Morgunblaðið - 22.09.2000, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
URVERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Trillukarlar ánægðir
með veðurvefinn
„ÞESSI vefur gagnast okkur trillu-
körlunum mjög vel,“ segir Ragnar
Gunnarsson á Þingeyri um veðurvef-
inn „theyr.is", sem Rannsókna- og
hugbúnaðarfyrirtækið Halo ehf. opn-
aði síðsumars en vefurinn var hann-
aður til að veita upplýsingar um veð-
urhorfui' næstu þrjá sólarhringa á
Norður-AtlantshaJÍi.
A „theyr.is" vefsetrinu fást fram
upplýsingar um veðurhorfur í meira
en 20 þjóðlöndum með skýringum á
39 tungumálum og að sögn Bjöms
Erlingssonar, stjómarformanns
Halo, er þetta. í íyrsta sinn sem gefn-
ar em út upplýsingar um veðurhorf-
ur á svo mörgum tungumálum og
þjóðlöndum á einum stað.
Spá fyrir miðin
„Spáin er glettilega góð,“ segir
Ragnar. „Hún er með gömlu vind-
stigunum, litaskipt eftir vindstyrk og
það sem hún hefiir framyfir aðrar er
að hún spáir sérstaklega fyrir miðin.
Þetta er mjög skilmerkilegt og þar
sem þetta er spá tökum við hliðsjón af
henni en förum ekki blint eftir henni.
Þetta er það allra skemmtilegasta
sem ég hef séð £ þessu.“
Bjöm segir að framtakinu hafi ver-
ið mjög vel tekið og ekki síst í Fær-
eyjum, en um 20 þúsund síður séu
lesnar á dag. „Tölvu- og netþjónustan
Snerpa á Isafirði hefur líka gert okk-
ur mjög hátt undir höfði og á stóran
þátt í útbreiðslunni, til dæmis með
því að setja upp smell á okkur.“
Halo hefur um árabil staðið að þró-
un sjálfvirks veðurupplýsingakerfis
sem saftiar saman nýjustu veðurupp-
Veðurvefur Halo,
www.theyr.is,
með veðurhorfur
á 39 tungumálum
lýsingum og reiknar endumýjaða veð-
urspá jafnóðum og nýjum upplýsing-
um hefur verið safnað saman.
Jafnhliða því sem veðurspámar em
reiknaðar er framleitt myndefni sem
notað er fyrir fjölmiðlun á veraldar-
vefnum. Vefmiðlunin er markaðsfærð
undir vörumerkinu „theyr intemet
weather“. Nýnæmi er að veðurspálík-
ön séu samhæfð og beintengd við
framleiðslu á fjölmiðlunarefni, en
Halo hefur í rúmt ár staðið fyrir veð-
urapplýsingarás á EuroSeek-leitar-
vélinni.
Ný leið
Við vefmiðlun á „theyr.is“ hefur
verið farin ný leið miðað við hefð-
bundna framsetningu veðurapplýs-
inga. Horfið hefur verið frá notkun
sérstakra tákna eða „veður“-merkja
sem í mörgum tilfellum takmarka af-
lestur veðurapplýsinganna. Hannaðar
hafa verið sérstakar myndir þar sem
lögð er áhersla á að sýna þróun veðurs
yfir sólarhringinn. I fyrstu hefur verið
lögð áhersla á hita, vindhraða, úr-
komu og skýjafar yfir hvem sólar-
hring, klukkustund fyrir klukkustund
í þijá daga.
Benda má á tiltekinn tíma á mynd-
unum sem sýna veðurþróunina og
velja gildistíma fyrir veðurkort og
hreyfimyndir fyrir mismunandi svæðL
Velja má myndir frá allt að 240
stöðum í Evrópu. I 3 til 4 þrepum er
notanda fært að finna þær upplýsing-
ar um vind, úrkomu, hita eða ský á
stund og þeim stað eða veðurspá-
svæði sem óskað er eftir.
Framsetningin gerir engar kröfur
til lesanda um sérþekkingu og miðast
fyrst og fremst við að koma til móts
við sívaxandi þarfir almennings fyrir
hratt og örraggt aðgengi að inni-
haldsríkum upplýsingum á mynd-
rænu formi.
Hönnun kerfisins hefur verið þver-
faglegt verkefni og að því hefur staðið
hópur jarðeðlis-, reikni- og tölvunar-
fræðinga. Notaðar era bestu fáan-
legu veðurapplýsingar hveiju sinni
og vísindalega viðurkenndum aðferð-
um beitt eftir bestu föngum.
Rétt tímasetning
Gunnar segir að spáin sé gjarnan
hengd upp í beitningarskúrum fyr-
ir vestan. „Það eru ekki allir með
tölvur en með þessu móti geta allir
séð hvernig spáin er. Jafnvel
gömlu mennirnir, sem hafa róið í
áratugi og trúa mest á nefið á sjálf-
um sér, eru farnir að taka tillit til
þessa. Spyrja mann hvað Halo seg-
ir. Hérna á Vestfjörðum hefur mér
oft fundist erfitt hjá veðurspá-
mönnum að segja til um suðaustan-
áttina, sem er þá annaðhvort 12
tímum á undan eða eftir, en strák-
arnir á Halo hafa verið sérstaklega
duglegir að hitta á þetta, tímasetja
það rétt. Við horfum fyrst og
fremst á vindstyrkinn en þetta er
miklu fjölþættari spá.“
MEÐAL EFIMIS:
• Gagnagrunnstækni og rekstrarkerfi: Fjallað um nýjustu strauma í gagnagrunnstækni
og rekstrarkerfum fyrirtækja • Netið: Farið í saumana á því hvernig Netið hefur breytt
aðstæðum íslenskra fyrirtækja, fjölgað sóknarfærum og dregið úr kostnaði • Farsimatækni:
Sagt frá nýjum hugmyndum í farsímatækni, væntanlegum GPRS-kerfum og staðsetningar-
möguleikum sem þau gefa • Kerfisueitur • Stórtöhfur: Fjallað um aukna stórtölvuvæðingu
• Þróun í örgjörvatækni og skammtatölvur • Linux: Þróun Linux innan fyrirtækja
• O.ffl.
