Morgunblaðið - 22.09.2000, Page 64
34 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Sumarskóli SAA
í fimmta skipti
„Ráðgjafinn/Starfsliðið" „Vímuefn-
in og vandamálin" „Sjúklingarnir
og meðferðin“ þau þrjú umfjöllun-
arefni eða meginþemu sem brotin
verða til mergjar í Sumarskóla
SÁÁ sem að þessu sinni verður
haldinn dagana 5. til 7. október.
Petta er fimmta árið í röð sem
sumarskóli SÁA starfar. Starfið er
skipulagt eins og áður, með þarfir
áfengisráðgjafa í huga en aðrar
stéttir hafa sótt skólann undanfar-
in ár og haft gagn af, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Margar stéttir vinna með alkóhól-
istum og í sumarskólanum hafa
verið læknar, hjúkrunarfólk, sál-
fræðingar, félagsráðgjafar, félags-
ráðgjafar, prestar og lögreglu-
menn og nokkrir stjórnmálamenn,
sem hafa haft sérstakan áhuga á
efninu.
Skólastjóri Sumarskóla SÁÁ er
Guðbjörn Björnsson læknir á
Sjúkrahúsinu Vogi sem hefur tekið
þátt í margvíslegum aiþjóðaráð-
stefnum um vímuefni og á meðal
annars sæti í stjórn alþjóðasamtak-
anna ISAM.
Um 15 erlendir gestir hafa kynnt
þátttöku sína í sumarskólanum og
er búist við að heildaraðsóknin
verði jafnvel enn meiri en í fyrra.
Prír erlendir gestir flytja erindi í
Sumarskólanum, Bandaríkjamenn-
irnir Jake Epperly, dr. James
Costabilo og dr. Thomas Fuglsang
yfirlæknir frá Danmörku.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir mun einnig taka þátt í starfí
Sumarskóla SÁA og Einar Axels-
son, Guðbjörn Björnsson, Sverrir
Jónsson, Vaigerður Baldursdóttir,
Valgerður Rúnarsdóttir og Þórar-
inn Tyrfingsspn sem eru starfandi
læknar hjá SÁÁ og Margrét Hall-
dórsdóttir sálfræðingur hjá SÁÁ
munu flytja erindi í skólanum og
taka þátt í umræðum.
Margir af ráðgjöfum SÁÁ munu
miðla af reynslu sinni og þekkingu
og má nefna Hjalta Börnsson dag-
skrárstjóra á Sjúkrahúsinu Vogi og
Ólaf Sveinsson staðarhaldara á
Staðarfelli.
Sumarskóli SÁÁ verður að Hótel
Loftleiðum í þingsal nr. 8 frá
fimmtudegi til laugardags. Vegna
hinna erlendu gesta og fyrirlesara
munu fyrirlestrar fara fram á
ensku.
Skólagjald verður kr. 6. 000 fyrir
einn dag, og er innifalið kaffi og
léttur hádegisverður. Fyrir alia
dagana er verðið 16.500 og er inn-
ifalið í því kaffi, hádegisverður og
kvöldverður saman á föstudeginum
á völdum stað. Sumarskóli SAA er
viðurkenndur af samtökum banda-
rískra áfengisráðgjafa (NAADAC)
og SÁÁ hefur umboð þessara sam-
taka til að gefa punkta í endur-
menntunarkerfi þeirra, segir í
fréttatilkynningunni.
Rætt um vetni, umhverfí
og líftækni í Reykholti
EFNAFRÆÐIFÉLAG íslands
heldur ráðstefnu í Reykholti, Borg-
arfirði, helgina 23. og 24. sept. Á ráð-
stefnunni verða raðir fyrirlestra um
þrjú valin j)emu.
