Morgunblaðið - 05.11.2000, Side 4
í SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 29/10-4/11
► Kjarasamningar um 25
þúsund iaunþega í BSRB
og BHM runnu út á
þriðjudaginn. Félag fram-
haldsskólakennara hefur
boðað verkfall nk. þriðju-
dag, 7. nóvember, náist
ekki samningar fyrir
þann tíma.
► Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra, sagði á há-
degisfundi Sagnfræðinga-
félagsins að nýju
upplýsingalögin hefðu
orðið til þess að stjórn-
málamenn skrásetji
minna en áður. Samtöl
þeirra hafi meira gildi
fyrir niðurstöður þeirra
en gögn.
► Guðni Agústsson, land-
búnaðarráðherra, ákvað í
vikunni að heimila tak-
markaða tilraun með inn-
flutning á fósturvisum úr
NRF-kúastofninum
norska. Jafnframt mun
fara fram rannsókn á ævi-
lengd og afurðarsemi ís-
lenskra kúa.
► Seðlabankinn hækkaði í
vikunni stýrivexti bank-
ans um 0,8%. Birgir Isleif-
ur Gunnarsson seðla-
bankastjóri segir þetta
tilkomið m.a. vegna þess
að ekki hafi dregið úr út-
lánum í bankakerfinu.
► Sökum skekkju í upp-
drætti stendur hús
Nýherja við Borgartún 60
sentrimetrum út af af-
mörkuðum byggingarreit.
► Samstarfshópur bfl-
stjóra mótmælti verð-
hækkunum á eldsneyti
með því að teQa umferð
og loka aðkomu að birgð-
astöð olíufélaganna í Ör-
firisey á miðvikudag.
Kísilgúrvinnsla
úr hluta Syðri-Flóa
Mývatns
Siv Friðleifsdóttir, umhveríisráðherra,
staðfesti á miðvikudaginn úrskurð
skipulagsstjóra um heimild til efnis-
töku kísilgúrs á námusvæði 2 í Syðri-
Flóa Mývatns að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum og að vinnsludýpt verði tak-
mörkuð við 6,5 metra. Um leið var felld-
ur úr gildi úrskurður skipulagsstjóra
um kísílgúrvinnslu á námasvæði 2. I
úrskurði umhverfisráðuneytisins segir
að ekki hafi verið sýnt fram á að kísil-
gúrnám í Mývatni raski lífrfld vatnsins.
Gísli Már Gíslason stjómarformaður
Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við
Mývatn, sagði úrskurð umhverfisráð-
hen-a fyrst og fremst pólitískan og í
hrópandi mótsögn við rannsóknir og
álitsgerðir sem settar hafa verið fram
um áhrif kísilgúrvinnslu á Mývatn.
Mikillflöldiá
biðlista eftír húsnæði
í Reykjavík
Umsóknir frá 506 einstaklingum bíða
nú afgreiðslu hjá félagslega íbúðakerf-
inu í Reykjavík. Lára Bjömsdóttir, fé-
lagsmálastjóri í Reykjavík, segir að
breytingar á húsnæðiskerfinu samhliða
hækkun á fasteignaverði séu megin-
skýringamar á versnandi ástandi. Full-
trúar Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjóm lögðu fram tillögu á borgar-
stjórnarfundi á fimmtudag um að
borgin falli frá forkaupsrétti sínum á
ölfum félagslegum eignaríbúðum í
Reykjavík sem ekki lúta ákvæðum um
kaupskyldu. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri sagðist vera efnis-
Iega sammála tillögunni en lagði til að
umræðu yrði frestað m.a. til þess að
hægt yrði að ræða málið við félags-
málaráðherra. Borgarstjóri sagði að nú
biðu um 300 fjölskyldur, sem nánast
væm á götunni, eftir íbúð. Rfld og borg
yrðu að taka á þessu máli í sameiningu.
Rugova sigraði
í Kosovo
FYRSTU frjálsu sveitarstjómarkosn-
ingamar í sögu Kosovo-héraðs fóm
íram um helgina og hlaut Lýðræðislegi
demókrataflokkurinn, LDK, undir for-
ystu Ibrahims Rugova, meira en helm-
ing atkvæða. Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu, ÖSE, sá um fram-
kvæmd kosninganna og sagði
talsmaður samtakanna að hvorki hefði
komið til ofbeldis né kosningasvika og
þar með hefðu tvö aðalatriði verið upp-
fyllt. Flokkur Hashims Thacis, PDK,
fékk um fjórðung atkvæða en Thaci
sakaði liðsmenn LDK um að hafa
stundað víðtæk kosningasvik. Thaci
sagðist samt myndu virða úrslitin.
