Morgunblaðið - 05.11.2000, Side 35

Morgunblaðið - 05.11.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ______________________ _____________________________SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 35^ HUGVEKJA MINNINGAR Frá tíund til tæknmldar Aldrei í sögu þjóðarinnar hafa jafn margir haft það jafn gott. Stefán Friðbjarnarson segir að þess vegna sé þjóðin betur í stakk búin til a^ð bæta stöðu þeirra er ver standa að vígi. Löggjöf um fá- tækraframfærslu tók litlum breyting- um frá gildistöku Jónsbókai- (lagasafn frá um 1280) fram til ársins 1834, er ný fá- tækralög komu til sögunnar. Ákvæði Jónsbókar, sem lutu að fátækrahjálp, rekja rætur til tíund- arlaga Gizurar bisk- ups Isleifssonar frá árinu 1096. Aðstoð af þessu tagi kom þó fyrr til sögunnar. Sterkar líkur standa til þess að starfsemi hreppanna, sem kunna að vera eldri en íslenzka ríkið (930), hafí einkum snúiztumfram- færslumál. Reyndar einnig um trygging- ar, því ef bær brann eða búsmah féll, bættu allir. Eldri ákvæði um tryggingar eru vandfundin meðal germanskra þjóða. Samherjar biskupsins við setn- ingu tíundarlaga vóru Sæmundur fróði Sigfússon í Odda, Markús lögsögumaður Skeggjason o.fl. Tíund var eignaskattur, goldinn í tvennu lagi, vor og haust. Fjórð- ungur hennar rann til fátækra. Fátækratíund var helzti tekju- stofn hreppanna til framfærslu fram yfír 1800. Það er söguleg staðreynd, sem talar sínu máli, að kirkjan átti frumkvæði og stærst- an hlut að lögskyldri aðstoð við fátæka í landinu. Framfærsla hreppanna kom þó ekki til fyrr en framfærslu- skyldu fjölskyldu og ættmenna þraut. Gísli Agúst Gunnlaugsson sagnfræðingur segir í bókinni Saga og samfélag (Sagnfræði- stofnun Háskóla íslands 1997): „Framfærsluskylda ættmenna var mjög víðtæk samkvæmt ákvæðum Jónsbókar. Sem dæmi um þetta má nefna að hjónum bar að framfæra hvort annað. Þau áttu að sjá fyrir foreldrum sínum og bömum, systkinum og ná- komnum ættingjum. Uppruna- lega náði „frændaframfærsla“ til allfjarskyldra ættingja, en með fátækrareglugerð 1834 var hún nokkuð takmörkuð (við gagn- kvæma framfærsluskyldu þre- menninga)." Höfundur þessa pistils hefur hvorki blaðrými né þekkingu til að rekja sögu stuðnings við þurf- andi á Islandi út í hörgul, en hún hefur breytzt mikið á 20. öldinni, með tilkomu almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar sveitar- félaga. Hann taldi hins vegar ástæðu til að minna á mikilvægan þátt kirkjunnar við gerð tíundar- laga, sem mörkuðu að hluta til upphaf lögbundinnar aðstoðar við þurfandi fólk. Miklu veldur sá er upphafinu veldur. Ábyrgðin á hag náungans kemur glögglega fram í fomum samfélagsreglum um framfærslu. Framkvæmd þessara reglna var hins vegar oft ábótavant í tímans rás. Félagsleg aðstoð ríkis og sveit- arfélaga annó 2000 er sem fyrr- um kostuð af „tíund", sem sótt er í eigur og tekjur skattgreiðenda. Öllum er Ijóst að einhvers konar „tíundartaka" er óhjákvæmileg til að borga brúsa almannatrygg- inga, félagslegrar aðstoðar, heil- brigðiskerfis, menntunar þjóðar- innar o.sv.fv. Að skorast undan „tíundargreiðslu“ af þessu tagi er hvort tveggja: lágkúra og lög- brot. En að því þarf vel að hyggja að forsenda þess að skatttekjur geti risið kostnaðarlega undir þessum velferðarþáttum