eru gerð skil, sem og mennta-
málum, verslun og iðnaði, sjávarút-
vegsmálum og íþróttum. I síðustu
köflum bókarinnar er fjallað um Ak-
ureyri stríðsáranna.
A kápu bókarinnar er mynd af
málverki eftir Kristínu Jónsdóttur
sem fæddist í Arnarnesi í Arnarnes-
hreppi við Eyjafjörð árið 1888, en
hún lést árið 1959. Talið er að mynd-
in sé máluð sumarið 1914 eða 1916.
Jón Hjaltason, höfundur bókar-
innar, er Akureyringur, hann er
með cand.mag. próf í sagnfræði frá
Háskóla Islands og hefur skrifað all-
nokkur rit, flest tengd Akureyri með
einum eða öðrum hætti. Þar má
nefna Sögu Knattspyrnufélags Ak-
ureyrar, Hernámsárin á Akureyri
og Eyjafirði, Nonni og Nonnahús,
Sögu Útgerðarfélags Akureyringa
og Sögu Skautafélags Akureyrar
svo nokkur þeirra séu nefnd.
y Morgunblaðið/fgígja
A röltinu
Helgi Jakobsson á rölti í veðurblíðunni á Dalvík sem hefur einkennt nágrenni Veðurklúbbsins á Dalvík.
Neytendasamtökin gera verðkönnun á grænmeti
Ríflega 50% munur
reyndist á verði hvítkáls
VERÐMUNUR á hvítkáli er 54,7%,
frá lægsta verði í Hagkaup og hæsta
verði í Strax og 10-11 í Kaupangi að
því er fram kemur í verðkönnun á
grænmeti sem skrifstofa Neytenda-
samtakanna á Akureyri gekkst fyrir
nú í vikunni, eða á miðvikudag.
Kannað var kílóverð á tíu algengum
grænmetistegundum í nokkrum
verslunum, Nettó, Hagkaup, 10-11
Kaupangi, Úrval, Hrísalundi og
Strax-verslunum við Eyjafjörð.
Fram kom í könnuninni að græn-
metiskarfan (10 kíló af grænmeti)
var ódýrust í Nettó, kostaði þar 3.326
krónur, þá í Hagkaup þar sem hún
kostaði 3.346 krónur, sama verð
reyndist í öllum Strax-verslunum við
fjörðinni, 3.513 krónur. í Úrval var
verðið 3.561 króna og í 10-11 Kaup-
angi kostaði grænmetiskarfan 3.616
krónur. Munurinn á hæsta og lægsta
verði körfunnar var því 8,79%.
Mesti verðmunurinn á einstökum
tegundum var á hvítkáli, 54,7%. Hag-
kaup bauð lægsta verðið, 128 krónur
kflóið, en hæsta verðið var í Strax og
10-11 Kaupangi, 198 krónur kflóið.
Þá var 50,5% verðmunur á hæsta og
lægsta verði á kínakáli, en 10-11 bauð
lægsta verðið, 198 krónur kflóið en
hæsta verðið var í Úrval, 298 krónur.
Minnsti verðmunur milli verslana
var á sveppum, 8,5%, lægsta kfló-
verðið var í Nettó en hæst var það í
Úrval. Þá reyndist 9,9% verðmunur
vera á hæsta og lægsta verði á tóm-
ötum og agúrkum, lægst var verðið í
Nettó og hæst í Úrval.
Ekki var í könnuninni lagt mat á
ferskleika og gæði grænmetisins, en
það getur verið mismunandi og einn-
ig er þess getið í frétt frá Neytenda-
samtökunum að verslanimar bjóða
mismunandi mikið úrval af græn-
meti.
Stóð til sðlu
Verður til sýnis í Stóradal frá 23. september,
(síðdegis) til 23. október.
Nánari upplýsingar í síma 463 1297.
Akurey rarkirkj a
Fyrsta æðruleys-
ismessa haustsins
FYRSTA æðruleysismessa haustsins
verður í Akureyrarkirkju næstkom-
andi sunnudagskvöld, 24. september
kl. 20.30. Æðruleysismessumar hafa
skipað fastan sess í helgihaldi Akur-
eyrarkirkju og í vetur verða þær einu
sinni í mánuði, síðasta sunnudag
hvers mánaðar kl. 20.30.
Krossbandið, sem skipað er Ingu
Eydal, Snorra Guðvarðssyni og Við-
ari Garðarssyni sér um tónlistina og
boðið er upp á kaffi í Safnaðarheimil-
inu eftir messuna. Þá verður einnig
kynnt námskeiðið Tólf sporin og
trúin sem haldið verður í kirkjunni 4.
október næstkomandi og sagt frá 12-
spora hópavinnunni sem hefst brátt
aftur eftir sumarhlé.
Prestur er séra Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir og henni til aðstoðar eru
félagar sem kynnst hafa og tileinkað
sér bataleið 12 sporanna, en sjónum
er beint að þeim í æðruleysismessun-
um og það er gert með predikun,
reynslusögum, fyrirbæn og smurn-
ingu en ekki síst í almennum söng.
Morgunblaðið/Kristj án
Björgunarsveitin
Súlur
Kynning'
fyrir nýliða
KYNNING verður fyrir nýliða
á starfi björgunarsveitarinnar
Súlna næstkomandi mánudags-
kvöld, 25. september kl. 20.
Kynningin fer fram í Lundi við
Viðjulund, húsakynnum Súlna.
Súlur er ein öflugasta björg-
unarsveit landsins með mikinn
mannskap og góðan tækjakost.
Þeir sem eru orðnir 17 ára
gamlir og hafa áhuga á útivist
og starfi björgunarsveita eru
hvattir til að mæta og kynna
sér starfsemina.
Tregtá
línuna
hjátrillu-
körlum
„ÞAÐ er frekar tregt á línuna
núna,“ sagði Kristján Sigurðsson
trillukarl á Akureyri aðspurður,
er hann kom úr rúðri á trillu sinni
í gær. Hann tók jafnframt sérstak-
lega fram að lítið sæist af ýsu.
Kristján lagði lfnuna út undir
Dagverðareyri en hann sagði að
trúlega þyrfti að fara út fyrir
Hjalteyri en það væri orðið ansi
langt. Veðrið lék við trillukarla á
Akureyri sem og aðra bæjarbúa í
gær, sól og spegilsléttur fjörður.