Morgunblaðið - 05.11.2000, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 05.11.2000, Qupperneq 32
32 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. STJÓRNMÁLASAGAN SAGNFRÆÐINGAFÉLAG ís- lands efndi til fundar sl. þriðju- dag, þar sem Davíð Oddsson, forsætisráðherra, svaraði frá sínu sjónarhorni spurningu um það hvað stjórnmálasaga sé. Hafa ummæli for-, sætisráðherra um þetta efni vakið verulega athygli. Hann minnti á tilhneigingu manna til þess að gera sinn hlut sem beztan í frásögnum af liðnum atburðum og jafnframt hvað minni manna getur verið varhugavert, þegar fjallað er um löngu liðna tíma. Hann lýsti þeirri skoðun, að beinir vitnisburðir væru mikilvægir fyrir sögulegar niður- stöður. Dagbækur væru betri en síðari tíma frásagnir, jafnvel þótt þær kynnu að vera litaðar af sjónarmiðum skrifar- ans og jafnvel beinlínis hugsaðar til að réttlæta orð hans og gerðir síðar meir. Forsætisráðherra sagði það sína persónulegu skoðun, að ævisögur, sem stjórnmálamenn skrifuðu sjálfir, væru betri en þær sem skrifaðar væru af öðrum en í nánu samstarfi við viðkom- andi eða ættingja hans. Þetta er áhugavert umfjöllunarefni. Sumir sagnfræðingar telja, að lítið sé á munnlegum heimildum að byggja og telja, að fyrst og fremst eigi að skrifa söguna út frá þeim skriflegum gögn- um, sem fyrir hendi eru. Fyrir þá sagnfræðinga eru þau ummæli Davíðs Oddssonar umhugsunarefni, að nýju upplýsingalögin hafi orðið til þess að minna sé til af skriflegum heimildum nú orðið. „Ekki er vafi á því, að lögin geta hjálpað og hafa hjálpað umræð- unni á líðandi stund en hætt er við, að framtíðarheimildirnar verði fyrir vikið rýrari,“ sagði forsætisráðherra. Það er hins vegar áreiðanlega rétt, sem Davíð Oddsson sagði í erindi sínu hjá Sagnfræðingafélaginu, að hver og einn þátttakandi í atburðarás samtím- ans hefur tilhneigingu til þess að lita frásögn sér í hag og hvað er þá á slík- um frásögnum byggjandi? Kannski er kjarni málsins sá, að les- endur ævisagna eða sagnfræðirita eiga ekki að líta svo á, að í þeim bókum felist einhver algildur sannleikur um þau málefni, sem um er fjallað. Sagan er sjónarhorn eða sýn þess, sem skrif- ar, á þá atburði. Stríðssaga Churchills, sem forsæt- isráðherra vék að í erindi sínu, er merkileg lesning en hún lýsir fyrst og fremst sjónarmiði Churchills. Það er hægt að færa rök að því, að margir þeirra Vesturlandabúa, sem hafa skrifað um heimsstyrjöldina síðari hafi gert of mikið úr hlut Vesturveld- anna í að ráða niðurlögum Hitlers og herja hans og of lítið úr hlut Sovétríkj- anna. Því meir, sem skrifað er af sagn- fræðiritum um heimsstyrjöldina síð- ari, þeim mun sterkari verður sú skoðun, að stríð Hitlers hafi tapazt á austurvígstöðvunum. Rit Alan Clarks, Barbarossa, sem út kom fyrir nokkr- um áratugum er m.a. undirstrikun á þessu sjónarmiði. Hið sama má segja um rit brezka sagnfræðingsins Richard Overy. Það getur verið ákaflega fróðlegt fyrir þátttakendur í sögulegum við- burðum að kynnast því með lestri sagnfræðirita hvernig ungir sagn- fræðingar, sem byggja söguritun sína fyrst og fremst á skriflegum heimild- um, sjá þá atburði þegar horft er til baka nokkrum áratugum síðar. Þeir hinir sömu þurfa ekki að vera sammála túlkun síðari tíma en hún getur engu að síður verið forvitnileg. Návígið á íslandi gerir sagnfræði- ritun erfiðari en ella. Allir þekkja alla eða hafa tengsl hingað og þangað. Þetta kom skýrt í ljós, þegar umtalað ritverk Kristjáns Albertssonar um Hannes Hafstein kom út fyrir u.