er að byggja upp og varðveita hag- kerfi, þjóðfélagsgerð, sem skilar nægjanlegum arði eða verðmæt- um, nógu gildum skattstofnum, til að rísa kostnaðarlega undir velferðinni. Það hefur okkur tek- izt að flestu leyti, þótt enn megi auka verðmætasköpun þjóðar- búsins. Þegar fyrsta manntalið var tekið á Islandi, árið 1703, vóru ís- lendingar rúmlega fimmtíu þús- und. Samkvæmt niðurstöðum þess vóru „niðursetningar“ 6.789 talsins eða 15,5% þjóðarinnar. Þessi tala var mjög breytileg í tímans rás, eftir árferði til sjávar og sveita. Náttúruhamfarir og pestir (stóra bóla, svarti dauði) léku og þjóðina illa. Fjöldaflótti til Ameríku á síðustu áratugum 19. aldar var neyðarráð fólks sem bjó við lítt bærar aðstæður. Sitt hvað má betur fara í ís- lenzku samfélagi nú við árþús- undaskipti. Við getum þó sagt með sanni, að aldrei hafi jafn margir haft það jafn gott. En mitt í velferðinni eru til minnihluta- hópar, sem aðstæður hafa helt úr hagsældarlestinni. Það er skylda samfélagsins að rétta hlut þeirra. Nú eins og ævinlega halda að- stæður einstaklingum frá tekju- öflun: bernska, elli, fötlun, sjúk- dómar og fleiri gildar ástæður. Þessu fólki þarf að búa viðunandi afkomu. Breytt aldurskipting þjóðarinnar (lengri meðalævi) veldur og ört hækkandi hlutfalli aldraðs fólks. Það kallar óhjá- kvæmilega á vaxandi heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Þjóðfélagið þarf að mæta þessari þörf. En fyrst og síðast þurfum við öll, ung og aldin, að rækta með okkur þau kristnu viðhorf, sem að baki bjuggu tíundinni 1096, sem kennd er við Gizur biskup. Von- andi hefur þjóðin þróast og þroskast nokkuð í mannúðar- og réttlætisátt á þessum tíma. + Berglmd Eiríks- dóttir fæddist 24. september 1977. Hún lést á heimili sínu, Borgarholtsbraut 38 í Kópavogi, hinn 25. október. Útför Berg- lindar fór fram frá Kópavogskirkju 3. nóvember síðastlið- inn Það er ævinlega þungur harmur því fylgjandi að missa sína nánustu. Harm- urinn er því þeim mun þyngri þegar ungt fólk deyr rétt þegar lífið er að byrja og svo er mikið eftir ógert. Engin orð fá því lýst hvernig fólki er innan- brjósts við þá lífsreynslu að verða þess áskynja að nútímavísindi og þekking fá engu ráðið. Þá er nauð- synlegt að geta leitað huggunar í trú sinni. Það er bæn okkar að nánustu aðstandendum Berglindar Eiríksdóttur, sem lést 25. október sl., takist að leita slíkrar huggunar nú þegar syrt hefur í lofti. Berglind hlaut í vöggugjöf mikla eðliskosti sem hún nýtti vel allt til hinsta dags. Þar verða efst í huga miklir aðlögunarhæfileikar, kjark- ur og dugnaður, auk þess sem henni lét einkar vel að vera í for- ystusveit hvar sem hún var. Hún var ákaflega blíð, skapgóð og kunni þá kúnst að láta lítið fyrir sér fara um leið og hún hafði lagni til þess að stjórna þvi sem þurfti. Hún var ekki há í loftinu þegar hún tók að sér á sinn eðlilega og yfirvegaða hátt að stýra mann- skapnum þegar fjölskylda og vinir söfnuðust saman. Þar fengu allir hlutverk við sitt hæfi og sá Bergl- ind til þess að enginn var skilinn útundan. Leikrit voru sett á svið, farið var í leiki og ungir sem aldn- ir höfðu af því gaman að vera virk- ir þátttakendur en aðrir fengu not- ið úr áhorfendastúkum hvort sem það var í stofum fjölskyldunnar á jólum og í afmælum