Bragi Ámason, Porsteinn Hann-
esson og Teitur Gunnarsson munu
fjalla um framleiðslu og nýtingu
vetnis á íslandi. Fyrirlesarar um
umhverfismál verða Stefán Einars-
son, Kristín Ólafsdóttir og Guðjón
Atli Auðunsson. Þá munu Kári Stef-
ánsson, Þorlákur Jónsson, Timothy
Hemesath, Jón Bragi Bjarnason og
Jakob K. Kristjánsson fjalla um ís-
.. i lenska erfðagreiningu og líftækni.
Enn fremur verða pallborðsumræð-
ur um háskólamenntun efnafræð-
inga, hlutverk háskóla og þarfir at-
vinnulífsins. Frummælendur á palli
verða Ágúst Kvaran, Guðjón Jóns-
son, Guðmundur G. Haraldsson, Jón
Ásgeirsson og Baldur Hjaltason.
Fjölmörg rannsóknaverkefni verða
að auki kynnt með veggspjöldum,
segir í fréttatilkynningu.
Ráðstefnan verður sett á laugar-
dagsmorgni kl 9.30 af Valgerði
Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra.
Nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á veffangi: www.raunvis,-
hi.is/~agust/efnfrradst.htm
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um Tíbet
ÞAÐ er oft búið að segja
frá Tíbet og Tíbetbúum í
fréttum undanfarinna ára-
tuga hér heima og erlendis
og því get ég sagt með mjög
döprum hug: Hvar endar
harðstjórn kínverska al-
þýðulýðveldisins? Endar
hún þannig að Tíbetbúum
verður útrýmt eða þeim fá-
mennu hópum sem enn fá
að lifa í Tíbet verði svo
gjörsamiega tortímt að eft-
ir svona hundrað ár verði
enginn Tíbetbúi eftir í
Tíbet.
Þó að undirritaður hafi
stofnað Island - Tíbetvina-
félagið fyrir réttum 10 ár-
um er því ekki þannig farið
að hann hafi haft einhveija
sérþekkingu á Tíbet eða
málefnum Tíbets. Sú undir-
skriftaherferð var aðeins
að hvetja þá íslendinga
sem höfðu áhuga á að skrifa
nafn, símanúmer og kenni-
tölu á einhverjar 17 A-4
blaðsíður til að mótmæla
meðferð Kinverja á hendur
saklausum nunnum og
munkum. Eitthvað um 500
manns skrifuðu sig á list-
ana þar á meðal Ævar heit-
inn Kvaran sá mikli mann-
vinur.
Nú, undirritaður fór með
undirskriftalistana í húsa-
kynni Amnesty Internat-
ional í Hafnarstræti en þar
var beiðni um að Samein-
uðu þjóðunum væru af-
hentir listamir hafnað á
þeim forsendum að um ein-
staklingsframtak væri að
ræða. Þar með lognaðist ís-
lands - Tíbetsvinafélagið út
af.
Kínverjar sýndu með eft-
irminnilegum hætti hinn 4.
júní 1989 á Torgi hins
himneska friðar hve mjög
þeim gremst lýðræði og
frjáls hugsun.
En það er með ólíkindum
hve málefni Tíbet á sviði
raunverulegra mannrétt-
inda era fótum troðin á
þeim tímum sem við fáum
fréttir næstum því í beinni
útsendingtu frá öllum
heimshornum.
Hróp í eyðimörk, kæft
með byssustingjum, morð á
morð ofan, þjóðarmorð.
Dalai Lama er í útlegð og
er honum ekki leyft að tala
á þingi Sameinuðu þjóð-
anna sökum neitunarvalds
Kínverja.
Tíbet er átta sinnum
stærra heldur en Stóra-
Bretland. Við getum öll
haft samband við hin frá-
bæru SOS barnaþorp á
Indlandi en þar dvelst
fjöldi tíbeskra barna og
fullorðinna í útlegð. Hægt
er að hafa samband við
skrifstofuna í Hamraborg 1
i Kópavogi og leggja fram
stuðning sinn þar í formi
mánaðargreiðslna með tíb-
esku barni á Indlandi.
Undirritaður hefur
styrkt einn dreng frá því í
mars á þessu ári og renna
1.400 krónur til umönnunar
hans.
