Morgunblaðið - 22.09.2000, Side 35
ASKORUN
vegna Barnahúss
Eftirfarandi bréf
var afhent dóms- og kirkjumálaráðherra,
frú Sólveigu Pétursdóttur, hinn I. mars sl.:
„Virðulegi ráðherra.
Undanfarnar vikur hefur átt sér stað umræða um framtíð Barnahúss í kjölfar breytingar
á lögum um meðferð opinberra mála hinn I. maí á síðastliðnu ári.
Með tilkomu Barnahúss varð sú meginbreyting við meðferð kynferðisbrota gegn
börnum að í stað þess að börnin þurfi að aðlaga sig að ólíkum stofnunum samfélagsins,
starfa þessar stofnanir saman undir einu þaki til þess að koma til móts við þarfir
barnanna. Þannig þarf einungis að leita með börnin á einn stað til að gangast undir
skýrslutöku, læknisskoðun, greiningu og meðferð. Á stuttum starfstíma hússins hefur
safnast saman mikil sérhæfing og þekking, sem miðlað hefur verið m.a. til
barnaverndarnefnda og lögreglu víða um land við vinnslu viðkvæmra mála. Hin
þverfaglega samvinna á vettvangi Barnahúss hefur stuðlað að markvissum og
árangursríkum vinnubrögðum ásamt því að skapast hefur betri yfirsýn yfir umfang
vandans, sem ekki var auðvelt að öðlast áður.
Nú þegar hefur komið í Ijós að sú breyting sem gerð var á lögum um meðferð opinberra
mála stefnir tilvist þessara vinnubragða í hættu. Skýrslutaka fer nú að mestu leyti fram í
dómshúsum og allt bendir til að starfsemi Barnahúss leggist af ef ekki er brugðist við.
Með þessu bréfi okkar berum við fram þá eindregnu ósk að þér, virðulegi ráðherra,
beitið yður fýrir nauðsynlegum breytingum á lögum eða grípið til annarra viðeigandi
ráðstafana sem eru til þess fallnar að treysta þá starfsemi sem fram fer á vettvangi
Barnahúss þannig að tryggt verði að velferð barnanna sé áfram [ fýrirrúmi í þessum
viðkvæmu málum.
Afrit sent hr. Páli Péturssyni félagsmálaráðherra."
Bréf þetta var undirritað af eftirtöldum félagasamtökum og stofnunum. í Ijósi umræðna á síðustu dögum
skora þau aftur á dóms- og kirkjumálaráðherra að beita sér fyrir því með öllum tiltækum ráðum að starf-
semi Barnahúss verði áfram tryggð.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja Geðhjálp Landssamtökin Þroskahjálp Starfsmannafélag ríkisstofnana
Ogmundur Jónasson Ingólfur H. Ingólfsson Halldór Gunnarsson Jens Andnésson
Barnaheill Heimili og skóli Ljósmæðrafélag íslands Ástþóra Kristinsdóttir Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa
Kristín Jónasdóttir Jónína Bjartmarz BjörkVilhelmsdóttir
Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga Hitt húsið Menningar- og friðarsamtök Stígamót
Mana Einisdóttir Markús H. Guðmundsson ísienskra kvenna Rúna Jónsdóttir
Félag íslenskra barnalækna Þórður Þórkelsson Hlaðvarpinn Sólrún M. Þorsteinsdóttir María S. Gunnarsdóttir Ný dögun Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Vilmundur Gíslason
Félag einstæðra foreldra Karlanefnd Jafnréttisráðs Kristi'n Eyjólfsdóttir Styrktarfélag vangefinna
Sigrún Steingnmsdóttir Ólafur Þ. Stephensen Prestafélag íslands Kristján Sigurmundsson
Fclag heyrnarlausra Kennarasamband Islands Helga Sofffa Konráðsdóttir Vímulaus æska og Foreldrahópurinn
Hafdi's Gísladóttir Eirikur Jónsson Rauði Kross íslands Jórunn Magnúsdóttir
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Kvennaráðgjöfin Sigrún Árnadóttir Öryrkjabandalag fslands
Herdís Sveinsdóttir Margrét Steinarsdóttir SAMFOK Helgi Seljan
Félag íslenskra leikskólakennara Björg Bjamadóttir Forcldrafélag geðsjúkra barna og unglinga Jenný Steingn'msdóttir Kvenréttindafélag íslands Hólmfn'ður Sveinsdóttir Óskar ísfeld Sigurðsson Samtök um kvennaathvarf Ásta J. Arnardóttir