Kjörsókn var um 80% en á kjörskrá
vom um 900 þúsund manns, nær ein-
göngu Albanar. Þótt aðeins væri kosið
til sveitarstjóma var aðaláhugamál
flestra kjósenda og frambjóðenda sjálf-
stæði héraðsins. Nýr forseti Júgóslavíu,
Vojislav Kostunica, hefur sagt að Kos-
ovo skuli áfram vera hluti Júgóslavíu.
Mannfall á sjálfs-
stjórnarsvæðunum
BLÓÐUG átök geisuðu milli ísraela og
Palestínumanna á sjálfsstjómarsvæð-
unum í vikunni og bílsprengja varð
tveim ísraelum að bana í Jerúsalem á
fimmtudag. Sprengjutilræðið olli því að
ekkert varð úr vopnahléi sem Yasser
Arafat, leiðtogi Palestínumanna og
Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráð-
herra Israels, höfðu samið um að tæki
gildi aðfaranótt fimmtudags. Palest-
ínsku samtökin Jihad gáfú út yfirlýs-
ingu í Líbanon og sögðust hafa staðið á
bak við tilræðið.
Á miðvikudag skutu ísraelar flug-
skeytum að húsakynnum öryggissveita
palestínsku heimastjómarinnar á Vest-
urbakkanum en áður hafði komið til
átaka sem kostuðu sex Palestínumenn
ogsexísraelalífið.
► VLADÍMÍR Kramník frá
Rússlandi sigraði á
fimmtudag landa sinn
Gam' Kasparov, í einvígi
þeirra um heimsmeistara-
titilinn f skák i London. 15.
skákin af 16 alls endaði
með jafntefli og var titill-
inn þá í höfn hjá Kramník.
►SKOÐANAKANNANIR
í Bandarfkjunum sýndu lft-
inn mun á fylgi repúblik-
anans George W. Bush og
dcmókratans AI Gore,
nokkrum dögum fyrir
kjördag. Stuðningsmenn
Gore reyndu ákaft að fá
frambjóðanda græningja,
Ralph Nader, til að draga
sig í hlé í ríkjum þar sem
talið er að Gore hefði
möguleika á sigri ef liðs-
menn Naders yrðu að
kjósa á milli Gore og Bush.
► ANFINN Kallsberg, lög-
maður Færeyja, sagði á
þriðjudag að tekin yrði
upp ný stefha í sjálfstæðis-
málunum og yrðu fram-
vegis gildandi heima-
stjórnarlög höfð til
grundvallar. Vill Kallsberg
að lögin verði smám saman
felld úr gildi og Danir
dragi smám saman úr
fjárstuðningi sfnum. Þjóð-
aratkvæði verður um sjálf-
stæðisáformin f aprfl á
næsta ári.
► BOEING-breiðþotaí
eigu Singapore Airlines
fórst f flugtaki á Tafvan á
þriðjudag og með henni 79
manns. Er talið að flug-
stjórinn hafi notað ranga
flugbraut en fyrst var talið
að slæmt veður hefði vald-
ið siysinu.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Kirkja böðuð ljósum
SÓLRÍKUM sumardegi hefur verið varpað á veggi
Hallgrímskirkju á ljósahátíðinni. Það er verk finnsku
listakonunnar Kaisu Salmi, sem eru ljósmyndir af skýj-
um yfir í Norður-Finnlandi og litríkar myndir, sem hún
hefur sjálf málað. Myndunum verður varpað upp á
veggi Hallgrímskirkju kl. 21 og á miðnætti í kvöld og
annað kvöld.Kirkjan verður til skiptis böðuð finnskum
skýjum og myndum Kaisu.
Olía á fragtskip allt að
80% lægri í Rotterdam
KAUPI útgerðir fiskiskipa eða flutn-
ingaskipa olíuna á Rotterdam-mark-
aði fæst hún á allt að 80% lægra verði
en hjá olíufélögunum hér á landi.
Mestur er verðmunurinn í svartol-
íunni en mun minni í skipaolíunni, eða
flotaolíu eins og félögin nefna hana.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
í vikunni snerta verðhækkanir ís-
lensku olíufélaganna skipafélögin hér
á landi ekki jafn mikið og aðra kaup-
endur eldsneytis á innanlandsmark-
aði, þar sem félögin kaupa mestalla
olíu á flutningaskipin á Rotterdam-
markaði.
Verðmunurinn er misjafn eftir því
hvaða olíutegund er um að ræða.
Sumar tegundir sem skipafélögin
kaupa á Rotterdam-markaði fást
ekki hér á landi, einkum þykkri olíur.
Oh'a sambærileg við skipaohuna, sem
seld er hér á landi, fékkst á um 28
krónur lítrinn á Rotterdam-markaði
31. október sl., sem er um 2 krónum
minna en skipaolían fæst á hér, að
frátöldum virðisaukaskatti. Verð-
munurinn er um 7%, Rotterdam-
markaði í hag.