Hér skal ekki felldur
neinn stóridómur um Kín-
verja, kínverska herinn eða
ráðamenn í Peking. Undir-
ritaður er kristinn og hefur
því ekki leyfi frá sínum
drottni til að dæma. Allt ogt
sumt sem Island - Tíbets-
vinafélagið fer fram á er að
Tíbetbúum verði kleift að
lifa i samræmi við sína trú
og að mannúð og miskunn-
semi verði virt.
„Faðir fyrirgef þeim því
þeir vita ekki hvað þeir
gera.“ „Sá sem fellir með
sverði verður felldur með
sverði."
Ég bið alla þá sem unna
mannréttindum að gera sitt
besta til þess að tíbeska
þjóðin megi lifa áfram rétt
eins og vér Islendingar.
Smári Jón Guðlaugsson,
Gunnarsholti, Heilu.
Elliheimilismál á
Akureyri
ÞAÐ er alveg undarlegt
hvernig staðið er að elli-
heimilismálum á Akureyri.
Gamalt fólk, sem hefur búið
í bænum alla sína tíð og
greitt sína skatta og skyld-
ur, virðist engan rétt hafa
þegar heilsan brestur. Þeg-
ar fólk er metið inn á elli-
heimili, virðist engu máli
skipta hveraig fólk er
líkamlega á sig komið, ef þú
ert klár í kollinum skaltu
búa áfram heima. Það virð-
ist heldur engu máli skipta
hvernig heimilisaðstæður
eru, hvort fólk býr eitt eða
ekki. Það eina sem virðist
hafa forgang í þessum mál-
um er það, að ef þú átt pen-
ing þá getur fólk keypt sig
inn, annars ekki.
Það er skrýtið að þegar
þú ert orðinn gamall, þá vill
samfélagið ekki bera
ábyrgð á þér lengur, burt
séð frá þvi hvað þú hefur
lagt til samfélagsins. Þegar
haft er samband við for-
ráðamenn elliheimilinna,
vísar hver á annan og eng-
inn tekur ábyrgð. Er það
þetta sem við viljum fyrir
foreldra okkar, ömmur
okkar og afa, nú eða okkur
sjálf þegar þar að kemur?
Áð enginn vilji okkur ieng-
ur og við getum bara dáið
drottni okkar, ein og hjálp-
arlaus.
140158-4109.
Nemendur Laugar-
vatnsskóla 1945-1947
ÞAÐ er fyrirhuguð hóp-
ferð á Njáluslóðir 4. októ-
ber nk. ef næg þátttaka
fæst. Farið verður með
rútu frá Umferðarmiðstöð-
inni kl.13. Væntanlegir
þátttakendur skrái sig hjá
Steingerði í síma 567-3930,
hjá Gunnari í síma 553-
3299, hjá Þórólfi í síma
565-2068 eða hjá Ólöfu í
síma 553-6173.
Tapad/fundid
Gullhringur fannst
GULLHRINGUR fannst í
versluninni Drangey,
Laugavegi 58. Upplýsingar
ísíma 551-3311.
Dýrahald
Fallegur kettlingur
fæst gefins
FALLEGUR tíu vikna
bröndóttur kettiingur fæst
gefins á gott heimili. Upp-
lýsingar í síma 555-3143.
SKÁK
Umsjón llelgi Áss
Grétarsson
FIDE, alþjóðasamtök skáksambanda,
hélt sitt fyrsta heimsbikarmót sem hald-
ið var með útsláttarfyrirkomulagi í Shen-
yang í Kína fyrir skömmu. Margir af
stigahæstu skákmönnum heims tóku
þátt og sigraði Indverjinn Vishy Anand á
mótinu. Staðan kom upp í einvígi þeirra
Evgeny Bareev (2702), hvítt, og Zurab
Azmaiparazhvili (2673) 32...f5! 33.exf5
Fórnar skiptamun en aðrir möguleikar
hefðu einnig gefið svörtum betri færi.
