Morgunblaðið - 05.11.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.11.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 11 Morgunblaöið/Brynjar Gauti Guðni segir að gæta verði þess að nota hóflegt magn áburðar og einnig hvenær bor- ið sé á. Útskolun ræðst miklu fremur af slík- um þáttum en því hvort áburðurinn er á líf- rænu eða ólífrænu formi „Það þarf að bera á þegar plönturnar geta tekið við áburðinum,“ segir Guðni. Náttúrulegar auðlindir varðveittar Þriðji flokkurinn lýtur að varðveislu nátt- úrulegra auðlinda. „Víða er vatnsskortur vandamál og þar þarf sérstaklega að gæta að vatnsnotkun, en þetta er ekki vandamál hér á landi,“ segir Guðni. „Við þurfum að stuðla að sem mestri hringrás næringarefna, að þeim næringar- efnum, sem numin eru burt, sé skilað til baka.“ Guðni segir að sérstaklega þurfí að huga að þessu þar sem stundaður er mjög einhæfur búskapur. Þar sem er búfjárhald koma 70-80% næringarefna aftur til baka í formi búfjáráburðar. En til dæmis þar sem einungis er stunduð kornrækt, en ekkert bú- fjárhald, þá þarf að kaupa næringarefni sem lífrænan eða tilbúinn áburð. „Mikilvægur hlekkur í þessari hringrás er að saman fari jarðrækt og búfjárhald í þeim mæli sem því verður við komið. Ein ástæða þess að við hvetjum til þess að stuðlað sé að þessari hringrás er að það er dýrt að flytja næringarefni um langan veg. Það er mjög óæskilegt að búfé sé safnað saman í miklu magni á einu svæði og svo séu önnur stór svæði þar sem einungis er akuryrkja. Frá þessu sjónarhorni er æskilegt að ekki verði algjör sérhæfíng í búskap á stórum svæðum. Þetta þýðir hins vegar ekki að hvert býli verði að hafa búfé.“ Það er einnig keppikefli að stilla orkunotk- un í hóf, hvort heldur olíu- eða rafmagns- notkun. Landbúnaður sem er algjörlega háð- ur aðfluttum aðföngum, svo sem fóðri eða áburði, er orkufrekari en ella og flutnings- kostnaður verður mikill. Líffræðileg fjölbreytni Lögð er áhersla á varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni. Guðni segir að umræðan um inn- flutning norskra kúa sé gott dæmi um það. „Það er töluverður breytileiki í búfé heims- ins. Til þess að hann glatist ekki og við miss- um ekki svo og svo mikið af erfðaefni þá verðum við að varðveita það markvisst. Til dæmis eru svartskjöldóttu kýrnar víða hafð- ar til mjólkurframleiðslu í Ameríku og Evrópu. Ef við gáum ekki að okkur gætu þær orðið eina kúakynið. Hinum yrði út- rýmt.“ Þess vegna hafa verið stofnaðir genb- ankar bæði fyrir plöntur og búfé. Guðni seg- ir að Islendingar séu aðilar að norrænum genbönkum fyrir plöntur og búfé. Hollusta og hreinleiki Þessi flokkur snertir ekki bara bændur heldur alla keðjuna frá bónda til verslunar. Landbúnaðurinn verður ávallt að keppa að því að viðhalda gæðum afurða og að fram- leiða vörur sem innihalda nauðsynleg nær- ingarefni. Guðni segir að ef ekki sé sífellt höfð gát á þessum þáttum geti gæðin rýrnað. Einnig sé hægt að bæta afurðir með kynbót- um og erfðatækni. Það hafí til dæmis verið gert með hrísgrjón sem voru bætt þannig að þau innihéldu meira af A-vítamíni. Það skipti miklu fyrir heilbrigði fólks í löndum þar sem hrísgrjón eru uppistaða í daglegri fæðu. Auk þess að tryggja næringargildi mat- væla þarf að gæta þess að þau mengist ekki, hvorki úr jarðvegi, lofti eða við meðhöndlun eftir uppskeru. Einnig að hreinlæti sé við- haft á öllum stigum framleiðslunnar. ímynd og siðfræði Einn flokkurinn snýr að útliti sveita og einstakra bændabýla. Lögð er áhersla á góða umgengni og snyrtimennsku í stóru sem smáu. „Þetta snýst um ímynd og fegurðar- skyn. Flestir vilja hafa hreint og snyrtilegt í kringum sig, ekkert drasl. Það er erfitt að sannfæra neytendur um ágæti framleiðsl- unnar, að varan sé holl og góð, ef umhverfi framleiðslunnar segir allt annað,“ segir Guðni. Síðasti flokkurinn snýr að siðfræði. „Sið- ferði er mjög mikilvægt að okkar mati, að það gildi ákveðnar leikreglur á þessu sviði, eins og öði-um í samfélaginu," segir Guðni. Þessar leikreglur snúa m.a. að fólkinu sem vinnur í greininni; að því séu búin mann- sæmandi skilyrði til að lifa. Eins að um- gengni við náttúruna sé til fyrirmyndar í víð- asta skilningi. Að búfénaði sé vel sinnt og hann búi við bestu skilyrði. Einnig að þeim sem fást við landbúnað séu Ijósar þær skyld- ur sem þeir hafa gagnvart umhverfinu. Þessi siðvæðing á að tryggja að fólki sem vinnur við landbúnað líði vel, að búfé líði vel og um- hverfinu sé ekki misboðið og auðlindir ekki skemmdar. Að menn beri bæði virðingu og umhyggju fyrir þessum þáttum. íslenskur landbúnaður - Ef þessar