þ.b. fjórum áratugum. Stjórnmáladeilur aldamótanna voru endurvaktar með eftirminnilegum hætti af afkomendum þeirra, sem komu við sögu í ritinu um Hannes Hafstein. Önnur og þriðja kynslóð tók upp málsvörn fyrir forvera sína. Það voru ævintýralegar umræð- ur, sem þá fóru fram um pólitík alda- mótaáranna. Af þessum sökum m.a. getur verið erfitt fyrir unga sagnfræðinga að fjalla á hlutlægan hátt um atburði fyrri tíma. Með umfjöllun sinni geta þeir komið illa við ættingja og vini. Ritun stjórnmálasögunnar er hins vegar mikilvæg og umræður af því tagi, sem Sagnfræðingafélagið og Davíð Oddsson hafa efnt til, því mjög gagnlegar og líklegar til að vekja um- ræður um grundvallaratriði sagn- fræðiritunar. Forystugreinar Morgunblaðsins 4. nóvember 1990: „Núver- andi fjármálaráðherra Breta, John Major, hefur lagt fram tillögur um evrópskan gjald- miðil, sem eru frábrugðnar þeim hugmyndum, sem nú eru uppi innan framkvæmda- stjórnarinnar og meðal ann- arra áhrifamanna innan EB. Tillögur Majors stefna að því, að settur verði upp evrópskur gjaldmiðill, sem nota megi jafnhliða gjald- miðlum einstakra aðildar- ríkja bandalagsins en komi ekki í staðinn fyrir þá. í þing- ræðu sinni lýsti Thatcher þeirri skoðun, að tillögur Majors gætu leitt til sameig- inlegs gjaldmiðils, þegar til lengri tíma væri lítið, þ.e. á æviskeiði nokkurra kynslóða, en persónuleg skoðun henn- ar var, að þessi gjaldmiðill yrði ekki mikið notaður! I kjölfar þessarar ræðu Thatchers hafa stjórnmála- menn og fréttaskýrendur í Bretlandi rætt þann mögu- leika, að brezki forsætis- ráðherrann hyggist heyja næstu kosningabaráttu sína á þeim grundvelli, að hún ætli að verja sjálfstæði Breta og ef nauðsyn krefji á þeim forsendum, að aðildarríki Evrópubandalagsins þrói samvinnu sína eftir tveimur mismunandi leiðum, þar sem einhver hópur aðildarrikj- anna fari sér hægar en önnur aðildarríki.“ 5. nóvember 1985: „Sú ákvörðun ríkissjóðs að hækka ávöxtunarkjör á spariskírteinum ríkissjóðs með því að lækka sölugengi þeirra hefur að vonum vakið nokkra eftirtekt. Nokkrum dögum áður höfðu þær fregnir borizt af hinum al- menna verðbréfamarkaði að vextir færu lækkandi vegna töluverðs framboðs af pen- ingum. I kjölfar ákvörðunar ríkissjóðs er hins vegar kom- in hreyfing á lífeyrissjóði og fjárfestingarsjóði að hækka vexti á útlánum þessara að- ila. Loks hefur orðið vart hreyfingar hjá viðskipta- bönkum og sparisjóðum að hækka vexti, bæði vegna vaxtahækkunar ríkissjóðs og eins vegna þess að verðbólg- an fer vaxandi og almennir sparisjóðsvextir eru nú langt fyrir neðan verðbólgustigið... Ríkisstjórnin