Morgunblaðið - 22.10.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000 B 11
Mótmæla launahækkun-
um stj órnmálamanna
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MIKIL reiði ríkir á Grænlandi
vegna tillögu sem liggur fyrir
Landsþinginu um að hækka laun
þingmanna um 40%. Gerist þetta á
sama tíma og stjórnmálamennirn-
ir hvetja almenning til að láta af
kröfum um launahækkanir og láta
sér 5-7% hækkanir á næstu tveim-
ur til þremur árum nægja.
Nú standa yfír Iqaraviðræður
við kennara og hefur þeim verið
boðin 1,5% hækkun nú og um 5% á
næstu tveimur árum. Þeir krefjast
hins vegar 16% hækkunar og hafa
hótað verkfalli 1. nóvember ef
ekki semjist.
Tillagan um launahækkun til
þingmanna hefur ekki verið sam-
þykkt enn en hún hefur vakið
mikla hneykslan og eru græn-
lensku blöðin full af lesendabréf-
um þar sem framferði stjórnmála-
mannanna er líkt við kalt borð sem
menn taki sér af að vild. í tillög-
unni er lagt til að laun þingmanna
sem búa utan höfuðstaðarins Nuuk
hækki úr 290.000 dkr., um 2,9
milljónir ísl. á ári, upp í 456.000
dkr., um 4,5 miHjónir ísl. Þeir sem
eru búsettir í Nuuk fái 426.000
dkr., um 4,5 milljónir ísl. kr. Þing-
hald er um fjórir mánuðir á ári en
verði af hækkuninni eru launin hin
sömu og danskir þingmenn fá fyr-
ir tvöfalt lengra þinghald. Þá er
lagí til að laun ráðherra hækki úr
tæpum 600.000 dkr. á ári upp f
720.000 dkr., um 7,2 milljónir.
Röksemdin fyrir hækkuninni er
sú að hæfara fólk fáist á þing ef
launin séu sómasamleg en fjöldi
þingmanna stundar önnur störf
samhliða þingstörfum vegna þess
að launin hrökkva ekki til. Tillag-
an hefur hins vegar vakið svo
sterk viðbrögð að stjórnarflokk-
arnir hafa klofnað í afstöðu sinni
til hennar þótt þeir hafi stutt hana
í fyrstu umræðu á þinginu.
Jafnaðarmenn (Siumut) í Ilul-
issat og Sisimiut hafa hvatt til þess
að almenningur Ieggi niður störf
31. október þegar tillagan verður
tekin fyrir á Landsþinginu öðru
sinni. Þá hafa vinstrimenn (Inuit
Ataqatigiit) nú kúvent í afstöðu
sinni og segja að ef launahækkun-
in gangi í gegn muni þingmenn
flokksins afsala sér henni og
Ieggja í sjóð fyrir starfsemi stjóm-
málaflokka.
Fjórar nýjar Thimbleberries bækur
Uppfullar af jólagjafahugmyndum
VIRKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477
www.virka.is
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
lau. kl. 10-16.
- Gœðavara
Gjafavara — malar- og kaffistell.
Allir verðflokkar.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versate.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Dísa í World Class segir:
„Loksins sýnilegur
árangur!"
„Loksins kom krem þar sem virknin
finnst þegar það er borið á húðina og
jafnframt sjáanlegur munur! Ég mæli
eindregið með Silhouette fyrir konur á
öllum aldri og eftir barnsburð er það al-
veg nauðsynlegt.
Nýja Body Scrubið er kærkomin
viðbót og tvöfaldar virkni Silhouette-
kremsins á húðina."
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
Yfir 1 7 milljónir afgreiðslustaða um allan heim
Tískulitir!