Morgunblaðið - 05.11.2000, Side 10
10 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDBÚNAÐUR
IVOR birtist grein eftir dr. Guðna Þor-
valdsson og kollega hans, Holger
Kirchmann, sem starfar við sænska
landbúnaðarháskólann, í alþjóðlegu
fræðiriti, Europenn Journal of Agron-
omy. Greinin, sem heitir Challenging Targ-
ets for Future Agriculture, fjallar um ýmis
vandamál nútíma landbúnaðar. Einnig
hvernig unnt verði að mæta síaukinni fæðu-
þörf mannkyns með framleiðslu heilsusam-
legra matvæla, án þess að valda umhveriis-
spjöllum og með því að fylgja ákveðnum
siðareglum.
„Eg hef komið að landbúnaði frá ýmsum
hliðum og haft áhuga á að hann sé stundaður
í sátt við umhverfið, um leið og við reynum
að hafa hann hagkvæman," sagði Guðni.
„Það eru ákveðin vandamál sem landbúnaður
á við að stríða, bæði hér og í öðrum löndum.
Vandamálin eru þó mismunandi eftir því
hvert landið er.“
Gæðastuðlar fyrir landbúnað
í greininni setja Guðni og Holger Kirch-
mann fram ákveðna gæðastuðla sem viðmið
fyrir landbúnað framtíðarinnar. Á grunni
gæðastuðlanna á að vera hægt að mæla
stöðu landbúnaðar, með tilliti til umhverfis-
vænleika, hollustu og hreinleika matvæla og
siðfræði.
„Ef við viljum hafa áhrif á þróunina, þá
verðum við að skilgreina markmið til að
stefna að,“ sagði Guðni. „Þarna höfum við
skilgreint ákveðnar vörður til að feta okkur
eftir þannig að landbúnaður verði stundaður
í sátt við umhverfið, holl matvæli framleidd
og jafnframt farið eftir ákveðinni siðfræði
gagnvart landinu, fólkinu og búsmalanum.
Við teljum að það sé mjög mikilvægt að
standa á ákveðnum siðferðisgrundvelli í öll-
um þessum málum.“
Guðni segir að gæðastuðlamir eigi að geta
gilt fyrir landbúnað hvar sem er í heiminum.
Þess vegna eru sumir þættir nokkuð fram-
andi íslenskum búskap. „Margt af því sem
við bendum á er þegar haft í heiðri. Við er-
um ekki endilega að finna upp eitthvað nýtt,
heldur drögum saman þá þætti sem við telj-
um að standa þurfi vörð um.“ Gæðastuðlarn-
ir eru nítján talsins og skiptast í sex flokka.
Varðveisla jarðvegs
Fyrsti flokkurinn lýtur að varðveislu jarð-
vegs. Undir hann fellur uppblástur og upp-
söfnun salts í jarðvegi, frjósemi jarðvegs,
þjöppun jarðvegs og jarðvegsmengun.
Guðni segir að neikvæð áhrif íslensks
landbúnaðar á umhverfið hafi fyrst og fremst
verið á sviði uppblásturs og gróðureyðingar.
Beitarstjómun og nýting beitilanda hljóti því
að vera ofarlega á baugi hjá okkur.
Erlendis standa bændur einnig frammi
fyrir vanda vegna uppblásturs, einkum upp-
blæstri akurlendis. Þegar akramir em opnir,
t.d. eftir uppskem á haustin, tapast jarð-
vegur við fok. Guðni bendir á að sumt af
jarðvegsfokinu endi á gróðurlendi eða ógrón-
um holtum en sumt fari á haf út. Á sama
tíma og jarðvegur eyðist er jarðvegur að
myndast, til dæmis við niðurbrot bergs. Það
ferli tekur þó langan tíma.
Uppsöfnun salts er ekki vandamál hér á
landi, en þar sem ríkir hlýtt loftslag og úr-
koma er lítil flytur uppstreymi grunnvatns
með sér ýmis efni, þar með talin sölt, upp í
yfirborðslag jarðvegsins. Vatnið gufar síðan
upp og saltið verður eftir. Það er mikilvægt
að varðveita jarðveginn og heilbrigði hans,
því hann er undirstöðuþáttur landbúnaðar.
„Jarðvegur er lengi að myndast, hann er
auðlind í sjálfu sér og hana bera að varð-
veita," segir Guðni.