á að því leyti til erfiðara um vik nú en fyrir tveimur árum, að hún er búin að missa töluvert af þeim stuðningi, sem hún hafði í upphafi við efnahagsaðgerðir sínar. Hún hefur ekki jafn sterka stöðu nú til þess að leita stuðnings við nýjar og harkalegar aðgerðir í efna- hagsmálum. UMRÆÐUR UM afstöðu okkar fslendinga til Evrópusambandsins hafa fram að þessu fyrst og fremst snúizt um það, hvort það hentaði hags- munum okkar vegna sjáv- arútvegsins að sækja um aðild að ESB. í nýlegri skýrslu Halldórs As- grímssonar, utanríkisráðherra, um ísland og ESB er ítarlegur kafli um sjávarútvegsmál. Hver sá, sem les þann kafla getur ekki komizt að ann- arri niðurstöðu en þeirri, að það sé óhugsandi fyr- ir okkur íslendinga að óbreyttri sjávarútvegs- stefnu Evrópusambandsins að sækja um aðild. Talsmenn umsóknar hafa að vísu haldið því fram, að það mundi ekki koma í ljós fyrr en á reyndi í samningaviðræðum hvaða undanþágur við gætum tryggt okkur frá gildandi sjávarút- vegsstefnu. Veruleikinn er hins vegar sá, sem kemur glögglega fram í skýrslu utanríkisráð- herra, að við gætum aldrei samið okkur frá því, að formleg yfirráð yfir fiskveiðilögsögu okkar færð- ust til Brussel. Það eitt í sjálfu sér útilokar aðildaramsókn. Samningaviðræður mundu engu breyta um þetta grandvallaratriði. Það er ekki óeðlilegt að umræður um þetta málefni hafi fyrst og fremst tekið mið af hags- munum höfuðatvinnugreinar okkar. Þegar upp var lagt í samstarfi Evrópuríkja á þessum vett- vangi var fyrst og fremst um að ræða samstarf á sviði atvinnu- og efnahagsmála. Samstarfið sner- ist um sameiginlega hagsmuni á þessum sviðum og mótaðist af því í áratugi. Með ákvörðun Evrópusambandsins um að taka upp sameiginlegan gjaldmiðil, evruna, má segja að þetta samstarf á sviði efnahags- og atvinnu- mála hafi veríð fullkomnað, ef hægt er að nota það orð á annað borð. Sameiginlegur gjaldmiðill Evrópuríkja mun augljóslega greiða mjög fyrir allri atvinnu- og viðskiptastarfsemi í Evrópu, auka samkeppni og gera allan samanburð á milli einstakra ríkja auðveldari. Það verður erfiðara fyrir bílaframleiðendur að selja bíla á hærra verði í einu landi en öðra, svo að dæmi sé nefnt. Hér á Islandi hafa líkað vaknað spurningar um það, hvort tilkoma evrannar mundi einhverju breyta um afstöðu okkar til Evrópusambandsins. Gæti farið svo, að viðskiptalegir hagsmunir okkar af því að komast inn á evrasvæðið yrðu svo miklir að þeir mundu yfirgnæfa þá hagsmuni, sem við hefðum af því að halda fiskveiðilögsögu olckar ut- an lögsögu Evrópusambandsins? Núverandi rík- isstjóm lét líka taka saman skýrslu um það efni. Niðurstaða hennar var í stuttu máli sú, að ekki væri tilefni til þess að óbreyttu. Öðra máli gegndi, ef Danir, Svíar og Bretar gerðust aðilar að evra- svæðinu. Þá gæti farið svo, að við yrðum að endurmeta stöðu okkar. Lengi var talið, að þessar þrjár þjóðir mundu innan örfárra ára gerast aðilar að evrasvæðinu. Fyrr á þessu ári var Kenneth Clark, fyrrverandi fjármálaráðherra Breta og einn af helztu forystu- mönnum brezkra íhaldsmanna