Svartolía, sambærileg þeirri sem
seld er hér á landi, fékkst á um 13.800
krónur tonnið á Rotterdam-markaði í
lok október. Með hækkuninni hjá ol-
íufélögunum hér heima um mánaða-
mótin fór tonnið af svartolíunni í um
30 þúsund krónur, með virðisauka-
skatti, en þar sem útgerðir skipa fá
skattinn endurgreiddan er verðið á
hvert tonn hér um 25 þúsund krónur.
Verðmunurinn á þessum tegundum
svartohu er um 80%.
Að sögn Kristjáns Ólafssonar hjá
Samskipum taka flutningaskip fé-
lagsins olíu á Rotterdam-markaði í
annarri eða þriðju hverri ferð þannig
að áfylhngin dugar til íslands og til
Evrópu aftur - og vel það. Á hinn
bóginn kaupir Samskip oftast skipa-
olíu hér á landi fyrir sldp sem sigla til
Bandaríkjanna, þar sem ohuverð
vestanhafs er mun hæn-a en á Rott-
erdam-markaði.
Félög í innanlandsflugi
Frekari hækkun
ekki útilokuð
FARGJALDAHÆKKANIR í inn-
anlandsflugi hafa verið nokkrar
vegna hækkandi eldsneytisverðs og
gengisfalls krónunnar. í ljósi síðustu
breytinga á verði eldsneytis og geng-
is voru talsmenn flugfélaganna innt-
ir eftir því hvort enn frekari hækk-
ana væri að vænta.
Talsmenn íslandsflugs og Flugfé-
lags íslands segja að ekki séu ráð-
gerðar hækkanir á flugfargjöldum
alveg á næstunni þó líklegt verði að
teljast að aðgerða sé þörf að öllu
óbreyttu. Þeir segja verið að skoða
stöðuna og að ætlunin sé að meta
þörfina á frekari hækkunum þegar
línur taka að skýrast í gengisþróun
og þróun verðlags á eldsneyti.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs, segir
frekari fargjaldahækkanir ekki ráð-
gerðar á næstunni. Þó segir hann lík-
ELDUR kom upp í vinnuskúr í
Kópavogi í fyrrinótt en slökkvihð
fékk tilkynningu um eldinn um kl.
hálfþrjú í nótt. Skúrinn, sem stendur
á byggingasvæði í Salahverfi, var al-
elda þegar slökkvihð kom á staðinn.
legt að um hækkanir geti orðið að
ræða verði áframhald á gengis- og
bensínhækkunum en ekki hafi verið
tekin um það ákvörðun enn. „Þetta
virðist vera merkilega samhliða,"
segir Ómar, „hækki olía styrkist
dollar að sama skapi. Við ætlum að-
eins að bíða og sjá hver þróunin
verður og taka svo í framhaldinu
ákvörðun um næstu skref.“
Hjá Flugfélagi íslands fengust
þau svör að ekki væri búið að taka
ákvörðun um hækkanir að svo
stöddu en ljóst að bregðast yrði með
einhveijum hætti við hækkunum á
gengi dollars og á eldsneytisverði.
Ami Gunnarsson, sölu- og markað-
sstjóri, segir að enn sé vonast til að
starfsumhverfið muni lagast en þó sé
„ekki ólíklegt að við þurfum að fara
að huga að hækkunum ef heldur
áfram sem horfir.“
Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Eldsupptök eru ókunn en að sögn
lögreglunnar í Kópavogi er talið víst
að kveikt hafi verið í skúrnum. Málið
er í rannsókn hjá lögreglunni í Kópa-
vogi.
Morgunbiaðið
Atvinnu-
auglýsing-
ar á Netinu
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sem birtast í Morgunblaðinu
verða frá og með deginum í dag,
sunnudag, einnig birtar á Net-
inu. Er með þessu verið að auka
þjónustu við viðskiptavini og
lesendin- Morgunblaðsins, að
sögn Önnu Elínborgar Gunn-
arsdóttur, rekstrarstjóra aug-
lýsingadeildar Morgunblaðsins.
Hægt er að nálgast auglýs-
ingamar á Netinu með því að
smella á hnapp hægra megin á
forsíðu fréttavefjar Morgun-
blaðsins, mbl.is, sem á stendur:
Vinnuvefur mbl.is.
Á vinnuvefnum er hægt að
leita að starfi eftir starfsheiti,
nafni fyrirtækis og vinnusvæði.
Einnig er hægt að láta senda til
sín atvinnuauglýsingar í tölvu-
pósti sem uppfylla þarfir við-
komandi. Óski notandi til dæm-
is eftir sölustarfi getur hann
látið senda til sín allar þær at-
vinnuauglýsingar sem óska eft-
ir slíkum starfskröftum.
Að sögn Önnu Ehnborgar
verður hver atvinnuauglýsing
tíu daga á Netinu nema óskað
sé eftir því að hún verði þar
lengur.
Vinnuskúr brann í Kópavogi