33...Rf7 34.Bh5 Rxd8 35.Bg6+ Kh8
36.Hxd8+ Bg8 37.Bh5?! He5 38.Hf8
g6! 39.Bxg6 Kg7 og svörtum tókst að
innbyrða vinninginn nokkru síðar.
Skákþing Kópavogs hefst í kvöld
kl. 19.30 í Félagsheimili T.K. Hamra-
borg 5, þriðju hæð. Mótið er liður í
bikarkeppninni í skák 2000. Allir vel-
komnir.
Taflfélagið Hellir - Skákfélag Ak-
ureyrar. Nokkinr sprækir Hellisbúar
leggja land undir fót og halda í keppn-
isferð norður til Akureyrar í dag og
tefla kappskákir og atskákir gegn
heimamönnum um helgina.
jjjj || Ifi
■ ® s i á
fl Wrn mm á
ÍffK ijfj
A A
Svartur á leik.
Aðstandendur samkyn-
hneigðra halda fræðslufund
Víkverji skrifar...
LAUGARDAGINN 23. september
< nk. verður fræðslufundur á vegum
* foreldra- og aðstandendahópsins
• sem starfar á vettvangi Samtakanna
’78. Fundurinn verður haldinn í
f húsnæði félagsins, Laugavegi 3, og
hefst kl. 16:00. Þar mun Þóra Björk
Smith flytja erindi um Frjálslyndi og
fordóma aðstandenda. Erindið er
byggt á viðhorfskönnun sem þau
-- V Guðni Kristinsson gerðu meðal
aðstandenda lesbía og homma
sumarið 1999 og var styrkt af
; Réttað við
Þórkötlu-
staðarétt
' f RÉTTAÐ verður í Þórkötlustaða-
rétt í Grindavík laugardaginn 23.
september næstkomandi. Gangna-
i menn reka um eitt þúsund fjár til
I réttar um klukkan 14:30. Harmon-
ikkuieikari mun haida mönnum við
söng og skemmtan. Undanfarin ár
hefur verið mikið fjölmenni og
__ stemmning við Þórkötlustaðarétt,
jH-segir í fréttatilkynningu.
Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Fundurinn er öllum opinn.
Á vettvangi foreldra- og aðstand-
endahópsins starfa foreldrar, systk-
ini, börn, vinir og frændfólk samkyn-
hneigðra. Hópurinn hittist á
miðvikudagskvöldum í húsnæði
Samtakanna ’78 og fastur fundartími
er frá kl. 20:30-21:30, en fulltrúar
hans eru á staðnum frá kl. 19:30 ef
einhver hefur þörf fyrir spjall og ró-
lega stund í næði, segir í fréttatil-
kynningu.
Húsgagna-
sýning
í Hafnarfírði
-HÚSGAGNASÝNING verður í sýn-
ingarsal Galleri Tútú við Lækjar-
götu 34b í Hafnarfirði, laugardaginn
23. og sunnudaginn 24. september,
kl. 14-18 báða dagana.
Til sýnis og sölu eru sérvalin hús-
gögn frá Suður-Afríku, sem smíðuð
eru úr jarravið. Meðal sýningargripa
eru stofuborð í ýmsum stærðum,
borðstofu-, eldhús- og fundarborð,
stólar, sófar, rammar og margt
fleira, segir í fréttatilkynningu.
VÍKVERJI dagsins er ánægður
með að sjá að vel gengur að
reisa hús íyrir þá sem misstu heimili
sín í jarðskjálftunum í sumar. Enda
væri það furðulegt ef samfélag sem á
við stanslaus góðærisvandamál að
etja gæti ekki tryggt fólki húsaskjól
þegar það hefur íyrir tilviljun orðið
fyrir slíkum skakkaföllum. Enginn
kallar yfir sig jarðskjálfta með hegð-
un sinni, svo mikið getum við fullyrt.
Líklega er sama hvað þrefað er um
í stjórnmálum, allir eru einhuga um
að lágmarks-samhjálp sé sjálfsögð.