mælistikur eru lagðar á ís- lenskan landbúnað, hvar kreppir þá skórinn helst? „Fyrir nokkrum árum reyndi ég að gera mér grein fyi-ir því hvar við þyrftum helst að taka okkur á. Þá fannst mér það helst vera varðandi beitar- og uppgræðslumál og losun sorps og annars úrgangs á sveitabýlum. Töluvert hefur verið unnið í þessu hvoru tveggja á undanförnum árum. Uppblástur og jarðvegseyðing hér er mikil, samanborið við það sem gerist annars staðar. Þar spila sam- an margir þættir, bæði sem snerta manninn og náttúruöflin," segir Guðni. - Eru bændafólki og búfé búin þau skil- yrði sem æskilegt er? „Þegar á heildina er litið tel ég að vel sé búið að búpeningi þó undantekningar séu vissulega til. Hér eru til dæmis forðagæslu- menn á hverju svæði sem fylgjast með fóður- öflun og fóðrun. Mér finnst hins vegar mikið vinnuálag á bændum og tekjur þeirra of litl- ar.“ Gæðamælir landbúnaðar - Hvernig verður gæðastuðlunum komið í framkvæmd? „Draumur okkar hefur verið að búa til kerfi, á grundvelli þessara gæðastuðla, til að meta ástand landbúnaðar á einstökum býl- um, landsvæðum eða á landsvísu,“ segir Guðni. „Þá yrði gefin einkunn fyrir hvern þessara stuðla og þannig hægt að meta hvernig hver eining landbúnaðar, býli, land- svæði eða land, stendur sig. Bæði heildar- einkunn og einkunn á einstaka þætti. Ég tel einnig æskilegt að gefa stuðlunum mismun- andi vægi. Vægið gæti verið mismunandi milli einstakra héraða eða landa. Sums stað- ar er ofauðgun næringarefna stóra vanda- málið og þá fengi sá þáttur aukið vægi þar. Annars staðar er ofauðgun lítið vandamál og þá yrði vægi þess þáttar minna.“ Lífrænn landbúnaður Ýmsar þjóðir hafa litið á lífrænan landbún- að sem ákveðna lausn, en þeir Guðni og Holger Kirchmann telja að lífrænn landbún- aður leysi ekki allan vanda nútíma landbún- aðar. Hvers vegna ekki? „Mörg þau vandamál sem við er að glíma í hefðbundnum landbúnaði eru líka til staðar í lífrænum iandbúnaði." segir Guðni. - Hvaða vandamál eru það? „Raunar eru það flest vandamál landbún- aðar, nema að í lífrænum landbúnaði eru ekki notuð hefðbundin varnarefni gegn ill- gresi, sjúkdómum eða meindýrum." Guðni segir að í lífrænum landbúnaði sé leyft að nota ýmis varnarefni, en þau séu af öðrum toga en þau sem notuð eru í hefð- bundnum landbúnaði. Þar sé um að ræða náttúruleg efni, sem líka geti verið skaðleg. Þá ber að hafa í huga að plöntur framleiða sjálfar eiturefni til að verja sig gegn sjúk- dómum og meindýrum. Vegna meiri tak- markana á varnarefnanotkun í lífrænum landbúnaði skapar hann þó mun minni hættu á þessu sviði. í staðinn geta þó skapast vandamál af öðrum toga t.d. vegna meiri um- ferðar þar sem illgresi er eytt með verkfær- um „Annars er mjög lítið notað af vamarefn- um yfirleitt í landbúnaði hér. Venjulegur íslenskur bóndi notar nánast ekkert, nema kannski á kartöflumar sínar.“ Lífrænn eða ólífrænn áburður Guðni gerir ekki greinarmun á því hvort næringarefnin eru framleidd í verksmiðju eða era lífræn að uppruna, til dæmis hús- dýraáburður. „Plöntur taka næringarefnin upp á ólífrænu formi að langmestu leyti, - ekki lífrænu. Næringarefni sem bundin eru, til dæmis í búfjáráburði, brotna fyrst niður í ólífrænt form áður en plantan tekur þau upp. Lífrænn áburður getur hins vegar verið mjög góður fyrir jarðvegsbygginguna. Fram- leiðsla tilbúins áburðar felst í því að safna saman næringarefnum, ýmist úr andrúms- lofti eða jarðefnum og koma þeim á meðfæri- legt fonn.“ - Gera plöntur þá engan greinarmun á þvi hvort næringarefnin era úr lífrænum áburði eða verksmiðjuframleiddum? „Nei, planta tekur nitur yfirleitt upp sem ammóníumjón eða nítratjón og þær geta komið hvort sem er úr tilbúnum áburði eða búfjáráburði. Hins vegar er tilbúni áburður- inn oftast auðleystari en sá lífræni, svo áburðarefnin koma í stærri skömmtum. Því er hægt að stjórna og það er til tilbúinn áburður sem er torleystur svo að efnin losni hægt.“ Guðni segir að það hafi aldrei verið sýnt fram á kosti næringarefna úr lífrænum áburði umfram næringarefni úr tilbúnum áburði. „Ég er mjög hlynntur því að við not- um vel allan þann lífræna áburð sem við höf- um, en ég tek ekki undir það að ekki megi líka nota unninn ólífrænan áburð. Það era engin vísindaleg rök fyrir því. Önnur upp- spretta niturs eru belgjurtir og þær nýtast bæði í lífrænum og hefðbundnum landbún- aði. Notkun þeirra er að aukast hér á landi. Það hvort landbúnaður er rekinn í sátt við umhverfið felst í öðrum hlutum en þeim grundvallarmun sem er á þessum tveimur formum landbúnaðar."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.