Pantið fyrir kl. 12 föstudaginn 22. september!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111.
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl#mbl.is
BLAÐAUKIIUN TÖLVUR OG TÆKIMI
í MORGUNBLAÐIIUU
LAUGARDAGINIM 30. SEPTEMBER
Morgunblaðið/Hafþór
Kalli í Höfða í Húsavíkurhöfn.
Nýr bátur til
Húsavíkur
NÝR bátur bættist í flota Húsvík-
inga fyrir skömmu þegar Aðal-
steinn P. Karlsson, útgerðarmað-
ur og skipstjóri, kom með Kalla f
Höfða ÞH 234 til heimahafnar í
fyrsta sinn. Báturinn, sem er 6
brúttótonn af gerðinni Cleopatra
28 og smíðaður hjá Trefjum í
Hafnarfirði, verður gerður út á
línu í aflahámarkskerfinu.
Skráning hjá Hagstofu fslands
Byggjast á
upplýsingum
rflíistollstjóra
EIRÍKUR Hilmarsson, staðgengill
Hagstofustjóra, segir ekki alls kost-
ar rétt að segja að misfærslur hafi
átt sér stað hjá Hagstofunni varð-
andi útflutning á óunnum fiski í júlí
sl. vegna þess að Hagstofan byggi
skráningu á upplýsingum frá ríkis-
tollstjóra.
Að sögn Eiríks ganga málin
þannig fyrir sig að Hagstofan fær
upplýsingar um innflutning og út-
flutning frá ríkistollstjóra þar sem
skráning er tiltekin. I umræddu til-
felli hafi verið fluttur út kolmunni
til Færeyja og hann hafi verið sett-
ur í tollflokk sem nefnist annar
ferskur heill fiskur. Allar líkur séu
á því að umræddur útflutningur á
kolmunna í júlí sé í bræðslu en hann
sé ekki þannig skráður hjá tollinum.
Tollurinn setur þennan kolmunna í
flokk með nýjum, kældum eða ís-
vörðum heilum fiski, þó miklar líkur
séu á að hann eigi að vera í öðrum
flokki. Ef vitað er að fiskurinn á að
fara í bræðsiu skal skrá hann í toll-
flokkinn fiskur til bræðslu. „Ef ekki
er nein vitneskja um það hvernig
eigi að ráðstafa fiskinum, hvort sem
hann fer í bræðslu eða ekki, er um
að ræða ferskfiskútflutning," segir
Eiríkur. „Því þarf að vita, áður en
fiskurinn er fluttur út, hvað eigi að
gera við fiskinn, en ekki er víst að
seljandinn spyrji um það. Þetta hef-
ur orðið til þess að svona fiskur hef-
ur verið skráður í ferskfiskflokkinn.
Þegar við höfum haft einhverja
vitnesku um að þetta hafi verið
ranglega skráð reynum við að leið-
rétta það en í þessu tilfelli leiðrétt-
um við ekki vegna þess að í raun
höfum við enga vitneskju í höndun-
um um það að þetta sé ranglega
skráð. Ut frá gögnunum getum við
eingöngu getið okkur til um það.
Því er ekki alls kostar rétt að þetta
hafi verið mistök eða misfærsla í
gögnum Hagstofunnar. Það eina
sem hægt er að segja er að við höf-
um ekki aðra vitneskju en að þetta
sé allt saman hárrétt eins og það er
í gögnunum og því höfum við ekki
leiðrétt færsluna.“
Markaðsfundur
SH haldinn í dag
SOLUMIÐSTOÐ hraðfrystihús-
anna heldur árlegan markaðsfund
sinn hér á landi í dag. Fundurinn er
vettvangur samskipta milli dóttur-
fyrirtækja SH og framleiðenda sjáv-
arafurða á íslandi. Fundir með svip-
uðu sniði hafa verið haldnir í áratugi
til að stuðla að góðum samskiptum
milli dótturfyrirtækja SH sem starfa
á erlendum markaði og framleiðenda
íslensks sjávarfangs víðs vegar af
landinu. Fundurinn hefst klukkan
9.00 með ávarpi Gunnars Svavars-
sonar, forstjóra SH, og Kristjáns
Hjaltasonar, framkvæmdastjóra SH
þjónustu.
Síðan taka við framkvæmdastjór-
ar dótturfyrirtækjanna erlendis,
Magni Þór Geirsson. Sturlaugur
Daðason, Magnús Sch. Thorsteins-
son og Hjörleifur Ásgeirsson. Að
loknu kaffihléi halda framkvæmda-
stjóramir áfram, þeir Jón Garðar
Helgason, Jón Magnús Kristjáns-
son, Agnar Friðriksson og Magnús
Gústafsson. Loks fjallar Mike
Sehuster, heildsali í Bandaríkjunum,
um viðskiptin, hvernig sölustarfið
gangifyrir fyrir sig og samskiptin við
dreifendur. Fundinum lýkur svo
með ávarpi Róberts Guðfinnssonar,
formanns stjórnar SH. Að loknum
fundinum verður hádegisverður -
hlaðborð af fiskréttum frá dótturfyr-
irtækjum SH.
Fundurinn er lokaður almenningi.