Morgunblaðið - 22.10.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.10.2000, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ 4 GUÐMUNDUR Páll tók á móti okkur á bryggjunni í Flatey á Breiðafírði með hjólbörur fyrir farangur- inn. Það var vetur í lofti og kul af landi, fjallahringur Breiða- fjarðar hulinn vetrarföli. Á veginum upp í þorpið voru kindaspörð og gæsa- drit og skæni á öllum pollum. Leiðin lá í hús Guðmundar Páls, Vorsali. Hlýtt nafn í haustnepjunni. Guðmundur sagði að þorpið í Flatey væri heildstæðasta byggð gamalla timburhúsa sem enn væri til hér á landi. Hann telur að vemda þyrfti þorpið í heild sinni, en það væri örðugt því ekki væri gert ráð fyrir öðru í lög- um en að hús væru friðuð eitt og eitt. Pað þyrfti því nokkra tugi húsfriðunar- skýrslna vegna þorpsins. Guðmundi svíður hvemig gömul hús hafa verið skemmd í stómm stíl víða um land, sama er að segja um förgun gömlu trébátanna. Hann talar með eft- irsjá um hvemig gamlar búsetuminjar, sjálf menningarsagan, hafa verið jafn- aðar við jörðu með jarðýtum. Gamlir garðar, gömul hús, hólar og hæðir sem settu svip á landslagið, allt sléttað út í flatneskju nútímans. Sólbakkalá oggrafínn þorskur Við tylltum okkur í borðstofunni og Guðmundur fór að stússa við eldavél- ina. Hann segist hafa gaman af elda- mennsku en yfirleitt ekki gefa sér tíma til hennar. „Meðan við bjuggum hér í Flatey var matarstússið stór hluti af tilvemnni. Á þeim tíma var enginn fiskur á gmnnslóð í Breiðafirði sem heitið gat og þá fór ég norður í Sól- bakka í Eyjafirði, reri til fiskjar og saltaði þorsk. Svo háfaði ég lunda, veiddi skarf og stundum gæs. Maður var líka með lambakjöt og keypti part úr nauti, svíni eða tryppi. Þetta var þáttur í því að komast af, því tekjumar vora afskaplega litlar. Þetta var líka ákveðinn lífsstíll.“ Það leynir sér ekki að hann kann ýmislegt fyrir sér í matargerð og rétt sú sjálfslýsing að hann sé fremur ævin- týramaður en fagmaður á því sviði. Meðal þess sem hann bar á borð var Sólbakkalá, hrár nætursaltaður þorsk- ur með hrárri eggjarauðu og söxuðum Það er óþarfi fyrir okkur að endurtaka sömu mistök og aðrir hafa gert í sambandi við stórvirkjanir og stóriðju, segir Guðmundur Páll. rauðlauk, einnig grafinn þorskur og heimatilbúin fiskkæfa. Fræðlmaður eða llstamaður Guðmundur Páll á óvenju fjölbreytt- an náms- og starfsferil að baki. Áuk háskólanáms í búvísindum og sjávar- líffræði, nam hann köfun, Ijósmyndun og myndlist. Guðmundur hefur starfað við kennslu, námsgagnagerð, fræði- störf, myndskreytingar, gerð kvik- mynda og unnið margvísleg störf til sjós og lands t.d. við endurbyggingu gamalla húsa. í þósi fjölfræðilegs bak- gmnns lá beint við að spyrja hvort hann hefði átt erfitt með að ákveða hvað hann ætlaði að verða þegar hann yrðistór? „Eg átti í miklu basli með það,“ segir Guðmundur og hlær. „Aðallega togað- ist tvennt á, einhvers konar fræði- mennska og svo löngun til að vera lista- maður, án þess að ég gerði mér grein fyrir því hvort ég hefði eitthvað til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.