í heimsókn hér á landi. Hann lýsti þeirri skoðun, að þjóðar- atkvæðagreiðsla mundi fara fram í Bretlandi á næsta ári, bandalag evrasinna úr Verkamanna- flokki og íhaldsflokki mundi sigra í þeirri at- kvæðagreiðslu og Bretar gerast aðilar að evra- svæðinu innan nokkurra ára. En skjótt skipast veður í lofti. Danir felldu í þjóðaratkvæðagreiðslu að gerast aðilar að evr- unni. Ritstjóri eins virtasta dagblaðs á Bretlandi sagði í samtali við viðmælanda sinn fyrir nokkr- um dögum, að þjóðaratkvæðagreiðsla um evruna mundi ekki fara fram í Bretlandi næstu fimm ár- in. Að sjálfsögðu getur enginn fullyrt neitt um hversu sannspár ritstjórinn verður en ummæli hans endurspegla afstöðu manna í Bretlandi um þessar mundir. Líkurnar á því, að við Islendingar stöndum frammi fyrir því álitamáli á næstu misserum, hvort við þurfum að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu vegna viðskiptahagsmuna okkar og áhrifa evrunnar eru því um þessar mundir sára- litþar. í Evrópu er nú mikil gerjun um framtíð sam- starfs Evrópuríkja innan Evrópusambandsins. Umræður um þau málefni era komnar langt út fyrir hugleiðingar um viðskiptahagsmuni eða sameiginlegan gjaldmiðil. Það er augljóst, að um- ræður um samstarf Evrópuríkja á breiðum grandvelli, þ.e. núverandi aðildarríkja ESB og þeirra fjölmörgu ríkja, sem sækja á um aðild snúast nú fyrst og fremst um pólitík. Það er hinn pólitíski þáttur í þessu samstarfi, sem er að verða yfirgnæfandi í öllum umræðum á meginlandi Evrópu. Hér hafa verið færð rök að því, að frá sjónar- hóli okkar íslendinga sé aðild að Evrópusam- bandinu óhugsandi, þegar horft er til málefna sjávarútvegsins og fiskveiðilögsögunnar. Enn- fremur að vangaveltur um nauðsyn aðildar vegna áhrifa evrannar séu ótímabærar með öllu og líkur á því, að þær komist á dagskrá á næstu áram mjöglitlar. En hvemig horfir afstaða okkar til samstarfs Evrópurílqa við, ef við metum það út frá pólitísk- um hagsmunum okkar íslendinga? í miðju Atiantshafi Utanríkisstefna okkar Islendinga frá lýðveldis- stofnun hefur óhjá- kvæmilega mótast af legu lands okkar. Við erum ekkert sérfyrirbæri í þeim efnum. Það á við um allar þjóðir. Utanríkisstefna Þjóðveija markast af því, að land þeirra er á eins konar krossgötum á milli ríkja í Vestur-Evrópu og Mið- og Austur-Evrópu. Og þannig mætti lengi telja. Við höfum byggt upp nokkra trausta hom- steina í utanríkispólitík okkar. Einn þeirra er samstarf okkar við Bandaríkjamenn. Það hefur byggzt á tvennu. í fyrsta lagi því að Bandaríkin voru fyrsta þjóðin til þess að veita íslenzka lýð- veldinu viðurkenningu. Og í öðru lagi á vamar- samstarfi okkar við Bandaríkin. Bandaríkjamenn hafa tekið að sér samkvæmt sérstökum samningi, sem hefur verið báðum þjóðum til hagsbóta að tryggja öryggi Islands. Fyrstu áratugina eftir lýðveldisstofnun og á meðan Evrópa var að rétta úr kútnum eftir heimsstyrjöldina síðari var Bandaríkjamarkaður mikilvægasti útflutnings- markaður okkar íslendinga. Það hefur breytzt. Viðskiptahagsmunir okkar vestan hafs era miklir en ekki jafn