Við viljum flest lægri skatta en jafn-
framt að hlaupið sé undir bagga þeg-
ar óvænt áföll og hörmungar ríða yf-
ir. Þegar búið að er að sinna
nauðþurftum fólks er svo hægt að
fara að skeggræða og reyna að leita
leiða til að draga úr áhættunni, til
dæmis með því að taka tillit til jarð-
skjálftahættu, flóðahættu og annarra
áhættuþátta þegar gerðar eru
byggðaáætlanir og úthlutað lóðum.
En afleiðingar jarðskjálfta eru af
ýmsum toga. Hverir ýmist deyja eða
vakna til lífsins og talið að áhrifin af
hræringunum á hitaveitur verði
sums staðar til góðs, alltént í bili.
Víkverji lítur öðru hverju í Bænda-
blaðið og sá að kartöflubændur velta
því nú fyrir sér hvort skjálftarnir hafi
dregið úr sprettunni! Hún sé minni
en hún ætti að vera sé tíðarfarið haft í
huga. Einn þeirra telur að rætur
plöntunnar hafi ef til vill skemmst við
átökin í jarðveginum.
XXX
VÍKVERJI er einn af mörgum
höfuðborgarbúum sem búa í
fjölbýlishúsi. Hann veit eins og aðrir
að í þenslunni er oft erfitt að ná í iðn-
aðarmenn og þá getur verið freist-
andi að stytta sé leið. Þrautalending-
in er að kaupa svarta vinnu, semja við
einhvem um að taka að sér verkið
gegn því að það sé ekki gefið upp til
skatts. Svarta hagkerfið tekur á sig
hinar ótrúlegustu myndir, allir vita
um heimaslátrunina og síðustu tíð-
indin eru af útflytjendum hrossa,
sem hafa margir gleymt skattmanni.
Nýlega heyrði Víkverji að bóndi hefði
samið við gæsaskyttu í höfuðborginni
um eins konar vöruskipti: Skyttan
myndi útvega talsvert magn af sáð-
korni en í staðinn fá að nota land
bónda tii að veiða fiðurfénað sem
hann rækist á! En Víkverji veltir því
fyrir sér hvort allir íbúðareigendur
sem sameinast öðrum í stigahúsi um
að kaupa svarta vinnu viti hvað þeir
geta þurft að sætta sig við. Hvergi er
til reikningur fyrir starfinu, ef eitt-
hvað reynist rangt gert eða beinlínis
fúsk er erfitt um vik. Sum verk, eins
og glugga- og múrviðgerðir, eru þess
eðlis að svikin komast ekki upp fyrr
en löngu síðar. Þá fara gluggar að
leka og steypan að springa.
Hvað á þá að gera ef fúskarinn vís-
ar öllum kröfum á bug? Fara í mál og
viðurkenna um leið að vísvitandi hafi
verið farið á svig við skattalög? Fólk
gleymir því stundum að það er ekki
eingöngu iðnaðarmaðurinn sem hef-
ur brotið lög heldur líka viðskiptavin-
ir hans.
XXX
VINKONA Víkverja fór fyrir
skömmu á stúfana og ætlaði að
kaupa sér vandaða þvottavél og
þurrkara. Hún hefur gefist upp í bili
vegna dæmalaust lélegrar þjónustu í
fjórum fyrirtækjum sem hún heim-
sótti.
Hún hélt að þegar neytandinn
kæmi og ætlaði að kaupa tæki fyrir
samanlagt 100 þúsund krónur væri
reynt að segja eitthvað frá því sem í
boði væri, hvaða eiginleikum þau
væru búin og svo framvegis. „Það var
nú öðru nær. Mér var sagt að þetta
væri þvottavél og þarna væri þurrk-
ari. Punktur. Ekld er ég sjálf sér-
fræðingur í svona tækjum. Hvers
vegna í ósköpunum leggur verslunin
sig ekki fram um að veita einhverja
þjónustu, aðra en þá að taka við
greiðslunni?" sagði vinkonan og er
reynslusögunni hér með komið á
framfæri.