Það er ekki nóg að varðveita jarðveginn
sjálfan heldur verður að viðhalda frjósemi
hans. „Það verður að sjá til þess að í stað
þeirra næringarefna sem fara burt með af-
urðunum komi sömu efni aftur í jarðveginn.
Það getur verið með lífrænum áburði, tilbún-
um áburði eða jafnvel áveitu. Það verður
bara að sjá til þess að frjósemi eða landgæði
rýrni ekki stórlega."
Þungar landbúnaðarvélar geta valdið
þjöppun jarðvegs sem hindrar eðlilegt
streymi vatns og lofts og getur varnað því að
rætur nái nógu langt niður. Efsta lagið er
hægt að plægja, en meira mál er að eiga við
dýpri lög jarðvegsins. Þar sem frost gengur í
jörðu hjálpar það til.
Einnig verður að gæta þess að jarðvegur
mengist ekki. Guðni segir að varnarefni, t.d.
gegn meindýrum og illgresi, geti safnast fyr-
ir í jarðvegi. Þótt sífellt sé verið að leita að
umhverfisvænni varnarefnum, þá sé best að
vera laus við þau. Þegar notaður sé lífrænn
úrgangur til áburðar þá verði einnig að gæta
þess að hann sé ekki mengaður. Erlendis er
til dæmis notað botnfall úr skólpi til áburðar.
í því geta leynst þungmálmar og önnur
mengandi efni. Þá þarf að gæta að kadmíum
í fosfóráburði, að það sé eins lítið og kostur
er.
Önnur lífhvolf
Auk varðveislu jarðvegs þarf að gæta þess
að landbúnaður spilli hvorki andrúmslofti né
grunnvatni. Til dæmis þarf að gæta þess að
varnarefni eða plöntunæringarefni berist
hvorki út í andrúmsloft né grunnvatn.
„Tap næringarefna út í umhverfið getur
verið vandamál, hvort sem er í hefðbundum
eða lífrænum landbúnaði. Nitur getur til
dæmis borist með jarðvatni í ár og læki, en
Gæðastuðlar
fyrir landbúnað
Varðveisla jarðvegs
Uppblástur og saltmyndun
Frjósemi
Þjöppun
Mengun
Varðveisla annarra lífhvolfa -
andrúmslofts og grunnvatns
Notkun varnarefna
Losun næringarefna
Losun gróðurhúsalofttegunda
Varðveisla auðlinda
Vatnsnotkun
Hringrás plöntunæringarefna
Orkunotkun
Líffræðileg fjölbreytni
Gæði landbúnaðarafurða
Næringargildi
Mengun
Hreinlæti
Ásýnd sveitanna
Landslag
Sveitabæirnir
Siðfræði
Fólkið
Búsmalinn
Umhverfið
það tapast einnig í formi lofttegunda sem
valda gróðurhúsaáhrifum. Metan er önnur
lofttegund sem til dæmis kemur úr búfjár-
áburði og frá kúm.
Ofauðgun næringarefna, sem verður þegar
næringarefni skolast úr jarðvegi og safnast í
vötn og ár, hefur víða verið vandi. Þessi of-
gnótt næringarefna getur valdið þörunga-
blóma og öðrum vanda. Einhver útskolun
næringarefna á sér einnig stað í náttúrulegu
gróðurlendi og getur verið jákvæð upp að
vissu marki, hún eykur frjósemi í ám og
vötnum. Guðni segir að vandi af þessum toga
sé ekki áberandi hér, ef um slíkt sé að ræða
þá sé vandinn mjög staðbundinn. „Hér eru
túnin svo dreifð, langt á milli bæja og túnin
smáskikar þar í kring og svo eru víðáttu-
miklir úthagar. Miklu minna tapast af nær-
ingarefnum úr túnum, sem eru hulin gróður-
þekju allt árið, en þar sem eru opnir akrar
hluta ársins."
Ör mannfjölgun kallar á aukna
framleiðslu matvæla. Land-
búnaöur gegnir þar stóru hlut-
verki. Nýlega settu vísinda-
mennirnir dr. Guðni
Þorvaldsson og dr. Holger
Kirchmann fram hugmyndir
um gæðastuðla fyrir landbún-
að framtíðarinnar. Guðni Ein-
arsson hitti dr. Guðna Þor-
valdsson ogfræddist um
hvernigtryggja megi aö bú-
skapurverói í sátt við umhverf-
ið og hagkvæmur bæði bænd-
um og búsmala.
Morgunblaöið/Kristinn
Dr. Guðni Þorvaldsson er sérfræðingur á Rannsóknastofnun landbúnaðarins.