miklir og áðm\ Annar hornsteinn utanríkisstefnu okkar er ná- ið samstarf við Norðurlöndin. Við eigum meira sameiginlegt með þeim þjóðum en nokkram öðr- um. Þar koma til sameiginlegar rætur og menn- ingararfleið, skyld tungumál og áþekk lífsviðhorf. í meginatriðum höfum við byggt þjóðfélag okkar upp með svipuðum hætti og aðrar Norðurlanda- þjóðir hafa gert og t.d. er fyrirmynd að nútíma löggjöf okkar að veralegu leyti sótt til Norður- landanna. Þriðji homsteinn utanríkisstefnu okkar er náið samstarf við önnur Evrópuríki. Það byggist í stórum dráttum á þremur meginstoðum. I fyrsta lagi lítum við svo á, að vegna uppruna okkar og sögulegrar arfleifðar séum við Evrópuþjóð, þótt við búum í útjaðri Evrópu. Við eigum að því leyti til meira sameiginlegt með Evrópuþjóðum en t.d. þjóðum Norður-Ameríku, þótt hvergi búi fleira fólk af íslenzku bergi brotið utan íslands en ein- mitt í Norður-Ameríku. í öðru lagi höfum við átt mjög náið samstarf við Vestur-Evrópuþjóðir í rámlega hálfa öld. Það samstarf hefur farið fram á vettvangi Atlants- hafsbandalagsins en einnig á fjölmörgum öðrum sviðum. Við eram þátttakendur í öllum helztu sameiginlegu stofnunum Evrópuríkjanna. Við gerðumst aðilar að EFTA fyrir 30 árum og höfum gert sem aðilar að EFTA samning við Evrópu- sambandið, sem tengir okkur mjög sterkum böndum við það samstarf, sem fram fer innan þess. Sumir segja, að aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu þýði í raun að um 90% alls sam- starfs innan ESB nái til okkar. Aðrir ganga ekki lengra en svo, að það nái tU um 70% þess sam- starfs. í þriðja lagi er hér um að ræða helztu við- skiptaþjóðir okkar. Af þessu er ljóst, að utanríkisstefna okkar mót- ast mjög af því, að við búum miðja vegu á milli Evrópu og Ameríku hér norður í Atlantshafi. Á liðnum árum og áratugum hefur ekkert gerzt, sem hefur breytt þessum grundvallaratrið- um í utanríkispólitík okkar íslendinga. Hún er á traustum granni byggð. Lok kalda stríðsins hafa að sjálfsögðu dregið úr þeim umsvifum, sem voru á Keflavíkurflugvelli á þeim tíma en þau tímamót hafa engu breytt um þá höfuðnauðsyn að sjálf- stætt ríki tryggi öryggi sitt með einhverjum hætti. Þótt breytingar hafi orðið á framkvæmd varnarsamningsins og Bandaríkjamönnum hafi fækkað á Keflavíkurflugvelli eins og eðlilegt er, breytir það engu um mikilvægi vamarsamnings- ins sem slíks fyrir okkur íslendinga. Hins vegar er ljóst eins og áður sagði, að mikil gerjun er í umræðum um samstarf ESB-ríkj- anna. Þau stefna að æ nánara samstarfi á hinu pólitíska sviði. í því felst m.a. að þau stefna að nánari samvinnu í varnar- og öryggismálum. Hvaða áhrif hefur það á samstarfið innan Atlants- hafsbandalagsins? Flest bendir til að forystuþjóð- ir Evrópu, a.m.k. Þjóðverjar og Frakkar, stefni á að byggja upp eins konar bandaríki Evrópu. Ný réttindaskrá fyrir borgara í aðildarríkjum Evrópusambandsins er af mörgum talin vísir að stjórnarskrá fyrir hin nýju bandaríki Evrópu. Breytir þessi þróun innan Evrópusambandsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.