eða í ferðalög- um á fjöllum. Berglind var ákafleg virk og áræðin og leysti viðfangsefni sín fljótt og vel. Hún tók strax sem barn virkan þátt í öllu félags- og tómstundalífi. Hún æfði íþróttir, sund, tónlist og söng í kór og gerði hvað eina sem til góðs horfði. Hún tók snemma til hendinni á vinnumarkaði og hafði þótt ung væri mikla starfsreynslu á mis- munandi sviðum. Henni lét best að hafa mörg járn í eldinum. Hún gekk hefðbundna menntabraut og tók stúdentspróf vorið 1997. Það kom kannski ekki á óvart þegar hún ákvað að hefja nám í leikskóla- skor við Kennarahá- skóla Islands haustið 1998. Þá þegar hafði hún með öllu sínu at- ferli sýnt og sannað að hæfileikar henni myndu nýtast í framtíðinni í starfi sem uppalandi, sem hinn mildi, hugsunarsami og öruggi for- ingi sem allir gátu treyst. Með að- dáunarverðri þrautseigju tókst henni að ljúka síðasta vetri þrátt fyrir erfiðar lækningameðferðir sem hverjar ráku aðrar. Sýndi það best að Berglindi var ekki fisjað saman. Sagt er að enginn fái ráðið sín- um næturstað og það hefur sann- ast nú þegar Berglind varð að lúta í lægra haldi fyrir ólæknandi sjúk- dómi. Þegar sýnt var að hverju stefndi gaf hún skýr fyrirmæli um að halda skyldi öllu sem eðlileg- ustu. í eitt skiptið gerði hún at- hugasemd við aðstandendur um, þegar áhyggjur og kvíði settu ekki óeðlilegt mark á svip þeirra, hve þreytulegir þeir væru. Aðdáunarverður var dugnaður hennar og æðruleysi síðustu vik- urnar. Okkur sem eftir sitjum er hollt að líta til þessa mikla kjarks og staðfestu Berglindar við að tak- ast á við hlutskipti sitt. Nú ertu leidd, mín Ijúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga’ og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stóL (Hallgr. Pét) Megi allar góðar minningar tengdar Berglindi verða eftirlif- andi ástvinum huggun í sorginni. Fjölskyldan, Álftamýri 15. Kæra Berglind okkar. Vinum þínum í Gesthúsi Dúnu langar til að þakka þér fyrir ánægjulega samveru og samstarf á undanförnum 5 árum. Við miníf- umst þess þegar þú komst 16 ára gömul ásamt Asdísi, móður þinni, í gesthúsið að sækja um vinnu. Þú varst fremur feimin en treystir þér alveg til að vinna öll verkin, sem voru talin upp. Þú stóðst þig frábærlega og gátum við fljótlega treyst þér fyrir fyrirtækinu eins og það lagði sig. Ánægjulegast var þegar þú komst til okkar eftir að þú byrjaðir nám í Kennaraháskóla Islands og sóttist eftir vinnu áfram með skólanum. Þú sagðir einlæg: „Það er svo gott að vinna hjá ykk- ur.“ Þessum orðum þínum munum við aldrei gleyma. Berglind mín, það var gott að njóta starfskrafta þinna og gaman var að ræða framtíðaráform þín á góðum stundum. Við trúum því að þú fáir að Ijúka þeim á öðrum stað, þar sem þrautir þínar eru minni. Kæra fjölskylda, Ásdís, Eiríkur, Bryndís, Ingþór og Tómas, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð og biðjum guð að blessa ykkur. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson.) Margrét og Torfi. Elsku Berglind mín. Eg sit hér heima og minning- arnar hellast yfir mig. Minningar um þig og okkur og allt sem á mjili okkar var. Ég á að vera sorg- mæddur þegar ég velti mér upp úr öllu sem gerst hefur en ég get það ekki vegna þess að þegar ég sé þig fyrir mér þá ertu alltaf brosandi og hlæjandi og þó svo þú sért farin þá hefurðu enn svo smitandi hlátur að ég er sjálfur farinn að brosa. Þannig mun ég minnast þín alltaf með bros á vör og ég er svo þakk- látur fyrir þessi fimm ár sem okk- ur voru gefin. Ég sakna þín óendanlega mikið. í hvert sinn sem hjarta mitt slær kallar það á þig. Ég elska þig Berglind og mun ávallt gera! ÞinnTómas (Tommi.) BERGLIND EIRÍKSDÓTTIR ELIN G. JÓHANNESDÓTTIR + Elín G. Jóhann- esdóttir fæddist á Sauðárkróki 6. nóvember 1916. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánu- daginn 10. janúar síðastliðinn. títför Elínar var gerð frá Neskirkju 18. janúar siðastliðinn. Síðbúin kveðja Tíminn er fljótur að líða. Eitt ár liðið frá því að ég gladdist með Ellu og fjöl- skyldu hennar, 6. nóv. 1999. Elín G. Jóhannesdóttir (Ella) var mikil og góð vinkona mín og það kom stórt skarð í minn vinahóp við fráfall hennar. Er ég hugsa til baka, til þess tíma er móðir Ellu, Ólína Ben., eins og við kölluðum hana á Króknum, og móðir min, Ólína Bjömsdóttir í Gamla bakaríinu, unnu saman við veitingarekstur í Bifröst, samkomu- húsinu á Sauðárkróki, ásamt Helgu Jóhann- esar, koma fram í huga mér minningar um þijár góðar vin- konur, sem áttu það sameiginlegt að hafa allar orðið ekkjur ung- ar, með mörg böm hver. Ég kom oft í heim- sókn í Erlendarhús, en svo var æskuheimili Ellu nefnt. Þar kynnt- ist ég henni og systk- inum hennar, sem öll urðu góðir vinir mínir. Ella hvarf af Króknum, hún fór til Reykjavíkur í atvinnuleit. Hér syðra kynntist hún Guðmundi Mar- inó Ingjaldssyni, sem seinna varð eiginmaður hennar. Ég man eftir þeim sem fallegum ástfóngnum hjónum öll þau ár, sem þau áttu saman, en Mari dó 11. 2. 1979. Heimili þeirra á Sólvallagötunni var alveg sérstakt. Þar ríkti friður og ró og snyrtimennska yfir öllu. Mik- ið var þar af fallegum hlutum, sem Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Pað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Mari hafði keypt á Englandi, en þangað sigldi skip hans á stríðsár- unum. Seinna hætti hann til sjós og gerðist verkstjóri á Hrafnistu. Þá var Ella mín glöð, þegar hún fékk eiginmann sinn í land og hann varð þátttakandi j daglegu lífi hennar og bamanna. Ég gisti stundum hjá þeim hjónum á ferðum mínum til Reykjavíkur og fann hve ég var vel- komin. Ella var mér sem eldri syst- ir alla tíð. Á heimilinu var Ólína, móðir Ellu, og átti þar góða daga, til æviloka. Já, heimili þeirra Mara og Ellu var svo gott og bar af öllu sem ég hafði kynnst og vinátta þeirra hjóna og bama þeirra var mér mikils. virði. Hinn 6. nóv. síðastliðinn átti ég ánægjulega samverustund með Ellu og fjölskyldunni á heimili elstu dóttur hennar og tengdasonar í til- efni afmælis hennar. Þetta var fal- legur hópur. Ella og Mari eignuð- ust hóp afkomenda og mundi hún nöfn þeirra allra og hvað þau störf- uðu. Að lokum vil ég endurtaka orð tengdasonar hennar sem hann skrifaði í minningargrein um Ellu hinn 18. janúar 2000. Þar stendur: Þessi trausta skagfirska kona, ráð- vönd og háttvís. Þessi einlæga kona gerði sér far um að lifa í samræmi við trú sína. Það er ekki hægt að lýsa vinkonu minni Ellu betur en tengdasonur hennar gerir. Ég kveð Ellu með virðingu og þökk. Gígja Snæbjamar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.